Lífið

Halldór Bjarki leikur á horn

Halldór Bjarki Arnarson hornleikari heldur framhaldstónleika sína frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar á laugardag, 30. apríl, klukkan 20. Tónleikarnir verða í sal Tónskólans við Engjateig 1. Píanóleikari á tónleikunum er Örn Magnússon. En með Halldóri Bjarka leikur einnig strengjakvartett og hljómsveitin Frjókorn.

Menning

Fleet Foxes full af sjálfri sér

Fleet Foxes var án nokkurs vafa ein af hljómsveitum ársins 2008. Frumburði hljómsveitarinnar var gríðarlega vel tekið, en nú er önnur platan á leiðinni og væntingarnar eru miklar. Önnur breiðskífa Fleet Foxes, Helplessness Blues, kemur út í byrjun maí. Í fyrstu átti platan að vera tekin upp á stuttum tíma og forsprakkinn Robin Pecknold sagði í viðtali við tónlistarvefinn Pitchfork að allur söngur ætti að vera tekinn upp í einni tilraun. „Þannig að ef við klúðrum einhverju vil ég halda því á plötunni,“ sagði hann. „Ég vil ekki að raddirnar verði gallalausar og ég vil að það sé gítarklúður.“ Pecknold og félagar hættu svo við þessa hugmynd, hentu því sem þeir voru búnir að taka upp og byrjuðu upp á nýtt. Þeir gáfu sér góðan tíma í upptökurnar og afraksturinn lofar góðu, miðað við titillagið sem er þegar byrjað að hljóma á öldum ljósvakans.

Lífið

Geimveruslagur í vestrinu og aðrar stórmyndir sumarsins

Á sumrin koma stórmyndirnar frá kvikmyndaverunum í Hollywood. Formúlukenndar og sneisafullar af tæknibrellum, stjörnum hlaðnar gamanmyndir eða framhaldsmyndir; sumarmyndirnar eru kapítuli fyrir sig og gróði þeirra hefur oft bjargað bókhaldinu hjá skuldsettum framleiðslufyrirtækjum.

Lífið

Vinsælastur allra á Íslandi og í Ameríku

Páfagauksmyndin Rio, þar sem Jesse Eisenberg og Anne Hathaway tala fyrir aðalpersónurnar, er vinsælasta kvikmyndin á Íslandi um þessar mundir samkvæmt upplýsingum frá Smáís. Þetta er hliðstætt því sem er að gerast í hinni stóru Ameríku en þar situr páfagaukurinn einnig í efsta sæti. Myndin er frá sömu framleiðendum og gerðu hinar vinsælu Ísaldarkvikmyndir og því er ekkert skrýtið að smáfólkið skuli flykkjast í bíó með foreldrum og forráðamönnum.

Lífið

Klæðnaður prinsessanna

Carolina Herrera var einn af gestunum í brúðkaupi Karls og Díönu. Hún ræðir hér muninn á Kate Middleton og Díönu og fleira. Úr þættinum Secrets of a Royal Bridesmaid á Stöð 2. Fylgist einnig með brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton, sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi í fyrramálið.

Lífið

Brúðarkjóll Díönu prinsessu

Rætt við David Emanuel um brúðarkjól Díönu prinsessu og viðburðaríkan aðdraganda brúðkaupsins. Úr þættinum Secrets of a Royal Bridesmaid á Stöð 2.

Lífið

Laddi leikur galdrakarlinn í Oz

„Mér líst bara vel á þetta enda er þetta heljarinnar stór sýning,“ segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi. Hann leikur galdrakarlinn í Oz í uppfærslu Borgarleikhússins sem frumsýnd verður í september á þessu ári. Bergur Ingólfsson leikstýrir sýningunni en það er Lára Jóhanna Jónsdóttir sem leikur Dóróteu. Alls koma 36 krakkar og atvinnuleikarar að sýningunni en hátt í fjögur þúsund börn mættu í prufur fyrr í vetur. Sérstakar persónur hafa löngum loðað við Ladda og þegar hann stígur á fjalirnar verða sérkennilegir karekterar oftast fyrir valinu. Hann hefur til að mynda leikið þjófaforingjann Fagin í Oliver Twist, Skrögg í Jólasögu Dickens og svo talaði hann auðvitað fyrir annan galdrakarl, Kjartan að nafni, sem lagði Strumpana í einelti. „Ég kann vel við þessar persónur og raunar er draumahlutverkið mitt að leika illmenni í kvikmynd. Ég hef rætt þetta við ansi marga en það hefur bara enginn hlustað.“

Lífið

Legóbrúðkaup Vilhjálms og Kötu

Gríðarstórt líkan af brúðkaupi Vilhjálms og Kötu hefur verið byggt úr Legókubbum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. 180 þúsund Legókubbar fóru í smíðina og 400 Legókarlar tákna brúðkaupsgestina. Átta vikur tók að smíða líkanið sem verður til sýnis í Vísindasafninu í Manchester frá deginum í dag.

Lífið

Kóngafólkið setur upp hatta

Fáir muna eftir skónum sem Díana prinsessa klæddist þegar hún gekk að eiga Karl og núna er veðjað á kórónuna sem Kate Middleton mun setja upp á morgun. Margir eru spenntir að sjá brúðarkjólinn sem Kate klæðist og stóra spurningin er hvaða hönnuður hannar kjólinn. Endalausar spekúlasjónir eru um hárgreiðslu brúðarinnar og að ekki sé minnst á skartið. Ekki má gleyma útvöldum gestunum sem verða 1900 talsins en hefðin er að konungbornar konur sem og aðrar sem fá að vera viðstaddar athöfnina setji upp skrautlega hatta í tilefni dagsins. Meðfylgjandi má skoða nokkra slíka.

Lífið

Eurovision-ævintýrið kostar 30 milljónir

„Ferðakostnaðurinn hækkar töluvert á milli ára og stærstur hluti af því er gríðarlega hátt verð á hótelum í Düsseldorf,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. Kostnaðurinn við Eurovision-þátttöku Íslands hækkar um fimm milljónir frá því sem var fyrir ári þegar Hera Björk og Örlygur Smári kepptu fyrir Íslands hönd. Hann er núna rétt rúmar þrjátíu milljónir króna en hefur undanfarin tvö ár verið 25 milljónir. „Auðvitað erum við spæld og það eru ábyggilega fleiri lönd í sömu stöðu og við. En svona er bara lífið og svona er þessi „bisness“. Svo má ekki gleyma því að hópurinn í ár er óvenju stór.“

Lífið

Hér er svarið ef þú ert með krullur

Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Sandra Olgeirsdóttir hárgreiðslumeistari hvernig hægt er að færa krulluðu hári raka, skerpa á krullunum og koma í veg fyrir að hárið verði úfið. Hún notar undraefni frá Aveda sem heitir Be Curly Style-Prep. Aveda á Facebook Aveda.is

Lífið

Þarf að læra Quarashi-lögin aftur

Quarashi kemur saman á nýjan leik á Bestu útihátíðinni sem verður haldin í júlí. Söngvarinn Höskuldur Ólafsson snýr aftur eftir að hafa hætt óvænt árið 2003. Rappsveitin Quarashi, sem hætti störfum árið 2005, hefur ákveðið að snúa aftur og spila á Bestu útihátíðinni sem verður haldin aðra helgina í júlí. Tíðindin eru óvænt, sérstaklega í ljósi þess að forsprakkinn Sölvi Blöndal vísaði endurkomunni algjörlega á bug í samtali við Fréttablaðið í síðasta mánuði. Endurkoma Quarashi er sérstök að því leyti að þetta verður í fyrsta skiptið sem rappararnir Höskuldur Ólafsson, Steinar Fjeldsted, Ómar "Swarez" Hauksson og Egill "Tiny" Thorarensen koma allir saman fram með sveitinni.

Lífið

Íslensk kort ekki verið misnotuð

Ekkert bendir enn til þess að íslensk greiðslukort hafi verið misnotuð eftir að persónuupplýsingum um Playstation 3 notendur sem keypt hafa vörur í gegnum netverslun var stolið í gegnum vef Sony. Alls eru um 77 milljónir notenda skráðar en ekki hefur verið upplýst hvort þjófnaðurinn náði til þeirra allra eða aðeins hluta.

Leikjavísir

Vasadiskó - 2. þáttur - handritið

Páskadagur - 24.apríl - kl. 15 - 17. Tim Hecker - In the fog II. Sá Agent Fresco á Sódóma daginn fyrir Skírdag. Nýi bassaleikarinn er magnaður. Bandið loksins orðið tilbúið til þess að sigra heiminn.

Tónlist

Á afskekktum stað

Á afskekktum stað nefnist nýútkomin bók. Hún er byggð á samtölum við sex Austur-Skaftfellinga, þau Álfheiði Magnúsdóttur og Gísla Arason sem fædd eru og uppalin á Mýrum, Ingibjörgu Zophoníasdóttur á Hala í Suðursveit, Þorvald Þorgeirsson, sem í áratugi gegndi verkstjórn í bandarísku ratsjárstöðinni á Stokksnesi, og feðgana Sigurð Bjarnason og Einar Rúnar Sigurðsson á Hofsnesi í Öræfum.

Menning

Kate Hudson trúlofuð

Leikkonan Kate Hudson og Muse tónlistarmaðurinn Matthew (Matt) Bellamy, sem eiga von á barni saman, eru trúlofuð. Kate tilkynnti trúlofunina í sjónvarpsþættinum Today show í vikunni eftir að spyrillinn spurði leikkonuna hvaðan demantshringurinn sem hún bar á baugfingri vinstri handar kæmi. Kate svaraði himinlifandi: Ég er trúlofuð! Það gerðist fyrir viku síðan. Ég er í skýjunum eins og þú sérð en ég hef ekki ennþá sent út fréttatilkynningu. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá nýjar myndir af Kate og Matt.

Lífið

Sjáðu hvað prinsessan er alltaf smart

Ný könnun sýnir að vinsældir Kate Middleton, 29 ára, verðandi eiginkonu Vilhjálms bretaprins, eru jafnmiklar og vinsældir Díönu prinsessu, móður hans heitinnar. Burtséð frá vinsældum má skoða þessa stórglæsilegu prinsessu sem er ávallt settleg og til fyrirmyndar þegar kemur að klæðnaði í meðfylgjandi myndasafni.

Lífið

Sjálfmeðvitað splatter-fjör

Scream 4 er fínasta framhaldsmynd. Courteney Cox, David Arquette og allt gamla gengið fær ágætis pláss í myndinni en aðeins hefur verið yngt upp í leikhópnum.

Gagnrýni

Þetta er algjör snilld í hárið

Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Sandra Olgeirsdóttir hárgreiðslumeistari og einn af eigendum hársnyrtistofunnar 101 Hárhönnun á Skólavörðustíg hvernig nota má undraefni frá Aveda í hárið sem kallast Pure Abundance. Sandra kryddar hárið með efninu sem gefur hárinu lygilega lyftingu með því að nudda púðrinu í hársvörðinn.

Lífið

Húsmóðir Vesturports á fjölunum

Nýr íslenskur gleðileikur verður frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld. Það er leikhópurinn Vesturport sem á heiðurinn að sýningunni og er þetta í fyrsta sinn sem hópurinn tekst á við gamanleikjaformið þar sem dyr "opnast og lokast á hárréttu augnabliki, persónur birtast á óþægilegu andartaki eða yfirgefa sviðið rétt áður en allt verður óbærilega vandræðalegt,“ eins og segir í fréttatilkynningu.

Menning

Dreymir stundum Nágranna

Snjólaug Bragadóttir hefur þýtt alla sex þúsund þættina af Nágrönnum sem hafa verið sýndir á Stöð 2. Suma hverja hefur hún horft á tvisvar. Snjólaug segist ekki hafa orðið fyrir neinum skaða af því að horfa á Nágranna; þeir læðist reyndar stundum inn í draumana hennar. „Nei, það eru engar öfgar í þessum þáttum, þetta er bara venjulegt fólk þótt núna séu reyndar farnar að slæðast inn morðtilraunir og framhjáhald. Og þetta eru heldur ekki spillandi þættir, börnum er kennt að vera með hjálm og vera góð við dýrin."

Lífið

Lindsay horfist í augu við sjálfa sig

Bandaríska leikkonan Lindsay Lohan hefur ákveðið að líta í eigin barm. Hún viðurkenndi í spjallþætti Jay Leno í gærkvöldi að hún hefði gert mörg mistök í lífi sínu.

Lífið

Erindi Hönnuh Arendt við samtímann

Í dag hefst tveggja daga ráðstefna á vegum Eddu öndvegisseturs í Háskóla Íslands um heimspeki Hönnuh Arendt. Fyrri daginn verður umfjöllunarefnið Arendt og kreppa í stjórnmálum, hinn síðari Arendt og kreppa í menningu. Ráðstefnan er haldin í tilefni af útkomu bókar með íslenskum þýðingum greina eftir Hönnuh Arendt sem Sigríður Þorgeirsdóttir, heimspekiprófessor við Háskóla Íslands, ritstýrði.

Menning

Með tvö lög í þáttunum So You Think You Can Dance

"Þetta er frekar kúl. Ég horfi alltaf á þættina. Þeir eru í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds, sem á tvö lög í næstu þáttaröð af So You Think You Can Dance sem fer í loftið í lok maí. Ólafur tekur fram að enn eigi eftir að klippa þættina en miklar líkur séu þó á að lögin tvö, Kjurrt og Gleypa okkur, verði í þáttunum. "Maður veit aldrei hvað endar í sjónvarpi og hvað ekki," segir hann varkár. Lögin eru af síðustu plötu Ólafs, …And They Have Escaped the Weight of Darkness sem kom út í fyrra. Þau eru bæði mjög róleg en tveir dansarar í þáttunum völdu þau fyrir dansatriði sín.

Lífið

Fjölbreyttir raftónar

Steve Sampling bregst ekki bogalistin á sinni fjórðu plötu. Steve fer nokkuð víða á The Optimist og sýnir á sér nýjar hliðar. Það eru hæggeng lög, en líka hraðari og dansvænni stykki inni á milli. Oft tekst Steve vel upp. Ég nefni sem dæmi titillagið The Optimist sem grúvar sérstakleg vel, Distorted Contact sem stigmagnast skemmtilega og Fuck Yeah!, en í því er nett Gusgus-stemning. Á heildina litið ágæt plata frá áhugaverðum listamanni.

Gagnrýni

Prinsessan pollróleg

Á meðfylgjandi myndum má sjá Kate Middelton, 29 ára, með systur sinni sem heitir Pippa, yfirgefa heimili þeirra í Berkshire í gær og það væntanlega í síðasta sinn fyrir stóra daginn. Eins og sjá má virðist Kate vera pollróleg þrátt fyrir að eftir aðeins tvo daga gengur hún að eiga Vilhjálm bretaprins. Eldsnemma í morgun, klukkan 04:30, hófst lokaæfing hirðarinnar fyrir brúðkaupið. Garðyrkjumenn voru einnig snemma á ferðinni að koma trjám fyrir í Buckingham höllinni eins og sjá má í myndasafni.

Lífið

Airwaves reynir við Fleet Foxes

„Fleet Foxes er flott band, Seattle er góð borg og það væri vissulega gaman að fá þá á Airwaves,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves.

Lífið

Stoltur af eiginkonunni

Michael Douglas segir í nýjasta þætti Opruh Winfrey að hann sé ákaflega stoltur af eiginkonu sinni, Catherine Zeta-Jones. Hann sé hins vegar sorgmæddur yfir þeirri staðreynd að hún hafi verið neydd af fjölmiðlum til að ræða veikindi sín opinberlega.

Lífið

Mín loksins gengin út

Söngkonan LeAnn Rimes og Eddie Cibrian kysstust fyrir nærstadda ljósmyndara eins og sjá má í myndasafni en þau giftu sig í látlausri athöfn með nánustu fjölskyldu og vinum föstudaginn síðasta.

Lífið