Sport
Mancini: Balotelli hefði ekki átt að fá rauða spjaldið Roberto Mancini, stjóri Man. City, sagði að sitt lið hefði sýnt karakter með því að standast pressuna sem Liverpool setti á það undir lok leiks liðanna í dag. Enski boltinn 27.11.2011 18:38
Dalglish svekktur að fá aðeins eitt stig Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, var afar ánægður með frammistöðu síns liðs gegn Man. City í dag þó svo hann hefði eðlilega viljað fá öll stigin í leiknum. Enski boltinn 27.11.2011 18:28
Webber vann í Brasilíu Mark Webber hjá Red Bull varð hlutskarpastur í Brasilíukappakstrinum í Formúlunni í dag. Þetta var lokamót tímabilsins og fyrsti sigur Webber. Formúla 1 27.11.2011 18:06
Ólafur og Snorri Steinn fóru á kostum Snorri Steinn Guðjónsson og Ólafur Stefánsson fóru á kostum í danska liðinu AG sem komst í efsta sæti D-riðils Meistaradeildarinnar í dag. AG lagði spænska liðið Ademar Leon, 30-29, í háspennuleik. Ólafur skoraði sex mörk í leiknum Snorri fjögur og Guðjón Valur eitt. Handbolti 27.11.2011 17:35
Sigrar hjá FCK og SönderjyskE - Eyjólfur skoraði Eyjólfur Héðinsson var á skotskónum fyrir lið sitt SönderjyskE sem lagði Lyngby, 3-1, í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 27.11.2011 17:13
Helgi Már hetja 08 Stockholm Helgi Már Magnússon var hetja 08 Stockhom HR í dag þegar hann skoraði sigurkörfuna gegn Örebro. Karfan kom fjórum sekúndum fyrir leikslok og tryggði Stockholm tveggja stiga sigur, 66-68. Körfubolti 27.11.2011 17:08
Inter vann mikilvægan sigur Siena í ítalska boltanum Fjórir leikir fóru fram í ítölsku seríu A-deildinni í dag, en það má helst nefna mikilvægan sigur Inter Milan á Siena 1-0 á útivelli. Fótbolti 27.11.2011 15:58
Alexander og Þórir í beinni á EHF TV í dag Íslendingaliðin Füchse Berlin og Kielce eru á ferðinni í Meistaradeildinni í dag og leikir beggja liða verða í beinni sjónvarpsútsendingu á sjónvarpsstöð EHF. Handbolti 27.11.2011 15:00
Man. City mun leggja fram risatilboð í van Persie Enska knattspyrnufélagið Manchester City mun leggja allt í sölurnar til að klófesta Robin van Persie, leikmann Arsenal, en Hollendingurinn hefur verið sjóðandi heitur fyrir framan markið að undanförnu. Enski boltinn 27.11.2011 14:30
Ferill Gary Speed í myndum Gary Speed, landsliðsþjálfari Wales, lést í nótt og er óhætt að segja að knattspyrnuheimurinn sé í áfalli vegna þessara tíðinda. Hinn viðkunnalegi Speed sást síðast opinberlega í sjónvarpi í gær. Enski boltinn 27.11.2011 14:04
Bellamy dregur sig úr hópnum hjá Liverpool vegna fráfalls Gary Speed Craig Bellamy hefur dregið sig úr hópnum hjá Liverpool fyrir leikinn gegn Manchester City sem fram fer síðar í dag á Anfield, en leikmaðurinn er harmi sleginn eftir fregnir af dauða Gary Speed og mun því ekki spila með Liverpool í dag. Enski boltinn 27.11.2011 14:02
Lescott: Úrvalsdeildin er í forgangi hjá okkur Joleon Lescott, leikmaður Manchester City, segir í enskum fjölmiðlum að sigur í ensku úrvalsdeildinni sé í algjörum forgangi hjá félaginu, en ekki Meistaradeild Evrópu. Enski boltinn 27.11.2011 13:45
Umfjöllun og viðtöl: FH - St. Raphael 20-29 FH-ingar töpuðu illa, 29-20, fyrir Saint-Raphaël í 32-liða úrslitum EHF-bikarsins í handkanttleik en leikið var í Kaplakrika í dag. Ólafur Gústafsson var atkvæðamestur í liði FH með fimm mörk en liðið náði sér engan vegin á strik. Handbolti 27.11.2011 13:16
Gary Speed tók eigið líf í nótt Gary Speed, landsliðsþjálfari Wales og fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, fannst látinn á heimili sínu í nótt. Hann féll fyrir eigin hendi. Enski boltinn 27.11.2011 12:53
Valdes viðurkennir að Barca sé í erfiðri stöðu Victor Valdes, markvörður Barcelona, viðurkenndi eftir tapið gegn Getafe í gær að liðið væri í mjög erfiðri stöðu í deildinni enda Real Madrid nú með sex stiga forskot á toppnum og El Clásico er handan við hornið. Fótbolti 27.11.2011 12:30
Redknapp ætlar ekki að versla í janúar Harry Redknapp, stjóri Spurs, ætlar að hafa það náðugt í janúar og sleppa því að bæta við sig mannskap. Redknapp hefur oftar en ekki verið með duglegustu mönnum í janúarglugganum en það er af sem áður var. Enski boltinn 27.11.2011 11:45
Rio ekki á förum frá Man. Utd Það hefur mikið verið slúðrað um framtíð varnarmannsins Rio Ferdinand í vetur. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hefur nú slegið á allar þessar sögusagnir með því að gefa það út að Rio verði í lykilhlutverki hjá félaginu í það minnsta næstu tvö ár. Enski boltinn 27.11.2011 10:58
Óttinn við að gera mistök bugaði Rafati Þýski dómarinn Babak Rafati, sem reyndi að svipta sig lífi á dögunum, segir að óttinn um að gera mistök hafi gert hann þunglyndan sem hafi síðan leitt til þess að hann reyndi að taka sitt eigið líf. Fótbolti 27.11.2011 10:00
Obama tók fjölskylduna með á völlinn Barack Obama Bandaríkjaforseti er mikill körfuboltaáugamaður og hann skellti sér á leik Towson og Oregon State í háskólakörfuboltanum í gær. Körfubolti 27.11.2011 09:00
Man. City slapp með skrekkinn á Anfield Topplið Man. City er enn taplaust í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa lifað af heimsókn á Anfield í dag. Lokatölur 1-1 en Liverpool var ekki fjarri því að taka öll stigin. Enski boltinn 27.11.2011 00:01
Markalaust jafntefli í hörmulegum leik Swansea og Aston Villa gerðu markalaust jafntefli í fyrri leik dagsins í enska boltanum. Leikurinn var vægt til orða tekið skelfilegur. Það gerðist nánast ekki neitt í honum. Enski boltinn 27.11.2011 00:01
Collymore opinberar á Twitter að hann sé þunglyndur Stan Collymore, fyrrum framherji Liverpool og Aston Villa, hefur viðurkennt að eiga í miklum erfiðleikum vegna þunglyndis. Collymore hefur nú tekið sér frí frá vinnu til þess að taka á vandanum. Enski boltinn 26.11.2011 23:30
Vettel ánægður eftir hafa slegið met Sebastian Vettel hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu var ánægður með árangurinn í tímatökunni í Brasilíu í dag. Hann náði besta tíma og sló met sem hann átti með Nigel Mansell hvað besta árangur í tímatöku á sama ári varðar. Formúla 1 26.11.2011 21:48
Simone Pepe skaut Juventus á toppinn Juventus skellti sér á topp ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld er "gamla konan" vann sterkan útisigur á Parma, 0-1. Það var Simone Pepe sem skoraði eina mark leiksins á 33. mínútu. Fótbolti 26.11.2011 21:44
Emil og félagar með sterkan heimasigur Emil Hallfreðsson og félagar í ítalska liðinu Hellas Verona unnu góðan heimasigur, 1-0, á Reggina er þau mættust í ítölsku B-deildinni. Fótbolti 26.11.2011 21:21
Mikilvægur sigur hjá Bittenfeld en jafnt hjá Düsseldorf Arnór Þór Gunnarsson fór mikinn í liði Bittenfeld í kvöld er það vann afar mikilvægan sigur, 27-30, á útivelli gegn Saarlouis. Arnór var markahæstur á vellinum með átta mörk en þar af komu sjö úr vítum. Arnór nýtti öll sjö vítaköstin sem hann tók. Árni Þór Sigtryggsson skoraði eitt mark fyrir Bittenfeld. Handbolti 26.11.2011 20:10
Vettel náði besta tíma í tímatökunni og setti nýtt met Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Hann varð 0.181 úr sekúndu á undan Mark Webber liðsfélaga sínum hjá Red Bull. Jenson Button náði þriðja besta tíma á McLaren. Formúla 1 26.11.2011 19:29
Rúrik spilaði í tapleik Rúrik Gíslason og félagar í danska liðinu OB máttu sætta sig við tap á heimavelli gegn Midtjylland í dag. Lokatölur 2-3 en staðan var 0-1 í hálfleik. Fótbolti 26.11.2011 18:44
IE-deild kvenna: KR sótti sigur í Hveragerði Kvennalið KR komst aftur á sigurbraut í dag er það sótti Hamar heim í Hveragerði. KR vann öruggan 23 stiga sigur, 66-89. Körfubolti 26.11.2011 18:35
Elfar Árni samdi við Breiðablik Húsvíkingurinn Elfar Árni Aðalsteinsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Pepsi-deildarlið Breiðabliks. Elfar Árni kemur til félagsins frá Völsungi og verður því áfram í grænu. Íslenski boltinn 26.11.2011 17:53