Erlent
Hvetja fólk til að halda stillingu sinni Stjórnvöld í Perú hafa beðið fólk á skjálftasvæðum að bíða rólegt eftir hjálpargögnum. Uppþot varð við dreifingu hjálpargagna í gær og fólk hefur látið greipar sópa um verslanir. Hópur fólks stöðvaði vörubíla hlaðna hjálpargögnum við útjaðar bæjarins Pisco í gær og rændi því sem í bílunum var. Erlent 18.8.2007 09:55
Hjálpin berst hægt til jarðskjálftasvæða Meira en 500 lík höfðu fundist á jarðskjálftasvæðunum í Perú í gær. Ættingjar leita látinna ástvina. Forseti Perú lofar því að enginn þurfi að líða skort. Erlent 18.8.2007 05:00
Límdu sig við byggingu Sex umhverfisverndarsinnar límdu hendur sínar fastar við dyr á byggingu sem hýsir samgöngudeild miðborgar London í Bretlandi í gær. Nokkrir hlekkjuðu sig við dyrnar og einhverjir klifruðu upp á þak að sögn lögreglu. Tíu voru handteknir. Erlent 18.8.2007 03:00
Meðlim Baader-Meinhof sleppt Þýskur dómstóll ákvað í gær að gefa fyrrverandi meðlim hryðjuverkasamtakanna Rauðu herdeildarinnar, einnig þekkt sem Baader-Meinhof, skilorðslausn úr fangelsi. Erlent 18.8.2007 01:00
HIV próf fyrir giftingu Pör sem ætla að gifta sig í nígerísku biskupakirkjunni verða fyrst að gangast undir HIV próf. Talsmenn kirkjunnar segja skilyrðið sett til að fólk geti tekið upplýsta ákvörðun áður en það gengur í hjónaband. Samkvæmt fréttavef BBC munu fleiri kristnar kirkjur í Nígeríu hafa svipaðar reglur. Erlent 17.8.2007 23:45
Áhyggjur af heilsu fólks á Ólympíuleikunum vegna mengunar Einhverjir gestir Ólympíuleikanna í Beijing 2008 geta átt það á hættu að verða fyrir alvarlegum heilsubresti sökum mikillar loftmengunar í borginni. Dr. Michal Krzyzanowski, yfirmaður Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, hefur varað fólk við. Hann segir að þeir sem þjáist af hjarta-og æðasjúkdómum ættu að fara sérstaklega varlega og eins getur loftmengunin valdið astmaköstum. Erlent 17.8.2007 22:11
Handtökuskipun gefin út á dóttur Saddam Hussein Alþjóðalögregan Interpol hefur gefið út handtökuskipun á elstu dóttur Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. Raghad Saddam Hussein, sem flúði land þegar Bandaríkjamenn gerðu innrás í Írak árið 2003, er meðal annars sökuð um hryðjuverk sem og önnur brot. Erlent 17.8.2007 20:33
Ítalskur bæjarstjóri borgar fyrir megrun Ítalskur bæjarstjóri beitir nýstárlegum aðferðum gegn offitu. Hann heitir allt að 70 þúsund íslenskum krónum til hvers íbúa bæjarins sem er of þungur, en tekst að koma sér í kjörþyngd - og halda sér þar. Erlent 17.8.2007 19:36
Sterkur eftirskjálfti skók Perú Sterkur jarðskjálfti skók Perú í dag og jók enn á skelvingu íbúa á skjálftasvæðunum. Tala látinna eftir jarðskjálftann í fyrrakvöld er rúmlega fimm hundruð og á annað þúsund eru slasaðir. Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir eftir skjálftann sem mældist átta á Richter. Björgunarmenn keppast við tímann til að ná til þeirra sem enn eru á lífi í rústunum. Erlent 17.8.2007 19:32
Eineggja fjórburar fæddust í Bandaríkjunum Eineggja fjórburar fæddust á sjúkrahúsi í Montana í Bandaríkjunum á sunndag. Einungis er vitað um 50 pör af eineggja fjórburum í heiminum, en líkurnar á að eignast slíka fjölbura eru einn á móti þrettán milljónum. Erlent 17.8.2007 19:28
Þrír björgunarmenn létust við námu í Utah Þrír björgunarmenn létust og í það minnst sex slösuðust þegar þeir reyndu að komast að sex námuverkamönnum sem lokuðust inni í námu fyrir ellefu dögum. Björgunarliðið var að vinna í gegnum brak og grjótmulning til að komast að mönnunum í göngunum í Huntington í Utah í Bandaríkjunum. Erlent 17.8.2007 19:20
Fellibylurinn Dean skall á eyjar í Karabíska hafinu Fellibylur skall á eyjuna Sanktí Lúsíu og nágrannaeyjuna Martiník í Karabíska hafinu í dag með þeim afleiðingum að rafmagn fór af og tré féllu. Þetta er fyrsti fellibylur ársins sem fer um svæðið og hefur hann hlotið nafnið Dean. Erlent 17.8.2007 19:19
Hvað er afstæðiskenningin? Afstæðiskenningin er nafn á vísindakenningu sem var sett fram af Albert Einstein árið 1905. Kenningin dregur nafn sitt af afstæðislögmálinu sem svo kallast. Þetta lögmál kom fyrst fram á 16. öld og segir í grófum dráttum eftirfarandi: ... Erlent 17.8.2007 17:11
Hægt að eyða minningum með lyfjagjöf? Vísindamönnum hefur tekist að eyða langtímaminni rotta án þess að valda varanlegum skemmdum á heila þeirra. Samkvæmt niðurstöðum þeirra er langtímaminnið ekki eins öruggt og áður var talið. Erlent 17.8.2007 16:25
Afstæðiskenningin sögð afsönnuð Tveir þýskir vísindamenn segja að þeir hafi afsannað afstæðiskenningu Alberts Einstein með því að fara í gegnum ljósmúrinn. Afstæðiskenningin gengur í örstuttu og einfölduðu máli út á það að ekkert geti farið hraðar en ljósið undir nokkrum kringumstæðum. Ef maður færi hraðar en ljósið myndi maður samkvæmt kenningunni skrúfa tímann afturábak. Erlent 17.8.2007 16:05
Við erum komnir aftur -Vladimir Putin Vladimir Putin tilkynnti í dag að Rússar hefðu sent fjórtán langdrægar sprengjuflugvélar í eftirlitsflug langt útfyrir landamæri ríkisins. Orrustuþotur og eldsneytisvélar fylgdu þeim eftir. Forsetinn sagði að ákveðið hafi verið að hefja á ný langflug sprengjuflugvéla. Þær væru komnar til þess að vera. Putin lýsti þessu yfir á blaðamannafundi í tilefni af sameiginlegum heræfingum Rússa og Kínverja. Erlent 17.8.2007 14:45
Loftlagsbreytingar stytta flug farfugla Fuglafræðingar í Bretlandi segja að dregið hafi verulega úr komum farfugla til landsins. Kenna þeir loftlagsbreytingum um. Erlent 17.8.2007 14:13
Dæmdir fyrir morð á tímum aðskilnaðarstefnunnar Fimm fyrrverandi öryggisverðir á aðskilnaðartímum í Suður Afríku voru í dag dæmdir fyrir að skipuleggja morð á aðgerðarsinna sem var á móti aðskilnaði í landinu. Erlent 17.8.2007 12:44
Ný tækni í flóðvörnum Í meira en öld hafa sandpokar verið eitt helsta vopn gegn flóðum. Flóðin í Bretlandi nýverið urðu tækifæri fyrir hugvitssama aðila til að prófa að koma upp mun fljótvirkar flóðvörnum. Erlent 17.8.2007 12:40
Meðlim Rauðu herdeildarinnar sleppt úr fangelsi Dómstóll í Frankfurt í Þýskalandi hefur ákveðið að sleppa Evu Haule, fyrrverandi meðlimi Rauðu herdeildarinnar, úr fangelsi. Eva var dæmd í lífstíðar fangelsi árið 1994 fyrir þrjú morð og 23 morðtilraunir vegna sprengjuárásar á bandaríska herstöð í Frankfurt. Erlent 17.8.2007 11:47
Særðist í skotárás í Árósum Þrir menn urðu fyrir skotárás í miðborg Árósa í Danmörku í nótt. Einn maður var fluttur á slysadeild með áverka á handlegg. Mennirnir biðu eftir strætisvagni við 7-11 búð á Frederiks Allé þegar grásvartan bíl dreif þar að. Fimm til sjö skotum var skotið að mönnunum og hvarf árásarmaðurinn svo á braut, segir á fréttavef Jyllands-Posten. Erlent 17.8.2007 11:43
Passaðu þig þegar þú segir það með blómum Leroy Greer er bílasali í Missouri City í Bandaríkjunum. Leroy er dálítið rómantískur. Hann sendi kærustunni sinni blómvönd og bangsa. Með korti þar sem sagði; "Vildi bara segja að ég elska þig." Ósköp sætt. Því miður sendi blómasalinn kvittunina heim til eiginkonu hans. Nú hefur Leroy höfðað mál gegn blómasalanum. Erlent 17.8.2007 11:43
Fangelsaðir fyrir að stofna stjórnmálaflokk Áfrýjunardómstóll í Vietnam mildaði í dag dóma yfir þrem mönnum sem voru sakaðir um að hafa dreift óhróðri um ríkisstjórnina og stofnað pólitískan flokk. Mennirnir höfðu verið dæmdir í fimm ára, fjögurra ára og þriggja ára fangelsi. Eitt ár var tekið af hverjum dómi. Erlent 17.8.2007 11:04
Vilja banna ungmennum að aka um helgar Norsku samtökin Trygg Trafikk eða Örugg umferð vilja setja margvíslegar hömlur á ökuréttindi yngstu ökumanna. Meðal annars banna þeim að aka um helgar og á kvöldin. Og að hafa farþega með sér í bílnum. Samtökin benda á að slíkar takmarkanir gildi þegar í Kanada. Þar hafi banaslysum ungmenna fækkað um 30-40 prósent. Erlent 17.8.2007 10:30
Eignaðist eineggja fjórbura 35 ára kona eignaðist eineggja fjórbura á sjúkrahúsi í Kanada á sunnudaginn. Vitað er um innan við 50 pör af eineggja fjórburum í heiminum. Erlent 17.8.2007 08:20
Þrír björgunarmenn látnir í námuslysi Þrír björgunarmenn létust og sex særðust þegar námugöng sem þeir grófu til að ná til verkamanna sem hafa verið lokaðir inni í námu í Utah fylki í Bandaríkjunum í 10 daga, féllu saman. Ekkert samband hefur náðst við verkamennina í dagana tíu, en þeir eru taldir sitja fastir um 500 metra undir yfirborði jarðar. Öllum björgunaraðgerðum hefur verið hætt í bili, en afar ólíklegt þykir að verkamennirnir finnist á lífi. Erlent 17.8.2007 07:13
510 látnir eftir skjálftann í Perú Alan Garcia, forseti Perús, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg eftir öflugan jarðskjálfta í fyrradag þar sem hundruð manna létust. Tala látinna eftir að jarðskjálfti sem var átta á Richter-kvarða skók Perú um kvöldmatarleitið í fyrradag er nú komin í 510 að sögn yfirmanns slökkviliðsins í Perú. Erlent 17.8.2007 07:10
Vilja skíra barnið „@" Kínverskt par berst nú fyrir því að fá að skíra nýfætt barn sitt „@". Stjórnvöld þar í landi eru þó ekki par hrifin af hugmyndinni og segja hana vera gott dæmi um furðuleg nöfn sem verði æ vinsælli í landinu. Unga parið segist hins vegar aðeins vilja gefa króganum einstakt og nýtískulegt nafn. Erlent 16.8.2007 21:54
Sjálfsmorðum fjölgar í Bandaríkjaher Að minnsta kosti 99 bandarískir hermenn frömdu sjálfsmorð á síðasta ári og hefur sú tala ekki verið hærri í 26 ár. Samkvæmt nýrri skýrslu tóku um 17 hermenn af hverjum 100 þúsund eigið líf í fyrra en árið 2005 voru þeir rúmlega 12 af hverjum 100 þúsund. 28 af þeim 99 sem frömdu sjálfsmorð í fyrra gerðu það meðan þeir gegndu herþjónustu í Írak eða Afganistan. Erlent 16.8.2007 21:13
Minnst 500 látnir Minnst 500 manns týndu lífi og 1500 slösuðust í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Upptök skjálftans eru í Kyrrahafinu, suð-austur af höfuðborginni Líma. Flestir hinna látnu bjuggu í strandhéraðinu Ica. Erlent 16.8.2007 18:30