Erlent

Fimm ár liðin frá flóðunum miklu

Þessi er minnst víða í Asíu í dag að fimm ár eru liðin frá flóðunum miklu þegar 230 þúsund manns fórust eftir að jarðskjálfti neðansjávar ollu tsunami víðsvegar um álfuna.

Erlent

Gagnrýni á öryggisgæslu í Vatíkaninu

Kardínáli gagnrýndi öryggisgæslu í Vatíkaninu í gær eftir að kona réðst að Benedikt XVI páfa og hrinti honum í jörðina á aðfangadagskvöld. Þetta var í annað skiptið sem konan reyndi að vinna páfanum mein.

Erlent

Danska lögreglan fengið hátt í 900 innbrotstilkynningar

Um miðjan dag í dag hafði danska lögreglan fengið 826 tilkynningar um innbrot á heimili og í atvinnuhúsnæði yfir jólin. Búist er við því að talan eigi eftir að hækka eftir því sem fram líður og fólk snýr heim úr jólaferðum. Fjöldinn er þó svipaður og hann var í fyrra.

Erlent

Biðla til mannræningja

Fjölskylda Bowe Bergdahl bandarísks hermanns sem var tekinn gísl, í austurhluta Afganistans í júní síðastliðnum, biðlar til mannræningjanna um að sleppa syni þeirra. Þau hvetja jafnframt son sinn til þess að vera sterkur. Yfirlýsing frá fjölskyldu Bergdahls var lesin upp fyrir fjölmiðla í dag.

Erlent

Þúsundir fagna jólunum í Betlehem

Talið er að um 15 þúsund ferðamenn fagni jólunum i Betlehem, fæðingarborg Krists. Hundruðir voru viðstaddir guðsþjónustu í Kirkju heilagrar Katrínar í dag.

Erlent

Sex ára drengur lést í Betlehem

Sex ára gamall drengur beið bana í velska þorpinu Betlehem eftir að hann varð fyrir dráttarvél föður síns á miðvikudagskvöld. Dafydd Bowen hét drengurinn.

Erlent

Páfanum var hrint við guðsþjónustu

Benedikt XVI páfi var felldur í jörðina við upphaf guðsþjónustu í Péturskirkjunni í Róm á aðfangadagskvöld. Fréttastofa BBC segir að konan sem ýtti við páfanum þannig að hann féll eigi við geðræn vandamál að stríða. Hún var handtekin eftir atvikið.

Erlent

Heilbrigðisfrumvarp Obama samþykkt

Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag heilbrigðisfrumvarp Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna. Með frumvarpinu verður 31 milljón Bandaríkjamanna sem ekki eru sjúkratryggðir veitt trygging. Þetta gæti orðið mesta breyting á heilbrigðiskerfinu í Bandaríkjunum í mörg ár.

Erlent

Selja jólaskraut úr hreindýraskít

Hálsmen og jólaskraut úr hreindýraskít hafa skilað dýragarðinum í borginni Bloomington í Illinois-ríki í Bandaríkjunum tæpum 21 þúsund dollurum, eða rúmlega hálfri þriðju milljón króna, í tekjur nú í aðdraganda jólanna.

Erlent

Kínverskt fyrirtæki áhugasamt

Forsvarsmenn Ford-bílaverksmiðjanna sögðu í gær samninga við kínversku bílaframleiðendurna Geely Group um sölu á Volvo-verksmiðjunum langt komna. Líklegt er talið að samningar takist á nýju ári.

Erlent

Maður í hjólastól tók 5 menn í gíslingu

Allt að fimm manns hafa verið teknir í gíslingu á pósthúsi á smábæ í Virginíufylki í Bandaríkjunum. Fjölmiðlar í bænum segja að meintur gíslatökumaður hafi verið í hjólastól og hann hafi sagst vera með sprengjuefni.

Erlent

Madoff á sjúkradeild

Fjárglæframaðurinn Bernie Madoff hefur verið færður á sjúkrastofu í fangelsinu þar sem hann afplánar. Maddoff situr af sér 150 ára dóm fyrir svik. Hann var fluttur á sjúkrastofuna þann 18. desember síðastliðinn, eftir því sem talskona fangelsisins fullyrðir við BBC. Hún vildi hins vegar ekki upplýsa nánar um aðstæður Madoffs. Madoff er 71 árs gamall. Hann hefur gengist við því að hafa svipið út um 65 milljarða dala.

Erlent

Ryanair þota fór út af flugbrautinni á Prestwick

Farþegaþota frá flugfélaginu Ryanair fór út af flugbrautinni á flugvellinum í Prestwick á Englandi í morgun. Mikið vetrarveður hefur sett samgöngur úr skorðum í Evrópu undanfarið og hafa orðið miklar tafir á flugi. Vélin ók yfir svellbunka skömmu eftir lendingu á flugvellinum og rann hún út af brautinni og stöðvaðist þar. Engin meiðsli urðu á farþegum og hefur þeim verið komið inn í flugstöðina á Prestwick.

Erlent

Regnmaðurinn látinn

Kim Peek, fyrirmyndin að regnmanninum sem Dustin Hoffman túlkaði í samnefndri kvikmynd, er látinn, 58 ára að aldri.

Erlent

Mannskætt umferðarslys í Cornwall

Tveir létust og 47 eru slasaðir eftir að langferðabíll, fullur af fólki, valt á ísi lögðum vegi í Cornwall í Bretlandi í gær og endaði á hvolfi á miðjum veginum.

Erlent

Vegaaðstoð Bretlands man varla annað eins

Vegaaðstoð félags bifreiðaeigenda í Bretlandi hefur ekki átt eins annríkt og í gær, í heilan áratug. Útkallssveitir félagsins sinntu 22.000 útköllum vegna bilaðra bíla eða fólks sem fest hafði bíla sína í snjósköflum og neyddist aðstoðarliðið til að velja og hafna eftir alvarleika hvers tilfellis.

Erlent

Fór út af flugbraut og brotnaði í tvennt

Betur fór en á horfðist þegar flugvél frá American Airlines, með 145 farþega innanborðs, hlekktist á í lendingu á flugvellinum í Kingston á Jamaica í gærkvöldi, fór út af flugbrautinni og brotnaði í tvennt.

Erlent

Til stóð að myrða Clinton 1996

Minnstu munaði að Bill Clinton, þáverandi Bandaríkjaforseti, hefði orðið fórnarlamb hryðjuverkaárásar árið 1996 þegar hann var í heimsókn á Filippseyjum.

Erlent

Beðið eftir sprengingu

Eldfjallið Mayon á norðanverðum Filippseyjum er eins og tifandi sprengja þessa dagana. „Hættuleg sprenging gæti orðið í dag eða næstu dögum," segir Renato Solidum eldfjallafræðingur.

Erlent

Segir skjalið í Times falsað

Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti segist enga ástæðu hafa til að taka mark á lokafresti, sem Barack Obama Bandaríkjaforseti setti Írönum til að samþykkja samning um skipti á auðguðu úrani og kjarnorkueldsneyti.

Erlent

Krefst skilnings af Kínverjum

Francois Fillon, forsætisráðherra Frakklands, krefst þess að kínversk stjórnvöld sýni vestrænum lýðræðishefðum umburðarlyndi, en tók jafnframt fram að Frakkar vildu alls ekki móðga Kínverja.

Erlent

Dómur í Pakistan: Eyra fyrir eyra og nef fyrir nef

Pakistanskur dómstóll í Lahore dæmdi tvo bræður til þess að hljóta heldur óvanalega refsingu á dögunum. Mennirnir rændu tvítugri frænku sinni, Fazeelat Bibi, og skáru af henni eyra og nef. Ástæðan var sú að fjölskylda stúlkunnar vildi ekki gifta hana öðrum bróðurnum.

Erlent