Aðalpæjur landsins komu saman Fullt hús var í Ásmundarsal um liðna helgi þegar gestir mættu í hönnunarpartý til að fagna þremur opnunum; einkasýningu Loga Pedro, Heimur, ásamt sýningunum Daydreaming eftir Sóleyju Jóhannsdóttur og 1160° eftir Auði Gná Ingvarsdóttur. Tíska og hönnun 13.5.2026 09:03
Dreifði ættjarðarástinni til London og Parísar Það var mikið stuð á Hafnartorgi um helgina þegar innanhúshönnuðurinn Maríanna Björk Ásmundsdóttir opnaði sýninguna Farsælda frón í verslun AS WE GROW. Tíska og hönnun 12.5.2026 14:03
Gellur elska hönnun HönnunarMars fór fram í síðustu viku og var dagskráin umfangsmikil með fjölbreyttum sýningum og viðburðum. Áhugasamir gátu kynnt sér það helsta í íslenskri hönnun og farið á ilmtónleika, húsgagnasýningar, dansgjörning og ýmislegt annað. Tíska og hönnun 12.5.2026 12:32
Hittu sjálfan Jacquemus í New York Teboðsskvísurnar og hlaðvarpsstýrurnar Sunneva Einarsdóttir og Birta Líf Ólafsdóttir eru staddar í New York með Hildi Sif Hauksdóttur og Páli Orra Pálssyni í sannkallaðri pæjuferð. Skvísurnar tóku upp hlaðvarpsþátt í stórborginni, djömmuðu á flöskuborði á skemmtistaðnum Marquee í New York og hittu uppáhalds tískuhönnuðinn þeirra, Simon Porte Jacquemus. Tíska og hönnun 4.5.2026 14:54
Gjörningar og gleði á HönnunarMars Menningarhátíðin HönnunarMars hefst á miðvikudag og borgin iðar af list og lífi sem aldrei fyrr. Fjöldi viðburða, gjörninga, sýninga og teita taka yfir miðborgina og má búast við miklu fjöri. Tíska og hönnun 4.5.2026 11:21
Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Hátíska og elegans einkenndu útskriftarsýningu fatahönnuðarnema sem fór fram í Hörpu síðastliðinn föstudag undir dúndrandi og grípandi tónum. Mikill fjöldi fólks tók púlsinn á framtíð tískunnar og stemningin var góð. Tíska og hönnun 28.4.2026 11:32
Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar List, glæsileiki og tíska blönduðust á skemmtilegan hátt saman í eitt í Hörpu á föstudagskvöld þegar útskriftarnemendur við fatahönnun í Listaháskóla Íslands settu upp tískusýningu. Margt var um manninn og fatahönnuðir framtíðarinnar sýndu hvert leiðin liggur í tískunni. Tíska og hönnun 27.4.2026 20:00
Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, hefur mikinn áhuga á klæðaburði og tísku og hefur fjárfest í ýmsum hátískuflíkum undanfarin ár. Sum kaup hafa verið góð en önnur ekki eins farsæl. Tíska og hönnun 27.4.2026 13:40
Varð að vera flottastur í eigin teiti „Þetta var svo fullkomið augnablik, að ganga um Austurstræti í kjólnum sem ég var búinn að vinna svona lengi að,“ segir hinn tvítugi Ástvaldur Mateusz Kristjánsson en hann fagnaði stórafmæli sínu í glæsilegum kjól sem hann saumaði sjálfur á tæpum þremur mánuðum. Blaðamaður ræddi við hann um tískuna, tilveruna og þessa einstöku flík. Tíska og hönnun 24.4.2026 07:04
„Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ „Mesti innblásturinn í mínu lífi hefur alltaf verið amma mín,“ segir hin 25 ára gamla Nadía Sif Líndal Gunnarsdóttir, áhrifavaldur, tískuáhugakona og fyrirsæta. Nadía vinnur í tískuvöruversluninni Nínu á Akranesi og hefur sömuleiðis tekið að sér ýmis verkefni tengd markaðssetningu. Hún byrjaði að sitja fyrir þegar hún var sextán ára gömul og elskar að klæða sig upp fyrir öll tilefni. Tíska og hönnun 14.4.2026 20:02
Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Stefano Gabbana, tískuhönnuður og annar stofnenda Dolce & Gabbana, hefur sagt af sér sem stjórnarformaður tískuhússins sem hann stofnaði með Domenico Dolce. Hann verður áfram í hönnunarhlutverki hjá fyrirtækinu. Tíska og hönnun 10.4.2026 11:21
Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Það var mikið stjörnufans á rauða dreglinum við kínverska leikhúsið í Los Angeles í gærkvöldi á forsýningu á þriðju þáttaröð af unglingadramanu Euphoria. Leikararnir skinu skært í hátískufötum en mikil eftirvænting ríkir eftir þessari lokaseríu sem verður frumsýnd 12. apríl. Tíska og hönnun 8.4.2026 11:33
Kröfuharður og með öll smáatriði á lás „Ég hef alltaf haft gaman af því að klæða mig upp. Jafnvel þegar ég er einn heima vil ég vera í fallegum fötum, oft í silki „afa“-náttfötum og inniskóm,“ segir fagurkerinn Davíð Laufdal sem ræddi við blaðamann um tískuna. Tíska og hönnun 7.4.2026 20:01
Feiminn í æsku en fann sig í tískunni „Þetta gefur mér mikinn tilgang þrátt fyrir að vera mjög krefjandi og tímafrekt. Þetta er áskorun á hverjum degi og ég bara elska þetta,“ segir hinn 22 ára gamli Haraldur Björnsson sem rekur sitt eigið fatamerki undir nafninu Coppermine. Tíska og hönnun 30.3.2026 20:02
Elskar að klæða sig upp fyrir jafnvel ekkert „Oftast er ég frekar fljót að setja saman föt en ef það gengur ekki eins og ég hafði ímyndað mér verður oft mikið drama,“ segir hin tvítuga Hildur Jónsdóttir Norfjörð. Hildur er sálfræðinemi, fimleikaþjálfari og vinnur í hlutastarfi í skartgripaversluninni Hildi Hafstein og hefur mikla ástríðu fyrir tísku og klæðaburði. Tíska og hönnun 25.3.2026 20:00
Guðbjörg hlaut heiðursverðlaun í London Gullsmiðurinn Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir rekur ásamt fjölskyldu sinni skartgripaverslunina Aurum að Bankastræti. Þau ferðuðust öll saman til London fyrr á árinu og unnu þar til virtra verðlauna. Tíska og hönnun 24.3.2026 09:03
Skarsgård seiðandi senuþjófur Alexander Skarsgård hefur farið frumlegar leiðir í klæðaburði við kynningu á kvikmyndinni Pillion. Þar leikur Skarsgård aðalhlutverkið á móti Harry Melling í BDSM ástarsögu. Tíska og hönnun 23.3.2026 20:01
Dorrit sprengir skvísuskalann á skíðum Skartgripadrottningin og fyrrverandi forsetafrúin Dorrit Moussaieff nýtur sín á skíðum í sólinni í Aspen í Colorado-fylki þessa dagana. Hún hefur verið dugleg að deila skemmtilegu myndefni á samfélagsmiðlum þar sem hún rokkaði meðal annars stuttbuxur og íslenska lopapeysu. Tíska og hönnun 23.3.2026 16:01
Hátískuhönnuður yfir í hraðtískuheiminn Það er gömul saga og ný að hátískuhönnuðir fari í samstarf við risastór hraðtískufyrirtæki og njóta slíkar línur gjarnan mikilla vinsælda. John Galliano, fyrrum listræni stjórnandi Dior og Maison Margiela, og risafyrirtækið Zara eru nýjasta dæmið um slíkt. Tíska og hönnun 18.3.2026 13:00
Klæddist fimm kílóum af mannahárum Raunveruleikastjarnan Lisa Rinna úr þáttunum Raunverulegar húsmæður Beverly Hills vakti mikla athygli í Óskarspartýi Eltons John á sunnudagskvöld. Lisa, sem er orðin eins konar tískugoðsögn í Hollywood, er þekkt fyrir að fara eigin leiðir í tískunni og sýndi það og sannaði þarna. Tíska og hönnun 17.3.2026 09:38
„Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ „Ég er svo heppin að tengjast ömmu á þennan hátt þar sem hún dó þegar ég var mjög ung,“ segir tískudrottningin María Hrund sem er 24 ára gömul og starfar sem verslunarstjóri í Andrá Reykjavík. María Hrund er útskrifaður klæðskeri og lifir fyrir góð snið, gæðaefni og skart. Hún ræddi við blaðamann um tískuna, fataskápinn, verðmæta erfðagripi og persónulegan stíl. Tíska og hönnun 16.3.2026 20:02
Óþekkjanleg á Óskarnum Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er þekkt fyrir að taka áhættu í klæðaburði og fer oft frumlegar leiðir í fatavali. Í gegnum tíðina hefur hún unnið náið með umdeilda listræna stjórnandanum Demna sem var lengi hjá tískuhúsinu Balenciaga en hefur nú fært sig yfir til Gucci. Tíska og hönnun 16.3.2026 15:33
Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Laufey Lín er ekki bara ein stærsta tónlistarstjarna heims heldur hefur hún sömuleiðis haslað sér völl sem mikil tískudrottning sem veitir milljónum innblástur í klæðaburði. Á tónleikunum um helgina skipti hún fjórum sinnum um lúkk sem var hvert öðru glæsilegra og allt sérhannað á hana fyrir tilefnið. Tíska og hönnun 16.3.2026 13:55
Elín Hall í sjóðheitri íslenskri hönnun Rísandi stjarnan Elín Hall hitaði upp fyrir Laufeyju í Kórnum um helgina og virtist njóta sín einstaklega vel á sviðinu. Hún nýtti tækifærið til að gera íslenskri hönnun hátt undir höfði og klæddist skemmtilegum hvítum fatnaði frá fatahönnuðinum Sigureyju Reynis. Tíska og hönnun 16.3.2026 11:20