HK

Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum
KR og HK mættust í 6. umferð Bestu deildar karla í fótbolta að Meistaravöllum í dag þar sem gestirnir fóru með frækinn sigur af hólmi.

Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistarar Víkings sá rautt þegar lið hans tapaði 3-1 fyrir botnliði HK í Kórnum þegar liðin mættust í 5. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. HK hafði ekki unnið leik það sem af er leiktíð en síðasti deildarisgur liðsins kom þann 9. ágúst 2023.

„Þú veist alveg svarið við þessu“
Í síðasta þætti Stúkunnar var farið yfir hvort HK hefði átt að fá vítaspyrnu, eða vítaspyrnur, gegn Vestra þegar liðin mættust í 4. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu.

Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin
Fjórum leikjum af sex í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta er lokið en umferðin klárast síðan í kvöld. Nú má sjá mörkin úr leikjum gærdagsins hér inn á Vísi.

Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð
Vestri og HK áttust við í áhugaverðri viðureign í dag. Leikurinn var heimaleikur Vestra en fór samt sem áður fram á Avis-vellinum í Laugardal. Ástæðan er sú að heimavöllur Vestra er ekki klár í slaginn. Fyrir leikinn var HK enn án sigurs en með eitt stig eftir þrjár umferðir en Vestri var með þrjú stig eftir að hafa náð í sigur á Akureyri í síðustu umferð. Líkt og þá vann Vestri 1-0 sigur.

Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik
KR komst áfram í Mjólkurbikar karla í kvöld eftir skrautlegan leik við KÁ, Knattspyrnufélaginu Ásvöllum, í Hafnarfirði.

„Maður vill ekki fara að vorkenna þeim“
Baldur Sigurðsson ræddi um slæma stöðu HK í Bestu deild karla í fótbolta, í nýjasta þætti Stúkunnar á Stöð 2 Sport.

Sjáðu Bergkamp-móttöku Björns Daníels og Hornfirðinginn unga klára KR
FH og Fram unnu sína leiki í Bestu deild karla í fótbolta í gær og Framarar, undir stjórn Rúnars Kristinssonar, urðu þar með fyrstir til að vinna KR-liðið í sumar. Nú má sjá mörkin úr leikjunum inn á Vísi.

„Ég held við þurfum á því að halda að menn fari aðeins upp á tærnar“
HK tapaði öðrum heimaleik sínum í röð í dag þegar liðið tók á móti FH í 3. umferð Bestu deildar karla. Ómar Ingi, þjálfari HK, var að vonum ósáttur með frammistöðu liðsins.

„Heimir er á bakinu á mér með það“
FH vann góðan 0-2 útisigur á HK í Kórnum í Bestu deild karla í dag. Björn Daníel Sverrisson, fyrirliði FH, skoraði síðara mark FH og átti góðan leik þar sem FH stýrði gangi mála.

Uppgjörið: HK - FH 0-2 | Tveir sigrar í röð hjá FH-ingum
FH-ingar unnu sinn annan sigur í röð í Bestu deild karla í fótbolta í dag þegar Hafnfirðingar sóttu þrjú stig í Kórinn. FH vann 2-0 sanngjarnan sigur á HK þar sem bæði mörkin komu í seinni hálfleik.

Sjáðu þrennu Viktors og vítavörsluna sem bjargaði Val
Viktor Jónsson skoraði fyrstu þrennu Bestu deildar karla í fótbolta í sumar í gær og Frederik Schram varð fyrstur til að verja vítaspyrnu í sumar. Nú er hægt að sjá mörkin og vítavörsluna hér inn á Vísi.

Uppgjörið og viðtöl: HK - ÍA 0-4 | Skagamenn komnir á blað
Skagamenn gerðu góða ferð upp í efri byggðir Kópavogs í dag en liðið vann HK 4-0 í 2. umferð Bestu deildar karla. Stigin þrjú eru fyrstu stig ÍA á tímabilinu en liðið tapaði á móti Val í fyrstu umferð en HK er enn með eitt stig.

HK fékk fyrstu sekt sumarsins
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur sektað HK um 7000 krónur vegna fjölda gulra spjalda sem liðið fékk þegar það heimsótti KA í 1. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu.

Dýrast að sjá Gylfa eða vera seinlátur Vesturbæingur
Gríðarlegur áhugi var á fyrstu umferð tímabilsins í Bestu deild karla í fótbolta og vel mætt á leikina. Það getur þó kostað allt að 3.500 krónur að fá miða á völlinn.

Fáránlegar legghlífar nýjasta leikmanns HK
George Nunn gekk nýverið í raðir HK og mun spila með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu í sumar. Um er að ræða enskan framherja sem á einhverjar áhugaverðustu legghlífar sem sögur fara af.

„Hefðum getað skorað svona sjö mörk”
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var virkilega ánægður með spilamennsku sinna manna í dag en svekktur að ná einungis jafntefli þar sem aragrúi dauðafæra fór í súginn.

„Þá raðast inn mörkin, það er bara þannig“
Viðar Örn Kjartansson gekk til liðs við KA á dögunum og spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir liðið í 1-1 jafntefli gegn HK á heimavelli. Viðar kom inn á sem varamaður á 75. mínutu og var fljótur að búa til hættulega stöðu fyrir liðsfélaga sína.

Uppgjörið: KA - HK 1-1 | Sterkt stig HK-inga fyrir norðan
KA og HK skildu jöfn á Greifavellinum á Akureyri í dag í fyrstu umferð Bestu deildar karla, lokatölur 1-1. Viðar Örn Kjartansson kom inn á í liði KA í síðari hálfleik en náði ekki að setja mark sitt á leikinn.

Fyrrum leikmaður Chelsea spilar með HK í sumar
Hinn 22 ára George Nunn verður með HK í leiknum gegn KA í Bestu deildinni á morgun en hann er kominn með leikheimild með Kópavogsliðinu.

„Er á báðum áttum með þá sem eru að reka HK og hvernig félaginu er stýrt“
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, er á báðum áttum hvað honum finnst um takmarkaða virkni HK á félagaskiptamarkaðnum fyrir Bestu deild karla.

Besta-spáin 2024: Júmbósætið virðist frátekið
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir HK 12. sæti Bestu deildar karla í sumar.

„Það hafa einhverjir verið erfiðari heldur en ég“
Baldur Sigurðsson heimsótti HK-inga í nýjasta þættinum af Lengsta undirbúningstímabil í heimi og ræddi Baldur þar meðal annars við þjálfara HK liðsins sem er Ómar Ingi Guðmundsson.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi
HK vann fimm marka útisigur gegn Víkingi í fallbaráttuslag 21-26. Jafnræði var með liðunum nánast allan leikinn en HK spilaði betur á lokakaflanum og fagnaði sigri.

„Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“
HK vann fimm marka útisigur gegn Víkingi 21-26. Leikurinn var jafn og spennandi nánast allan leikinn en HK sigldi fram úr undir lokin. Sebastian Alexandersson, þjálfari HK, var afar ánægður með varnarleik liðsins.

Lið Halldórs látið spila eftir að áhorfandi lést og fjölskyldan horfði á
Halldór Jóhann Sigfússon, handboltaþjálfari Nordsjælland í Danmörku, varð vitni að endurlífgunartilraunum í íþróttahöll félagsins, þegar eldri stuðningsmaður lést skömmu fyrir leik við SAH í síðustu viku. Ákveðið var að leikurinn færi samt fram og fjölskylda mannsins horfði á leikinn.

HK sækir leikmann sem hefur áður leikið með liðinu
Viktor Helgi Benediktsson mun leika með HK í Bestu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið eftir að hafa leikið í Færeyjum síðan á síðasta ári.

Meðmælabréf kennaranna ekki nóg fyrir skólastjórann
Kennarar og nemendur í Kóraskóla í Kópavogi eru afar ósáttir við að fá ekki skýr svör frá Kópavogsbæ hvers vegna starfandi skólastjóri hafi ekki fengið ráðningu í auglýst starf skólastjóra. Þeim finnst ekki hafa verið hlustað á sig.

Örvar ólöglegur og HK vinnur þrátt fyrir tap
Stjarnan tefldi fram ólöglegum leikmanni er liðið lagði HK 4-0 í Lengjubikar karla í knattspyrnu nýverið. Því hefur úrslitunum verið breytt og þá þarf Stjarnan að greiða sekt.

Víkingur og KA skildu jöfn, ÍA skoraði sex og Þór lagði HK
Fjöldinn allur af leikjum fór fram í Lengjubikar karla í knattspyrnu í dag. Íslands- og bikarmeistarar Víkinga gerðu 1-1 jafntefli við KA á meðan ÍA vann Dalvík/Reyni 6-0.