Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Björk, Ólafur Arnalds og Pálmi Gunnarsson eru meðal þeirra hundrað tuttugu og þriggja íslenskra listamanna sem hafa skrifað undir opið bréf þar sem aðdáendur eru hvattir til að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2026. Alls eru á listanum undirskriftir ríflega ellefu hundruð tónlistarmanna og hljómsveita á borð við Peter Gabriel, Massive Attack og Hot Chip. Tónlist 21.4.2026 13:26
„Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlistarkonan Sara Pétursdóttir, betur þekkt sem Glowie, segir Glowie-kaflanum í sínu lífi lokið, allavega í bili. Síðustu fjögur ár hefur tónlistarferill hennar verið í dvala og nú virðist hún tilbúin að segja alveg skilið við hann. Hún muni í staðinn einbeita sér að myndlist, móðurhlutverkinu og kaffigerð. Tónlist 20.4.2026 09:49
Hlustun á Bó snaraukist Hlustun á poppgoðsögnina Björgvin Halldórsson hefur snaraukist frá því hann lést 9. apríl síðastliðinn. Mánaðarleg hlustun á Björgvin á Spotify hefur frá síðasta mánuði aukist um tæp fjörutíu prósent og á Youtube hefur áhorfið aukist um rúm 400 prósent. Íslenskar sjónvarpsveitur hafa sömuleiðis grafið upp og gert aðgengilega ýmsa gullmola með Björgvini gegnum tíðina. Tónlist 17.4.2026 14:06
Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Black Sabbath rokkmessa hófst á Akranesi í gær, föstudaginn 10. apríl, þar sem Jenni í Brainpolice, Franz úr Ensími og Dr. Spock, Hallur úr HAM og Brimbrot og Flosi úr HAM stigu á svið. Þá stigu einnig á stokk sveitirnar Bastarður og Múr. Í kvöld verður dagskráin með léttara móti en þá koma fram Hjálmar, Spacestation og Oyama. Tónlist 11.4.2026 13:30
Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Hljómsveitin Dimma segir fullyrðingar tónlistarmannsins Stefáns Jakobssonar, Stebba Jak, um að bassaleikarinn Silli Geirdal og eiginkona hans hafi sett sig upp á móti honum, vera ósannar. Þetta segir í færslu sem birt var í dag á Facebook-síðu hljómsveitarinnar Dimmu en Stefán hætti sem söngvari hljómsveitarinnar eftir fimmtán ára skeið nú í vikunni. Tónlist 11.4.2026 11:15
Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Nánast uppselt er á stórtónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Í tilkynningu sem Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari sendi frá sér kemur fram að af þeim tuttugu þúsund miðum sem séu í boði hafi sautján þúsund þegar verið seldir. Tónlist 10.4.2026 12:11
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson er hættur í hljómsveitinni Dimmu vegna ósættis við bassaleikarann Silla Geirdal og eiginkonu hans. Stefán segir þau hafa tekið afstöðu gegn honum í dómsmáli þar sem hann var ákærður fyrir líkamsárás en Stefán var sýknaður í málinu í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Stefán segir ákærandann hafa áreitt sig og fjölskyldu sína linnulaust síðustu tvö og hálft ár. Tónlist 9.4.2026 13:52
Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Forsala á stórtónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar hófst klukkan tíu í morgun og seldust miðarnir sex þúsund upp á innan við mínútu. Tónleikarnir fara fram 20. júní og mun fjöldi íslenskra tónlistarmanna koma þar fram. Tónlist 9.4.2026 12:12
Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Hljómsveitin ex.girls gaf í dag út fyrstu smáskífuna af nýrri plötu sinni, City of Fear, en laginu fylgir óhefðbundið myndefni. Platan var tekin upp á tíu dögum í Rotterdam árið 2023 og hefur mallað hjá sveitinni síðan. Söngkona sveitarinnar lýsir plötunni sem sexý og óhugnarlegri og hún sé samin af barnslegri gleði. Tónlist 9.4.2026 11:46
Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Stórstjarnan Björk var rétt í þessu að tilkynna Sólmyrkvahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði 12. ágúst næstkomandi þar sem hún þeytir skífum ásamt öflugum hópi tónlistarfólks. Tónlist 8.4.2026 13:02
„Þú munt verða stórkostleg söngkona“ „Ég held að Bill Murray sé spámaður,“ segir stórstjarnan Laufey Lín en hún var viðmælandi í hlaðvarpi breska fjölmiðlamannsins Louis Theroux sem var að mæta á streymisveitur í dag. Þar ræddi hún meðal annars um ferilinn, mikilvægi listsköpunar og óvæntan vinskap við ástsæla leikarann Bill Murray. Tónlist 31.3.2026 12:01
Söguleg stund í KR heimilinu Það var gríðarleg stemning á tónleikum rappsveitarinnar Mobb Deep síðastliðinn þriðjudag. „Það er óhætt að segja að þetta hafi verið stærstu tónleikar sem við höfum staðið fyrir hingað til,“ segir Benni B-ruff einn af lykilskipuleggjendum þessarar tónleikaveislu. Tónlist 30.3.2026 11:02
Falinn gjóður vann Músíktilraunir Hljómsveitin Falinn gjóður stóð uppi sem sigurvegari Músíktilrauna 2026. Í öðru sæti var djasstríóið Brenninetla og í þriðja sæti var tónlistarkonan Lára. Tónlist 28.3.2026 23:56
Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Jessica Sutta, einn af upprunalegum meðlimum Pussycat Dolls, telur sig hafa verið skilda út undan í nýjustu endurkomu sveitarinnar vegna skoðana hennar á bóluefnum og stuðnings við Robert F. Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna. Tónlist 25.3.2026 14:22
Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Eftir að hafa haldið tvenna stórkostlega tónleika í Kórnum þarsíðustu helgi hélt stórstjarnan Laufey Lín eftirpartý á barnum Tölt á Edition-hótelinu þar sem gestir skemmtu sér konunglega fram eftir nóttu. Tónlist 23.3.2026 13:26
Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Poppstjörnuna Chappell Roan óraði sennilega ekki fyrir því þegar hún fékk sér morgunmat á hóteli í Sao Paulo í gærmorgun að hún myndi reita bæði fótboltamanninn Jorginho og borgarstjóra Rio de Janeiro til reiði. Stjúpdóttir Jorginho hafði gengið framhjá borði Roan og fengið skammir í hattinn frá öryggisverði í kjölfarið. Roan segir öryggisvörðinn hafa verið á vegum hótelsins og hún hati ekki börn. Tónlist 23.3.2026 11:17
Jay-Z breytir um nafn... aftur Rapparinn og athafnamaðurinn Shawn Carter, betur þekktur sem Jay-Z, hefur ákveðið að breyta listamannsnafni sínu og setja tvípunkt ofan á ypsilonið. Rapparinn kom fram sem JAŸ-Z á fyrstu plötu sinni en losaði sig svo við tvípunktana. Tónlist 19.3.2026 12:53
Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í kvöld í Hörpu við hátíðlega athöfn. Fjöldi tónlistarmanna steig á svið og var veislustjórn í höndum Friðriks Ómars. Laufey Lín var hlutskörpust með fern verðlaun, Sara Mjöll Magnúsdóttir var valin bjartasta vonin og hljómsveitinni Todmobile voru veitt heiðursverðlaun. Tónlist 18.3.2026 21:20
Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Rapparinn Birnir fékk í dag afhenta gullplötu fyrir sölu á plötunni Dyrnar en hún hefur selst í 2.500 eintökum á innan við ári. Jafnframt fékk hann afhentar platínuplötur fyrir fyrstu tvær plötur sínar. Tónlist 18.3.2026 15:24
Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Tónlistarkonan Carly Rae Jepsen fagnaði komu frumburðar síns og birti fallega færslu af því á Instagram hringrás sinni. Carly Rae er fertug en skaust upp á stjörnuhimininn 27 ára gömul með smellnum Hringdu kannski í mig eða Call Me Maybe. Tónlist 18.3.2026 14:00
Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Hreinskilni með glímuna við flókna líkamsímynd, upprifjun á tónleikum Justins Bieber í Kórnum 2016, bréf til þrettán ára Laufeyjar og flutningur á uppáhalds lagi mömmu og pabba á hinu ástkæra ylhýra voru meðal áhrifamestu, skemmtilegustu og krúttlegustu augnablikanna á tónleikum Laufeyjar Línar í Kórnum um helgina. Tónlist 18.3.2026 11:15
Herra Hnetusmjör er söngvari ársins Hlustendaverðlaunin 2026 fara fram með óhefðbundnu móti í ár þar sem starfsfólk Bylgjunnar og FM957 koma sigurvegurum á óvart með heimsókn og stuttum þáttum í kringum það. Tónlist 17.3.2026 18:01
„Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Stórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir fyllti Kórinn tvívegis með stórkostlegum tónleikum um helgina á síðasta stoppinu á tónleikaferðalagi sínu um Evrópu. Hún segir það sannan heiður að fá að spila á Íslandi, draumalandi sínu og vildi óska þess að hún gæti sagt yngri Laufeyju frá helginni. Tónlist 17.3.2026 10:26
Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar „Ég þekki svo marga úti í salnum,“ sagði tónlistarkonan Laufey er hún ávarpaði tónleikagesti í Kórnum í Kópavogi í kvöld. „Ég er svo stressuð.“ Tónlist 15.3.2026 00:17