Tónlist

Fréttamynd

Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir and­látið

Tíu óútgefin lög sem tónlistarmaðurinn David Bowie samdi og tók upp snemma á ferli sínum verða gefin út í september þessa árs. Þegar þau voru tekin upp gekk hann undir listamannanafninu Davie Jones en breytti því skömmu seinna til að forðast að vera ruglað saman við söngavarann Davy Jones úr hljómsveitinni The Monkees.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Undir­staða Hörpu mun hristast undir hreinum og ó­menguðum krafti“

Þungarokkshljómsveitin Manowar snýr til Íslands í annað sinn í nóvember þessa árs og heldur tvenna tónleika í Hörpu, en sveitin er sem stendur á tónleikaferðalagi um heiminn. Uppselt var á tónleika Manowar í Reykjavík síðasta sumar en meðal þeirra sem lögðu leið sína í salinn Silfurberg var Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands.

Tónlist
Fréttamynd

Lands­lið ís­lenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar

Bylgjan fór í loftið 28. ágúst 1986 og fagnar því fjörutíu ára afmæli í ár. Af því tilefni kom landslið íslenskra söngvara saman og tók upp slagarann „Lífið er lag“ eftir súpergrúppuna Módel í sérstakri fjörutíu ára afmælisútgáfu sem var frumflutt á Bylgjunni í dag.

Tónlist
Fréttamynd

Söngvari YMCA látinn

Victor Willis, bandarískur söngvari diskósveitarinnar Village People sem var geysivinsæl á áttunda áratugnum fyrir slagarann YMCA, er látinn 74 ára að aldri.

Tónlist
Fréttamynd

Hall­dór Haralds­son er látinn

Halldór Haraldsson, píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lést í gær, þann 29. júní, þá 89 ára gamall. Foreldrar hans voru Haraldur Halldórsson og Hólmfríður Gísladóttir en hann lætur eftir sig eiginkonu, tvö börn, barnabörn og barnabarnabörn. 

Tónlist
Fréttamynd

Quarashi hyggst „Do it again“

Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi.

Tónlist
Fréttamynd

Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur at­hygli

Poppstjarnan knáa Olivia Rodrigo hefur sett á laggirnar tónlistarhátíð í Kaliforníu þar sem einungis tónlistarkonur koma fram. Rodrigo stígur sjálf á stokk ásamt úrvalsliði einhverra öflugustu tónlistarkvenna í heimi.

Tónlist
Fréttamynd

Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn

Clive Davis, tónlistarmógúllinn sem gegndi lykilhlutverki í velgengni listamanna á borð við Whitney Houston, Bruce Springsteen og Arethu Franklin, er látinn, 94 ára að aldri. Hann var um áratugaskeið meðal valdamestu manna í bandarískum tónlistariðnaði.

Tónlist
Fréttamynd

Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson

Stuðsveitin Retro Stefson kom, sá og sigraði á tónleikum í tívolíinu í Kaupmannahöfn á 17. júní. Fjöldi Íslendinga í Danmörku stigu trylltan dans ásamt fjölbreyttum hópi aðdáenda og Succession leikarinn Jeremy Strong lét sig ekki vanta. 

Tónlist
Fréttamynd

Tay Keith er fallinn frá að­eins 29 ára að aldri

Tónlistarupptökustjórinn Tay Keith, sem hefur verið tilnefndur til Grammy-verðlauna og unnið með tónlistarmönnum á borð við Drake, Travis Scott, Eminem og Beyoncé, fannst látinn í íbúð sinni í Nashville Tennessee á dögunum. Á síðasta ári var Keith á 30 Under 30 Music lista Forbes.

Tónlist
Fréttamynd

Hips­um­haps rýfur þögnina

„Við erum búin að leggja mikla vinnu í þessa plötu og hlökkum til að deila henni með ykkur. Vonandi hlustið þið með opnu hjarta,“ segir Fannar Ingi Friðþjófsson, jafnan kenndur við hljómsveitina Hipsumhaps. Breiðskífan Algrím hjartans, nýjasta plata sveitarinnar, kom út á öllum helstu streymisveitum í gær, á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Tónlist
Fréttamynd

„Ég er skít­hræddur“

Útvarpsstjörnurnar og tónlistarmennirnir Guðjón Smári og Jóna Margrét skelltu sér í bústað fyrir nokkrum vikum og sköpunargleðin lék lausum hala. Útkoman varð að fullt af nýrri tónlist og þar á meðal fæddist lagið Burt af klúbbnum. Tvíeykið frumsýnir hér tónlistarmyndband við lagið.

Tónlist
Fréttamynd

Tón­listin bjarg­ráð eftir erfiða kulnun

Hollenski píanóleikarinn og tónskáldið Joep Beving flytur verk af nýrri plötu sinni ásamt völdum verkum úr fyrri útgáfum í Fríkirkjunni í september. Beving hefur síðustu ár starfað sem píanisti en var fyrir það í auglýsingum. Hann leitaði aftur í tónlist eftir að hafa farið í kulnun og segir það í raun lán í óláni, þá hafi hann fundið leið til að gera það sem hann raunverulega langaði að gera. 

Tónlist
Fréttamynd

Bonnie Tyler vöknuð úr dái

Velska söngkonan Bonnie Tyler er vöknuð úr dái en er enn stödd á gjörgæslu í Portúgal. Tyler var flutt með hraði á sjúkrahús í Faro í byrjun maí vegna garnarofs og var henni haldið í dái til að stuðla að bata hennar.

Tónlist
Fréttamynd

Swae Lee heldur tón­leika á Ís­landi

Rapparinn og tónlistarmaðurinn Swae Lee, sem er þekktastur fyrir lögin „Unforgettable“ með French Montana og „Sunflower“ með Post Malone og sem annar helmingur rapptvíeykisins Rae Sremmurd, heldur tónleika í Austurbæjarbíói þann 15. ágúst næstkomandi.

Tónlist
Fréttamynd

Guð­rún Ýr og Birnir í eina sæng

„Ég er virkilega spennt að halda áfram að gefa út tónlist í þessum stíl,“ segir poppstjarnan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN. Hún frumsýnir hér tónlistarmyndband ásamt rapparanum Birni við splunkunýtt lag sem heitir Vilt fá.

Tónlist
Fréttamynd

Madonna með heitustu dansmynd ársins

Poppstjarnan Madonna var að senda frá sér framúrstefnulega og sjóðheita tónlistarmynd þar sem margar áhugaverðar dægurmenningarstjörnur koma fyrir. Madonna, sem er 67 ára, slær ekki slöku við í tónlistarbransanum, er að gefa út breiðskífuna „Confessions II“ í júlí og er sannkölluð danssenu-drottning. 

Tónlist
Fréttamynd

Þre­föld út­gáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“

Drake hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður heims síðustu fimmtán ár. Lítið hefur þó farið fyrir honum síðan harðvítugar rappdeilur hans við Kendrick Lamar náðu hápunkti fyrir tveimur árum síðan. Þangað til um miðjan síðasta mánuð þegar Drake gaf út þrjár plötur sama daginn. Plöturnar ruku upp á topp vinsældarlista en viðbrögð gagnrýnenda hafa verið misjöfn. Vísir heyrði hljóðið í þremur dyggum rapphlustendum til að ræða plöturnar og stöðu Drake.

Tónlist
Fréttamynd

Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum

Breski tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Talay Riley, sem samdi lög fyrir tónlistarmenn á borð við Britney Spears, Usher og Chris Brown, er látinn, 35 ára að aldri, eftir að hafa verið stunginn margsinnis með hnífi í Silvertown í austurhluta Lundúna föstudaginn 5. júní.

Tónlist