Erlent

Alþjóðlegir friðargæsluliðar verði sendir til Tælands

Nokkur hundruð mótmælendur komu saman í friðsömum mótmælum fyrir utan svæðisskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Bangkok í Tælandi í dag og kröfðust þess að alþjóðlegir friðargæsluliðar verði sendir til landsins til að fylgjast með ástandinu þar.

Erlent

Greiða atkvæði um bann við höfuðslæðum

Belgíska þingið greiðir atkvæði í dag um frumvarp sem bannar klæðnað íslamskra kvenna á almannafæri sem alfarið hylur andlit þeirra og líkama. Belgía yrði þar með fyrsta landið í Evrópu sem bannaði slíkan klæðnað með lögum. Málið hefur verið afgreitt út úr nefnd í belgíska þinginu með atkvæðum allra flokka á þingi. Níkap sem er klæðnaður sem hylur allan líkamann og allt andlitið nema augun verður bannaður ásamt Búrku sem einnig hylur augun.

Erlent

Breytti landslagi breskra stjórnmála

„Mér kemur ekkert á óvart,“ sagði Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, þegar hann var spurður hvort „fyrirbærið“ Nick Clegg komi honum á óvart. Clegg er leiðtogi Frjálslynda demókrataflokksins, „þriðja“ flokksins í breskum stjórnmálum, sem allt frá stofnun fyrir rúmum tveimur

Erlent

Flugumferð á fullt á morgun

Flugumferð í Evrópu ætti að vera komin á fullt á morgun eftir röskun í sex daga, segja talsmenn Eurocontrol, loftferðareftirlits Evrópusambandsins. Flugvélar flugu í dag og voru flest flugin á áætlun, að því er fram kemur á fréttavef BBC.

Erlent

Fékk mígreniskast og talar nú með kínverskum hreim

Bresk kona frá Devon fékk heiftarlegt mígreniskast og vaknaði daginn eftir með sterkan kínverskan hreim. Hin 35 ára gamla Sarah Colwill segir að læknar hafi greint sig með svokallað "Foreign Accent Syndrome" en fyrirbrigðið er ekki óþekkt.

Erlent

Nick Clegg segir Brown vera að fara á taugum

Gordon Brown forsætisráðherra virðist nú vera farinn að stíga í vænginn við frjálslynda demókrata en þeir hafa verið að bæta við sig fylgi í Bretlandi eftir góða frammistöðu Nicks Clegg í sjónvarpskappræðum á dögunum.

Erlent

Fleiri tapa en flugfélögin

Öskuskýin frá Íslandi hafa ekki aðeins komið illa niður á rekstri flugfélaga, heldur eru áhrifin af flugstöðvuninni farin að bitna á efnahagslífi víða um heim með margvíslegum hætti.

Erlent

Gamlir flugkappar minnast árásar

Fjórir eftirlifandi flugliðar úr fyrstu loftárás Bandaríkjanna á Japan í síðari heimsstyrjöldinni komu saman um síðustu helgi í tilefni af því að 68 ár voru liðin frá því hún var gerð.

Erlent

Bond settur í salt

Framleiðslu á nýjustu James Bond myndinni hefur verið hætt um óákveðinn tíma. Framleiðendur myndarinnar segjast ekki vilja taka áhættuna á því að gera myndina, sem er sú 23 í röðinni, vegna óvissu um fjárhagslegt bolmagn og framtíð MGM kvikmyndaversins.

Erlent

Flugumferð í eðlilegt horf á fimmtudaginn

Gera má ráð fyrir að flugumferð geti verið komið í eðlilegt horf á fimmtudaginn eftir gríðarlega röskun frá því í síðustu viku. Þetta er mat Loftferðaeftirlits Evrópu, eða Eurocontrol, að því er AFP greinir frá.

Erlent

Ekki sprenging innanborðs í herskipinu

Forseti Suður-Kóreu hefur lofað þjóðinni að gripið verði til ákveðinna aðgerða ef í ljós komi að herskipið sem sprakk í tvennt og sökk í síðasta mánuði hafi orðið fyrir einhverskonar árás.

Erlent

Bretar senda flotann til að sækja ferðamenn

Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að senda flota af herskipum til að ná í breska ferðamenn og ríkisborgara sem eru strandaðir víða um Evrópu vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Meðal þeirra herskipa sem nota á eru þau stærstu í flotanum, flugmóðurskipin HMS Ark Royal og HMS Ocean.

Erlent

Strangari siglingareglur við kóralrifið mikla

Áströlsk yfirvöld undirbúa nú að setja mun strangari reglur varðandi flutningaskip sem sigla nálægt stóra Kóralrifinu undan ströndum landsins. Kínverskt kolaflutningaskip strandaði á rifinu á dögunum og olli miklum skemmdum á kóralnum en rifið er það stærsta sinnar tegundar í heiminum.

Erlent

Vinsælli en Churchill

Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata á Bretlandi, er vinsælasti stjórnmálamaður Bretlands þessa dagana. Samkvæmt skoðanakönnun dagblaðsins Sunday Times nýtur hann auk þess meiri vinsælda en Winston Churchill, þáverandi forsætisráðherra, gerði árið 1945.

Erlent

Telja flugbannið allt of víðtækt

Milljónir manna þurftu að breyta ferðaáætlunum sínum í dag þar sem flugsamgöngur voru enn lamaðar vegna öskudreifingar. Evrópsk flugfélög, sem hafa sent mannlausar farþegaþotur í reynsluflug án sýnilegs tjóns, efast um flugbannið og telja það allt of víðtækt.

Erlent

Þúsundir vottuðu forsetahjónunum virðingu sína

Þúsundir manna voru við útför pólska forsetans Lech Kaczynski í Kraká í Póllandi í dag. Fjölmargir þjóðarleiðtogar komust ekki í útförina þar sem flugsamgöngur lágu niðri að mestum hluta vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Þeir sem komust ekki voru m.a Obama Bandaríkjaforseti, Nicolas Sarkozy forseti Frakklands, Angela Merkel Kanslari Þýskalands og fjölmargir aðrir frá Norðurlöndunum og víðar. Eingöngu þjóðarleiðtogar í nágrannaríkjum Póllands komust í útförina.

Erlent

Komast ekki í útför pólska forsetans

Þúsundir manna verða við útför pólska forsetans Lech Kaczynski í Kraká í Póllandi í dag. Fjölmargir þjóðarleiðtogar komast ekki í útförina þar sem flugsamgöngur liggja niðri að mestum hluta vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Erlent

Milljónir strandaglópa

Í Evrópu og víðar eru milljónir strandaglópa vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Um 20 lönd lokuðu fyrir alla flugumferð nú um helgina og sum þeirra hafa framlengt bannið fram á morgundaginn, að sögn BBC, meðal annars Belgía, Búlgaría, Tékkland, Danmörk, Finnland, Lettland, Lúxemborg, Bretland og Slóvakía. Askan hefur því nú valdið meiri röskun á flugi en hryðjuverkaárásirnar ellefta september.

Erlent