Sport

Örn aðeins með í einni grein á ÓL

Örn Arnarson mun aðeins keppa í einni grein Ólympíuleikunum í Aþenu sem hefjast í næsta mánuði. Örn verður á meðal keppenda í 50 metra skriðsundi en tekur ekki þátt í neinni af baksundskeppnunum, sem hafa verið sterkasta hlið Arnar í gegnum tíðina. Örn hefur átt við meiðsli í öxl að stríða og ekki náð að beita sér af fullum krafti í undirbúningnum fyrir leikana. Í tilkynningu frá Sundsambandi Íslands segir að sú staða kalli á tiltekið endurmat á væntingum sundsamfélagsins á Íslandi um möguleika á úrslitasæti í Aþenu. Sá frestur sem SSÍ gaf til að ná lágmörkum á Ólympíuleikana rann út í gær og er orðið ljóst hverjir keppa fyrir Íslands hönd á leikunum. Auk Arnar eru það Hjörtur Már Reynisson, Íris Edda Heimisdóttir, Jakob Jóhann Sveinsson, Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, Lára Hrund Bjargardóttir og Ragnheiður Ragnarsdóttir sem taka þátt. Jakob og Ragnheiður eru einu keppendurnir sem taka þátt í tveimur greinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×