Fíkniefnabrot
1 2 3 4 5 6 … 20 ›
Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Svala Jóhannesdóttir segir bann- og refsistefnu þegar kemur að vímuefnum ekki hafa skilað neinum árangri og kominn sé tími á að afleggja hana. Hún segir að sú stefna sem skili bestum árangri sé sú sama og í áfengismálum þar sem ríkið stjórni aðgengi. Skatttekjur af nýju kerfi myndu nægja til að fjármagna forvarnir og meðferðarstarf. Svala er formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun og mannréttindi fólks sem notar vímuefni. Innlent 2.7.2026 17:09
Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér „Oft er þetta fólk sem er í vinnu og hefur kannski fyrirtæki og er í miklum umsvifum og er bara um það bil að missa allt frá sér vegna neyslunnar. Hún er dýr og krefst þess líka að fá meira og aftur og þetta verður mikil áþján fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans að sjálfsögðu.“ Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, um þann fjölbreytta hóp sem sæki sér aðstoðar vegna kókaínfíknar. Innlent 1.7.2026 21:47
Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. Innlent 1.7.2026 14:08
Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Dómsmálaráðherra segir stærstu fíkniefnamál ársins sýna styrk lögreglunnar en líka mikla eftirspurn eftir sterkum fíkniefnum á Íslandi. Hún boðar frumvarp í haust sem á að styrkja heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi. Innlent 1.7.2026 12:43
Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Þrír Kólumbíumenn voru í gær sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa 19. febrúar 2026 flutt samtals 2.370 ml af kókaíni í vökvaformi innvortis til Íslands með flugi frá París, ætlað til söludreifingar. Einn sætir sjö mánaða fangelsi en hinir þrjátíu mánaða. Innlent 1.7.2026 08:43
„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Lögregluþjónn hjá rannsóknardeild spyr sig hvers vegna svona mikil eftirspurn sé eftir kókaíni og amfetamíni á Íslandi enda ekki um ódýr fíkniefni að ræða. Þegar sé búið að slá met í fíkniefnahaldlagninu í ár en met var síðast slegið í fyrra. Innlent 30.6.2026 18:31
Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Lögregla réðst í húsleit víða á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á 106 kílógrömmum af kókaíni sem fundust í álflutningaskipi við álverið í Straumsvík í síðustu viku. Níu hafa verið handteknir. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu en virði fíkniefnanna er metið á hátt í þrjá milljarða króna. Innlent 30.6.2026 16:22
Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Amfetamín, kókaín, ketamín, kristalmetanfetamín og „bleikt kókaín“ var meðal þess sem lögregla fann í húsbíl sem kom hingað til lands með Norrænu. Innlent 30.6.2026 14:08
Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar eru í haldi lögreglunnar vegna innflutning á rúmlega hundrað kílóum af fíkniefnum sem var flutt sjóleiðis til Straumsvíkur. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu. Innlent 30.6.2026 13:57
Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Lögregla á Suðurlandi handtók um nýliðna helgi mann í Reykholti vegna ræktunar kannabis. Innlent 29.6.2026 14:47
Tæplega tveggja ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann í 22 mánaða fangelsi fyrir að flytja um 1,7 kíló af kókaíni með flugi til landsins í apríl síðastliðnum. Innlent 24.6.2026 14:38
Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Lögregla á Suðurnesjum hafði fyrir helgi afskipti af manni í umdæmi lögreglunnar vegna gruns um fíkniefnamisferli. Innlent 22.6.2026 10:27
Dómur burðardýrs mildaður Maður á fertugsaldri var dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar í héraðsdómi fyrr á árinu fyrir fíkniefnalagabrot. Málinu var skotið til Landsréttar en þar var refsing ákærða til endurskoðunar og dómur hans mildaður úr þremur og hálfu ári í þrjú ár. Innlent 19.6.2026 10:44
Límdu efnin á fætur sína Tveir voru dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir innflutning á tveimur og hálfu kílói af kókaíni. Málinu var áfrýjað til Landsréttar sem staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness. Innlent 13.6.2026 21:23
Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur verið ákærður fyrir að flytja 43 kíló af sterku kókaíni til landsins með Norrænu í mars síðastliðnum. Um er að ræða eitt stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar. Innlent 10.6.2026 11:04
Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Fimm karlmenn voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi tíu daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mennirnir eru grunaðir um að hafa staðið að innflutningi kókaíns og amfetamíns með Norrænu. Innlent 9.6.2026 16:05
Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti eftir að lögregla fann töluvert magn fíkniefna í leit í bifreið hans og heimili í Hveragerði. Innlent 2.6.2026 16:44
Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða Fimm menn voru í dag úrskurðaðir í tíu daga gæsluvarðhald í kjölfar þess að upp komst að þeir hefðu tekið þátt í innflutningi mikils magns fíkniefna. Handtökur þeirra fóru fram í Reykjavík og Hveragerði. Innlent 30.5.2026 19:39
Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögreglan á Suðurnesjum þurfti að kalla til aðstoðar sjúkraflutningamanna í gærkvöldi þegar kona sem var þar í haldi féll í yfirlið. Þetta staðfestir Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, í samtali við Vísi. Samkvæmt heimildum Vísis var nokkur viðbúnaður en sendir voru þrír sjúkrabílar að lögreglustöðinni. Innlent 25.5.2026 14:30
Greiðvikni kom í bakið á fjórum Fjórir karlmenn, tveir Króatar, Pólverji og Íslendingur, hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir stórfelld fíkniefnabrot. Annar Króatinn, Antonio Kastellana, hlaut þyngstan dóm, þriggja ára fangelsi. Mennirnir sögðust einfaldlega hafa verið að gera félögum sínum greiða þegar þeir frömdu brotin. Innlent 20.5.2026 15:40
Aðstandendur „Kannabis Inc“ dæmdir í fangelsi Fjórir karlmenn hafa verið dæmdir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa selt ótilgreint magn af amfetamíni, hassi, maríhúana, kókaíni, MDMA, metamfetamíni, LSD, Diazepam, sveppum, nammi sem innihélt kannabis og óþekktum töflum. Í fórum þeirra fundust límmiðar merktir „Kannabis Inc“ og þeir áttu í samskiptum í gegnum spjall með sama heiti á Telegram. Innlent 11.5.2026 16:51
Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Maður um 25 ára aldur var í gær dæmdur fyrir að flytja inn tvo lítra af amfetamínbasa frá Portúgal til Íslands í tveimur flöskum. Þetta kemur fram í dómi héraðsdóms Reykjaness. Innlent 8.5.2026 23:01
Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Sænsk yfirvöld lögðu hald á jafnvirði tæpra 1,7 milljarða íslenskra króna af rafmynt þegar lögregla stöðvaði starfsemi netverslunar með fíkniefni. Aldrei áður hefur verið lagt hald á svo mikil verðmæti í sýndareignum í Svíþjóð. Erlent 8.5.2026 12:14
Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Portúgölsk kona á sjötugsaldri sem reyndi að smygla fíkniefnum innbyrðis til landsins þurfti að fara í bráðaaðgerð og liggur nú á Landspítalanum. Málum sem snúa að burðardýrum hefur fjölgað verulega að sögn lögreglu. Að jafnaði séu hátt í tuttugu manns í gæsluvarðhaldi vegna slíkra brota á Suðurnesjum. Innlent 5.5.2026 19:13
Stefni í sömu átt og Svíþjóð Aukinn innflutningur fíkniefna með Norrænu veldur verulegum áhyggjum. Lögreglan segir málin tengjast skipulagðri glæpastarfsemi og að grípa verði inn í áður en ástandið versni. Innlent 29.4.2026 20:37
Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli sem snýr að innflutningi á rúmlega fjórtán lítrum af amfetamínbasa, að sögn lögreglu. Áður kom fram að þrír þeirra hafi verið handteknir í viðamiklum aðgerðum um miðjan apríl í tengslum við meintan innflutning með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips. Innlent 29.4.2026 17:27
Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Þýsk kona á sextugsaldri hefur hlotið fimm og hálfs árs fangelsisvist fyrir innflutning á mesta magni ketamíns sem gert hefur verið upptækt hér á landi. Tveir Albanar hlutu sjö ára dóma fyrir innflutninginn. Innlent 22.4.2026 16:58
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í rannsókn lögreglu á innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, hefur verið framlengt. Einn þeirra sætir varðhaldi í tvær vikur til viðbótar en hinir tveir, sem eru starfsmenn Eimskips, í eina viku hvor. Innlent 21.4.2026 15:24
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Króatískur karlmaður sem sætir ákæru fyrir fjölda fíkniefnalagabrota og skipulagða glæpastarfsemi segist hafa þénað 22 milljónir króna í gegnum öryggisgæslu og ferðaþjónustu, en ekki sölu fíkniefna. Hann kveðst ekkert kannast við mikið magn fíkniefna, sem fannst heima hjá honum. Innlent 21.4.2026 06:46
Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Lögreglan Suðurnesjum vinnur nú að umfangsmikilli rannsókn sem varðar haldlagningu á rúmum þrjátíu kílóum af amfetamíni. Lögreglan handtók tvennt í tengslum við rannsókn málsins sem nú sæta gæsluvarðhaldi. Innlent 17.4.2026 14:55