Erlent
Tveggja ára stúlka lést þegar hún féll af annarri hæð Tveggja ára stúlka lést eftir að hún féll af annari hæð á blokk sem hún bjó í ásamt foreldrum sínum í bænum Kirkcaldy í Bretlandi. Foreldrar stúlkunnar segjast vera „gjörsamlega niðurbrotin." Erlent 2.10.2010 22:00
Líklegt að Miðjusamstaðan fari með sigur af hólmi Útlit er fyrir að miðjuflokkur rússneska minnihlutans í Lettlandi fari með sigur af hólmi í þingkosningum sem fram fara í Lettlandi í dag. Það yrðu söguleg úrslit því flokkurinn hefur aldrei náð miklu fylgi á þeim tuttugu árum sem liðin eru frá því Lettar sögðu skilið við Sovétríkin. Flokkurinn sem mætti kalla Miðjusamstaðan á íslensku, er aðallega skipaður frambjóðendum sem eiga rætur að rekja til Rússlands. Erlent 2.10.2010 15:30
Námumönnunum bjargað eftir tvær vikur Talið er að hægt verði að bjarga þrjátíu og þremur námamönnum í Chile úr námagöngum sem þeir hafa verið króaðir í vikum saman, einhvern tíma á seinni hluta þessa mánaðar. Laurence Golborne námuráðherra landsins segir að prófanir á björgunarbúnaði frá ýmsum fyrirtækjum gefi vonir um að björgunaraðgerðir geti hafist eftir um tvær vikur. Erlent 2.10.2010 15:15
Sama sekt fyrir að keyra of hratt og eiga gras Stjórnvöld í Kaliforníu hafa slakað á klónni varðandi refsingar við því að eiga og neyta maríjúanna. Þeir sem teknir verða með minna en eina únsu eða um 28 grömm af marijúanna fá eftirleiðis svipaða sekt og fólk fær fyrir að aka örlítið yfir hámarkshraða, eða um ellefu þúsund krónur. Erlent 2.10.2010 14:45
Lettar ganga til kosninga í dag Lettar ganga til þingkosninga í dag í fyrsta sinn frá því að hagkerfi landsins fór út af sporinu árið 2008. Ekkert land hefur orðið verr úti í heimskreppunni, en samdráttur í landsframleiðslu Lettlands nemur um fjórðungi og atvinnuleysi er um 20 prósent. Erlent 2.10.2010 10:10
Nefndu garðinn Iceland Við sunnanverðan Persaflóa, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, var í vikunni vígður nýr vatnsskemmtigarður með sundlaugum, vatnsrennibrautum og veitingastöðum. Erlent 2.10.2010 01:00
Hyggst endurgreiða aðstoð Bandaríski fjármálarisinn AIG hefur komist að samkomulagi við Bandaríkjastjórn um að fyrirtækið endurgreiði það fé, sem ríkið veitti í aðstoð til að forða fyrirtækinu frá falli í kreppunni fyrir tveimur árum. Erlent 2.10.2010 00:45
Forseta bjargað frá lögreglu Umsátursástand ríkti í Ekvador í gær eftir að her landsins hafði bjargað Rafael Correa forseta af sjúkrahúsi, þar sem hópur lögreglumanna hafði umkringt hann og haldið honum föngnum í tólf klukkustundir. Erlent 2.10.2010 00:30
Býður sig fram í Chicagoborg Obama Bandaríkjaforseti skýrði frá því í gær að Rahm Emanuel, starfsmannastjóri í Hvíta húsinu og einn helsti ráðgjafi forsetans, ætli að hverfa úr starfi og bjóða sig fram til borgarstjóra í Chicago. Erlent 2.10.2010 00:00
Nú verður gaman kellíng Breski uppistandarinn Stephen Grant kvæntist Annelise Holland árið 2005. Hann er nú 37 ára og hún 33. Erlent 1.10.2010 13:51
Trylltust yfir klippingu Lögreglan í danska smábænum Vordingborg var kölluð út í gær þegar fjölskylda trylltist yfir klippingu yngstu dótturinnar. Erlent 1.10.2010 13:37
Equador: Herinn bjargaði forsetanum undan lögreglunni Forseta Equador var í nótt bjargað úr umsátri en ósáttir lögreglumenn höfðu gert aðsúg að forsetanum. Forsetinn, Rafael Correa hafði verið innilokaður á spítala í höfuðborginni Quito en reiðir lögreglumenn umkringdu spítalann um í gærkvöldi. Erlent 1.10.2010 10:09
Vafasamir brandarar bannaðir Ný jafnréttislög voru samþykkt í tíð síðustu ríkisstjórnar Bretlands sem miða að því að rétta hlut kvenna og fatlaðra á vinnustöðum. Erlent 1.10.2010 10:02
Nígería fagnar sjálfstæði í hálfa öld Íbúar Nígeríu fagna því í dag að fimmtíu ár eru liðin frá því landið fékk sjálfstæði frá Bretum. Fagnaðarlætin eru þó hófstillt enda ástandið í landinu er ekki upp á það besta. Erlent 1.10.2010 08:35
Fjölskyldur námamanna fara í mál Fjöskyldur námamanna 33 sem enn eru fastir neðanjarðar í Chile undirbúa nú lögsókn gegn stjórnvöldum í landinu og eigendurm námunnar. Viðamikil björgunaraðgerð stendur nú yfir til þess að ná mönnunum upp á yfirborðið en fjölskyldurnar hafa samt sem áður höfðað mál og krefjast milljóna punda í skaðabætur. Fjölskyldurnar eru ósáttar við að náman skuli hafa verið opnuð á ný aðeins ári eftir að banaslys varð þar, og þrátt fyrir að öryggi hafi ekkert verið bætt í námunni, að þeirra sögn. Erlent 1.10.2010 08:34
Kveiktu í 27 olíuflutningabílum Óþekktir skæruliðar í Suður Pakistan réðust í morgun á lest olíuflutningabíla sem fluttu eldsneyti fyrir fjölþjóðalið NATO í Afganistan. Að minnsta kosti 27 tankbílar eyðilögðust í árásinni en hún er gerð einum degi eftir að hermenn NATO felldu þrjá pakistanska hermenn fyrir mistök. Erlent 1.10.2010 07:28
Spenna vegna dómsúrskurðar Lögregla og her höfðu mikinn viðbúnað í gær í bænum Ayodhya á norðanverðu Indlandi og víðar í landinu, eftir að dómstóll kvað upp þann úrskurð að múslimar og hindúar eigi að skipta á milli sín helgum stað, sem deilur hafa staðið um áratugum og jafnvel öldum saman. Erlent 1.10.2010 00:00
Rahmbo vill verða borgarstjóri Chicago Talið er að starfsmannastjóri Hvíta Hússins, Rahm Israeli Emanuel, bjóði sig fram til borgarstjóra Chicago árið 2011. Þetta kemur fram á vefsíðu The Daily Telagraph. Erlent 30.9.2010 21:46
Skólabörn tóku myndir af líki og köstuðu steinum í það Hópur skólabarna fundu lík af miðaldra karlmanni í Bretlandi á dögunum. Grunur leikur á að manninum hafi verið ráðinn bani en hann fannst látinn í vatni nærri grunnskóla í Wiltshire. Erlent 30.9.2010 20:21
Sjálfsmorð eftir upptöku á ástarfundi Átján ára gamall bandarískur háskólanemi framdi sjálfsmorð eftir að tvö skólasystkini hans tóku myndir af ástarfundi hans með öðrum karlkyns nemanda. Erlent 30.9.2010 15:07
Hættið að skila glæpononum okkar Fjórir Mexíkóskir bæjarstjórar hafa beðið Bandaríkjamenn um að hætta að skila mexíkóskum glæpamönnum yfir landamærastöðvar. Erlent 30.9.2010 14:44
Ný Baader-Meinhof réttarhöld Fyrrverandi liðskona Baader-Meinhof samtakanna í Þýskalandi er á leið fyrir rétt vegna morðs á saksóknara og tveim lífvörðum hans árið 1977. Verena Becker er nú 58 ára gömul. Erlent 30.9.2010 14:13
Pakistan lokar flutningaleiðum NATO Pakistan hefur lokað annarri aðal-flutningaleið NATO herjanna inn í Afganistan. Erlent 30.9.2010 13:44
Svört skýrsla um aðbúnað togarasjómanna í Afríku Bresk umhverfisverndarsamtök segja að aðbúnaður sjómanna á togurum við Vestur Afríku, sé hræðilegur, og kjörum þeirra megi líkja við þrælahald. Fjögur íslensk fyrirtæki gera út togara á þessum slóðum. Öll skipin sem um ræðir hafa leyfi til að selja fisk sinn á Evrópumarkað að því er fram kemur í Breska blaðinu Guardian, sem fjallar um skýrslu samtakanna Environmental Justice Foundation í dag. Erlent 30.9.2010 11:59
Vinsamlegast haldið ykkur fast í flugtakinu Flugmálayfirvöld í Rússlandi rannsaka nú hvernig á því stóð að sex farþegum var hleypt um borð í flugvél í Tyrklandi án þess að til væru sæti fyrir þá. Erlent 30.9.2010 10:52
Tony Curtis er látinn Bandaríski leikarinn Tony Curtis er látinn, 85 ára að aldri. Hann lék í rúmlega 100 bíómyndum á ferlinum og í fjölda sjónvarpsþátta. Hann var meðal annars tilnefndur til óskarsverðlauna árið 1958 fyrir hlutverk í The Defiant Ones þar sem hann lék fanga á flótta með Sidney Poiter. Þekktasta rulla Curtis er þó án efa í Some Like it Hot þar sem hann var í aðalhlutverki ásamt Jack Lemon og Marylin Monroe. Erlent 30.9.2010 09:57
Önnur jörð komin í leitirnar Vísindamenn hafa uppgötvað plánetu sem þykir, af öllum þeim plánetum sem við þekkjum í dag , einna líkust þeirri sem við byggjum. Plánetan Gliese 581g er sögð í hæfilegri fjarlægð frá sól sinni þannig að töluverðar líkur séu á því að þar sé vatn í fljótandi formi. Erlent 30.9.2010 08:32
Kim Jong-Un loksins festur á filmu Ríkisfjölmiðlar Norður-Kóreu hafa í fyrsta sinn birt mynd af yngsta syni leiðtogans Kim Jong-Il en talið er að hann eigi að taka við kyndlinum þegar faðir hans er allur. Á myndinni sjást 200 æðstu yfirmenn kommúnistaríkisins saman komnir á landsfundi Verkamannaflokksins en fundurinn var haldinn um síðustu helgi. Þar var sonurinn, Kim Jong-Un gerður að varaformanni herráðs flokksins auk þess sem hann var kjörinn í miðstjórn. Að auki var Jong-Un hækkaður í tign innan hersins og gerður að fjögurra stjörnu hershöfðingja. Hann er 27 ára gamall. Erlent 30.9.2010 08:30
Talið að versti pabbi í heimi eigi 15 börn með 14 konum Talið er að hinn atvinnulausi Keith Macdonald eigi allt að fimmtán börn út um allar trissur í Bretlandi. Það var Daily mail sem upprunalega sagði frá málinu og Vísir greindi frá fyrr í mánuðinum, en Keith hefur hlotið hið vafasama viðurnefni „versti pabbi í heimi" í breskum fjölmiðlum. Erlent 29.9.2010 21:59
Kínversk lest setur hraðamet Kínverjar hafa skýrt frá því að ný hraðlest þeirra hafi sett hraðamet í tilraunaakstri í gærdag. Lestin á að vera í ferðum á milli borganna Shanghai og Hangzhou og venjulegur hraði hennar verður 350 kílómetrar á klukkustund. Erlent 29.9.2010 14:50