Erlent
Ók um með öxi í bílnum Nítján ára gamall ökumaður í Esbjerg í Danmörku var í nótt stöðvaður og sektaður fyrir brot á vopnalögum. Kom þetta til af því að í bíl mannsins var öxi sem hann gat ómögulega gert grein fyrir hvað hann ætlaði að gera við. Því síður gat maðurinn skýrt út fyrir lögreglu hvert för hans væri heitið svo hann var færður á lögreglustöð til öryggis, vopnið gert upptækt og hann sektaður fyrir tiltækið. Erlent 12.2.2009 07:35
Gervihnettir lenda í árekstri í fyrsta sinn Töluvert magn af nýju geimrusli varð til þegar tveir mörg hundruð kílógramma gervihnettir, annar rússneskur en hinn bandarískur, rákust saman á ógnarhraða í tæplega 800 kílómetra hæð yfir freðmýrum Síberíu í gær. Erlent 12.2.2009 07:28
Myndband af geimfari yfir Somerset vekur athygli Myndband af meintu geimfari yfir Somerset á Englandi hefur vakið töluverða athygli. Hópur fólks sem var á ferðalagi með hjólhýsi í júlí í fyrra kom auga á svartan sívalningslaga hlut á himninum og gaf yfirbragð hans til kynna að hann væri gerður úr einhvers konar málmi. Erlent 12.2.2009 07:22
Stjórnarkreppa yfirvofandi í Ísrael Stjórnmálaskýrendur segja stjórnarkreppu yfirvofandi í Ísrael eftir þingkosningarnar í gær. Talið er líklegt að stjórnarmyndunarviðræður muni ganga afar illa. Kadimaflokkurinn og Likudbandalagið fengu svipað fylgi og þingmannafjölda. Leiðtogar flokkanna hafa báðir farið fram á fá umboð til stjórnarmyndunar. Erlent 11.2.2009 22:36
Fékk högg á höfuðið við forsetaþyrluna Barack Obama er ennþá að venjast því að ferðamáti hans er annar síðan hann varð forseti Bandaríkjanna. Til dæmis verður hann nú að ferðast með þyrlu ef hann bregður sér af bæ. Obama er hávaxinn miðað við fyrri Bandaríkjaforseta, eða 183 sentimetrar. Dyrnar á þyrlunni hans eru ekki gerðar fyrir svo stóran mann. Erlent 11.2.2009 19:08
Vígasveit talibana myrti tuttugu Vígasveit talibana myrti tuttugu manns í sjálfsmorðsárás í Kabúl höfuðborg Afganistans í dag. Það þykja ótíðindi að ekki skuli hægt að verja höfuðborgina. Erlent 11.2.2009 18:57
Óljós staða í ísraelskum stjórnmálum Enn er óljóst hver kemur til með að leiða nýja ríkisstjórn í Ísrael. Bæði Benjamín Netanyahu fyrrverandi forsætisráðherra og Tzipi Livni, utanríkisráðherra hafa lýst yfir sigri. Erlent 11.2.2009 18:34
Rússar íhuga að aðstoða NATO Rússar eru að íhuga að leggja NATO til flutningavélar til þess að flytja hergögn og vistir til Afganistans. Samband Bandaríkjanna og Rússlands hefur verið stirt undanfarin misseri, svo ekki sé meira sagt. Barack Obama hefur sagt að það sé meðal þess sem hann vilji breyta. Rússar virðast vera nokkuð á sömu línu. Erlent 11.2.2009 12:21
Mjótt á munum í Ísrael Leiðtogar tveggja stærstu flokkanna á ísraelska þinginu, Knesset, hafa lýst yfir sigri í þingkosningunum sem fram fóru í Ísrael í gær. Búið er að telja þorra atkvæða og eins og staðan er núna hefur miðjuflokkur Tzipi Livni, Kadima, 28 þingsæti en hið hægrisinnaða Likudbandalag 27 þingsæti. Erlent 11.2.2009 09:20
Réttarhöldum yfir bloggara í Kína frestað um óákveðinn tíma Réttarhöldum yfir kínverskum bloggara hefur verið frestað um óákveðinn tíma eftir að bandarísk stjórnvöld fóru þess á leit að fulltrúi þeirra yrði viðstaddur réttarhöldin. Erlent 11.2.2009 07:56
Vopna- og fíkniefnabirgðir hjá Vítisenglum Skotvopn, táragas og fíkniefni er meðal þess sem fundist hefur í umsvifamikilli húsleit dönsku lögreglunnar hjá nokkrum útibúum vélhjólasamtakanna Vítisengla í Danmörku. Erlent 11.2.2009 07:31
Ók upp að Capitol Hill með riffil Lögreglan í Washington handtók síðdegis í gær mann á sjötugsaldri sem ók upp að þinghúsinu á Capitol Hill með riffil í bílnum og sagðist vera með sendingu til Baracks Obama forseta. Erlent 11.2.2009 07:29
Fimmtungur íbúa Marysville talinn af í kjarreldum Talið er að um fimmtungur íbúa þorpsins Marysville í Viktoríufylki í Ástralíu hafi látist af völdum kjarrelda sem enn brenna þar stjórnlaust. Tala látinna á öllu svæðinu er nú komin yfir 180 en sterkar vindhviður, sem glæða eldana, torvelda allt slökkvistarf. Erlent 11.2.2009 07:24
Bankabjörgun Bandaríkjanna ónóg Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefur viðurkennt að fyrri bankabjörgunaráætlun stjórnvalda þar í landi hafi engan vegin nægt til að rétta bankakerfið við. Erlent 11.2.2009 07:19
Síld mokveiðist við Norður-Noreg Gríðarleg síldveiði er nú við Norður-Noreg og segja sjómenn að annað eins hafi ekki gerst í áratugi. Dæmi eru um að skipin séu að fá allt upp í þúsund tonn í einu kasti og hefst vart undan að vinna síldina í landi. Erlent 11.2.2009 07:15
Kadimaflokkur Livni í forystu Kadima, núverandi stjórnarflokkur Ísrael, er með nauma forystu samkvæmt útgönguspám en þingkosningar fóru fram í Ísrael í dag. 130 þingmenn sitja á Knesset, ísraelska þinginu, og er Kadima flokknum undir forystu Tzipi Livni, utanríkisráðherra, spáð 28 til 30 þingsætum. Erlent 10.2.2009 22:14
Kannanir benda til til sigurs Netanyahu Þingkosningar eru í Ísrael í dag. Búist er við fyrstu útgönguspám klukkan átta í kvöld þegar kjörstöðum verður lokað. Kannanir hafa bent til að hægrimaðurinn Benjamin Netanyahu, leiðtogi Líkúdbandalagsins, verði nýr forsætisráðherra en hann var síðast í því embætti fyrir áratug. Erlent 10.2.2009 19:19
Ný björgunaráætlun kynnt í Bandaríkjunum Bandaríkjastjórn kynnti í dag nýja mörg hundruð milljarða dala björgunaráætlun fyrir fjármálastofnanir vestanhafs. Féð verður til viðbótar sjö hundruð milljarða dala sjóðnum frá í fyrra. Það verður notað til að kaupa upp undirmálslán frá bönkum. Fjárfestar verða fegnir með ríkinu til að leggja peninga í sjóðinn. Þannig verði liðkað fyrir lánveitingum til fólks og fyrirtækja. Erlent 10.2.2009 18:42
Breskir bankastarfsmenn bálreiðir Starfsfólk breskra banka kom saman fyrir utan þinghúsið í Lundúnum í dag til að mótmæla vinnuaðferðum bankastjórnenda fyrir alheimskreppu. Þeir hafi komið fjármálastofnunum á kaldan klaka með áhættusækni sinni og þar með stefnt störfum undirmanna sinna í hættu. Á meðan hafi þeir síðan fengið himin háar bónusgreiðslur. Erlent 10.2.2009 14:38
Þingkosningar í Ísrael í dag Þingkosningar eru í Ísrael í dag. Búist er við að kjósendur halli sér til hægri og velji hauka til að stjórna landinu. Útlit er fyrir að Binyamin Netanyahu, leiðtogi Líkúd bandalagsins, verði nýr forsætisráðherra. Erlent 10.2.2009 13:04
Facebook vill selja upplýsingar um þig Facebook mun selja upplýsingar um kynhneigð þína, kyn, aldur og áhugamál til fyrirtækja sem síðan munu senda þér markhópamiðaðar auglýsingar. Það er eigandi Facebook Mark Zuckerberg sem er með þessi áform á prjónunum en hann býr yfir þessum upplýsingum um þá 150 milljón notendur Facebook. Erlent 10.2.2009 10:17
Seljendur farsíma í Mexíkó þurfa að taka fingrafarasýni Símafyrirtæki í Mexíkó þurfa að taka fingrafarasýni af öllum farsímakaupendum þegar ný lög taka gildi þar í apríl. Erlent 10.2.2009 08:22
Nefndarformaður dregur ummæli um e-töflur til baka Yfirmaður bresku ráðgjafanefndarinnar um fíkniefnaneyslu hefur beðist opinberlega afsökunar á þeim ummælum sínum að hættulegra væri að fara á hestbak en neyta e-taflna. Erlent 10.2.2009 08:11
Rændi úrsmið vopnaður farsíma í sokk Fimmtán ára drengur var handtekinn í Kaupmannahöfn í gær eftir að hafa rænt úraverslun, vopnaður farsíma með sokk utan um. Þetta sagði ræninginn að væri skammbyssa og heimtaði úr og peninga af kaupmanninum. Erlent 10.2.2009 07:29
Rottufaraldur í uppsiglingu í Bretlandi Rottum í íbúðabyggð fjölgar nú sem aldrei fyrr í Bretlandi en mörg sveitarfélög hafa gripið til þess að spara í rekstri sínum með því að draga úr sorphirðu. Erlent 10.2.2009 07:27
Biður þingið að drífa björgunarfrumvarp í gegn Barack Obama Bandaríkjaforseti varar við því að bandarískt efnahagslíf geti orðið mjög illa úti, efþingmenn bretti ekki upp ermarnar og afgreiði frumvarp um 800 milljarða dollara viðbótar björgunarpakka hið fyrsta. Erlent 10.2.2009 07:24
Óttast að tala látinna í Ástralíu verði á þriðja hundrað Óttast er að tala látinna í kjarreldunum í Ástralíu fari allt upp í 230 manns, en 173 hafa þegar fundist látnir. Líklegt þykir að sú tala hækki eftir því sem björgunarsveitir komast lengra inn á þau svæði sem hvað verst urðu úti. Erlent 10.2.2009 07:02
18 mánaða vopnahlé í burðarliðnum Háttsettur fulltrúi Hamassamtakanna fullyrðir að öllum líkindum verði tilkynnt innan fáeina daga um 18 mánaða vopnhlé samtakanna og Ísraela á Gazaströndinni. Fulltrúinn, Osama al-Muzaini, lætur þó ekkert uppi hvað væntanlegt samkomulag mun fela í sér. Erlent 9.2.2009 22:06
Íslendingur í Ástralíu: Skógareldar aldrei verið verri Hundrað sjötíu og einn hefur farist í kjarr- og skógareldum sem geisa nú í Ástralíu. Íslendingur sem býr á svæðinu segir eldana breiðast svo hratt út að mörgum íbúum hafði ekki tekist að forða sér í tæka tíð. Erlent 9.2.2009 19:15
IKEA endurgreiðir alla dúnvöru IKEA í Svíþjóð hefur ákveðið að bjóða viðskiptavinum um allan heim að skila dúnvörum sem þeir hafa keypt í búðum keðjunnar gegn endurgreiðslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá IKEA í Svíþjóð. Þar segir að fyrirtækið geti ekki lengur fullyrt að dúnn í vörum þeirra sé ekki af lifandi fuglum. Erlent 9.2.2009 12:47
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Innlent