Miklir yfirburðir hjá ÍA 8. ágúst 2004 00:01
Fyrirfram var búist við hörkuleik þegar KA tók á móti Skagamönnum á heimavelli sínum á Akureyri í gær. Sú varð aldeilis ekki raunin og lauk leiknum með stórsigri gestanna, 0-5. Skagamenn voru miklu betri allan leikinn en framan af áttu þeir í erfiðleikum með að skapa sér færi þó svo að þeir hefðu farið með tveggja marka forystu inn í hálfleik. Það var síðan eftir að KA-menn höfðu misst tvo leikmenn útaf með rautt spjald, fyrst Ronnie Hartvig og síðan Pálmi Rafn Pálmason á 54. mínútu, að allar flóðgáttir opnuðust. Gestirnir tóku þá öll völd á vellinum og voru með boltann nánast allan þann tíma sem eftir var. Marktækifærin voru eftir því og bættu leikmenn ÍA við þremur mörkum til viðbótar á síðasta hálftímanum. Skagamenn spiluðu oft á köflum mjög lipurlega þar sem boltinn gekk hratt manna á milli og enduðu flestar sóknir hjá þeim með skoti eða sendingu fyrir markið þar sem Sandor Matus greip vel inn í. KA menn spiluðu gjörsamlega hugmyndasnauðan bolta og var stundum eins og þeir vissu ekki hvað þeir ættu að gera á vellinum. Er það mikið áhyggjuefni fyrir KA. Liðið er nú komið í vond mál í 9. sæti deildarinnar og verða að fara að vakna til lífsins ef ekki á illa að fara. KA-ÍA 0-5 0-1, Ellert Jón Björnsson 20 mín. 0-2, Stefán Þ. Þórðarson 43 mín, víti 0-3, Ellert Jón Björnsson 59 mín, 0-4, Þorsteinn Gíslason 85 mín. 0-5, Gunnlaugur Jónsson 89 mín.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Íslenski boltinn „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Íslenski boltinn Zubimendi með tvö í frábærum sigri Enski boltinn Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Fótbolti Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Fótbolti Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Fótbolti Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Handbolti Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Sport Dagskráin í dag: Enska úrvalsdeildin aftur af stað eftir hlé Sport Fleiri fréttir Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik Mark Sveindísar duggði skammt Í beinni: Brentford - Chelsea | Bláliðar hafa byrjað vel Endurkomusigur í ótrúlegum sjö marka leik Sævar hetjan í endurkomusigri Brann Arnór tryggði Norrköping stig í Íslendingaslag „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Sigur í fyrsta leik Andra í enska boltanum Grótta og Ægir upp í Lengjudeildina Nýi maðurinn hetja Newcastle og skrautlegt sjálfsmark Leeds Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Heimsmethafinn hélt út Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Enginn Orri er tíu Madrídingar unnu Real Sociedad Zubimendi með tvö í frábærum sigri Fagnar eins og Gyökeres og bjó til skýringu Reiður eftir að Yamal var látinn taka verkjalyf til að geta spilað Sneri við á HM og studdi keppinaut í mark Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Heimir ekki rekinn þó sumir kalli eftir því Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur „Síðasti hálfi mánuðurinn hefur verið hundleiðinlegur“ Dagskráin í dag: Enska úrvalsdeildin aftur af stað eftir hlé Brynjólfur leikmaður mánaðarins í Hollandi Sjá meira