Lífið

Heimsmet í augnamjólkursprautun

Afar sérkennilegt heimsmet var sett í Tyrklandi í gær þegar maður spýtti mjólk út úr auganu á sér lengst allra. Það var tyrkneski mjólkurpósturinn Ilker Yilmaz sem reyndi við heimsmetið og freistaði þess að komast í Heimsmetabók Guinnes. Í annarri tilraun náði hann að spýta mjólkinni næstum þrjá metra með þessari einkennilegu aðferð. Fulltrúi frá Heimsmetabók Guinness var á staðnum til að skrá metið. Það er svo spurning hvort einhver Íslendingur hafi áhuga á að slá metið með íslenskri mjólk eða mjólkurafurðum. Hægt er að horfa á fréttina úr morgunsjónvarpi Stöðvar 2 með því að smella á hlekkinn hér að neðan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.