Jói Kalli ekki til Rangers 15. júlí 2004 00:01
Jóhannes Karl Guðjónsson, knattspyrnumaður hjá Real Betis á Spáni, mun að öllum líkindum ekki vera á leið til skoska stórveldisins Glasgow Rangers. Breskir fjölmiðlar voru duglegir að bendla Jóhannes við hin ýmsu lið í síðustu viku og bar þar hæst nafn Rangers. Heimildamenn Fréttablaðsins í Skotlandi segja hinsvegar að Rangers hafi réttilega haft spurn af stöðu mála hjá Jóhannesi og Betis, en hafi fljótlega beint sjónum sínum annað og misst áhugann á miðjumanninum baráttuglaða. Real Betis hefur samþykkt að sleppa Jóhannesi frá félaginu án greiðslu en samt sem áður er ekki búið að ganga frá öllum atriðum varðandi brottför Jóhannesar frá félaginu. Jóhannes vill fá borgaðan hluta af þeim þremur árum sem hann á eftir af samningi sínum við félagið en forráðamenn Betis eru ekki reiðubúnir að gangast við því. Jóhannes segist hins vegar sjálfur ætla að slaka verulega á kröfum sínum fari svo að hann fái freistandi tilboð annars staðar frá, en ljóst er að það verður ekki frá Rangers eins og rætt hafði verið um. Mörg félög hafa borið víurnar í Jóhannes að undanförnu, m.a. lið frá Hollandi og Þýskalandi sem og í ensku 1. deildinni, en að sögn Jóhannesar hafa engin formleg tilboð boðist ennþá.
Íslenski boltinn Mest lesið Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Enski boltinn Lyon krækir í leikmann Liverpool Enski boltinn Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Fótbolti Ómar Björn: Misreiknaði boltann Fótbolti Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Íslenski boltinn Snéri til baka úr krabbameinsmeðferð og lokaði leiknum Sport Eir og Ísold mæta á EM Sport Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti Fleiri fréttir Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Snéri til baka úr krabbameinsmeðferð og lokaði leiknum Eir og Ísold mæta á EM Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Frank Mill er látinn „Sagt að mér gæti blætt út“ Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Sjá meira