Erlent
Biðlar til Bandaríkjamanna Nýtt myndband af bandarísku blaðakonunni Jill Carroll, sem haldið er í gíslingu í Írak, var sýnt á arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera í gær. Biður Carroll Bandaríkjastjórn að sleppa úr haldi þeim konum sem enn eru í fangelsi í Írak, annars munu gíslatökumennirnir, sem kenna sig við Flokk hefndarinnar, taka hana af lífi. Fimm konum var sleppt í síðustu viku úr íröskum fangelsum en fjórar sitja enn inni. Erlent 31.1.2006 09:45
Mál Írana fyrir öryggisráðið Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna tilkynnti í gærkvöld að mál Írana vegna kjarnorkuáætlana þeirra yrði tekið fyrir í Öryggisráðinu. Ekki hefur verið ákveðið hvort refsiaðgerðum gegn þeim verði beitt en málið verður tekið fyrir í mars. Breskur stjórnarerindreki sagði að loknum viðræðum við fulltrúa Íransstjórnar í gær að þær hefðu engu skilað. Íranar sögðu hins vegar að viðræðurnar hefðu gengið vel og að frekari viðræður væru framundan. Erlent 31.1.2006 09:00
Myndlist eftir Hitler á uppboði Til stendur að bjóða upp tuttugu og eitt listaverk eftir Adolf Hitler á uppboði hjá Jeffrey's í Bretlandi. Um er að ræða vatnslitamyndir og skissur eftir kappann sem hann ku hafa gert á árunum 1916 til 1918. Myndirnar fundust í kistli á háalofti einu í gömlu húsi í Belgíu þar sem þær höfðu legið í um sjötíu ár. Þrátt fyrir að þykja ekki mikið augnakonfekt er gert ráð fyrir að fyrir myndirnar fáist rúmlega ellefu milljónir íslenskra króna eða um hálf milljón fyrir hverja þeirra. Erlent 31.1.2006 08:45
Neita að viðurkenna Ísraelsríki Hamas-samtökin hafa neitað kröfu Kofis Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis og að afneita ofbeldisverkum. Æðstu ráðamenn innan Hamas hafa þó beðið ESB um að stöðva ekki fjárstuðning sinn við Palestínu en aðildarríkin veittu rúma 36 milljarða króna til Palestínu í fyrra. Erlent 31.1.2006 08:30
Mikill ótti á nautaati í Mexíkó Mikill ótti greip um sig á nautaati í Mexíkóborg í gær þegar þúsund punda naut að nafni Pajarito eða litli fugl, gerði sér lítið fyrir og stökk upp í áhorfendastúku með þeim afleiðingum að yfir tíu manns slösuðust. Eins og sést á myndum af atburðinum reyndi tryllt dýrið að komast upp áhorfendapallana en mannskepnan hafði þó betur og stakk dýrið til bana með sverði. Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr en tveir voru þó lagðir inn á spítala með minniháttar meiðsli. Erlent 31.1.2006 08:16
Bandaríkjamenn koma Dönum til bjargar Bandaríkjamenn koma dönskum útflutningi til bjargar í kjölfar þess að danskar vörur hafa verið sniðgengnar meðal múslíma víða um heim. Á fjölmörgum bandarískum vefsíðum er hvatt til þess að menn kaupi danskar vörur og búist er við því að söluaukning verði á dönskum smjörkökum, bjór og skinku í Bandaríkjunum. Erlent 31.1.2006 08:15
Námumönnum bjargað Búið er að bjarga öllum upp úr kanadískri námu þar sem eldur kviknaði í gærmorgun. Alls voru 72 námamenn í námunni þegar eldurinn braust út og leituðu þeir skjóls í sérstökum öryggisherbergjum. Þar dvöldu þeir á meðan eldurinn var slökktur. Að sögn námufélagsins eru allir námamennirnir við góða heilsu. Erlent 31.1.2006 08:12
Þrjár danskar stúlkur brunnu inni Þrjár danskar stúlkur létust í nótt í eldsvoða í kofa í Noregi. Stúlkurnar, sem allar voru undir 18 ára aldri, voru í fjölmennum hópi danskra nema sem gistu í kofum í Hovden í Setesdal. Þrjú önnur ungmenni náðu að forða sér úr brennandi kofanum í tæka tíð. Erlent 31.1.2006 07:44
Hvetur múslíma til að sýna stillingu Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hvatti í gær leiðtoga danskra múslíma til að lægja öldurnar meðal múslíma og taka afstöðu gegn því að danskar vörur verði sniðgengnar eins og átt hefur sér stað í fjölda ríkja í hinum íslamska heimi vegna birtingu á skopmyndum af Múhameð spámanni í Jótlandspóstinum. Erlent 31.1.2006 07:16
Móðir brasilíubarns fundin Simone da Silva var handtekin í Belo Horizonte í Brasilíu í dag. Hún segist hafa skilið nýfætt barn sitt í höndum heimilislausrar konu sem hún gekk fram á. Sjálf hafi hún ekki verið í sálrænu ástandi til að ala upp barn. Erlent 30.1.2006 21:31
Þjóðarsorg í Póllandi Þjóðarsorg ríkir í Póllandi eftir að sextíu og sjö manns létu lífið þegar þak sýningarhallar hrundi á fimm hundruð manns á laugardagskvöld. Pólverjar frá Katowice, sem búsettir eru hér á landi, segja að sýningarhöllin hafi augljóslega verið illa hönnuð. Erlent 30.1.2006 21:23
Hamas verði að viðurkenna Ísrael Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir vel koma til greina að ný stjórn Palestínu hljóti áfram stuðning Evrópusambandsins. Þó séu ákveðin skilyrði fyrir hendi þá meðal annars þau að stjórnin viðurkenni Ísraelsríki. Það hafa Hamas-samtökin hinsvegar þverneitað að gera. Erlent 30.1.2006 16:18
Alvarlegri áhrif gróðurhúsalofttegunda Aukin samþjöppun gróðurhúsalofttegunda getur haft alvarlegri áhrif en fyrr var talið að því er fram kemur í nýrri breskri skýrslu. Þar segir að litlar líkur séu á því að losun gróðurhúsalofttegunda verði haldið undir hættumörkum. Erlent 30.1.2006 14:08
Íranar vilja forðast Öryggisráð SÞ Íranar hafa óskað eftir fundi með fulltrúum Breta, Frakka og Þjóðverja í dag vegna deilunnar um kjarnorkuvopnaáætlun stjórnvalda í Teheran. Stjórn Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar kemur saman síðar í vikunni og ræður ráðum sínum og gæti vísað málinu til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Íranar ætla að freista þess að koma í veg fyrir það. Erlent 30.1.2006 12:07
Lausir úr prísundinni Sjötíu kanadískir námumenn eru nú lausir úr prísundinni eftir að hafa setið fastir í rúmlega sólarhring einn kílómetra undir yfirborði jarðar í kalsíum-námu í Kanada. Erlent 30.1.2006 11:49
Þjóðverjar sniðganga Hamas Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels og Angela Merkel, kanslari Þýskalands ætla ekki að eiga samskipti við væntanlega heimastjórn Hamassamtakanna í Palestínu. Þetta sagði Olmert eftir fund þeirra Merkel í gær. Hann sagði kosningasigur Hamas í síðustu viku hafa verið óheppilegan, því Hamas væru hryðjuverkasamtök og þau myndu ekki fá fjármagn frá evrópskum hjálparsamtökum. Þá sagði Merkel að þýsk stjórnvöld myndu aðeins eiga samskipti við Hamas ef samtökin viðurkenndu Ísraelsríki og höfnuðu ofbeldi. Erlent 30.1.2006 09:30
Fuglaflensan komin til Kýpur Fuglaflensutilfelli af gerðinni H5N1 hefur greinst á tyrkneska hluta eyjunnar Kýpur. Þetta eru fyrstu veirutilfellin sem upp hafa komið á Kýpur, en engin tilfelli hafa fundist á gríska hluta eyjarinnar. Ríkisstjórnin hélt neyðarfund vegna málsins í gær en Kýpur er einungis um 75 kílómetra frá suðaustur-strönd Tyrklands þar sem fjórar manneskjur hafa dáið eftir að hafa smitast af H5N1 vírusnum. Erlent 30.1.2006 09:15
Íranar láta undan kröfu Bandaríkjamanna Írönsk stjórnvöld hafa látið undan kröfu Bandaríkjamanna um að leyfa eftirlitsmönnum Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar að skoða svæði sem tengjast Lavizan herstöðinni í Teheran í Íran. Sagði sendimaður sem þekkir vel til mála, að eftirlitsmenn hefðu skoðað staði tengda Lavizan og séð búnaðinn sem þar er. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort Rússar munu auðga úran fyrir írana eða hvort Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna taki til skoðunar að beita Írana refsiaðgerðum vegna áætlana þeirra í kjarnorkumálum. Erlent 30.1.2006 09:00
Fastir í rúmar tuttugu klukkustundir Sjötíu kanadískir námamenn hafa nú setið fastir í rúmlega 20 klukkustundir um einn kílómetra undir yfirborði jarðar í kalsíum námu í Kanada. Eldur kviknaði í námunni og þurftu námamennirnir að leita skjóls í öryggisherbergi á meðan slökkviliðsmenn reyndu að ráða niðurlögum eldsins og tókst það seint í gærkvöldi. Erlent 30.1.2006 08:45
Tarja Halonen endurkjörin forseti Sauli Niinisto viðurkenndi í gærkvöldi ósigur sinn í síðari umferð forsetakosninganna í Finnlandi, sem fóru fram í gær. Fékk Tarja Halonen, forseti Finnlands, 51,8 prósent atkvæða en Niinisto 48,2 prósent. Halonen, sem er 62 ára, sagði að sigurinn væri sögulegur því hún væri fyrsti kvenforseti landsins sem nær endurkjöri en Halonen var kjörin forseti Finnlands, fyrst kvenna, árið 2000. Hún hefur alltaf notið vinsælda en hún þykir alþýðleg, syndir reglulega í Eystrasalti og æfir magadans. Erlent 30.1.2006 08:30
Þrír létust og tugir slösuðust Að minnsta kosti þrír létust og yfir fjörtíu eru slasaðir eftir að farþegalest fór út af teinunum í austurhluta Pakistans í gær en margir vagnanna féllu niður í gil samkvæmt AP fréttastofunni. Talið er að á bilinu 500 til 600 farþegar hafi verið um borð í lestinni sem var á leið frá Rawalpindi sem er nærri Islamabad til Lahore, höfuðborg Punjabhérað. Herinn hefur verið sendur á staðinn til að aðstoða við björgunarstörf sem hefur gengið brösulega vegna erfiðra aðstæðna en óttast er að tala látinna muni hækka á næstu dögum. Erlent 30.1.2006 08:30
Danahatur breiðist út Danahatur breiðist nú út í löndum múslima vegna skopmynda af Múhameð spámanni sem Jótlandspósturinn birti í haust. Hafa herskáir Múslímar á Gazasvæðinu sagt Skandinövum, sem staddir eru á Gaza, að koma sér í burtu og var kveikt í danska fánanum Dannebrog á Vesturbakkanum í gær. Erlent 30.1.2006 08:15
Palestínskir öryggissveitarmenn mótmæla sigri Hamas Hópur palestínskra öryggissveitarmanna lagði undir sig byggingu þingsins á Gasa-ströndinni í morgun. Vitni segja að þeir hafi farið inn með offorsi og hleypt af byssum sínum út í loftið. Með þessu vildu þeir láta í ljós óánægju sína með sigur Hamas-samtakanna í palestínsku þingkosningunum í síðustu viku. Erlent 30.1.2006 08:06
ESB til varnar Danmörku Evrópusambandið kemur Danmörku til varnar og mun leita til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, hvetji stjórnvöld í arabaríkjum til þess að danskar vörur verði sniðgengnar. Danskar vörur hafa þegar verið fjarlægðar úr hillum í verslunum margra arabískra ríkja í mótmælaskyni við birtingu skopmynda af Múhameð spámanni í Jótlandspóstinum. Erlent 30.1.2006 07:45
Sáttmáli í stað stjórnarskrár ESB Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur lagt til að gerður verði örsáttmáli á milli Evrópusambandsríkjanna í stað stjórnarskrárinnar sem flest bendir til að ekki verði að veruleika í núverandi mynd. Erlent 30.1.2006 07:40
66 hafa fundist látnir í rústum sýningarhallarinnar í Póllandi Enn hækkar tala látinna eftir slysið í Katowice í Póllandi, en nú hafa sextíu og sex lík fundist í rústum sýningarhallarinnar, en þak hennar hrundi í gær. Enginn hefur fundist á lífi síðan í gærkvöld. Erlent 29.1.2006 15:30
Danski fáninn brenndur í Palestínu Danski fáninn var brenndur í Palestínu í dag í mótmælaskyni við skopmyndir Jótlandspóstsins af Múhammeð spámanni. Vopnaðir menn í Nablus á Vesturbakkanum stóðu fyrir uppátækinu en mikil reiði ríkir í Mið-Austurlöndum vegna myndanna sem birtar voru í haust. Erlent 29.1.2006 15:07
Fréttateymi ABC fréttastofunnar lentu í sprengjuárás Fréttamaður og myndatökumaður ABC fréttastofunnar er alvarlega særðir eftir sprengjuárás í bænum Taji í Írak í dag. Bob Woodruff fréttamaður og Doug Vogt myndatökumaður voru á ferð með írakska hernum þegar ráðist var á bílalest þeirra. Erlent 29.1.2006 15:04
Síðari umferð forsetakosninga í Finnlandi í dag Síðari umferð finnsku forsetakosninganna fara fram í dag en Törju Halonen tókst ekki að fá hreinan meirihluta í fyrri umferðinni sem fram fór fyrir tveimur vikum. Kosið verður á milli hennar og hægri mannsins Sauli Ninistoo en ekki er marktækur munur á fylgi þeirra samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum. Erlent 29.1.2006 11:15
Enn vandræði við réttarhöldin yfir Saddam Réttarhöldin yfir Saddam Hussein hófust að nýju í morgun eftir stutt hlé. En gamanið stóð stutt að þessu sinni, því Hussein yfirgaf réttarsalinn í mótmælaskyni stuttu eftir að réttur var settur, í kjölfar þess að verjendur hans höfðu stormað út úr salnum. Erlent 29.1.2006 11:00