Lífið

Skammaðist sín

Söngkonan Rihanna hefur tjáð sig í fyrsta sinn opinberlega um skilnað sinn við fyrrverandi kærasta sinn, söngvarann Chris Brown, sem réðst grimmilega á hana fyrr á árinu. Hún skammast sín fyrir að hafa í upphafi snúið aftur til Brown þrátt fyrir ofbeldið. „Ég skammast mín fyrir að ég skuli hafa orðið svona óendanlega ástfangin af svona persónuleika," sagði hún í viðtali við ABC-fréttastofuna. Rihanna áttaði sig á því að með því að yfirgefa ekki Brown myndi hún senda röng skilaboð til annarra kvenna í sömu sporum. Þess vegna ákvað hún að taka af skarið og sér ekki eftir því í dag. Brown var dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi fyrir árásina og til samfélagsþjónustu.

Lífið

Ánægt afmælisbarn

Kelly Osbourne hélt upp á 25 ára afmæli sitt í síðustu viku og segist hún hafa fengið dásamlegar gjafir frá vinum og vandamönnum. Bestu gjafirnar segir hún þó vera gjöfina frá unnusta sínum, fyrirsætunni Luke Worrall, en sá gaf henni demantshring. „Hann er búinn að vera að safna fyrir þessu. Hringurinn er hjartalaga úr hvítagulli og er alveg dásamlega fallegur." Gjöfin frá foreldrum hennar var þó ekki síðri en þau gáfu henni hvolp. „Hvolpurinn er svartur og af tegundinni Pomeranian. Hann er álíka stór og peningaseðill. Ég kalla hann Sid og hann er æði," sagði Kelly.

Lífið

Eins og traktor á þjóðvegi

Fyrsta plata Feldberg, Don‘t Be a Stranger, er komin út. Feldberg er samstarfsverkefni söngkonunnar Rósu Birgittu Ísfeld, sem syngur að auki með hljómsveitinni Sometime, og Einars Tönsberg, sem hefur gert það gott sem einyrkinn Eberg. Allt byrjaði þetta með grípandi popplagi í auglýsingu. „Það var vegna Kringluauglýsingar (lagið „Running Around“) sem við hittumst fyrst. Upp úr því fórum við að hittast reglulega til að sjá svona hvað kæmi út úr því,“ segir Einar.

Lífið

Farðaði stórstjörnurnar í Forbrydelsen

Áslaug Dröfn Sigurðardóttir, hárgreiðslu- og förðunarfræðingur, sá um förðun á helstu stórstjörnum sakamálaþáttarins Forbrydelsen II (Glæpnum) sem nú slær öll áhorfsmet í dönsku sjónvarpi. Þetta er önnur þáttaröðin um lögreglukonuna Söruh Lund en fyrri þáttaröðin naut mikilla vinsælda hér á landi á sínum tíma.

Lífið

Gerningar fara á kvikmynd

Í dag kl. 17 verður sýning í Regnboganum á kvikmyndum, vídeóverkum eftir Gjörningaklúbbinn, Curver, Bjarna Massa og samstarfsmynd 16 íslenskra og pólskra listamanna í tengslum við Sequences-hátíðina. Sýndar verða myndirnar Vitaskuld, Auðvitað! eftir Gjörningaklúbbinn, vídeóverk frá gerningi þeirra 17. maí síðastliðinn er átti sér stað í Garðskaga­vita ásamt lúðrasveitinni Svaninum. Verkin Four New York Minutes og Ode to An Ode eftir Curver, en annað verkið er einnar mínútu gerningur í New York og hitt er vídeóverk tileinkað verki Finnboga Péturssonar Ode, unnið í samstarfi við Rafskinnu tímarit.

Lífið

Of langt gengið

Ritgerð eftir leikkonuna Natalie Portman birtist nýverið í dagblaðinu Huffington Post. Í ritgerðinni fjallar hún um heimssýn grænmetisæta, en leikkonan er þekkt fyrir að neyta ekki kjöts. Portman þótti þó heldur harðorð í garð þeirra sem kjósa að borða kjöt þegar hún líkti því við nauðgun.

Lífið

Þögult diskó á Austurvelli

„Það var engin sérstök ástæða að baki þessu, mér fannst bara komið nóg af neikvæðum kreppufréttum og fannst kominn tími til að vera örlítið jákvæðari, manni líður vel þegar maður dansar og það losar um streitu. Íslendingar ættu að hugsa meira eins og Pollýanna á svona tímum,“ segir Hafdís Arnardóttir, sem skipuleggur þögult diskó á samskiptavefnum Fésbók.

Lífið

ENDURUNNIN ÁST ÞÓTTI BERA AF

Verkefnið Love Recycled var kosið besta verkefnið á námskeiði á vegum Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands, en þar fengu nemendur að vinna úr hugmyndum að fjórtán fyrirtækjum og var þema námskeiðsins „góðverk“. „Hugmyndin að baki Love Recycled er að endurvinna skart. Það er fullt af fólki sem byrjar saman og hættir síðan saman einhverju seinna.

Lífið

Hrólfi hrósað

Pelleas og Mélisande með Hrólf Sæmundson í titilhlutverkinu slær í gegn hjá gagnrýnendum í þýskalandi. Uppsetning óperunnar í Aachen á Pelléas og Mélisande eftir Claude Debussy hefur heldur betur slegið í gegn hjá gagnrýnendum í þýskalandi, en það er Hrólfur Sæmundsson sem fer með annað titilhlutverkið, hlutverk Pelléasar.

Lífið

Óhemjuvinsæll hryllingur

Hryllingsmyndin Paranormal Activity, sem verður frumsýnd hérlendis á morgun, hefur slegið rækilega í gegn í Bandaríkjunum og Kanada síðan hún var frumsýnd fyrir nokkrum vikum. Hún hefur þénað rúmlega 85 milljónir dala, eða um 10,6 milljarða króna, sem er ótrúlegur árangur miðað við að hún kostaði innan við tvær milljónir króna í framleiðslu og var aðeins tekin upp á einni viku.

Lífið

LJÚFSÁR, ALÍSLENSK JÓLAMYND

Kvikmyndin Desember eftir Hilmar Oddsson verður frumsýnd á morgun. Hún fjallar á ljúfsáran hátt um alvarlega hluti í íslensku samfélagi.

Lífið

Anna Mjöll með skilnaðarblús

Anna Mjöll Ólafsdóttir býr og starfar í Los Angeles. Hún heldur fyrstu stóru sólótónleikana sína í borginni í kvöld, á hinni gagnmerku djassbúllu The Baked Potato. „Eigandinn er búinn að biðja mig lengi um að koma einhverju saman og troða upp hjá sér og það passar vel að gera það núna þegar nýja sólóplatan mín er að koma út," segir Anna Mjöll.

Lífið

Missti vinnuna og opnaði líkamsræktarstöð

„Mér og samstarfskonu minni datt þetta í hug þegar við vorum að vinna saman því við höfðum báðar mikinn áhuga á líkamsrækt. Þegar kreppan skall á misstum við báðar vinnuna og í stað þess að sitja aðgerðarlausar heima ákváðum við að opna okkar eigin líkamsræktar­stöð. Við opnuðum Studio Fitt saman í janúar en hin flutti út í sumar og nú er ég ein eftir ásamt tveimur þjálfurum,“ segir Elísabet Tanía Smáradóttir, viðskiptafræðingur og Fit Pilates kennari sem rekur líkamsræktarstöðina Studio Fitt við Seljaveg. Stöðin býður meðal annars upp á tíma í Fit Pilates, boot camp fyrir konur og jóga, svo fátt eitt sé nefnt.

Lífið

Þægileg bakgrunnstónlist A+

„Ég kalla þetta grúvgrúppuna,“ segir plötusnúðurinn Atli Rúnar sem hefur stofnað hljómsveitina A+. „Þetta er mitt hugarfóstur. Það tekur oft á taugarnar að vera popp-Dj, að hjakkast í sömu partíblöðrunum allar helgar. Poppið hefur eiginlega aldrei verið minn vettvangur. Þessi tegund af tónlist er nær mínu hjarta, svona house, soul, fönk, grúv og diskó,“ segir Atli Rúnar.

Lífið

Ásdís og Eldfuglinn

Ásdís Valdimarsdóttir víóluleikari tekst í kvöld á við einn helsta víólukonsert liðinnar aldar eftir William Walton á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Ásdís er ein þeirra Íslendinga sem hafa náð hvað lengst í tónlist á alþjóðlegum vettvangi. Hún lærði við Juilliard-tónlistarskólann og var víóluleikari Chilingirian-kvartettsins um árabil, auk þess sem hún hefur komið fram með mörgum helstu tónlistarmönnum heims, meðal annars Claudio Abbado, Maxim Vengerov og Gidon Kremer, og hljóðritað fyrir Deutsche Grammophon og EMI.

Lífið

Finnst strákar einfaldir

Leikkonan Kate Hudson er á forsíðu nýjasta heftis tímaritsins Elle UK. Í viðtali við blaðið segist Hudson líta á karlmenn sem drengi. „Þegar ég tala við stráka þá finnst mér sem þeir heyri bara sumt af því sem maður segir. Ef það væri lítil talblaðra yfir höfðinu á þeim gæti maður séð að þeir hugsuðu aðeins um íþróttir, kynlíf og mat," segir leikkonan sem sjálf á fimm ára gamlan son.

Lífið

Fékk drykk yfir sig

Leikkonan unga Mischa Barton var orsök slagsmála sem brutust út á öldurhúsi nokkru í New York-borg.

Lífið

Kaupir nýtt mótorhjól

Hjartaknúsarinn Brad Pitt hefur notað ferðalag sitt til Japans, þar sem hann kynnir myndina Inglorious Basterds, til að leita sér að nýju mótorhjóli. Uppáhaldsmótorhjólið hans eyðilagðist í síðasta mánuði og hefur hann því notað frítíma sinn í Japan til að finna nýtt. Pitt skemmdi gamla hjólið í Los Angeles þegar hann klessti á kyrrstæðan bíl. Sjálfur slapp hann með skrámur. „Það skaddaðist ekkert nema egóið mitt,“ sagði Pitt. „Ég var að reyna að stinga einhverja papparassa af en í staðinn höfðu þeir góða frétt upp úr krafsinu.“

Lífið

Hudson náin móður sinni

Jennifer Hudson segist enn vera mjög náin móður sinni, Darnell. Ár er liðið síðan hún var skotin til bana ásamt bróður Hudson, Julian, fyrir utan heimili þeirra í Chicago. Lík sjö ára frænda hennar fannst sömuleiðis í yfirgefnum bíl þremur dögum síðar. Hudson segir að móðir hennar sé verndarengillinn sinn og fylgi henni hvert sem hún fer. Hún segist finna mikið fyrir nærveru hennar á hverjum einasta degi. „Ég áttaði mig ekki á því að ég væri svona lík móður minni þar til núna. Hún var ótrúlega sterkur persónuleiki."

Lífið

Guðrún María á tónleikum í dag

Mætt er til landsins Guðrún María Finnbogadóttir sópran sem hefur dvalið lengi í Englandi við nám og störf. Hún heldur tónleika í Hafnarborg í hádeginu við undirleik Antoníu Hevesi. Guðrún María Finnbogadóttir sópran flytur þar tilfinningaríkar aríur meðal annars eftir Händel. Hefjast tónleikarnir kl. 12.15.

Lífið

Robbie aftur í Take That

Söngvarinn Robbie Williams hefur staðfest að hann ætli að starfa aftur með fyrrverandi félögum sínum í Take That. Robbie yfirgaf strákabandið árið 1995 og hóf eigin sólóferil sem hefur gengið vonum framar. Í spjallþætti Jonathan Ross á BBC sagðist Robbie vonast til að bralla eitthvað nýtt með Take That.

Lífið

Eyðir millum í eigið öryggi

Milljarðamæringurinn og harðjaxlinn 50 Cent lýsti nýlega yfir að hann eyddi rúmlega tveimur milljónum króna í öryggi sitt í hverri einustu viku.

Lífið

Í fótspor Bítlanna og Zeppelin

Bandaríska hljómsveitin The Flaming Lips hefur löngum verið talin með þeim skrítnari í tónlistarbransanum. Sýrukenndur og tilraunakenndur poppbræðingurinn hefur oft á tíðum hitt í mark hjá gagnrýnendum, sérstaklega með plötunum The Soft Bulletin og Yoshimi Battles the Pink Robots, og hljómsveitin á sér dyggan aðdáendahóp innan indí-geirans.

Lífið

Sonur Penns handtekinn í skólanum

Sextán ára gamall sonur leikarans Seans Penn, Hopper Jack Penn, var handtekinn í skóla sínum í síðustu viku. Lögreglan í Malibu neitaði að tjá sig um málið þar sem Hopper Jack er enn undir lögaldri. Þrátt fyrir þagmælsku lögreglunnar hafa þær fréttir borist að pilturinn hafi verið handtekinn fyrir að vera með fíkniefni í fórum sínum.

Lífið

DÁÐST AÐ MERKUM GÍTURUM

Merkileg sýning á gíturum hófst í Tónlistarsafni Íslands, Hábraut 2 í Kópavogi, á þriðjudaginn. Margar kempur úr tónlistar­bransanum lögðu leið sína í safnið til að berja fagrar fjalirnar augum.

Lífið

Íslensk list á alheimsvefnum

„Þetta er vefrit um íslenska list, allt frá tón- og myndlist til kvikmyndagerðar og arkitektúrs. Við höfum nú þegar gefið út þrjú blöð á heimasíðu okkar pdflistin.is, en þangað getur fólk sótt vefritin. Hvert rit er um þrjátíu til fjörutíu blaðsíður og hver listamaður fær í það minnsta eina opnu undir verk sín og stutta umfjöllun,“ segir Heimir Gústafsson, einn aðstandenda vefritsins PDFlistin. Ritið er gefið út mánaðarlega og fjallar um íslenska neðanjarðarlist auk þess sem stefnt er að því að halda listasýningar í kjölfar hverrar útgáfu.

Lífið

Framleiðir kvikmynd

Katie Holmes mun bæði framleiða og leika í kvikmyndinni Romantics ásamt Önnu Paquin úr þáttunum True Blood. Upphaflega átti leikkonan Liv Tyler að fara með aðalhlutverkið í kvikmyndinni en eftir að hún hætti við var Holmes fengin í staðinn. Kvikmyndin fjallar um tvær háskólavinkonur sem hittast aftur síðar þegar önnur þeirra giftir sig. Tökur á myndinni fara fram í New York og hefjast í næstu viku.

Lífið