Lífið

Stundar jóga í flugvél

Uma Thurman kom farþegum á óvart þegar hún hóf að stunda jógaæfingar í flugi milli New York og Salt Lake City í Utah nýverið. Samkvæmt heimildum dagblaðsins New York Post stóð leikkonan upp og fór að gera jógaæfingar í gangveginum milli sætanna, og notaði vagn einnar flugfreyjunnar sem slá á meðan hún teygði á og gerði hnébeygjur í tuttugu mínútur.

Lífið

Jón Gnarr í leikritalestur

Jóni Gnarr er margt til lista lagt: á sunnudaginn leggst hann í leikritalestur og ræðir um Dúfnaveislu Halldórs Laxness, smásöguna úr Sjöstafakverinu og leikritið sem af henni er sprottið.

Lífið

Leitar að arftökum Quarashi

Athafnamaðurinn Steinar Jónsson leitar þessa dagana að arftökum rappsveitarinnar vinsælu Quarashi. Hann hefur stofnað hljóðverið Stúdíó Róm ásamt félögum sínum og vonast til lokka þangað hæfileikaríka tónlistarmenn, þar á meðal sjóðheita rappara.

Lífið

Aldrei fór ég á Rex um helgina

Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég á Rex verður haldin á þremur stöðum um helgina. Um er að ræða órafmagnaða hátíð þar sem tæplega fjörutíu tónlistaratriði verða kynnt til sögunnar. Verða þau mestmegnis í höndum trúbadora.

Lífið

Karate Kid ósáttur við endurgerð

Ralph Macchio, sem lék aðalhlutverkið í Karate Kid á níunda áratugnum, vill ekki að myndin verði endurgerð. Hann er ánægður með að aðdáendur fyrstu myndanna hafi mótmælt endurgerðinni. „Það er gott ef fólki finnst að menn eigi ekki að snerta við ákveðnum hlutum. Stundum gera menn það en hefðu kannski betur sleppt því,“ sagði hinn 47 ára Macchio. „Að mínu mati verður erfiðast að fylla skarð Hr. Miyagi og ná fram þeim töfrum sem sú persóna hafði yfir að ráða.“ Jackie Chan mun líklega leika Hr. Miyagi og sonur Wills Smith leikur karatestrákinn.

Lífið

Leika ástfangið par

Jim Carrey og Ewan McGregor leika ástfangið par í svörtu kómedíunni I Love You Phillip Morris sem var frumsýnd á Sun­dance-kvikmyndahátíðinni fyrir skömmu.

Lífið

Landslið tengt hommamynd

Ísland er stundum ekki alveg jafn stórt og íbúar þess vilja láta. Það sannast kannski best í spænsku myndbandablaði.

Lífið

Neistaflugið enn til staðar

Titanic-parið Kate Winslet og Leonardo DiCaprio leiða aftur saman hesta sína í hinni dramatísku Revolutionary Road sem verður frumsýnd á morgun. Mörgum er eflaust enn í fersku minni ástarsamband Winslet og DiCaprio í hinni ógnarvinsælu Titanic árið 1997. Neistaflugið á milli þeirra var umtalað og átti tvímælalaust stóran þátt í vinsældum myndarinnar.

Lífið

Stjörnurnar heiðra Nick Drake

Eddie Vedder, söngvari Pearl Jam, Dave Grohl úr Foo Fighters og Norah Jones eru á meðal þeirra sem syngja á nýrri plötu til heiðurs enska tónlistarmanninum Nick Drake.

Lífið

Gúrúinn með sjö tilnefningar

Hin misheppnaða gamanmynd Mike Myers, The Love Guru, hefur fengið sjö tilnefningar til Razzies-verðlaunanna. Um skammarverðlaun er að ræða þar sem verstu kvikmyndir og leikarar ársins fá viðurkenningar.

Lífið

Mínus sver eið

Að sögn Krumma er nú „geðveikur æsingur“ í hljómsveitinni Mínus að setja allt í gang á ný eftir pásu. „Við höfum svarið þess eið að koma með nýja plötu á þessu ári,“ segir söngvarinn. „Það er mikill metnaður í okkur og við erum byrjaðir að hittast og ræða málin. Næst á dagskrá er bara að hendast í hús, semja, æfa og koma sér í gírinn.“

Lífið

Coldplay og Duffy líkleg til sigurs

Duffy og Coldplay fengu flestar tilnefningar til Brit-verðlaunanna sem verða afhent 18. febrúar í London. Fengu þær hvor um sig fjórar tilnefningar, þar á meðal fyrir bestu bresku plötuna árið 2008.

Tónlist

Trumbur og gjöll slegin

Trommuleikarar og áhugamenn um áslátt verða í kvöld aðnjótandi happafengs. Þá flytja tveir ásláttarmenn af heimsklassa nýtt verk eftir Áskel Másson í liði með Sinfóníunni. Það verða þeir Colin Currie frá Englandi og Pedro Carneiro frá Portúgal sem takast á við Crossings og er það í fyrsta sinn sem þeir koma fram hér á landi í frumflutningnum.

Lífið

Winslet með tilbúna ræðu á Bafta

Leikkonan Kate Winslet ætlar að semja þakkarræðu fyrir Bafta-verðlaunin sem verða afhent í næsta mánuði. Ástæðan er tilfinningarík og algjörlega óundirbúin ræða sem hún hélt á Golden Globe-hátíðinni á dögunum. „Ég ætti að hafa ræðu tilbúna vegna þess að á Golden Globe hélt ég að ég myndi ekki vinna,“ sagði Winslet. Winslet er tilnefnd til Bafta-verðlaunanna fyrir hlutverk sín í Revolutionary Road og The Reader.

Lífið

U2 setja í gang

Tólfta hljóðversplata U2 kemur út í byrjun mars en fyrsta lagið af henni „Get on your boots“ er byrjað að heyrast. Lagið er hressandi rokkpopp drifið áfram af gítarriffi og venst ágætlega. Þá hefur umslag nýju plötunnar verið opinberað. það er eftir japanska listamanninn Hiroshi Sugimoto, heldur grámygluleg mynd af sjóndeildarhring en rímar vel við titil plötunnar, No line on the horizon. Umslagið er nánast eins og á minimalískri plötu Richards Chartier og Taylors Deupree, Specification. Fifteen, sem kom út fyrir nokkrum árum. Félagarnir ætla þó ekki að kæra.

Lífið

Kira Kira í tónleikaferð um Evrópu

Kira Kira, eða Kristín Björk Kristjánsdóttir, hóf í síðustu viku tónleikaferð um Evrópu. Ferðin stendur yfir til 7. febrúar og alls spilar Kira Kira á tuttugu tónleikum, þar á meðal í Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi, Hollandi og Danmörku. Einnig er í bígerð tónleikaferð um Bretland í apríl og um Austur-Evrópu í sumar.

Lífið

Þriggja stjörnu diskórokk

Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn. Margir bíða hennar með mikilli eftirvæntingu enda sló sveitin rækilega í gegn fyrir fimm árum með sinni fyrstu plötu.

Tónlist

Lost hefst að nýju

Sýningar á Lost hófust að nýju í gærkvöldi á ABC sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum með tveimur fyrstu þáttum fimmtu seríunnar. Tveimur söguþráðum verður fylgt í sautján þáttum þessarar seríu.

Lífið

Tilfinningaþrungin stund Obama - myndband

Forseti Bandaríkjanna Barack Obama og eiginkona hans Michelle Obama dönsuðu fram á rauða nótt í gær. Eins og meðfylgjandi myndband sýnir dönsuðu forsetahjónin og létu vel að hvort öðru við lagið At last í flutningi Beyonce Knowles. Forsetafrúin klæddist síðkjól eftir fatahönnuðinn Jason Wu sem er aðeins 26 ára gamall. Sjá dansinn hér.

Lífið

Eiginmaður aðþrengdrar eiginkonu með krabbamein

Eiginmaður Marciu Cross, sem fer með eitt aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Aðþrendar eiginkonur hefur verið greindur með krabbamein. Talsmaður hjónananna sendi yfirlýsingu svo hljóðandi: „Hann (Tom) gengst um þessar mundir undir meðferð og hún gengur vel." Tom, 51 ára, og Marcia, 46 ára, giftu sig árið 2006 og eignuðust tæpu ári síðar tvíburana Eden og Savannah. Meðfylgjandi má sjá myndir af fjölskyldunni.

Lífið

Sjónvarpsþættir Jóns Ólafs á sviðið

„Ég hef gengið með þessa hugmynd í maganum í nokkur ár,“ segir Jón Ólafsson tónlistarmaður. Hann gengst fyrir tónleikaröð í Salnum í Kópavogi sem hann kallar „Af fingrum fram“ og byggir á vinsælum samnefndum sjónvarpsþáttum hans. Fyrstu tónleikarnir verða 19. febrúar og er þá gestur Jóns sjálfur Magnús Eiríksson en sérstakur gestur verður söngkonan Ellen Kristjánsdóttir. „Mér datt í hug að færa þetta konsept úr sjónvarpinu og upp á svið. Ég ræði við Magnús og þá með meiri áherslu á tónlistina en ferilinn eins og var í sjónvarpinu. Hvort til dæmis hann hafi ekki fljótlega fengið ógeð á „Ég er á leiðinni“ eftir gegndarlausa útvarpsspilun þess lags. En mest verður þetta tónlist en ekki kjaftavaðall.“

Menning

Miðasalan fer hægt af stað

Danska rokkveislan í Hróarskeldu hefur haft mikið aðdráttarafl hjá íslenskum rokkhundum á ári hverju. Kreppan hefur nú stimplað sig þar inn.

Lífið

Stjörnur í afmæli Stjána Stuð

Kristján Þórðarson, betur þekktur sem útvarpsmaðurinn Stjáni Stuð, heldur upp á fertugsafmæli sitt í lok maí. Það er ekki vottur af kreppubrag á veislunni og Elton John og Ólafur Ólafsson falla algjörlega í skuggann á poppstjörnunum sem Stjáni býður upp á í sínu afmæli. „Þetta er svona allt að smella núna. Sjonni Brink byrjar þetta, en svo koma meðal annars fram Skítamórall, Á móti sól og Land og synir. Hljómsveitin Hitakútur endar tónleikana. Svo á ég eftir að tala við Ný dönsk, en Ingó og Veðurguðirnir og Greifarnir gefa endanlegt svar í mars. Þetta eru allt vinir og kunningjar,“ segir Stjáni.

Lífið

Bjarni Ben er latur við heimilisstörfin

Í nærmynd af Bjarna Benediktssyni verðandi ráðherra í sjónvarpsþættinum Ísland í dag, sem hefst í kvöld strax að loknum fréttum, segir eiginkona hans, Þóra Margrét Baldvinsdóttir, Bjarna meðal annars vera latan við heimilisstörfin en hún þrátt fyrir það styður hún maninn sinn í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.

Lífið

Frægir mótmæla

Á meðal fjöldans sem mótmælir á þessari stundu á Austurvelli má sjá fræga Íslendinga. Þar mótmælir Gunnar Þórðarson tónlistarmaður, Jón Páll Eyjólfsson leikari, Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður, Jónsi tónlistarmaður og meðlimur Sigurrósar, Stefán Jónsson leikari, Ómar Ragnarsson formaður Íslandshreyfingarinnar svo einhverjir séu nefndir.

Lífið

Fólk með piparúða í augum kemur hlaupandi

„Það er rosalega mikið að gera alltaf þegar mótmæli eiga sér stað, " svarar Orri Páll Vilhjálmsson vaktstjóri á kaffihúsinu Café París þegar Vísir spyr hvernig mótmælin hafa áhrif á hann. „Þá fyllist húsið sem er jákvætt. Nei kaffigestir eru ekki með neinn æsing heldur eru allir á öllum borðum að tala um ástandið." „Fólkið kemur hérna inn eftir mótmælin og sumir hverjir sem eru búnir að fá piparúða í augun," segir Orri.

Lífið

Myndir sem Madonna neitaði að birta

Fimmtuga Madonna bannaði birtingu á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af henni fyrir plötuna Hard Candy plötuna. Stílistar hafa gagnrýnt umrædda myndasyrpu harðlega sökum þess hve söngkonan lítur illa út.

Lífið

Klara Kristín Arndal er nýr ritstjóri Birtu

Nýr ritstjóri hefur tekið við tímaritinu Birtu. Klara Kristín Arndal tók við af Kristjáni Þorvaldssyni rétt eftir áramót og kom fyrsta blaðið undir hennar ritstjórn út síðastliðinn föstudag.

Lífið