Lífið

Sjö ráð til að koma sér í form

Gunnar Borg Sigurðsson þolfimileiðbeinandi í World Class taldi upp eftirfarandi heilræði þegar við báðum hann um sjö ráð til handa þeim sem vilja koma sér í gott líkamlegt form:

Lífið

Oksana vill meiri pening

Forræðisdeila Oksönu Grigorievu og áströlsku ofurstjörnunnar Mels Gibson er enn í fullum gangi. Og nú krefst Oksana þess að Gibson greiði henni 84 þúsund dollara, níu milljónir íslenskar, fyrir þá almannatengslaþjónustu sem hún varð að kaupa í kjölfar deilnanna milli þeirra.

Lífið

Sérsmíðaðar súlur fyrir Íslandsmótið í súlufitness

„Það eru tíu stelpur sem taka þátt. Þær eru búnar að æfa sig í sex mánuði og hafa lítið séð af fjölskyldunni,“ segir Inga Birna Dungal hjá X-Form en veglegt Íslandsmót í polefitness, þessari vinsælu íþróttagrein, verður haldið á skemmtistaðnum Replay við Grensásveg á laugardaginn.

Lífið

Fínt framhald

Plata númer tvö frá systkinasveitinni Klassart frá Sandgerði. Hún vakti mikla athygli fyrir sína fyrstu plötu, samnefnda sveitinni, sem kom út fyrir þremur árum og hafði að geyma kántrý- og blús-skotið rokk í rólegri kantinum.

Lífið

Upptökuliðið hvarf

Hljómsveitin Örför hefur gefið út sína fyrstu plötu. Hún hefur að geyma dægurlagarokk með íslenskum textum og er samstarfsverkefni Hek, eða Hauks Emils Kaaber, og G. Þorsteinssonar.

Lífið

Að lifa í núinu

Hrífandi lífsóður með fyndnum hugleiðingum og sögubrotum, fléttuðum saman við hugljúfa tónlist.

Lífið

Some Like It Hot í sundi

Hin sígilda gamanmynd Some Like It Hot frá 1959 verður sýnd í Sundhöll Reykjavíkur á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, 24. september. Efnt verður til hitabeltisveislu á meðan á sýningu myndarinnar stendur. Sandi og pálmatrjám verður komið fyrir í Sundhöllinni og föngulegar dansmeyjar verða á staðnum. Marilyn Monroe, Tony Curtis og Jack Lemmon eru í aðalhlutverkum í Some Like It Hot sem Billy Wilder leikstýrði.

Lífið

Cameron gerir heimildarmynd um íbúa Amazon

Næsta verkefni Avatar-leikstjórans James Cameron verður heimildarmynd um íbúa Amazon-frumskógarins. Leikstjóranum hefur verið boðið að hitta íbúa ættbálksins Xikrin-Kayapo í Brasilíu til að ræða áhrif iðnvæðingarinnar á umhverfi þeirra.

Lífið

Frægðin kemur í veg fyrir vel lukkuð ástarsambönd

Breska leikaranum Ed Westwick, 24 ára, sem skaust upp á stjörnuhimininn í hlutverki Chuck Bass í sjónvarpsþættinum Gossip Girl, finnst erfitt að kynnast konum af því að hann er frægur. Ed hefur verið í „haltu mér slepptu mér sambandi„ við mótleikkonu sína Jessicu Szohr síðastliðið ár en þau hættu saman nýverið. Ed þykir erfitt að vera stöðugt undir eftirliti slúðurmiðla sem velta sér endalaust upp úr samböndum hans við hitt kynið. „Stundum er þetta bara mjög erfitt. Sérstaklega þegar ég kýs að vera í friði með mín persónulegu mál. Það er erfitt að vera þekktur og láta eins og slúðrið fari ekki fyrir brjóstið á manni," sagði Ed.

Lífið

Brosmild í bröns

Meðfylgjandi myndir voru teknar á veitingahúsinu Nauthól þegar yfirkokkurinn Eyþór Rúnarsson bauð gestum í hádegisverð sem hann ásamt starfsfólki sínu býður upp á alla sunnudaga. Þá má sjá Björn Leifsson og Hafdísi Jónsdóttur eigendur World Class ásamt börnum þeirra, Ragnhildi Steinunni fjölmiðlakonu, Jóhannes Ásbjörnsson fjölmiðlamann í fylgd dóttur sinnar, Siggu Lund fjölmiðlakonu ásamt félaga og Björn Braga ritstjóra Monitor. Hér má sjá yfirkokkinn sýna okkur herlegheitin.

Lífið

Kærir framhjáhaldsfrétt

Ashton Kutcher hyggst kæra bandaríska tímaritið Star dragi þeir ekki fréttina um sig og meint framhjáhald sitt tilbaka. Ritstjórn blaðsins segist standa við fréttina.

Lífið

Rauðar varir áberandi

Við litum við á kynningu á nýrri snyrtivörulínu, Hello Kitty, sem var að koma til landsins í gærkvöldi. Fjöldi kvenna var þar saman kominn eins og meðfylgjandi myndir sýna. Það eru mikið úrval af litum í augnsguggum, glossum, varalitum og naglalökkum og svo erum við einnig með ótrúlega flott úrval af augnblýöntum," svaraði Eva Garðarsdóttir Kristmanns hjá Artica heildsölunni þegar við spurðum hana út í Hello Kitty snyrtivörulínuna. Haustlitirnir í ár eru frekar grá-brún tóna litir, svo og dempaðir litir eins og plómu og dökk grænn. Einnig eru rauðar varir áberandi og ekki má gleyma eyeliner," sagði hún jafnframt. Eru Hello Kitty snyrtivörur fyrir bönr? Nei alls ekki, þó að markhópurinn sé 15-35 ára þá eru þarna vörur fyrir alla aldurshópa.

Lífið

Gefur út jólaplötu

Scott Weiland, söngvari Stone Temple Pilots, ætlar að gefa út jólaplötu síðar á þessu ári. Á plötunni verða nútímalegar útgáfur af gömlum og góðum jólalögum.

Lífið

Dreymir um að búa í sveit

Söngkonan Katy Perry ætlar að kaupa bóndabýli fyrir sig og verðandi eiginmann sinn, Russell Brand. Ég ætla að kaupa mér bóndabýli og eignast fullt af börnum sem hlaupa um í fersku loftinu," sagði Katy. Þetta hljómar eins og ég sé að grínast en þegar Russell er búinn að leika í öllum kvikmyndunum sínum og ég búin að gefa út alla tónlistina mína þá er tími til kominn að við stofnum fjölskyldu. Ég vil búa með börnunum í Englandi. Já okkur Russell dreymir svo sannarlega um að eignast börn," bætti hún við. Við erum á Facebook.

Lífið

Jómfrúarmenn með í Hörpunni

Jakob Jakobsson og maður hans, Guðmundur Guðjónsson, ásamt syni Jakobs, Jakob Einar Jakobssyni, munu reka nýjan veitingastað í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpunni.

Lífið

Emilíana Torrini orðin mamma

Söngkonan Emilíana Torrini eignaðist dreng í morgun. Vísir óskar Emilíönu og unnusta hennar til innilega hamingju með frumburðinn en þau eru búsett í Bretlandi.

Lífið

Setur tilfinningar í ilmvatnsflöskur

Söngkonan Céline Dion, 42 ára, segir að ferðalög með fjölskyldu hennar hafi haft áhrif á nýjasta ilminn hennar hafi verið búinn til útfrá fjölskylduferðalögum. Um er að ræða fjórtánda ilminn sem hún setur á markað í eigin nafni og í þetta sinn kallar hún ilminn Pure Brilliance. Céline, sem gengur með tvíbura og á níu ára gamlan son, Rene-Charles, með eiginmanni sínum Rene Angelil, hefur eytt ófáum stundum við sjávarsíðuna með feðgunum. „Ég anda stöðugt að mér fersku sjávarlofti við ströndinni og er mjög næm því ég er barnshafandi. Kannski er það ástæðan fyrir því að ég leitast við að tengja fríin okkar við nýja ilminn," sagði hún.

Lífið

Trúði ekki á hjónaband

Breska leikkonan Gemma Arterton, 24 ára, sem vakti athygli í James Bond myndinni Quantum of Solace, viðurkennir að henni fannst gifting ekki skipta einu einasta mála þar til hún hitti núverandi eiginmann sínum. Fyrr á þessu ári giftist Gemma ítölskum viðskiptamanni, Stefano Catelli. Ég hafði enga trú á heilögu hjónabandi því allir sem tengdust mér voru hætt saman. Mamma og pabbi og já bara allir höfðu skilið þannig að mér fannst gifting alls ekki vera lykill að hamingjusömu sambandi," sagði Gemma. Ég trúði aldrei að ég myndi standa upp við altarið og gefa hjarta mitt. Síðan setti ég upp hringinn og í dag elska ég að vera gift. Það er yndislegt. Maðurinn minn er rómantískur og hann fær mig til að hlæja. Hann er algjör rugludallur, sagði hún.

Lífið

Skilnaðurinn andlegt ferðalag

Söngkonan Leona Lewis segir að sambandsslitin við unnustann, Lou Al-Chamaa, sem hún var með í 10 ára hafi verið andlegt ferðalag. Eftir að Leona sigraði X Factor keppnina í Bretlandi árið 2006 hefur hún einbeitt sér að tónlistarferlinum í Bandaríkjunum á meðan unnustinn dvaldi á heimil þeirra í Bretlandi.

Lífið

Í spilun á 95 útvarpsstöðvum

„Ég spilaði nokkra tónleika í Bandaríkjunum í júní og eyddi tveimur dögum í að troða diskum í umslög og senda á útvarpsstöðvar. Nú er það að skila sér,“ segir Sunna Gunnlaugsdóttir, djasspíanisti.

Lífið

Þolir ekki miðaldra menn sem klæða sig eins og unglingar

Breski leikaranum Hugh Grant, 49 ára, þykir hræðilegt að horfa upp á jafnaldra sína klæða sig eins og unglinga. Hugh er þekktur fyrir einfaldan látlausan smekk þegar kemur að klæðaburði en hann hefur vakið athygli fyrir að gana í póló skyrtum og kasmír peysum undanfarin ár. „Ég er ekki frá því að fólk um og yfir þrítugt reyni stöðugt að klæða sig eins og unga fólkið. Þú gengur um borgir eins og New York eða London og það eina sem þú sérð er fullorðið fólk sem klæðir sig eins og unglingar. Mér finnst það hræðilegt," sagði hann. Hann segir að konur hafi gríðarleg áhrif á hvernig mennirnir þeirra klæða sig en Hugh hefur átt í ástarsambandi við margar smekklegar konur. Má þar nefna Elizabeth Hurley og Jemima Khan. „Ég held að hver einasti karlmaður hlusti á það sem konur segja um fötin sem þeir ganga í. Ef kona segir við karlmann: Þú lítur rosalega vel út í þessum gallabuxum, þá mun viðkomandi ganga í þeim næstu tuttugu árin."

Lífið

Hot Yoga sérfræðingur væntanlegur til Íslands

Heimsfrægur Hot Yoga sérfræðingur, Jimmy Barkan, kemur til Íslands 9.-12.september næstkomandi í þeim tilgangi að kenna Íslendingum Hot Yoga. Við höfðum samband við Hot Yoga kennarann Lönu Vogestad í World Class og spurðum hana út í heimsóknina. Það er mikill heiður að fá hann til landsins og fá að njóta leiðsagnar hans en Jimmy hefur kennt Hot Yoga síðan 1981. Hann er heimsfrægur sem slíkur. Jimmy var upphaflega nemandi hjá Bikram, en sá maður kynnti Hot Yoga fyrir Bandaríkjamönnum. Hann þjálfar kennara í Japan, Ástralíu, víða í Evrópu og í Bandaríkjunum og rekur tvo Hot Yoga skóla í Flórida auk þess að ferðast um víða veröld og halda námskeið. Auk alls þessa hefur hann þjálfað marga toppíþróttamenn í NFL, NBA, NHL og PGA Tour kylfinga," segir Lana. Þegar við spyrjum Lönu út í Hot Yoga íþróttina og hvaða áhrif hún hefur á iðkendur svara hún: Hot Yoga hefur margvísleg bætandi áhrif á allan líkamann; bein, vöðva, líffæri og vefi auk þess að hafa góð áhrif á t.d. einbeitingu, viljastyrk og þolinmæði. Það má því með sanni segja að Hot Yoga geti breytt lífi fólks til batnaðar. Er þetta námskeið fyrir alla? Já algjörlega! Jimmy býður alla velkomna, reynda sem óreynda!"

Lífið