Undramark Pálma Rafns 11. júlí 2004 00:01
FH og KA gerðu 2–2 jafntefli í lokaleik fyrri umferðar Landsbankadeildar karla í Kaplakrika í gærkvöldi en bæði liðin komust yfir og jöfnuðu metin í leiknum. Það var að lokum Pálmi Rafn Pálmason sem tryggði KA-mönnum stig með óvæntu skoti af 30 metra færi – sannkölluðu undramarki, því það tók félaga hans nokkra stund að átta sig á því að Pálmi Rafn hefði skorað. „Nei, þetta var engin heppni, boltinn fór nákvæmlega þangað sem hann átti að fara,“ sagði Pálmi Rafn eftir leikinn en hann var langbesti leikmaður KA í leiknum og yfirburðarmaður á vellinum ásamt FH-ingnum Allan Borgvard sem skoraði eitt marka FH. Eftir daufa byrjun lifnaði heldur betur yfir leiknum í seinni hluta fyrri hálfleiks. Jóhann Þórhallsson kom KA-mönnum yfir með skalla eftir fyrirgjöf Deans Martin en FH-ingar voru búnir að snúa leiknum sér í vil fyrir leikhlé. Fyrst skoraði Atli Viðar Björnsson af stuttu færi og þá Allan Borgvardt eftir laglegt samspil við varamaninn Jónas Grana Garðarsson. Jónas Grani hafði komið inn fyrir Ármann Smára Björnsson skömmu áður en Ármann fékk slæmt höfuðhögg. Síðari hálfleikur var daufur í heildina litið, FH-ingar náðu aldrei sama takti í leik sinn og þeir sýndu í lok fyrri hálfleiks og KA-menn áttu skilið jafntefli. Fylkismenn halda því enn tveggja stiga forskoti á toppnum þrátt fyrir að hafa aðeins náð inn tveimur stigum í síðustu þremur leikjum sínum. Enn eitt tækifæri FH til að komast á toppinn rann þeim því úr greipum í Kaplakrikanum í gær. FH-KA 2-2 0–1 Jóhann Þórhallsson 28. 1–1 Atli Viðar Björnsson 36. 2–1 Allan Borgvardt 44. 2–2 Pálmi Rafn Pálmason 66. Dómarinn Erlendur Eiríksson Slakur Bestur á vellinum Pálmi Rafn Pálmason KA Tölfræðin Skot (á mark) 13–10 (6–6) Horn 6–3 Aukaspyrnur fengnar 18–8 Rangstöður 1–1 Mjög Góðir Allan Borgvardt FH Pálmi Rafn Pálmason KA Góðir Heimir Guðjónsson FH Sverrir Garðarsson FH Jóhann Þórhallsson KA Þorvaldur Guðbjörnsson KA
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Körfubolti Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Fótbolti Fleiri fréttir Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Sjá meira