Erlent

Umbætur handa breskum lestarfarþegum

Farþegar breskra járnbrautarlesta eiga von á miklum umbótum á lestarkerfi landsins þegar 35 milljörðum punda verður varið til að fjölga lestum og draga þannig úr seinkunum og fjölda farþega í hverri lest.

Erlent

Hæstiréttur BNA: Ekkja reykingamanns fær milljarða

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur vísað frá áfrýjun bandaríska tóbaksframleiðandans Philip Morris vegna skaðabóta sem fyrirtækið var dæmt til að greiða ekkju reykingamanns sem lést úr lungnakrabbameini eftir 40 ára reykingaferil. Hæstiréttur Oregon hafði árið 1999 dæmt fyrirtækið til þess að greiða ekkjunni 79,5 milljónir dollara í skaðabætur fyrir missir eiginmannsins.

Erlent

Böðull biðst afsökunar

Einn æðsti böðull Rauðu kmeranna í Kambódíu baðst í morgun afsökunar á ódæðum sínum fyrir dómi. Kaing Guek Eav eða Duch er sá fyrsti úr liðskjarna kmeraleiðtogans látna, Pol Pot, til að vera dreginn fyrir sérskipaðan glæpadómstól. Nærri tvær milljónir manna týndu lífi meðan ógnarstjórn Rauðu kmerana var við völd í Kambódíu 1975 til 1979.

Erlent

Talíbanar á bak við árásina á lögregluskólann

Leiðtogi Talíbana í Pakistan segir samtök sín bera ábyrgð á morðárás á lögregluskóla í Lahore í gær. Átján féllu í árásinni, átta lögreglumenn, tveir almennir borgarar og átta árásarmenn. Níutíu og fimm særðust.

Erlent

Blindaði mann með sturtuhengi

Tæplega fimmtug kona í Helsingjaeyri í Danmörku var í gær dæmd í hálfs árs fangelsi fyrir að blinda 64 ára gamlan mann varanlega með stöng fyrir sturtuhengi.

Erlent

Pólskt elliheimili leigir út ömmur

Hver þekkir ekki hið gamalgróna siferðislega og uppeldislega hlutverk ömmunnar og allt það ótalmarga sem ömmur hafa kennt hinum mætustu mönnum í áranna rás?

Erlent

Bandaríkjastjórn opnar áfallahjálparsíðu

Vefsíðu, sem ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur opnað, er ætlað að veita almenningi áfallahjálp og ýmiss konar ráðgjöf um hvernig komast megi gegnum erfiða fjárhagslega tíma og forðast þunglyndi og aðra fylgifiska kreppunnar.

Erlent

Framtíð Afganistan rædd í Haag

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, útilokar ekki að hún muni funda með írönskum ráðamönnum um samskipti Írans og Afganistans á ráðstefnu í Haag í Hollandi í dag.

Erlent

Handtekinn í teiti Íhaldsflokksins

Lögregla í London handtók mann sem staddur var í leyfisleysi í þinghúsinu og sótti þar vorfögnuð Íhaldsflokksins um helgina. Beita þurfti piparúða til að yfirbuga manninn sem lét ófriðlega og hafði stofnað til rifrildis við einn gestanna.

Erlent

Mikil flóð á slóðum Vestur-Íslendinga

Leysingar eftir mikinn snjóavetur, miklar sveiflur í hitastigi og mikil úrkoma hafa valdið gríðarlegum vatnavöxtum í Rauðá í Norður-Dakóta, á slóðum þar sem afkomendur norrænna landnema eru margir. Óttast er að varnargarðar gefi sig.

Erlent

Berlusconi vill meiri völd

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, tjáði fulltrúum á sameiningarflokksþingi hægriflokkanna Forza Italia og Alle-anza Nazionale að hann þyrfti að fá frekari valdheimildir í sínar hendur til að geta hrint í framkvæmd þeim umbótum sem þörf væri á.

Erlent

Átta stunda umsátur í Lahore

Hópur vígamanna réðst í gær með alvæpni inn í þjálfunarbúðir lögregluskóla í Pakistan og gengu þar berserksgang klukkustundum saman. Þeir hentu handsprengjum, tóku gísla og drápu að minnsta kosti átta lögreglumenn og þrjá óbreytta borgara áður en sérsveitarmönnum úr hernum tókst að yfirbuga þá.

Erlent

Sjálfsvígstilræði í lögreglustöð

Sjálfsmorðssprengjumaður íklæddur lögreglubúningi sprengdi sig í loft upp inni í lögreglustöð í Suður-Afganistan í gær. Hann varð með því níu manns að bana og særði átta, að því er talsmaður afganskra yfirvalda greindi frá. Af þeim níu sem dóu í árásinni voru fimm lögreglumenn en fjórir óbreyttir borgarar.

Erlent

Maður handtekinn í breska þinginu

Karlmaður var handtekinn rétt fyrir utan þingsal neðri deildar breska þingsins í kvöld. Þar fór fram þingfundur um málefni Afríku. Maðurinn var gestur í vorboði fyrir blaðamenn sem Eric Pickles, framkvæmdastjóri Íhaldsflokksins, stóð fyrir.

Erlent

Færri féllu í Pakistan en í fyrstu var talið

Blóðbað varð í lögregluskóla í Lahore í Pakistan í dag. Íslamistar gráir fyrir járnum réðust þar inn vopnaðir byssum og sprengjum. Pakistönsk yfirvöld segja Talíbana hafa verið að verki. Í fyrstu var talið að tugir hefðu fallið en pakistönsk yfirvöld segja að fjórtán hafi fallið. Árásin vekur spurningar um stöðugleika í kjarnorkuveldinu Pakistan.

Erlent

Obama útilokar ekki gjaldþrot GM

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, setti í dag ströng skilyrði fyrir frekari ríkisaðstoð til bandarískra bílaframleiðenda. Forstjóri General Motors var látinn víkja og fyrirtækinu gefnir tveir mánuðir til að leggja fram nýja áætlun um endurskipulagningu. Chrysler fær mánaðarfrest til að sameinast Fiat.

Erlent

Danskur rektor dæmdur fyrir vörslu barnakláms

Danskur dómstóll dæmdi í dag karlmann á sjötugsaldri, sem gegndi stöðu rektors í áratugi, í 30 daga fangelsisvist fyrir vörslu barnakláms. Maðurinn er sakfelldur fyrir að hafa hlaðið niður 84 myndum með börnum.

Erlent

Brown frystir ráðherralaunin

Ráðherrar í bresku ríkisstjórninni fá engar launahækkanir út þetta ár. Fréttastofa Sky segir frá þessu í dag og hefur eftir heimildum úr Downing stræti. Þarlenda kjararáðið sem ákveður laun ráðherra á Englandi hafði áður ákveðið að hækka laun ráðherranna um 2,33 prósent en Sky hefur heimildir fyrir því að Gordon Brown forsætisráðherra hafi ákveðið að grípa inn í og láta frysta allar launahækkanir ráðherranna út þetta ár.

Erlent

Stangarstökkvari hljóp nakinn gegnum París

Romain Mesnil, silfurverðlaunahafi á heimsmeistaramóti í japönsku borginni Osaka í hitteðfyrra, á ekki sjö dagana sæla. Hann vantar sárlega styrktaraðila sem gerir honum kleift að stunda íþrótt sína og keppa í henni.

Erlent

Skaut átta til bana á elliheimili

Átta manns biðu bana þegar vopnaður maður ruddist inn á dvalarheimili aldraðra í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í gær og hóf skothríð. Sjö hinna látnu voru vistmenn á heimilinu en áttunda fórnarlambið var hjúkrunarmaður.

Erlent

Spitfire-vél á uppboð

Spitfire-orrustuflugvél frá síðari heimsstyrjöldinni verður boðin upp hjá Bonhams í London 20. apríl næstkomandi. Búist er við að allt að tvær milljónir punda, jafnvirði 340 milljóna króna, fáist fyrir vélina sem er af árgerð 1944.

Erlent

Kínverjar neita allri aðild

Hópur tölvuþrjóta hefur brotist inn í tölvur stjórnvalda víða um heim og stolið þaðan viðkvæmum upplýsingum. Flestir meðlimir hópsins búa í Kína. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá kanadískri upplýsingastofnun sem hefur eftirlit með hernaði.

Erlent

Vel heppnuð geimferð

Geimferjan Discovery er komin aftur til jarðar eftir vel heppnaðan þrettán daga leiðangur til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Ferjan lenti á Kennedy-geimferðamiðstöðinni í Flórída nokkrum klukkustundum eftir áætlun, en heimferðinni hafði verið frestað lítillega vegna slæms veðurs.

Erlent

Hamid Karzai áfram við völd

Hæstiréttur í Afganistan hefur úrskurðað að Hamid Karzai, forseti landsins, megi halda áfram í embætti sínu þangað til nýr forseti verði kosinn síðar á þessu ári.

Erlent

Spánverjar íhuga ákærur

Spænskir dómstólar íhuga að ákæra sex fyrrverandi embættismenn í Bandaríkjunum fyrir að hafa lagt fram skjöl sem áttu að réttlæta pyntingarnar sem eru sagðar hafa átt sér stað í Guantanamo-fangabúðunum.

Erlent