Lífið
Börnin í fyrsta sæti Söngkonan Sheryl Crow, 48 ára, þroskaðist töluvert þegar hún varð móðir. Sheryl, sem á tvö börn, Wyatt, 3 ára, og Levi, 5 mánaða, áttaði sig á því hvað hún var sjálfselsk áður en hún ættleiddi börnin því í dag skiptir velferð þeirra hana öllu máli. „Börnin gjörbreyttu lífi mínu. Það fyrsta sem ég hugsa um á morgnana er hvernig þau hafa það og það síðasta sem ég hugsa um áður en ég sofna er hvernig þeim líður," sagði hún. Á tónleikaferðalaginu ferðast Sheryl um í stórri rútu svo börnin geti verið með henni öllum stundum. „Ég ferðast um í rútunni til að allt sé í föstum skorðum eins og það á að vera hjá fjölskyldufólki. Áður fyrr var líf mitt á allt öðrum nótum. Í dag er ég afslöppuð og sátt," sagði hún. Lífið 27.9.2010 12:30
Vel heppnuð frumsýning Leikritið Enron var frumsýnt í Borgarleikúsinu á dögunum. Góðir gestir mættu á sýninguna sem þótti heppnast afar vel. Enron fjallar um ris og fall bandaríska stórfyrirtækisins Enron. Sýningin er mikið sjónarspil þar sem töfrum leikhússins er beitt til að knýja verkið áfram með tónlist, dansi og sjónrænum tilþrifum. Leikstjóri er Stefán Jónsson og með stór hlutverk fara Stefán Hallur Stefánsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Lífið 27.9.2010 12:00
Skrifar til að slaka á Fyrrum sjónvarpsstjarnan og nú fatahönnuðurinn, Nicole Richie, 29 ára, segir að þegar hún skrifar sögur nær hún að slaka á og gleyma sér. Lífið 27.9.2010 11:30
Ósátt við allt fyrir neðan mitti Leikkonan Helen Mirren, 65 ára, hefur lengi vel verslað spariskóna sína í strippara-búðum eða með öðrum orðum verslunum sem selja fatnað, aukahluti og skó fyrir konur sem dansa súludans og afklæðast gegn greiðslu. Helen segir að hælaskórnir sem stripparar eru vanir að nota í vinnunni henti sér einstaklega vel. Þeir efla sjálfstraustið hennar þegar hún gengur á þeim og svo heldur hún því fram að hún líti út fyrir að vera grennri í vextinum. Helen uppgötvaði umræddan skóbúnað fyrir allmörgum árum. Þessir hælaskór sem strippararnir nota hækka mann og lætur leggina líta út fyrir að vera granna og langa. Hér áður fyrr voru þeir aðeins til í strippara-búðum en í dag er hægt að kaupa þá í nánast öllum skóbuðum," sagði Helen. Hluti af líkama mínum er fallegur en svo eru aðrir líkamshlutar sem ég er ekki sátt við," viðurkenndi hún. Ef ég á að vera alveg hreinskilin er ég mjög óánægð með allt fyrir neðan mittið á mér." Lífið 27.9.2010 10:30
Túraði með Placebo um allan heim „Þetta eru poppstjörnur sem þurfa að halda feisi út á við, en þeir eru algjörir ljúflingar," segir hljóðmaðurinn Finnur Ragnarsson um bresku hljómsveitina Placebo. Lífið 27.9.2010 10:00
Playboy ekki á dagskránni Leikkonan Blake Lively, 23 ára, vill leiðrétta þrálátan orðróm um að henni hafi verið boðið að sitja fyrir í Playboy. Blake er illa við háværar sögusagnir þess efnis að henni voru boðnar 2,5 milljónir bandaríkjadala fyrir að sitja fyrir kviknakin á síðum Playboy. Blake vill leiðrétta þennan misskilning. Hún segir að um hreinan uppspuna sé að ræða. Það er með ólíkindum að fólk skuli gera upp svona sögur. Þegar ég heyri neikvæðr sögur um mig er frænka mín það fyrsta sem ég hugsa um því ég elska hana svo mikið og ég vil ekki að hún heyri slíkt rugl," sagði Blake sem hefur heldur betur slegið í gegn sem Serena í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl. Lífið 27.9.2010 09:15
Palli á ábreiðuplötu Barða Safnplata með Bang Gang, hljómsveit Barða Jóhannssonar, kemur í búðir eftir mánuð. Með henni fylgir aukadiskur þar sem lög sveitarinnar verða í nýjum útgáfum Páls Óskars, Diktu, Daníels Ágústs og fleiri flytjenda. Lífið 27.9.2010 08:00
Vongóðir karlmenn biðu í röð út á götu Elite skrifstofan á Íslandi hélt nýverið mikla leit hér á landi eftir næsta andliti bandaríska tískumerkisins Calvin Klein. Leitað var af íslenskum karlmönnum á aldrinum 16 til 30 ára og að sögn Ingibjargar Finnbogadóttur, framkvæmdarstjóra Elite skrifstofunnar á Íslandi, sóttu tæplega tvöhundrað manns prufuna. Lífið 27.9.2010 07:00
Börnin mikilvægari en peningar Söngvarinn Seal, 47 ára, hefur í gegnum tíðina neitað að taka við verkefnum sem eru vel launuð því hann vill njóta þess að vera með fjölskyldunni. Söngvarinn sem gerði garðinn frægan með laginu Kiss from a Rose, elur upp fjögur börn ásamt eiginkonu sinni, fyrirsætunni Heidi Klum. Leni, 6 ára, sem Heidi á með fyrrverandi eiginmanni sínum, Flavio Briatore, Henry, 5 ára, Johan, 3 ára og Lou, 11 mánaða, eiga hug hans allan en Seal segir framann algjört aukaatriði þegar kemur að börnunum. Þetta eru engin vísindi. Að vera fjölskyldumaður er virkilega gaman og fullnægjandi og þess vegna kýs ég að forgangsraða. Það er allt og sumt," sagði Seal. Við höfum bæði neitað gríðarlega háum peningaupphæðum því okkur finnst fjölskyldan skipta meira máli." Lífið 26.9.2010 12:00
Sýnir í þriggja milljarða íbúð Hjörtur Hjartarson sýnir olíumálverk sín í rándýrri þakíbúð í New York. Hann segir íslenskar náttúrumyndir sínar passa ágætlega inn í lúxusíbúðir. Lífið 26.9.2010 12:00
Hagþenkir úthlutar Hagþenkir félag höfunda fræðirita og kennslugagna, úthlutaði á fimmtudag 38 verkefnum starfsstyrkjum sem samstals námu 12 milljónum króna. Lífið 26.9.2010 11:00
Mamma leitar að tengdasyni Móðir leikkonunnar Teri Hatcher, 45 ára, er stöðugt að reyna að finna elskhuga handa dóttur sinni en án árangurs. Desperate Housewives stjarnan hefur ekki enn fundið þann eina rétta og hver hefur áhyggjur af því? Jú mamma hennar er ekki í rónni yfir því að dóttir hennar, heimsfræg leikkonan, láti sér leiðast sem einstæð móðir. Teri á 12 ára gamla dóttur með fyrrum eiginmanni sínum, Marcus Leithold. Það er enginn maður í spilinu en trúið mér það er verið að vinna í því fyrir mig. Fjölskyldan er að vinna í því. Mamma er að vinna í því," viðurkenndi Teri. Mamma fer yfir málin með vinkonum sínum og sendir mér síðan myndir og upplýsingar um karlmenn sem eru tilvaldir fyrir mig að hennar mati. Hún sendir mér þessar upplýsingar í tölvupósti," sagði Teri. Ég trúi því að örlögin ráði því hvernig ástarmálin fara. Svo má ekki gleyma að karlmenn eru flóknir. Sumir vilja hittast í mörg skipti án þess að nokkuð gerist annað en að tala um fortíðina og svo eru aðrir sem henda konum út ef þær vilja sofa hjá á fyrsta stefnumótinu." Lífið 26.9.2010 10:30
Karlmenn ekki lykill að hamingju Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian, 29 ára, þarfnast ekki karlmanns til að finna hamingjuna. Kim, sem hefur átt vingott við íþróttamenn eins og Reggie Bush og Cristiano Ronaldo veit nákvæmlega hvað hún vill ekki. „Mér liíður ekki þannig í dag að ég þrái að eignast kærasta. Ég er líka vonlaus í rómantísku deildinni. Ég þarf ekki mann til að vera haminjgusöm." Kim er nýhætt með leikmanni Dallas Cowboys, Miles Austin, og ætlar að vera á lausu áfram eða þangað til sá eini rétti birtist. Þangað til vill hún einbeita sér að ferlinum. „Ef ég er á lausu þá get ég einbeitt mér betur að því sem ég geri en þegar ég er ástfangin kemst ekkert annað að hjá mér," sagði Kim. Lífið 26.9.2010 09:00
Handritin setið á hakanum Út er komin fyrsta frumsamda handbókin um handritskrif á íslensku, bókin Ritun kvikmyndahandrita - praktísk handbók eftir Önnu Th. Rögnvaldsdóttur kvikmyndagerðarmann. Lífið 26.9.2010 08:00
Aniston blekkir vini sína Jennifer Aniston er enn yfir sig ástfangin af tónlistarmanninum John Mayer. Jennifer og John voru í haltu m ér slepptu mér sambandi nánast allt árið 2008 og í byrjun ársins 2009 þegar þau ákváðu að enda sambandið í mars. Jennifer hélt alltaf út af fyrir sig hvernig henni leið og hvaða tilfinningar hún bæði til John en hún var alltaf ósátt við hvað hann talaði opinskátt um sambandið. Hún er með hann á heilanum, er haft eftir vini Jennifer. Hún heldur því fram að þau séu bara vinir en það sést greinilega að hún er fallin aftur Lífið 26.9.2010 07:00
Svefn er vopnið mitt Söngkonan Mariah Carey nýtur þess að sofna snemma á kvöldin á meðan eiginmaður hennar, Nick Cannon, vakir fram eftir. Lífið 25.9.2010 09:30
Óttast um Michael Fangelsismálayfirvöldum verður gert skylt að fylgjast grannt með andlegri heilsu breska söngvarans George Michael. Lífið 25.9.2010 06:00
Dóri DNA flytur til Þýskalands Rapparinn og uppistandarinn Dóri DNA segist þurfa á tilbreytingu að halda og flytur út eftir helgi. Lífið 25.9.2010 06:00
Hetjan í Landnámssetrinu Einleikurinn Hetjan verður frumsýndur í Landnámssetrinu í Borgarnesi á laugardag. Sýningin var sýnd við góðar undirtektir á Rifi í sumar og í framhaldinu var þeim Kára Viðarssyni leikara og Víkingi Kristjánssyni leikstjóra boðið að sýna í Landsnámsetrinu. „Sýningin fékk mjög góða dóma og spurðist vel út, fólk var að þvælast úr bænum til okkar í raun meira en við þorðum að vona,“ segir Víkingur sem er ásamt Kára höfundur leikritsins. Lífið 25.9.2010 06:00
Líf eftir Harry Potter Emma Watson er þegar farin að leggja grunn að lífi eftir að Harry Potter-ævintýrinu lýkur en síðasta myndin um töfrastrákinn verður tekin til sýningar á næsta ári. Og þá þurfa leikararnir að finna sér eitthvað annað að gera. Lífið 25.9.2010 06:00
Berst gegn hungri Söngkonan Christina Aguilera tjáir sig um hungursneyð í nýju hvatningarmyndbandi. Þar skorar hún á fólk að láta sig málið varða. Lífið 25.9.2010 06:00
Beckham vill tæpan milljarð Knattspyrnumaðurinn David Beckham hyggst láta sverfa til stáls í baráttu sinni við bandaríska tímaritið In Touch og vændiskonuna Irmu Nici. Lífið 25.9.2010 06:00
Á eftir að sakna matarins hjá mömmu „Þá er maður alfarið farinn að skjóta rótum í höfuðborginni,“ segir Ingólfur Þórarinsson, söngvari, leikari og fótboltamaður en hann festi nýverið kaup á sinni fyrstu íbúð. Íbúðin er í Gerðahverfi í Reykjavík og ætlar kappinn því endanlega að yfirgefa heimabæ sinn Selfoss. Íbúðina fær söngvarinn afhenta í byrjun desember og lofar hann innflutningspartýi fram í febrúar. Lífið 25.9.2010 06:00
Synir Douglas hjálpa til Leikarinn Michael Douglas segir að krabbameinið hafi að einhverju leyti sameinað fjölskyldu hans og að hann leyfi sonum sínum að koma með sér á spítalann í geislameðferðir. Douglas, sem greindist með krabbamein í tungunni fyrr í sumar, segir syni sína hjálpa sér í baráttunni við sjúkdóminn og ástæðulaust sé að halda þessu leyndu fyrir þeim. Lífið 25.9.2010 06:00
Hleypur meidd fyrsta maraþonið „Ég skal komast í mark – en ég er svo hrædd um að ég rústi mér,“ segir veðurfréttakonan Soffía Sveinsdóttir. Lífið 25.9.2010 06:00
Sólskinsdrengurinn lofaður í Ameríku Íslenska heimildarmyndin Sólskinsdrengurinn fær lofsamlega dóma í bandarísku stórblöðunum New York Times og Los Angeles Times. Myndin var frumsýnd í Bandaríkjunum og Bretlandi í gær og því nokkuð skammt stórra högga á milli hjá Friðriki Þór Friðrikssyni, leikstjóra myndarinnar, því önnur kvikmynd hans, Mamma Gógó, hefur einnig fengið flotta dóma, meðal annars hjá Variety. Lífið 25.9.2010 06:00
Dómnefndin ekki grimm Framleiðandi American Idol, Nigel Lythgoe, hefur lofað því að í næstu þáttaröð verði dómnefndin ekki eins grimm og þegar Simon Cowell var formaður dómnefndar. „Keppendur verða ekki niðurlægðir,“ sagði hann. Lífið 25.9.2010 06:00
Fylgdist vel með gengi múm Sellóleikarinn Gyða Valtýsdóttir, sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni múm hér á árum áður, heldur tónleika í Norðurpólnum í kvöld ásamt slagverksleikaranum Julian Sartorius. Þau hafa spilað saman sem tvíeyki í tæpt ár og eru þetta fyrstu tónleikar þeirra hér á landi. Lífið 25.9.2010 06:00
Kókflöskusýning í Los Angeles Ljósmyndasýning með verkum Þorvaldar Arnar Kristmundssonar var opnuð í Los Angeles á dögunum. Stúlkurnar í The Charlies sungu fyrir gesti. „Þetta var hrikalega flott „sjóv“. Kaninn kann að gera þetta,“ segir ljósmyndarinn Þorvaldur Örn Kristmundsson. Lífið 25.9.2010 06:00
Vatn lykill að útgeislun Kínverska fyrirsætan Shu Pei Qin, 20 ára, segir að samningur hennar við snyrtivöruframleiðandann Maybelline sé langþráður draumur sem hefur loksins orðið að veruleika. Shu skaust upp á stjörnuhimininn í tískubransanum á mettíma. Hún sat fyrir á forsíðu kínsverska Vogue tímaritinu, var andlit GAP fataframleiðandans og núna hefur hún skrifað undir risastóran samning við Maybelline. Þegar ég verslaði mér maskara frá Maybelline óskaði ég þess að ég yrði Maybelline stúlka einhvern daginn. Núna þegar það hefur gerst er eins og óskin mín hafi ræst," sagði Shu. Spurð hvernig hún fer að því að vera geislandi og fersk öllum stundum svaraði hún: Ég drekk helling af vatni. Ég er alltaf með flösku af vatni með mér hvert sem ég fer. Svo er ég líka alltaf með rauðan varalit í veskinu." Lífið 24.9.2010 16:15