Keflavík ÍF

Keflavík jafnar Val á toppi deildarinnar eftir nauman sigur
Keflavík vann einkar nauman sigur á Snæfelli í Dominos-deild kvenna í dag, lokatölur 85-80 í mjög jöfnum leik.

Mæla með að þjálfari Keflavíkur taki hálfleiksræður sínar einfaldlega fyrir leik
Gott gengi Keflavíkur í síðari hálfleik leikja sinna til þessa í Dominos-deild karla var til umræðu í síðasta þætti Dominos-Körfuboltakvölds.

Breiðablik með fullt hús stiga og stórsigrar hjá Keflavík og HK
Breiðablik er komið áfram í átta liða úrslit Lengjubikarsins eftir 2-1 sigur á Fylki í fjórða riðli A-deildar karla.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Haukar 86-74 | Keflvíkingar kláruðu botnliðið í seinni hálfleik
Topplið Keflavíkur fengu botnlið Hauka í heimsókn í Blue höllina í kvöld. Keflvíkingar virkuðu andlausir í fyrri hálfleik en mættu grimmari til leiks í þriðja leikhluta og náðu í tvö mikilvæg stig í toppbaráttunni, en Haukar eru enn á botni deildarinnar. Lokatölur 86-74.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Keflavík 80 - 67 | Valur hirti toppsætið
Valur vann toppslag deildarinnar og eru einar á toppnum í Dominos deildinni. Valur leiddi leikinn nánast frá fyrstu mínútu og unnu verðskuldaðan sigur.

Hemmi og Sævar þurftu að velja á milli Milka og Williams
Farið var um víðan völl í framlengingunni í Domino's Körfuboltakvöldi á mánudaginn. Þeir Hermann Hauksson og Sævar Sævarsson voru meðal annars beðnir um að gera upp á milli Keflvíkinganna Dominykas Milka og Deanes Williams.

Ólafur: Að halda Keflavík í 67 stigum vinnur þennan leik
Valur vann toppslag Dominos deildar kvenna í kvöld. Leikurinn endaði með þrettán stiga sigri Vals 80-67 og komst Keflavík aldrei yfir í leiknum.

Stiga regn í sigri Hauka
Það vantaði ekki stigin í leik Hauka og KR í Domino’s deild kvenna í kvöld. Haukarnir unnu að lokum sigur, 120-77, en leikurinn var liður í þrettándu umferð deildarinnar.

Keflavík hafnar tillögu um hámarksfjölda erlendra leikmanna
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að félagið muni ekki styðja tillögu um að ávallt skuli 2-3 Íslendingar vera innan vallar í hvoru liði í körfuboltaleikjum hér á landi.

Lárus: Dómarar eiga aðeins að pæla áður en þeir dæma menn strax út af
Lárus Jónsson þjálfari Þórs Þorlákshafnar var að vonum svekktur eftir sex stiga tap í toppslag Dominos deildar karla. Hans menn fengu Keflavík í heimsókn og þurftu að sætta sig við tap. Lokatölur 88-94.

Keflvíkingar unnu toppslaginn á lokakaflanum
Keflvíkingar eru enn einir á toppnum eftir sex stiga sigur gegn Þór Þorlákshöfn í Icelandic Glacial höllinni í kvöld. Lokatölur 88-94, en úrslitin réðust ekki fyrr en seint í fjórða leikhluta.

HK kom til baka og Keflavík lagði ÍBV
Tveimur leikjum er nú lokið í Lengjubikar karla og kvenna. HK kom til baka og nældi í 2-2 jafntefli gegn Íslandsmeisturum Vals. í kvennaflokki unnu nýliðar Keflavíkur 2-1 sigur á ÍBV.

„Ég skil alveg af hverju þeir þorðu ekki að dæma þetta“
Spennan var mikil í toppslag Keflavíkur og Hauka og það komu upp mörg umdeild atvik sem Domino´s Körfuboltakvöld fór betur yfir.

Keflavík valtaði yfir Þórsara
Keflavík fór illa með Þór frá Akureyri er liðin mættust í Dominos deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur í Keflavík 102-69 heimamönnum í vil.

„Þætti ofsalega vænt um að dómaranefnd KKÍ myndi bera meiri virðingu fyrir kvennaboltanum heldur en þetta“
Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, var ansi heitt í hamsi í viðtali eftir tapið gegn Haukum í framlengdum leik Dominos deildinni í kvöld. Jón var langt frá því að vera sáttur með dómgæsluna í kvöld og lét KKÍ heyra það.

Viðtöl og umfjöllun: Keflavík - Haukar 74-75 | Fyrsta liðið til að vinna Keflavík
Haukar voru í kvöld fyrsta liðið til þess að leggja Keflavík af velli. Þær gerðu það í spennandi leik, 74-75, eftir framlengingu.

„Við værum í stór hættu hér með nötrandi jörð, bullandi eldgosahættu“
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, var óánægður með heimsóknina á Reykjanesskaga í kvöld eftir tuttugu stiga tap gegn Keflavík.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Höttur 93-73 | Toppliðið afgreiddi nýliðana
Keflvíkingar fengu rúmar tvær vikur til að hugsa um tapið á móti Val og mættu grimmir til leiks á heimavelli á móti nýliðum Hattar.

Ótrúleg endurkoma Fjölnis - Valsmenn með fullt hús stiga
Fjórir leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta hér á landi í dag og var mikið skorað í leikjum dagsins.

Umfjöllun og viðtöl: Skallagrímur - Keflavík 67-71 | Keflavík rétt náði að halda sigurgöngunni á lofti
Sigurganga Keflavíkur í Domino's deild kvenna hélt áfram í dag þegar þær mörðu sigur á heimakonum í Skallagrími í Borgarnesi, 67-71.

Keflavík kláraði Skallagrím í fjórða leikhluta
Keflavík heimsótti Skallagrím í Dominos deild kvenna í körfubolta í dag og úr varð hörkuleikur þar sem gestirnir höfðu að lokum betur eftir góða frammistöðu í síðasta leikhlutanum.

26 mörk í leikjum dagsins í Lengjubikarnum
Sex leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta í dag, þrír í karlaflokki og þrír í kvennaflokki.

Keflavík áfram taplaust eftir spennutrylli
Keflavík er með fullt hús stiga eftir átta umferðir eftir að liðið vann sigur á Fjölni, 86-85, í Dalhúsum í kvöld.

Keflavík og Leiknir R. með stórsigra á meðan HK lagði Aftureldingu
Þremur leikjum til viðbótar í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu er nú lokið. Keflavík vann Vestra 5-0, Leiknir Reykjavík vann ÍBV 4-1 og HK vann Aftureldingu 2-0 í Kórnum.

Hildur Björg og Daniela Wallen báðar með stórleik
Keflavík, Valur, Haukar og Skallagrímur fögnuðu öll sigri í leikjum sínum í Domino´s deild kvenna í körfubolta í gær en Gaupi fór yfir leiki gærkvöldsins.

Með hærra framlag en restin af liðinu hennar til samans
Daniela Wallen átti enn einn stórleikinn í gær þegar Keflavíkurkonur héldu sigurgöngu sinni áfram og sóttu tvö stig í Hólminn í Domino´s deildinni.

Fullt hús hjá Keflavík og góðir sigrar Hauka og Skallagríms
Domino’s deild kvenna rúllaði aftur af stað í kvöld eftir landsleikjahlé. Haukar höfðu betur gegn Breiðabliki í Kópavogi, Skallagrímur rúllaði yfir KR og Keflavík er á toppnum eftir sigur í Stykkishólmi.

Breiðablik og Keflavík með stórsigra
Breiðablik rúllaði yfir Stjörnuna í fyrsta leik ársins í Lengjubikar kvenna er liðin mættust í Fífunni í morgun.

Umfjöllun: Valur - Keflavík 85-72 | Vængbrotnir Valsarar unnu toppliðið sannfærandi
Vængbrotið lið Vals - sem hafði tapað þremur leikjum í röð - pakkaði toppliði Keflavíkur saman að Hlíðarenda í Dominos-deild karla í kvöld. Lokatölur 85-72 og annað tap Keflavíkur á tímabilinu staðreynd.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Tindastóll 107-81 | Stólarnir steinlágu í Keflavík
Keflvíkingar fóru illa með Sauðkrækinga í Dominos deild karla í körfubolta í kvöld.