Fótbolti
Minning um Sigurstein Gíslason Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu og fyrrum samherji Sigursteins Gíslasonar hjá ÍA og KR, hefur sett saman myndband í minningu Sigursteins. Fótbolti 25.1.2012 14:45
Kevin De Bruyne sterklega orðaður við Chelsea Belgíski kantmaðurinn Kevin De Bruyne hjá Genk er sterklega orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea. Forráðamenn belgíska félagsins hafa staðfest að félögin eigi í viðræðum. Talið er að kaupverðið sé um 8 milljónir punda eða sem nemur um einum og hálfum milljarði íslenskra króna. Enski boltinn 25.1.2012 13:30
Sunnudagsmessan: Nær Wenger að skila Arsenal í Meistaradeildina? Arsene Wenger hefur oft verið sáttari við gengi Arsenal en franski knattspyrnustjórinn hefur ekki náð liðinu á flug á þessu tímabili. Rætt var um gengi Arsenal og starfsöryggi Wenger í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport um s.l. helgi og þar sagði Bjarni Guðjónsson m.a. að Wenger væri góður fyrir stjórn félagsins. Enski boltinn 25.1.2012 12:30
Sunnudagsmessan: Átti Balotelli að fá rautt spjald? Mario Balotelli var eitt helsta fréttaefnið í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Ítalski framherjinn tryggði Manchester City 3-2 sigur gegn Tottenham á sunnudaginn. Í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport fóru þeir Guðmundur Benediktsson, Hjörvar Hafliðason og Bjarni Guðjónsson leikmaður KR yfir ýmis atvik úr leik Man City og Tottenham. Enski boltinn 25.1.2012 11:30
Tevez sektaður um sex vikna laun - verður ekki seldur á útsöluverði Carlos Tevez, framherji Manchester City, var sektaður um sex vikna laun í desember fyrir að fljúga til heimalands síns, Argentínu, án leyfis. Talsmaður félagsins staðfesti þetta við Reuters-fréttastofuna. Enski boltinn 25.1.2012 09:30
Gerrard: Bannað að tala um Wembley Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að leikmenn liðsins verði að halda einbeitingunni í lagi fyrir leik liðsins gegn Manchester City á morgun. Enski boltinn 24.1.2012 23:45
Mourinho: Pepe spilar ef hann er heill Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, segir að varnarmaðurinn Pepe muni spila seinni bikarleikinn gegn Barcelona í á morgun ef hann verður heill. Fótbolti 24.1.2012 22:45
Aron Einar og félagar komnir á Wembley Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City komust í kvöld í úrslitaleikinn í enska deildabikarnum eftir sigur á Crystal Palace eftir vítakeppni. Tom Heaton var hetja velska liðsins því hann varði tvö víti í vítakeppninni. Enski boltinn 24.1.2012 22:35
Juventus komið í undanúrslitin í ítalska bikarnum | Del Piero skoraði Alessandro Del Piero skoraði eitt marka Juventus í 3-0 sigur á Roma í átta liða úrslitum ítalska bikarsins í kvöld. Juventus mætir annaðhvort AC Milan eða Lazio í undanúrslitunum. Fótbolti 24.1.2012 22:20
Tévez fastur í Manchester - PSG hætti viðræðum við City Carlos Tévez hefur ekki spilað fótbolta síðan í september og það er ekkert sem bendir til þess að það breytist eitthvað á næstunni. Manchester City er að reyna að selja argentínska framherjann en áhugasöm félag hafa ávallt dregið sig út úr viðræðunum. Enski boltinn 24.1.2012 20:15
Haraldur Björnsson búinn að semja við Sarpsborg | Kaupa hann frá Val Haraldur Björnsson spilar ekki með Valsmönnum í Pepsi-deild karla í sumar því það var tilkynnt á heimasíðu norska félagsins Sarpsborg 08 í dag að íslenski markvörðurinn sé búinn að skrifa undir þriggja ára samning við norska b-deildarfélagið. Íslenski boltinn 24.1.2012 19:16
Götze frá í tvo mánuði Mario Götze, miðjumaðurinn stórefnilegi hjá Borussia Dortmund, er meiddur í nára og verður vegna þessa frá næstu tvo mánuðina. Fótbolti 24.1.2012 15:30
PSG vill Alex sem hafnaði QPR Leonardo, framkvæmdarstjóri Paris Saint-Germain, hefur staðfest að félagið hafi áhuga á varnarmanninnum Alex sem er á leið frá Chelsea. Enski boltinn 24.1.2012 15:00
Henrique ekki til QPR - fékk ekki atvinnuleyfi Ekkert verður úr komu Brasilíumannsins tvítuga Henrique til QPR. Ekki tókst að fá atvinnuleyfi fyrir sóknarmanninn unga. Enski boltinn 24.1.2012 12:00
Pepe sleppur við bann fyrir að traðka á Messi Pepe, portúgalski varnarmaður Real Madrid, fær enga refsingu fyrir að traðka á Lionel Messi leikmanni Barcelona í viðureign félaganna í Konungsbikarnum í síðustu viku. Spænska knattspyrnusambandið komst að þessari niðurstöðu á fundi sínum á mánudag. Reuters-fréttastofan greinir frá þessu. Fótbolti 24.1.2012 10:30
Réttað yfir Harry Redknapp - sakaður um skattsvik Réttarhöld yfir Harry Redknapp, knattspyrnustjóra Tottenham Hotspur, hófust í Southwark á Englandi í gær. Redknapp er sakaður um að hafa lagt greiðslur, sem hann fékk sem yfirmaður knattspyrnumála og knattspyrnustjóri Portsmouth, inn á reikning í Mónakó án þess að greiða af þeim skatt. Enski boltinn 24.1.2012 09:30
Blatter: Höness að kenna að München fékk ekki Vetrarólympíuleikana 2018 Sepp Blatter, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, segir að gagnrýni Þjóðverjans Uli Höness á heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2010 hafi orðið til þess að möguleikar München um að halda Vetrarólympíuleikana árið 2018 urðu að engu. Fótbolti 23.1.2012 22:45
Sveinbjörn Jónasson gengur til liðs við Fram Markakóngur 1. deildar í knattspyrnu síðastliðið sumar, Sveinbjörn Jónasson, hefur gengið til liðs við Fram frá Þrótti Reykjavík. Sveinbjörn, sem verður 26 ára á árinu, skrifaði undir eins árs saming við Safamýrarliðið í dag. Þetta kemur fram á heimasíðu Fram. Íslenski boltinn 23.1.2012 22:09
3 milljarða kr. kauptilboði Chelsea í Brasilíumann var hafnað Forráðamenn Shakhtar Donestsk frá Úkraínu hafa staðfest að enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hafi lagt inn formlegt kauptilboð í miðjumanninn Willian Borges da Silva. Brasilíumaðurinn er sókndjarfur miðjumaður og er hann aðeins 23 ára gamall. Chelsea hefur boðið 3,2 milljarða kr. eða sem nemur rétt um 17 milljónir punda í leikmanninn en því tilboði var hafnað. Enski boltinn 23.1.2012 22:00
Balotelli fer fyrir aganefndina eftir traðkið á Parker Mario Balotelli, framherji Manchester City, er líklega á leiðinni í leikbann á næstunni eftir að aganefnd enska knattspyrnusambandsins ákvað að kæra hann fyrir atvik í 3-2 sigri City á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær. Enski boltinn 23.1.2012 19:45
Lucas kominn aftur til Liverpool eftir 6 vikur í Brasilíu - myndir Lucas Leiva, miðjumaðurinn öflugi í Liverpool sem sleit krossband í nóvember, er kominn aftur til Englands eftir sex vikna dvöl í Brasilíu þar sem hann gekkst undir aðgerð á hné. Enski boltinn 23.1.2012 18:00
Stjóri Swansea: Gylfi smellpassar í liðið Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Swansea, er hæstánægður með frammistöðu Hafnfirðingsins Gylfa Þórs Sigurðssonar. Gylfi Þór var í fyrsta sinn í byrjunarliði Swansea þegar liðið tapaði 2-0 gegn Sunderland og stóð að margra mati upp úr í liði sínu. Enski boltinn 23.1.2012 15:30
Di Canio rekinn af vellii í þriðja skipti á tímabilinu Paolo Di Canio, þjálfari Swindon Town í ensku D-deildinni, segist ekki ætla að breyta neinu í háttum sínum þrátt fyrir að hafa verið sendur upp í stúku í þriðja skiptið á tímabilinu um helgina. Enski boltinn 23.1.2012 14:00
Milan eltir Juventus eins og skugginn - Zlatan með tvö Zlatan Ibrahimovic skoraði tvö mörk þegar AC Milan lagði botnlið Novara 3-0 á útivelli í Serie A á sunnudag. Grannarnir í Inter halda áfram að klóra í bakkann eftir hræðilega byrjun á tímabilinu en liðið lagði Lazio 2-1 á San Siro í gærkvöld. Fótbolti 23.1.2012 13:15
Meiðslalisti Man Utd lengist | Jones verður frá í nokkrar vikur Sigur Manchester United gegn Arsenal í gær í ensku úrvalsdeildinni tók sinn toll en fjórir leikmenn Englandsmeistaraliðs Man Utd meiddust í 2-1 sigri liðsins á Emirates leikvanginum í London. Varnarmaðurinn Phil Jones meiddist illa á ökkla og verður hann frá í allt að fjórar vikur en liðbönd sködduðust. Enski landsliðsmaðurinn var borinn af leikvelli eftir aðeins 15 mínútur. Enski boltinn 23.1.2012 12:30
Öll mörkin og tilþrifin úr enska boltanum eru á Vísi Spennan í ensku úrvalsdeildinni er gríðarleg og tveir íslenskir leikmenn náðu að skora mark um helgina fyrir lið sín. Grétar Rafn Steinsson skoraði í 3-1 sigri Bolton gegn Liverpool, og Heiðar Helguson skoraði fyrir QPR í 3-1 sigri gegn Wigan. Þeir sem að misstu af enska boltanum á Stöð 2 sport um helgina þurfa ekki að örvænta því öll mörkin eru aðgengileg á Vísi. Enski boltinn 23.1.2012 11:45
Drogba kom sínum mönnum til bjargar - Manucho með glæsimark Didier Drogba skoraði eina mark Fílabeinsstrandarinnar sem marði 1-0 sigur á Súdan í B-riðli Afríkukeppninnar í gær. Í hinum leik riðilsins skoraði Manucho sigurmark Angóla í 2-1 sigri á Búrkína Fasó. Fótbolti 23.1.2012 11:00
David Winnie: Sigursteinn var frábær manneskja David Winnie sem lék knattspyrnu með KR árin 1998 til 2000 segir að það hafi verið sárt að frétta af andláti fyrrverandi samherja síns Sigursteins Gíslasonar. Sem kunnugt er lést Sigursteinn í síðustu viku aðeins 43 ára eftir baráttu við krabbamein. Íslenski boltinn 23.1.2012 10:15
Kári eftirsóttur í Frakklandi og Englandi Tvö félög úr frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og tvö úr ensku B-deildinni hafa lýst yfir áhuga Kára Árnasyni leikmanni Aberdeen í Skotlandi. David Winnie umboðsmaður Kára staðfesti þetta í samtali við Stöð 2 en vildi ekki gefa upp um hvaða félög væri að ræða. Fótbolti 23.1.2012 10:00
Wenger: Ég þarf ekki að réttlæta hverja einustu ákvörðun Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segist ekki þurfa að réttlæta ákvörðun sína um að skipta Alex Oxlade-Chamberlain af velli fyrir Rússann Andrei Arshavin í 2-1 tapi gegn Manchester United í gær. Skipting vakti hörð viðbrögð meðal fjölmargra stuðningsmanna Lundúnarliðsins og virtist fyrirliðinn Robin van Persie bæði undrandi og ósáttur við skiptinguna. Enski boltinn 23.1.2012 09:30