Agi hjá Mourinho 11. júlí 2004 00:01
Jose Mourinho, hinn nýi knattspyrnustjóri Chelsea, hefur heldur betur lagt mark sitt á liðið þá tæpu viku sem það hefur verið við æfingar. Skipulag Mourinho er slíkt að aðrir forkálfar innan félagsins gapa af undrun á æfingasvæðinu. Það fyrsta sem Moruinho gerði á fyrstu æfingunni á sl. mánudagsmorgun var að gefa hverjum og einum leikmanni vænan bækling sem tilgreinir allar þær skyldur sem leikmenn undir hans stjórn hafa og verða að hafa lært fyrir fyrsta leikinn í deildinni, gegn Manchester United 15. ágúst. Eiður Smári Guðjohnsen segist hrífast af vinnubrögðum Mourinho. "Hann er vissulega nýbyrjaður en þetta lítur mjög spennandi út. Svona skipulag lætur manni finnast vera hluti af liðinu alveg frá upphafi. Hann er svo skipulagður og þegar hann segir að æfing eigi að vera 90 mínútur að lengd, þá er síðasta teygjan gerð á 90. mínútu. Agi er orð sem öðlast allt aðra merkingu hjá Mourinho og hefur hann heldur betur bætt ofan á reglur á borð við að ekki megi nota farsíma á æfingasvæðinu og aðrar í þeim dúr. Leikmenn þurfa að mæta á slaginu klukkan níu á æfingasvæðið og skulu snæða saman morgunverð í klukkustund áður en morgunæfingin hefst. Leikmenn hafa útvistarbann og mega ekki yfirgefa heimili sín eftir miðnætti á virkum dögum. Leikmenn verða að vera farnir að sofa fyrir klukkan tvö, jafnvel þótt að langt sé í næsta leik. Þá munu menn þurfa að mæta snyrtilegir til fara á æfingar til að sýna fram á stílbragðið sem er við lýði hjá félaginu.
Íslenski boltinn Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Breiðablik - Víkingur | Geta unnið tólfta leikinn í röð Íslenski boltinn Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Fótbolti Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Körfubolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Fótbolti Fleiri fréttir Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Curacao - Fílabeinsströndin | Kemur smáþjóðin aftur á óvart? Ekvador - Þýskaland | Veik von Ekvadora Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Breiðablik - Víkingur | Geta unnið tólfta leikinn í röð Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sjá meira