Heilbrigðiseftirlit

Fréttamynd

Dauðinn er stríðinn og ó­út­reiknan­legur

Úlfar Þormóðsson rithöfundur greindist nýverið með flöguþekjukrabbamein. Hann er dauðvona. Úlfar getur nú sagt hvað sem honum sýnist því hann verður ekki látinn standa reikningsskil þess vegna. En hann hefur reyndar aldrei óttast að segja það sem honum býr í brjósti.

Lífið
Fréttamynd

Sveitar­fé­lögin óþreyju­full og krefjast svara frá ráð­herrum

Fulltrúar sveitarfélaga segjast skorta fullnægjandi svör frá ráðuneytum og stofnunum um það hvernig umfangsmikilli tilfærslu heilbrigðiseftirlits verður háttað. Þingið samþykkti að flytja meginverkefni núverandi heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga til nýrrar Stofnunar atvinnuveganna og Umhverfis- og orkustofnunar. Gert er ráð fyrir að breytingarnar eigi sér stað um áramótin.

Innlent
Fréttamynd

Hefur á­hyggjur af smit­hættu í fargufum

Skortur er á því að almenn hreinlætisaðstaða sé við sumar fargufur og engin sem sótt hefur um leyfi fyrir fargufu hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands hefur uppfyllt slíka kröfu. Framkvæmdastjórinn hefur áhyggjur af mögulegri smithættu í gufunum.

Innlent
Fréttamynd

Heil­brigðis­nefndir verða lagðar niður

Alþingi samþykkti nýlega frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Með lögunum eru heilbrigðisnefndir lagðar niður en gert er ráð fyrir að reglugerðarbreytingarnar taki gildi 1. janúar 2027 samhliða lagabreytingum.

Innlent
Fréttamynd

Heil­brigðis­eftir­litið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslu­stöð Hvals

Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands segir að fyrri yfirlýsing um óásættanlega meðhöndlun Hvals hf. á soðvatni hafi byggt á röngum upplýsingum. Fitugildra í vinnslustöðinni virðist virka en unnið sé að því að greina hvort fita og önnur efni séu fjarlægð með fullnægjandi hætti. Myndefni sem fulltrúar Paul Watson-samtakanna segjast hafa tekið í dag sýnir mengun í fjörunni við vinnslustöðina sem heilbrigðiseftirlitið hefur ekki séð áður.

Innlent
Fréttamynd

Flýtir af­greiðslu um allt að mánuð

Kröfunni um auglýsingu starfsleyfis og fjögurra vikna umsagnatíma áður en leyfi er veitt eða því breytt hefur verið létt af öllum flokkum atvinnustarfsemi sem heilbrigðisnefnd gefur út starfsleyfi fyrir. Þannig hefur afgreiðslu starfsleyfa verið flýtt um allt að fjórar vikur.

Innlent
Fréttamynd

Klausturbleikjan fæst ekki lengur

Ein þekktasta bleikjueldisstöð landsins, Klausturbleikja á Kirkjubæjarklaustri, hefur hætt starfsemi. Oddviti Skaftárhrepps segir þetta áfall fyrir lítið sveitarfélag og telur að strangt og dýrt eftirlit hafi átt þátt í því hvernig fór.

Innlent
Fréttamynd

Þing­heimur lokar augum og eyrum

Það eru mikil vonbrigði að sjá nú stefna í að tvö umfangsmikil frumvörp um framtíð heilbrigðiseftirlits verði knúin í gegnum Alþingi þrátt fyrir ítrekuð og vel rökstudd varnaðarorð þeirra sem þekkja málaflokkinn best.

Skoðun
Fréttamynd

Upplýsingaóreiða ráð­herra

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sakar Landvernd um að auka upplýsingaóreiðu þegar samtökin kalla eftir auknu eftirliti með jarðborunum og vísa til nýlegra lagabreytinga um leyfisveitingar vegna jarðborana.

Skoðun
Fréttamynd

Heil­brigðis­eftir­lit á heima í nær­um­hverfinu

Tvö umdeild frumvörp liggja fyrir Alþingi sem snúa að því að leggja niður Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna annað er um Stofnun atvinnuveganna og hitt um einföldun regluverks og aukin skilvirkni með eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum.

Skoðun
Fréttamynd

For­sætis­ráð­herra talar um virðingu, en hvað með starfs­fólk heil­brigðis­eftir­litsins?

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur lagt mikla áherslu á virðingu í stjórnmálum. Hún hefur talað um mikilvægi fagmennsku, samráðs og þess að hlusta á fólk sem býr yfir þekkingu og reynslu. Hún hefur einnig gagnrýnt stjórnmál sem byggja á yfirgangi, vanvirðingu og ákvarðanatöku langt frá þeim sem málin varða. Í ljósi þess er erfitt að skilja hvernig staðið hefur verið að áformum ríkisstjórnarinnar um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.

Skoðun
Fréttamynd

Raun­hæf leið til að bæta heil­brigðis­eftir­lit

Tvö umdeild frumvörp liggja fyrir Alþingi sem snúa að því að leggja niður Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna annað er um Stofnun atvinnuveganna hjá atvinnuveganefnd og hitt um einföldun regluverks og aukin skilvirkni með eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum hjá umhverfis- og samgöngunefnd.  

Skoðun
Fréttamynd

Fram­kvæmda­stjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opin­bert eftir­lit

Í grein hér á Vísi fjalla þeir Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ, Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um fyrirkomulag opinbers eftirlits . Þar lýsa þeir yfir stuðningi við þá hugmynd að eftirlit verði „samræmt“ með því að færa það frá sveitarfélögunum yfir til ríkisstofnanna.

Skoðun
Fréttamynd

Mis­skilningur um sam­ræmingu heil­brigðis­eftir­lits

Í gær skrifuðu Benedikt S. Benediktsson, Jóhannes Þór Skúlason og Sigurður Hannesson grein um fyrirhugaðar breytingar á heilbrigðiseftirliti á Íslandi fyrir hönd Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka iðnaðarins. Í grein sinni fullyrða þeir að ósamræmi í heilbrigðiseftirliti sé of mikið og á þeim grundvelli lýsa þeir yfir stuðningi við umdeilt frumvarp umhverfisráðherra.

Skoðun
Fréttamynd

Sættust um bikbreiðuna

Fulltrúar Heilbrigðiseftirlitsins og Malbikunarstöðvarinnar Höfða náðu sátt um hvað skyldi gera við stóra bikbreiðu á svæði sem var áður starfssvæði stöðvarinnar. Til stóð að endurnýta efnið en því verður fargað.

Innlent
Fréttamynd

Sundur­tætt eftir­lit – opið bréf til alþingis­manna

Í dag virkar heilbrigðiseftirlit á Íslandi þannig að einn eftirlitsaðili (heilbrigðisfulltrúi) fer í eftirlit í leikskóla, veitingastaði, kaffihús, skemmtistaði, hótel, bensínstöðvar, matvöruverslanir og sundlaugar svo fátt eitt sé nefnt. Í eftirlitinu er farið yfir starfsemina frá A til Ö í sömu heimsókninni

Skoðun
Fréttamynd

Sam­ræmt eftir­lit er betra eftir­lit

Alþingi hefur tækifæri til að stuðla að samræmi, skilvirkni og trausti gagnvart eftirliti. Almenn umræðan um þetta tækifæri hefur verið takmörkuð þó málið sé stórt.

Skoðun