Erlent

Húsaleiga í Kristjaníu og ekkert múður

Íbúar fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn sjá nú fram á að þurfa að greiða leigu af þeim húsum sem þeir hafa haldið til í ókeypis fram að þessu eftir að Eystri-Landsréttur Danmerkur úrskurðaði í gær að lög sem sett voru árið 2004 væru ekki brot á mannréttindum.

Erlent

Spánverjar kunna sína hagfræði

Stjórnvöld í Madrid hyggjast láta færa minnisvarðann um Kristófer Kólumbus 100 metra og setja hann aftur þar sem hann stóð í næstum heila öld, þar til 1973, á hringtorg í miðbænum.

Erlent

Jarðskjálfti á Taiwan

Jarðskjálfti að styrkleika 5,8 stig á Richter skók suðurhluta Taiwan á ellefta tímanum í gærkvöldi. Ekki hafa borist upplýsingar um slysfarir eða skemmdir á mannvirkjum, en upptök skjálftans voru á 78 kílómetra dýpi á vesturströnd landsins.

Erlent

Segja það versta brátt að baki í Bandaríkjunum

Nú styttist í að það versta verði yfirstaðið af kreppunni í Bandaríkjunum. Þetta segir spá 45 hagfræðinga, sem samtök viðskipta- og hagfræðinga þar í landi leituðu til, en mikill meirihluti þeirra telur að hagkerfið taki sveiflu upp á við á ný á þriðja fjórðungi þessa árs.

Erlent

Íbúar Kristjaníu áfrýja til Hæstaréttar

Íbúar í Kristjaníu, fríríkinu svonefnda sem danskir hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn fyrir nærri fjórum áratugum, hafa ákveðið að áfrýja dómi dómsstóls frá því dag til Hæstaréttar landsins. Þetta var á ákveðið á fundi íbúanna í kvöld.

Erlent

Simpson áfrýjar og krefst frelsis

Ruðningskappinn og leikarinn O.J. Simpson bað Hæstarétt Nevadafylkis í Bandaríkjunum í dag að snúa við sakfellingu yfir honum fyrir vopnað rán og tilraun til mannráns. Hann krefst þess að honum verði veitt frelsi.

Erlent

Meira en 100 þúsund kólerutilfelli í Zimbabve

Spá Rauða krossins gerir ráð fyrir að að kólerutilfelli í Zimbabve fari yfir 100.000 á næstu dögum. Þó hefur dregið úr nýjum tilfellum að undanförnu en rúmlega 4300 íbúar hafa dáið vegna kóleru í Zimbabwe síðan í ágúst í fyrra.

Erlent

Íbúum Kristjaníu gert að borga leigu

Íbúar í Kristjaníu, fríríkinu svonefnda sem danskir hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn fyrir nærri fjórum áratugum, verður héðan í frá gert að greiða leigu til ríkisins.

Erlent

Óbreyttur borgari og þrír hermenn myrtir í Afganistan

Almennur borgari og þrír NATO-hermenn féllu þegar bílsprengja sprakk í austurhluta Afganistans í dag. Til viðbótar særðist einn hermaður. Sprengjan sprakk þegar hryðjuverkamaður keyrði Toyota Corolla bifreið á bílalest hermannanna.

Erlent

Obama útnefnir Soniu Sotomayor í Hæstarétt

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur útnefnt Soníu Sotomayor sem nýjan dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna. Staðfesti öldungadeild Bandaríkjaþings skipan hennar í embættið verður Sotomayor fyrsti rómansk ættaði Bandaríkjamaðurinn til að taka við sem dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna og þriðja konan.

Erlent

Farsímasmygl með leikfangaþyrlu

Fjórir eru í haldi lögreglu í Sao Paulo í Brasilíu eftir að þeir voru gripnir við að reyna að smygla farsímum til félaga sinna innan múra öryggisfangelsis með fjarstýrðri leikfangaþyrlu.

Erlent

Norður-Kóreumenn segjast undirbúa stríð

Norður-Kóreumenn skutu í morgun á loft tveimur eldflaugum í viðbót, báðum skammdrægum. Flugþol eldflauganna er um 130 kílómetrar og segir suðurkóreska Yonhap-fréttastofan að önnur eldflaugin sé til notkunar gegn skotmörkum á flugi en hinn gegn skotmörkum á sjó.

Erlent

Hefðu getað náð Watergate-málinu

Hugsanlegt er að blaðamennirnir Bernstein og Woodward hjá Washington Post hefðu aldrei komist á spjöld sögunnar hefðu tveir keppinautar þeirra fylgt ábendingum sem þeir fengu.

Erlent

Kveikt í myndbandaleigu í Nyborg

Fimm íbúar við Dronningsvej í Nyborg í Danmörku áttu fótum fjör að launa í nótt þegar kveikt var í myndbandaleigu í húsinu og þeir forðuðu sér út þegar íbúðin tók að fyllast af reyk.

Erlent

Tengsl við táning í brennidepli

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur lofað að útskýra frekar fyrir þjóðinni hvernig sambandi hans er háttað við táningsstúlku sem er í brennidepli pólitísks og persónulegs hneykslismáls.

Erlent

Fangaverðir stóðu aðgerðalausir hjá

Upptökur úr öryggismyndavélum sýna að vopnaðir fangaverðir í meintu öryggisfangelsi í Mexíkó horfðu aðgerðalausir á þegar 53 fangar gengu út og settust óáreittir inn í flóttabíla sem biðu þeirra. Á leiðinni út afgreiddu fangarnir sig meira að segja sjálfir um vopn úr vopnabúri fangavarðanna.

Erlent

Tilraunakjarnorkusprenging fordæmd

Ráðamenn ríkja heims brugðust ókvæða við í gær þegar stjórnvöld í Norður-Kóreu tilkynntu að þau hefðu látið sprengja öfluga kjarnorkusprengju neðanjarðar. Jafnvel Kínverjar, hefðbundnir bandamenn N-Kóreu, fordæma tilraunina.

Erlent

Vísindakirkjan fyrir rétt

Vísindakirkjan kann að verða dæmd til að vera leyst upp í Frakklandi í réttarhaldi sem hófst í París í gær. Sjö af æðstu forsvarsmönnum safnaðarins í Frakklandi eru ákærðir fyrir skipulögð svik og ólöglega lyfjastarfsemi.

Erlent

Tugir féllu í árásum uppreisnarmanna

Eftir hörð átök í Darfur-héraði í Súdan liggja 20 hermann í valnum og 43 uppreisnarmenn. Uppreisnarmenn réðust á eina af höfuðstöðvum súdanska hersins í héraðinu með þeim afleiðingum að hörð átök brutust út.

Erlent

SÞ fordæma kjarorkutilraunir N-Kóreumanna

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lýsri megnri andúð yfir kjarnorkutilraunum Norður-Kóregumanna og fordæmir þær. Ráðið kom saman til fundar í kvöld vegna kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna og samþykkti ályktun einróma um málið. Öryggisráðið segir kjarnorkutilraunirnar brjóta á skýran hátt gegn fyrri ályktun ráðsins frá árinu 2006.

Erlent

Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fordæmdi í dag kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna og sagði ljóst að alþjóðasamfélagið verði að bregðast við. „Kjarnorku- og eldflaugaáætlanir Norður-Kóreu eru alvarleg ógn við öryggi og frið í heiminum og ég fordæmi þessar æfingar harðlega,“ sagði Obama á blaðamannafundi í Washington í dag.

Erlent

N-Kórea: Þremur eldflaugum skotið á loft

Auk þess að sprengja kjarnorkusprengju neðanjarðar í nótt hafa Norður-Kóreumenn það sem af er morgni skotið á loft þremur skammdrægum eldflaugum. Ekki er ljóst á þessari stundu hvert flaugunum var miðað eða hvar þær lentu.

Erlent