Erlent

Þetta er rosalegt myndband

Það er ekki oft sem manni verður flökurt við að horfa á myndband, en sú er raunin af myndbandi sem hjólakappinn Kelly McGarry tók upp á dögunum með GoPro-myndavél.

Erlent

Leyniskyttur í Sýrlandi skjóta óléttar konur

Breskur skurðlæknir sem starfar sem sjálfboðaliði á sjúkrahúsum í Sýrlandi segir leyniskyttur í borgarastyrjöldinni sem þar geysar, spila skotmarkaleik sín á milli. Þar á lista eru óléttar konur og börn.

Erlent

Sögulegt samkomulag Indverja og Kínverja

Kína og Indland skrifuðu í morgun undir samkomulag um landamæravarnir, sem þykir gefa von um að í nú sjái fyrir endann á deilur milli asísku risanna um landamærasvæði í vestanverðum Himalajafjöllum.

Erlent

Handaafskurður og húðstrýkingar í hegningarlög Brúnei

Lögbrjótar í smáríkinu Brúnei eiga ekki von á góðu eftir að Sjaría-lög verða tekin upp þar í landi eftir um hálft ár. Það mun meðal annars fela í sér refsingar eins og húðstrýkingar fyrir brot á innflytjndalögum og afskurð handa fyrir þjófnað auk þess sem þeir sem eru staðnir að framhjáhaldi verða grýttir.

Erlent

Interpol aðstoðar Grikki við að finna deili á Maríu litlu

Grísk lögregluyfirvöld hafa óskað eftir aðstoð frá alþjóðalögreglunni Interpol við að komast að því hvaðan Maria, litla stúlkan, sem fannst hjá pari af Roma ættum á dögunum, er upprunnin. Interpol ætlar að veita aðildarlöndum sínum aðgang að DNA gagnagrunni sínum verði óskað eftir því.

Erlent

Vísar ásökunum Frakka á bug

Yfirmaður leyniþjónustumála í Bandaríkjunum James Clapper, segir að ásakanir um að Bandaríkjamenn hafi hlerað sjötíu milljón símtöl í Frakklandi á einum mánuði séu rangar. Það var franska stórblaðið Le Monde sem sagði frá málinu í byrjun vikunnar og byggir á gögnum Edward Snowdens, uppljóstrarans sem nú er í Rússlandi.

Erlent

Samdi lag til að berjast gegn glæpum

Breski lögreglumaðurinn Giles Dean fer heldur óhefðbundna leið til að berjast gegn glæpum. Hann samdi lag á banjó-ið sitt. Lagið heitir Þegar ég brýst inn í hús (e. When I'm Burgling Houses) og vill hann hvetja fólk til að tryggi öryggi húsa sinna og bíla.

Erlent

Fallhlífarstökkvari í kröppum dansi

Myndband náðist af því þegar fallhlífarstökkvari lenti í kröppum dansi í mikilli hæð yfir Bretlandi. James Dobb var við það að stökkva úr þyrlu þegar fallhlíf hans opnaðist of snemma og flæktist í þyrlunni.

Erlent

Facebook afléttir banni á myndskeiðum sem sýna morð

Samskiptasíðan Facebook hefur ákveðið að aflétta banni sem sett var á myndbönd sem sýna þegar fólk er myrt á hrottalegan hátt, til að mynda hálshöggvið. Facebook ákvað í maí að banna alfarið slík myndbönd eftir að fjölmargar kvartanir bárust en nú segja forsvarsmenn síðunnar að notendur eigi að geta horft á slíkar aðfarir, til þess að hægt sé að fordæma þær.

Erlent

Kennarinn reyndi að tala drenginn til

Kennari í grunnskóla í Nevada í Bandaríkjunum var skotinn til bana í gær þegar nemandi hóf þar skothríð fyrirvaralaust. Tveir nemendur eru í lífshættu eftir að hafa orðið fyrir skoti. Nemandinn virðist hafa komist yfir byssuna hjá foreldrum sínum og áður en yfir lauk beindi hann henni að sjálfum sér og framdi sjálfsmorð.

Erlent