Sport
Ross Brawn: Hin liðin fara frjálslega með reglur Formúla 1 20.3.2012 22:45 Juventus í bikarúrslit eftir framlengdan leik gegn AC Milan Tvö bestu lið ítalska boltans, Juventus og AC Milan, mættust í undanúrslitum ítölsku bikarkeppninnar í kvöld. Þetta var seinni leikur liðanna en Juventus vann fyrri leikinn á San Siro, 2-1. Fótbolti 20.3.2012 22:16 Jói Kalli í sigurliði hjá Huddersfield Jóhannes Karl Guðjónsson var sem fyrr í liði Huddersfield í kvöld en Huddersfield vann þá góðan útisigur á Chesterfield, 0-2. Enski boltinn 20.3.2012 21:37 Löwen vann sterkan útisigur Rhein-Neckar Löwen, lið Guðmundar Guðmundssonar, er í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar eftir fínan útisigur, 29-30, á Göppingen í kvöld. Handbolti 20.3.2012 21:22 Íslensku strákarnir fengu stig gegn Dönum Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað drengjum 17 ára og yngri gerði 2-2 jafntefli gegn Dönum í fyrsta leik sínum í milliriðli Evrópumótsins í kvöld. Íslensku strákarnir jöfnuðu leikinn í tvígang en leikið var á Cappielow Park í Greenock í Skotlandi. Íslenski boltinn 20.3.2012 21:11 Berlin gefur ekkert eftir í þýska boltanum Lið Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, styrkti í kvöld stöðu sína í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar er liðið vann sigur á Gummersbach, 27-24. Handbolti 20.3.2012 20:41 Jakob fór fyrir liði Sundsvall í góðum sigri Svíþjóðarmeistarar Sundsvall Dragons fóru vel af stað í úrslitakeppninni í kvöld er þeir unnu fyrsta leikinn gegn LF Basket, 88-80. Körfubolti 20.3.2012 20:09 Alexander þarf líklega að fara í aðgerð | ÓL í uppnámi hjá honum Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson, leikmaður Füchse Berlin, er enn ekki búinn að jafna sig af erfiðum axlarmeiðslum og er framhaldið hjá honum í óvissu. Alexander er með rifna sin í öxl og hefur verið frá af þeim sökum í sex vikur. Meiðslin hafa aftur á móti verið að plaga hann í mun lengri tíma. Handbolti 20.3.2012 18:45 Terry verður ekki með gegn Man. City John Terry, fyrirliði Chelsea, verður fjarri góðu gamni þegar hans lið mætir Man. City í enska boltanum annað kvöld. Enski boltinn 20.3.2012 18:00 Sundsvall Dragons í beinni á netinu í kvöld Úrslitakeppnin í sænska körfuboltanum hefst í kvöld með þremur leikjum. Íslendingaliðið Sundsvall Dragons á titil að verja og það mætir Lf Basket í fyrstu umferð. Körfubolti 20.3.2012 17:15 « ‹ ›
Malmö fékk á sig tvö mörk í lokin og féll úr leik í Meistaradeildinni Sænska liðið LdB Malmö er úr leik í Meistaradeildinni eftir 3-0 tap á móti þýska liðinu 1. FFC Frankfurt í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum keppninnar. Sænsku meistararnir héldu út á móti stórsókn þýska liðsins fram á 66. mínútu og það var farið að stefna í framlengingu þegar Frankfurt skoraði tvö mörk í lok leiksins. Fótbolti 21.3.2012 15:56
Leikmenn og þjálfari Real Madrid sáu rautt í jafnteflisleik Real Madrid er hægt og bítandi að hleypa Barcelona aftur inn í slaginn um Spánarmeistaratitilinn. Real gerði jafntefli, 1-1, gegn Villarreal í kvöld og er nú aðeins með sex stiga forskot á Barcelona. Liðin eiga þess utan eftir að mætast í deildinni á nýjan leik. Fótbolti 21.3.2012 15:49
Ótrúlegur klaufagangur hjá Liverpool Liverpool kastaði frá sér unnum leik er það sótti QPR heim í kvöld. Eftir að hafa náð tveggja marka forskoti kom QPR til baka og kláraði leikinn með þrem mörkum á þrettán mínútum. Enski boltinn 21.3.2012 15:46
Arsenal komið í þriðja sætið Arsenal komst upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld með góðum útisigri á Everton. Enski boltinn 21.3.2012 15:44
Spurs stal stigi gegn Stoke Tottenham marði stig gegn Stoke City í kvöld með marki í uppbótartíma. Niðurstaðan engu að síður vonbrigði fyrir Spurs sem er heldur betur að fatast flugið. Enski boltinn 21.3.2012 15:42
Tevez lagði upp sigurmark Man. City gegn Chelsea Það var mikil dramatík í Manchester í kvöld þegar Carlos Tevez snéri aftur og Chelsea kom í heimsókn. Tevez kom, sá og sigraði. Enski boltinn 21.3.2012 15:40
Hundrað prósent árangur undir hjá bæði City og Chelsea í kvöld Manchester City og Chelsea mætast í ensku úrvalsdeildinni í stórleik kvöldsins og bíða margir spenntir eftir því hvernig City-menn bregðast við því að vera orðnir fjórum stigum á eftir nágrönnum sínum í Manchester United. Leikurinn verður í beinni á Stöð2 Sport 2 og Stöð2 Sport HD og hefst klukkan 19.45. Enski boltinn 21.3.2012 15:30
Lele Hardy valin best - Ingi Þór besti þjálfarinn Körfuknattleikssambandið verðlaunaði í dag fyrir bestu frammistöðuna í umferðum 15 til 28 í Iceland Express deild kvenna. Njarðvíkingurinn Lele Hardy var kosin besti leikmaðurinn en Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells var valinn besti þjálfarinn. Körfubolti 21.3.2012 14:59
Vieira: Veikleikamerki hjá Man. United að þurfa að kalla á Scholes Patrick Vieira, yfirmaður þróunarmála hjá Manchester City, heldur því fram að endurkoma Paul Scholes inn í lið Manchester United sýni veikleikamerki á ensku meisturunum. Scholes lagði skóna á hilluna í vor en þó tók þá aftur fram í janúar. Enski boltinn 21.3.2012 14:00
Sara og Þóra í beinni á Eurosport 2 Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir verða í eldlínunni í dag þegar sænska liðið LdB Malmö heimsækir 1. FFC Frankfurt í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 21.3.2012 13:30
Tröllatroðsla hjá Griner | ekki á hverjum degi sem kona treður í körfubolta Brittney Griner, leikmaður háskólakörfuboltaliðsins Baylor, gerði sér lítið fyrir og tróð boltanum í körfuna í leik í úrslitakeppni NCAA deildarinnar gegn Florida. Griner, sem er 2.02 m á hæð, er aðeins önnur konan í sögu háskólakörfuboltans sem nær að troða boltanum í úrslitakeppninni. Alls skoraði Griner 25 stig í leiknum og Baylor landaði 76-57 sigri. Þess má geta að körfuhringurinn er í 3.05 metra hæð frá gólfi. Körfubolti 21.3.2012 13:00
Hvað erum að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld? Það eru fimm leikir á dagskrá í kvöld á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld og toppbaráttan á Englandi og Spáni er þar í aðalhlutverki. Fjórir leikir í ensku úrvalsdeildinni fara fram og þar eru flest af toppliðum deildarinnar að spila. Leikjum kvöldsins verður gerð góð skil í Sunnudagsmessunni sem er á dagskrá kl. 21:45 í kvöld. Enski boltinn 21.3.2012 12:30
Jürgen Klopp ætlar sér ekki að taka við Chelsea Jürgen Klopp, þjálfari þýska meistaraliðsins Borussia Dortmund, segir að það sé mikill heiður að vera orðaður við knattspyrnustjórastöðuna hjá enska úrvalsdeildarliðinu Chelsea. Klopp sagði í viðtali við Sky sjónvarpsstöðina í gær að hann myndi afþakka tilboð frá Chelsea ef það bærist. Enski boltinn 21.3.2012 11:45
Guardiola líkir Lionel Messi við Michael Jordan Pep Guardiola, þjálfari Spánar og Evrópumeistaraliðs Barcelona í fótbolta, líkir Lionel Messi leikmanni liðsins við körfuboltastjörnuna Michael Jordan. Argentínski framherjinn setti nýtt félagsmet í gærkvöld þegar hann skoraði þrennu í 5-3 sigri Barcelona gegn Granada. Hinn 24 ára gamli Messi hefur nú skorað 234 mörk fyrir Barcelona en gamla metið var í eigu Cesar Rodriguez, 232 mörk, sem hann skoraði um miðbik síðustu aldar. Fótbolti 21.3.2012 11:15
Messi og kvennalandsliðið efst á baugi í Boltanum á X977 | í beinni 11-12 Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik og Lionel Messi verða aðalumfjöllunarefnið í Boltanum á X-inu 977 á milli 11-12 í dag. Valtýr Björn Valtýsson stýrir þættinum í dag en fjallað er um íþróttir alla virka daga á X-inu 977 á þessum tíma. Ágúst Guðmundsson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins verður í viðtali í þættinum en Ísland mætir Sviss í tveimur leikjum í undankeppni EM um helgina. Fótbolti 21.3.2012 10:45
Rúrik Gíslason setur stefnuna hátt | viðtal úr Boltanum á X977 Rúrik Gíslason leikmaður danska liðsins OB og íslenska landsliðsins var í viðtali í gær í Boltanum á X-inu 977. Hann lenti í óhappi í leik OB og Lyngby um síðustu helgi og fékk mikið höfuðhögg. Heljarstórt horn myndaðist fyrir ofan augabrún og Rúrik lýsti atvikinu í viðtalinu. Hann var þó ekki alveg viss um hvað gerðist og neitaði í fyrstu að fara útaf. En sem betur fer réði hann því ekki. Fótbolti 21.3.2012 10:15
Muamba hefur sýnt ótrúlegar framfarir | Coyle er bjartsýnn Fabrice Muamba, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, hefur sýnt ótrúlegar framfarir frá því hann fékk hjartaáfall í leik gegn Tottenham s.l. laugardag. Owen Coyle, knattspyrnustjóri Bolton, sagði við fréttamenn í gær að það væru einhverjar líkur á því að hinn 23 ára gamli Muamba gæti náð fyrri styrk á ný. Enski boltinn 21.3.2012 09:45
New York tapar ekki undir stjórn Woodson | Lakers tapaði New York landaði góðum sigri, 106-87, á útivelli gegn Toronto í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Los Angeles Lakers tapaði með þriggja stiga mun 107-104 á útivell gegn Houston. Meistaraefnin í Miami Heat lögðu Phoenix á heimvelli 99-96. Alls fóru sjö leikir fram í nótt í deildinni. Körfubolti 21.3.2012 09:00
Tevez verður líklega í hópnum hjá City Það fer fjöldi stórleikja fram í enska boltanum í kvöld en stærsti leikurinn er viðureign Man. City og Chelsea. Chelsea hefur verið á fínu flugi síðan Andre Villas-Boas var rekinn sem stjóri félagsins og Roberto Di Matteo tók við stjórnartaumunum. Að sama skapi hefur Man. City verið að gefa eftir og liðið hefur sérstaklega verið í vandræðum með að skora upp á síðkastið. Enski boltinn 21.3.2012 07:00
Ferðuðust með rútu til Þýskalands Íslendingaliðið Malmö mætir þýska liðinu Frankfurt í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í dag. Þetta er seinni leikur liðanna en Malmö vann fyrri leikinn 1-0 með marki Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Þóra B. Helgadóttir átti einnig mjög góðan leik í marki Malmö og þær báðar verða báðar í byrjunarliði Malmö í dag. Fótbolti 21.3.2012 06:00
Juventus í bikarúrslit eftir framlengdan leik gegn AC Milan Tvö bestu lið ítalska boltans, Juventus og AC Milan, mættust í undanúrslitum ítölsku bikarkeppninnar í kvöld. Þetta var seinni leikur liðanna en Juventus vann fyrri leikinn á San Siro, 2-1. Fótbolti 20.3.2012 22:16
Jói Kalli í sigurliði hjá Huddersfield Jóhannes Karl Guðjónsson var sem fyrr í liði Huddersfield í kvöld en Huddersfield vann þá góðan útisigur á Chesterfield, 0-2. Enski boltinn 20.3.2012 21:37
Löwen vann sterkan útisigur Rhein-Neckar Löwen, lið Guðmundar Guðmundssonar, er í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar eftir fínan útisigur, 29-30, á Göppingen í kvöld. Handbolti 20.3.2012 21:22
Íslensku strákarnir fengu stig gegn Dönum Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað drengjum 17 ára og yngri gerði 2-2 jafntefli gegn Dönum í fyrsta leik sínum í milliriðli Evrópumótsins í kvöld. Íslensku strákarnir jöfnuðu leikinn í tvígang en leikið var á Cappielow Park í Greenock í Skotlandi. Íslenski boltinn 20.3.2012 21:11
Berlin gefur ekkert eftir í þýska boltanum Lið Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, styrkti í kvöld stöðu sína í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar er liðið vann sigur á Gummersbach, 27-24. Handbolti 20.3.2012 20:41
Jakob fór fyrir liði Sundsvall í góðum sigri Svíþjóðarmeistarar Sundsvall Dragons fóru vel af stað í úrslitakeppninni í kvöld er þeir unnu fyrsta leikinn gegn LF Basket, 88-80. Körfubolti 20.3.2012 20:09
Alexander þarf líklega að fara í aðgerð | ÓL í uppnámi hjá honum Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson, leikmaður Füchse Berlin, er enn ekki búinn að jafna sig af erfiðum axlarmeiðslum og er framhaldið hjá honum í óvissu. Alexander er með rifna sin í öxl og hefur verið frá af þeim sökum í sex vikur. Meiðslin hafa aftur á móti verið að plaga hann í mun lengri tíma. Handbolti 20.3.2012 18:45
Terry verður ekki með gegn Man. City John Terry, fyrirliði Chelsea, verður fjarri góðu gamni þegar hans lið mætir Man. City í enska boltanum annað kvöld. Enski boltinn 20.3.2012 18:00
Sundsvall Dragons í beinni á netinu í kvöld Úrslitakeppnin í sænska körfuboltanum hefst í kvöld með þremur leikjum. Íslendingaliðið Sundsvall Dragons á titil að verja og það mætir Lf Basket í fyrstu umferð. Körfubolti 20.3.2012 17:15