Lífið

Unnið að gerð Borgríkis tvö

„Þegar við skrifuðum þennan heim byrjuðum við á því að byggja hann ítarlega upp með því að tala við lögreglu, bankamenn, lögfræðinga og fleira fólk,“ segir Ólafur Jóhannesson kvikmyndaleikstjóri. Stefnt er að því að gera framhaldsmynd af Borgríki, sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum og hefur mælst einstaklega vel fyrir.

Lífið

Ólétt og elskar að versla

Ég er verslunarsjúk en það hefur minnkað töluvert þráhyggjan að versla á sjálfa mig. Því núna finnst mér skemmtilegra að versla á ófæddan drenginn minn...

Lífið

Vill flytja hús afa síns og nafna á Bergstaðastrætið

„Ég hef verið að ganga milli nágranna og kanna þeirra hug og það virðist öllum lítast vel á þetta. Torfusamtökin, Húsafriðunarnefnd og flestir sem ég hef rætt við finnst þetta bara hið besta mál,“ segir Ólafur Egill Egilsson listamaður. Hann er að sækja um leyfi hjá Reykjavíkurborg til að fá að flytja húsið sem stóð við Laugaveg 74 – en var flutt út á Granda fyrir fjórum árum – aftur í miðbæinn. Nú á lóðina við Bergstaðastræti 18.

Lífið

Með ólæknandi bíladellu

Marta María Jónasdóttir er fréttastjóri dægurmála á mbl.is og ritstjóri Smartlands. Sá vefur hefur verið töluvert á milli tannanna á fólki og Diljá Ámundadóttir, varaborgarfulltrúi Besta flokksins, neitaði meðal annars opinberlega að svara nokkrum spurningum vefsins eins og frægt er orðið.

Lífið

Þögul sem gröfin

Kristen Stewart hefur ávallt verið mjög þögul um samband sitt og mótleikara síns, Roberts Pattinson. Í viðtali við Glamour segist hún kjósa að ræða sem minnst um sambandið.

Lífið

Áhættuleikari lést við tökur

Áhættuleikari lét lífið við tökur á hasarmyndinni The Expendables 2 nú á fimmtudag. Tökur á myndinni fara fram í borginni Sofiu í Búlgaríu og staðfestu þarlend yfirvöld fréttirnar.

Lífið

Vinsælasti tískubloggari Skandinavíu

Hin sænska Elin Kling heldur úti einu vinsælasta tískubloggi Skandinavíu í dag. Hún gefur jafnframt út tískutímaritið Style By og er fyrsti bloggarinn sem hefur verið fenginn til að hanna fatalínu fyrir sænska tískurisann H&M.

Lífið

Fleginn en fantaflottur

Leikkonan Jessica Biel, 29 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum með ítalska fatahönnuðinum Giambattista Valli...

Lífið

Heimilisfræðikennari gefur út matreiðslubók

Fjölmennt var í Eymundsson á Skólavörðustíg þegar útgáfu matreiðslubókarinnar Eldum saman eftir Guðmund Finnbogason var fagnað. Ungir sem aldnir glöddust saman, gæddu sér á veitingum og flettu bókinni. Guðmundur Finnbogason, heimilifræðikennari í Laugarnesskóla, hefur á undanförnum árum haldið vinsæl matreiðslunámskeið fyrir börn sem og foreldra og kennara. Þetta er fyrsta matreiðslubókin sem hann sendir frá sér og uppskriftirnar eru fjölbreyttar og girnilegar. Þær henta börnum sem eru að byrja að elda sem og lengra komnum og höfundur brýnir fyrir lesendum sínum að börn og foreldrar eigi að elda saman, læra hvert af öðru og njóta samvista í eldhúsinu.

Lífið

Eftir lokin frumsýnt í Tjarnarbíói

Á morgun verður leikritið Eftir lokin eftir Dennis Kelly frumsýnt í Tjarnarbíói. Eftir lokin segir frá tveimur einstaklingum, Markúsi og Lísu, vinnufélögum sem eru innilokuð í sprengjubyrgi eftir kjarnorkuárás. Samskipti þeirra einkennast af togstreitu og spennu og ástandið er eldfimt.

Menning

Bleikt konukvöld í Hörpu

Krabbameinsfélag Ísland hélt Bleika konukvöldið í Hörpu í gærkvöldi. Hátt í 1000 konur mættu í fjölbreytta skemmtun...

Lífið

Nýliðarnir á tískupöllunum slá í gegn

Tískuvikunum í New York, London og París lauk í september og voru nokkur ný andlit áberandi á tískupöllunum þetta árið. Danska fyrirsætan Josephine Skriver er á meðal þeirra sem hafa verið að gera það gott auk rússnesku fyrirsætunnar Juju Ivanyuk.

Lífið

E-Label snýr aftur á markað

Fyrirtækið hefur legið í dvala í smá tíma og við ákváðum þess vegna að selja það og gefa því nýtt líf,“ segir Heba Hallgrímsdóttir, fyrrverandi eigandi fatamerkisins E Label sem flestir tískusinnaðir Íslendingar ættu að kannast við.

Tíska og hönnun

Brosandi Bubbi

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í Rafveituheimilinu við Elliðaárdal í gær var gleðin við völd og Bubbi syngjandi glaður...

Lífið

Arnar Gauti og Jóhanna opna tískuskóla í Ármúla

Jóhanna Pálsdóttir og Arnar Gauti Sverrisson, framkvæmdastjórar Elite á Íslandi, opna nýjan tískuskóla, Elite Fashion Academy, í lok nóvember. Skólinn hyggst bjóða upp á nám í öllu sem tengist tísku, fegurð og heilsu.

Lífið

Coldplay var dáleidd

Coldplay-liðar, sem voru að gefa út nýja plötu, hafa viðurkennt að þeir hafi reynt að semja fyrir nýju plötuna í dáleiðslu. Þetta kom fram í spjalli BBC við bassaleikarann Guy Berryman. Platan, Mylo Xyloto, hefur fengið misjafnar viðtökur og fékk meðal annars eingöngu tvær stjörnur í Poppinu, fylgiriti Fréttablaðsins.

Tónlist

Dansaði inn kirkjugólfið við tóna Beyoncé

"Ég var búin að kvíða fyrir því að þurfa að ganga inn kirkjugólfið ein með pabba og þetta létti óneitanlega andrúmsloftið og minnkaði stressið,“ segir Íris Arnlaugsdóttir stjórnmálafræðingur, sem dansaði inn kirkjugólfið um síðustu helgi við lagið Single Ladies með Beyoncé.

Lífið

Coen skrifar einþáttunga

Ethan Coen, annar úr Coen-tvíeykinu, hefur skrifað röð einþáttunga sem settir verða upp í New York í næsta mánuði. Verkin þrjú kallast því skemmtilega nafni „Gleðistundin“ eða Happy Hour en það er leiklistarhópurinn Atlantic Theater Group sem setur verkin upp. Þetta er í þriðja sinn sem röð einþáttunga eftir Ethan verður sett á svið en Happy Hour verður frumsýndur 16. nóvember.

Lífið

Borgríki rýfur tíu þúsund gesta múrinn

Íslenskir kvikmyndahúsagestir hafa tekið spennumyndinni Borgríki opnum örmum. Myndin var frumsýnd fyrir tveimur vikum síðan og hefur haldið góðri aðsókn frá frumsýningu. Nú í vikunni rauf hún tíu þúsund gesta múrinn og ekkert lát virðist á aðsókninni.

Lífið

Yrsa Sigurðardóttir heillar Þjóðverja

„Við erum í skýjunum yfir þeim viðtökum sem nýjasta bók Yrsu hefur fengið í Þýskalandi. Nú er bara að sjá hvernig Ég man þig spjarar sig í öðrum löndum,“ segir Pétur Már Ólafsson, bókaútgefandi í Veröld.

Lífið

The Doors rukkaði Stefán Mána

„Þetta er fyndið. Hefði ég verið með lag með Skítamóral hefði ég ekki þurft að borga neitt,“ segir rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson.

Lífið

Ljúfur og trylltur Tom Waits

Síðasta mánudag sendi Tom Waits frá sér plötuna Bad as Me, en hún er hans fyrsta plata með nýju efni síðan meistaraverkið Real Gone kom út fyrir sjö árum. Trausti Júlíusson skoðaði þennan umdeilda listamann.

Lífið

Ungar stúlkur herja á Hollywood

Ungar leikkonur herja nú á rauðu dreglana í Hollywood og vekja verðskuldaða athygli fyrir fágaðan fatastíl. Tískuritin skiptast á að hampa þeim Elizabeth Olsen, Elle Fanning og Chloë Moretz, sem einnig fá góða dóma fyrir frammistöðu sína á hvíta tjaldinu.

Lífið