Lífið

Sveinn Andri og Kristrún Ösp innsigla ástina á Facebook

Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson, sem oft var talinn á meðal heitustu piparsveina landsins, er genginn út. Á Facebook síðu hans segir að hann sé nú í sambandi við fyrirsætuna Kristrúnu Ösp Barkardóttur. Á Facebook síðu hennar er sömu sögu að segja.

Lífið

Liam í fatahönnunarstríð

Breski ólátabelgurinn Liam Gallagher, fyrrverandi söngvari Oasis, er þekktur fyrir allt annað en að liggja á skoðunum sínum um menn og málefni. Hann hefur nú sent Jay Z-tóninn fyrir fatalínuna hans.

Lífið

Til Los Angeles á fund Charlies

"Við erum að fara að heimsækja Charlies-stelpurnar, sem við erum búnir að vera að vinna með,“ segir Pálmi Ragnar Ásgeirsson úr upptökustjórateyminu StopWaitGo.

Lífið

Dömurnar djömmuðu síðustu helgi

Meðfylgjandi myndir voru teknar síðustu helgi á veitingastöðunum Vestur, sem var áður Glaumbar, Risið, Hressó, Hvíta Perlan og Bjarni Fel. Eins og myndirnar, sem Sveinbi ljósmyndari Superman.is tók, sýna voru dömurnar í djammstuði.

Lífið

Finnar kaupa óséðan Heimsendi

Finnska ríkissjónvarpið YLE hefur keypt sýningarréttinn á sjónvarpsþáttunum Heimsendi án þess að hafa séð svo mikið sem einn þátt. Leikstjórinn Ragnar Bragason vinnur nú að handriti þáttanna ásamt Pétri Jóhanni Sigfússyni, Jörundi Ragnarssyni og Jóhanni Ævari Grímssyni.

Lífið

Hvetur mig til dáða

"Þetta hefur mikla þýðingu fyrir mig og hvetur mann til dáða,“ segir Ragnheiður Gestsdóttir, sem hlaut Sögusteininn, barnabók Ibby, sem afhent voru á Íslandi í fjórða sinn um helgina.

Lífið

Fyrirlestraröð Sequences hefst í dag

Myndlistarhátíðin Sequences býður upp á daglega fyrirlestra í samstarfi við Listaháskóla Íslands, frá og með deginum í dag til 7. apríl. Fyrirlestrarnir verða haldnir í mynlistardeild Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91, í stofu 024, klukkan 13 til 15.

Lífið

Floyd-liðar spila saman

Roger Waters, fyrrum liðsmaður Pink Floyd, ætlar að spila lag með hljómsveit sinni ásamt fyrrum félaga sínum úr bandinu, David Gilmore á tónleikum síðar á þessu ári.

Lífið

Frjálsleg túlkun á þjóðsögu

Nýtt íslenskt dansverk var frumsýnt í Tjarnabíói um helgina. Verkið nefnist Gibbla og er samstarfsverkefni sjö listamanna úr ólíkum listgreinum sem tvinna saman dans, tónlist og kvikmyndagerð í eina samræmda heild.

Lífið

Með blústónlist í blóðinu

Vasti Jackson verður á meðal gesta á Blúshátíð í Reykjavík sem verður haldin í áttunda sinn 16. til 21. apríl. Hann segir blúsinn vera í blóðinu, enda ólst hann upp í Mississippi. Jackson stígur á svið á Hilton-hótelinu 21. apríl. Hann er flinkur gítarleikari og afburða blússöngvari og er þekktur fyrir að ná góðum tengslum við áhorfendur á tónleikum.

Lífið

Trúi ekki á kynbundinn ljóðamun

Gyrðir Elíasson rithöfundur fagnar fimmtugsafmæli í dag með útgáfu á hnausþykku safni nýrra ljóðaþýðinga, Tunglið braust inn í húsið. Í samtali við Bergstein Sigurðsson ræðir Gyrðir um ljóðin sem hafa fylgt honum, tímamótin sem hann stendur á og fleira.

Lífið

Tobba og Kalli opinská um ástina

"Fólk gerir oft grín að þessu og segir: Sitjið þið tvö inn í stofu og talið saman á Facebook? Svona fer oft fyrir brjóstið á fólki og stundum set ég hjarta á vegginn hjá Kalla og einhverntíman skirfaði ég Ég elska þig.." sagði Tobba Marínós meðal annars þegar hún og unnusti hennar, Karl Sigurðsson, meðlimur Baggalúts, voru gestir hjá Siggu Lund og Ellý Ármanns á Bylgjunni í gærkvöldi. Þau ræddu opinskátt um "stóra eineltismálið", facebook-rómantík, fyrsta kossinn og ástina.

Lífið

Stelpur í háum sokkum í eftirpartý á Faktorý

Ghostface Killah, meðlimur hljómsveitarinnar Wu Tang Clan sem var frægasta hipphopp hljómsveit veraldar á tíunda áratugnum, hélt tónleika á Nasa á laugardagskvöldið. Tónleikarnir voru hluti af Reykjavík Fashion Festival. Meðfylgjandi má sjá myndir af tónleikunum og eftirpartý RFF á skemmtistaðnum Faktorý þar sem REYK VEEK, sem er hópur íslenskra plötusnúða og raftónlistarmanna, héldu eftirpartý. Þarna hópuðust módelin, hönnuðirnir og pressan saman og hlustuðu á íslenska raftónlist eftir tískusýningarnar á laugardagskvöldinu.

Lífið

Óttar fær ekki að skjóta Mulan

Hætt hefur verið við gerð kvikmyndarinnar Mulan, sem Jan de Bont átti að leikstýra. Óttar Guðnason kvikmyndatökumaður hafði verið ráðinn til að stjórna upptökum myndarinnar en nú er ljóst að af verkefninu verður ekki. Óttar vildi ekki tjá sig við Fréttablaðið um málið, sagði þetta vera hrakfallasögu frá upphafi til enda. Samkvæmt fréttum frá Hollywood hafa framleiðendur myndarinnar ekki lagt árar í bát en ólíklegt verður að teljast að nokkuð verði af gerð myndarinnar.

Lífið

Katy Perry sökuð um stuld

Aðdáendur Lady Gaga saka Katy Perry um stuld í nýjasta myndbandi þeirrar síðastnefndu. Aðdáendasíður Lady Gaga hafa gjörsamlega logað eftir að Perry frumsýndi ET-myndbandið sitt en þar sést söngkonan í líki geimveru. Perry er jafnframt mikið förðuð og látin líta út fyrir að vera blá og það er kannski einna helst það sem fer fyrir brjóstið á aðdáendum Gaga en þeir eru ákaflega trúir og tryggir sinni stjörnu. Vilja sumir meina að þar sé Perry að líkja eftir nýlegu sci-fi-myndbandi Gaga en söngkonan er þar förðuð eins og vélmenni.

Lífið

Maríus og Aggi koma með vorið

Það ætti enginn að vera svikinn af ferð á swing-tónleikana með þeim Maríusi og Agga sem haldnir verða á Rósenberg á þriðjudaginn. Maríus Sverrisson er enda einn flinkasti söngvari landsins, hefur sungið aðalhlutverk í fjölda söngleikja í Austuríki, Sviss og Þýskalandi. Aggi, eða Agnar Már, er einn virtasti píanóleikari landsins og hefur gefið út fjölda platna og unnið með fremstu söngvurum landsins.

Lífið

Manúela selur gersemar á netinu

„Ég hef lengi ætlað að selja fötin mín og gefa ágóðann en aldrei komið mér í það enda tímafrekt að fara í gegnum fataskápinn,“ segir Manúela Ósk Harðardóttir, fyrrverandi Ungfrú Ísland, en hún hefur nú opnað fataskáp sinni fyrir landsmönnum og er að selja þær flíkur sem hún er hætt að nota á síðunni Fataskápur Manúelu á Facebook.

Lífið

Kutcher við öllu búinn

Tímaritið In Touch Weekly greindi frá því nýverið að leikarinn Ashton Kutcher hafi farið og birgt sig upp af ýmsum neyðarbúnaði ef vera skyldi að hamfarir myndu skella á Los Angeles.

Lífið

Sakar Richardson um ósiðsamlegt boð

Ljósmyndarinn Terry Richardson hefur aftur verið sakaður um kynferðislegt áreiti af ungri fyrirsætu. Vefsíðan Fashionista.com greinir frá því að fyrirsætan Felice Fawn hafi fengið ósiðsamlegt boð frá Richardson í gegnum spjallþráð. Stúlkan birti samtalið á bloggsíðu sinni fyrir stuttu en tók hana niður stuttu síðar. Samtalið má þó finna í heild sinni á síðu Fashionista.com.

Lífið

Tengdó hefur slæm áhrif á sambandið

Hjónaband leikkonunnar Katherine Heigl og eiginmanns hennar, Josh Kelley, gengur ekki nógu vel, ef marka má fréttir The National Enquirer. Tímaritið greinir frá því að Kelley sé orðinn þreyttur á að hafa tengdamóður sína stanslaust inni á heimilinu.

Lífið

Koma saman og fagna

Tónlistarhópurinn REYK VEEK og hönnuðurnir Bóas Kristjánsson og Mundi standa fyrir skemmtikvöldinu Ultra Violence sem fram fer á Faktorý í kvöld.

Lífið

Gerir upp mistök í einkalífinu

„Athyglin var slæm á marga vegu en hún kom mér á kortið þannig að nú get ég einbeitt mér að þeirri tónlist sem mig langar til að gera,“ segir Júlí Heiðar.

Lífið

Minnast Morrison

Robby Krieger og Ray Manzarek, fyrrverandi liðsmenn hljómsveitarinnar The Doors, halda tónleika í júlí í tilefni þess að þrjátíu ár verða liðin síðan Jim Morrison dó. Tónleikarnir verða haldnir í París þar sem söngvarinn lést í baðkari 3. júlí 1971. Krieger og Manzarek eru á leiðinni í tónleikaferð í sumar þar sem þeir ferðast einnig til Ísraels, Rússlands og Hollands. The Doors hefur selt yfir áttatíu milljónir platna um heim allan. Árið 1991 leikstýrði Oliver Stone myndinni The Doors þar sem Val Kilmer lék Jim Morrison.

Lífið

Gísli Örn leikstýrir Hróa hetti

Gísli Örn Garðarsson leikstýrir jólasýningu Konunglega Shakespeare-leikhússins, eins virtasta og stærsta leikhúss Bretlands, á þessu ári. Sýningin verður leikgerð Davids Farr eftir sögu Hróa hattar, einnar þekktustu þjóðsagnapersónu Englands, sem rændi frá þeim ríku og gaf hinum fátæka.

Lífið

Ef þú varst ekki þarna fylgist þú einfaldlega ekki með

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Reykjavík Fashion Festival sem var haldið í Hafnarhúsinu í gærkvöldi þar sem allir helstu tískuhönnuðir landsins komu saman og sýndu hönnun sína. Jón Gnarr borgarstjóri opnaði hátíðina prúðbúinn með rauðan varalit og hélt tilfinningaþrungna ræðu um mikilvægi tísku og varalits. Þá hylltu gestir hönnuðina með hrópum og miklu klappi í lok hverrar sýningar en það var Margeir sem sá um tónlistina við tískusýningarnar.

Lífið

Taylor kveður með stæl

Elizabeth Taylor virðist ætla að kveðja með stæl. Hún skilur eftir sig slóð leyndarmála og auðæva og það má búast við hörðum deilum erfingja um hver hljóti allt góssið.

Lífið

Er ekki kominn tími til að eiginmaðurinn vaski upp?

Halldóra Helga Valdimarsdóttir saumakennari ákvað að fjárfesta í saumavél og hefur undanfarið nýtt barneignarfríið í að sauma falleg barnateppi úr mjúku flísefni og það sem meira er er að hún sérmerkir viskustykki meðal annars fyrir eiginmenn sem eru latir við að vaska upp á heimilinu. Hér má skoða síðu Halldóru á Facebook sem hún kallar Smekkfólk en þar selur hún einnig handgerð snuddubönd og handklæði.

Lífið