Mál Andrésar prins

Fréttamynd

Andrew á Louvre

Breskir aðgerðarsinnar hengdu upp innrammaða ljósmynd af Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprinsi, á vegg í Louvre-safninu í gær. Á myndinni er flóttalegur Andrew í aftursæti bíls nýkominn úr gæsluvarðhaldi.

Menning
Fréttamynd

Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni

Breska ríkisstjórnin íhugar að leggja fram frumvarp sem felur í sér að Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, verði sviptur erfðarétti sínum að bresku krúnunni þegar yfirstandandi lögreglurannsókn á máli hans er lokið.

Erlent
Fréttamynd

Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins

Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands segist hafa rætt í tvígang við Andrew fyrrverandi Bretaprins í Davos í Sviss árið 2010. Í bæði skiptin hafi hann rætt við hann um hagsmuni Íslands og sjónarmið í Icesave deilunni og í bæði skiptin innan um annað fólk. Hann segir samskiptunum ítarlega lýst í bóki sinni, Þjóðin og valdið sem kom út árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Á­fram hús­leit á fyrra heimili Andrews

Breska lögreglan mun halda áfram húsleit sinni á fyrra heimili Andrews Mountbatten Windsor sem handtekinn var í gær grunaður um spillingu í opinberu embætti. Andrew bjó um árabil í Royal Lodge en var gert að flytja þaðan fyrr á árinu.

Erlent
Fréttamynd

„Mjög, mjög sorg­legt“

Donald Trump Bandaríkjaforseti var stuttorður þegar blaðamenn vestanhafs spurðu hann út í nýjustu vendingar í tengslum við mál Andrews fyrrverandi Bretaprins fyrr í kvöld.

Erlent
Fréttamynd

Andrew látinn laus

Andrew fyrrverandi Bretaprins hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu á sjöunda tímanum í dag. Hann var handtekinn á heimili sínu í Wolferton í morgun vegna rannsókna á meintum leka á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.

Erlent
Fréttamynd

Andrew hand­tekinn á heimili sínu

Breska lögreglan mætti í morgun heim til Andrew fyrrverandi Bretaprins við Sandringham höll og handtók hann. Vísir fylgist með málinu í vakt sem finna má neðst í fréttinni. Andrew á afmæli í dag og er 66 ára gamall.

Erlent
Fréttamynd

Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls

Fyrrverandi Bretaprins er sakaður um að hafa nýtt stöðu sína sem opinber erindreki til að útvega vini sínum í bankageiranum trúnaðargögn sem hefðu getað nýst honum í fjárfestingum, einkum í tengslum við eftirmál íslenska bankahrunsins. Skömmu áður hafði hann fundað með forseta Íslands.

Erlent
Fréttamynd

Prinsinn fyrr­verandi deildi trúnaðar­upp­lýsingum með Ep­stein

Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins og yngri bróðir Karls Bretakonungs, virðist hafa vísvitandi deilt trúnaðarupplýsingum með Jeffrey Epstein úr opinberu starfi sínu sem viðskiptasendiherra árin 2010 og 2011. Það kemur fram í nýjustu Epstein-skjölunum. Fjallað er um málið á vef BBC.

Erlent
Fréttamynd

Prinsinum hafi verið hent út á mið­nætti

Andrési Bretaprins var hent út af heimili sínu á miðnætti í vikunni og gert að flytja í annað húsnæði á vegum konungshallarinnar. Þetta fullyrða bresk götublöð en flutningarnir eru sagðir hafa átt sér stað aðfaranótt mánudagsins.

Lífið
Fréttamynd

Rann­sókn á meintri gagna­öflun um Giuffre felld niður

Fullyrðingar um að Andrew Mountbatten-Windsor fyrrverandi Bretaprins hafi beðið lögreglumann, sem sinnti fyrir hann lífvörslu, um upplýsingar um konu sem sakaði hann um kynferðisofbeldi verða ekki rannsakaðar frekar af lögreglunni í Lundúnum. 

Erlent
Fréttamynd

Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni

Varnarmálaráðuneyti Breta vinnur að því að svipta Andrew Mountbatten Windsor síðustu hernaðartign sinni. Andrew, sem var áður þekktur sem Andrés prins, var sviptur prins-titli sínum fyrr í vikunni.

Erlent
Fréttamynd

Demó­kratar vilja yfir­heyra Andrew

Fjórir Demókratar í rannsóknarnefnd á vegum bandaríska þingsins sem fer með rannsókn Epstein málsins, vilja fá að yfirheyra Andrew Mountbatten Windsor um tengsl hans við Epstein. Nefndinni er stýrt af Repúblikönum sem hafa ekki gefið upp hvort þeir taki undir kröfuna.

Erlent
Fréttamynd

Virginia Giuffre er látin

Virginia Giuffre, sem sakaði bæði Andrés prins og Jeffrey Epstein um kynferðisofbeldi, er látin, 41 árs að aldri. Dánarorsökin var sjálfsvíg. 

Erlent
Fréttamynd

Prinsinn heima hjá Epstein vikum saman

Andrés Bretaprins hékk á heimili athafna-og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epsteins í Flórída vikum saman, samkvæmt vitnisburði sem birtist í nýjum dómsskjölum. 

Erlent
Fréttamynd

Andrés semur við Giuffre

Andrés prins hefur gert samkomulag við Virginiu Giuffre, sem hefur sakað hann um að misnota sig kynferðislega þegar hún var sautján ára gömul. Giuffre segist hafa verið fórnarlamb mannsals og segir Andrés hafa nauðgað sér þrisvar sinnum á heimilum auðjöfursins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.

Erlent
Fréttamynd

Neitar að hafa verið góður vinur Ghisla­ine Maxwell

Andrés prins sem sakaður er um kynferðisbrot í einkamáli í Bandaríkjunum neitar því að hann hafi verið góður vinur Ghislaine Maxwell, sem á dögunum var sakfelld fyrir mansal og kynferðisbrot í tengslum við milljarðamæringinn Jeffrey Epstein. Prinsinn neitar einnig öllum sakargiftum.

Erlent
Fréttamynd

Fara fram á kviðdóm í máli Andrésar

Lögmenn Andrésar prins hafa farið fram á að kviðdómur verði viðstaddur í réttarhöldunum yfir prinsinum í Bandaríkjunum þar sem ásakanir Virginiu Giuffre um nauðgun verða teknar fyrir.

Erlent