Lífið

Rauðar varir áberandi

MYNDIR/EA
MYNDIR/EA

Við litum við á kynningu í gærkvöldi á nýrri snyrtivörulínu sem ber heitið Hello Kitty, sem er ný hér á landi. Fjöldi kvenna mættu til að kynna sér herlegheitin eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

„Það eru mikið úrval af litum í augnsguggum, glossum, varalitum og naglalökkum og svo erum við einnig með ótrúlega flott úrval af augnblýöntum," svaraði Eva Garðarsdóttir Kristmanns hjá Artica heildsölunni þegar við spurðum hana út í Hello Kitty snyrtivörulínuna.

„Haustlitirnir í ár eru frekar grá-brún tóna litir, svo og dempaðir litir eins og plómu og dökk grænn. Einnig eru rauðar varir áberandi og ekki má gleyma eyeliner," sagði hún jafnframt.

Eru Hello Kitty snyrtivörurnar fyrir börn? „Nei alls ekki, þó að markhópurinn sé 15-35 ára þá eru þarna vörur fyrir alla aldurshópa," sagði Eva.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×