Upp­gjörið: Kefla­vík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úr­slit eftir há­spennu í framlengdum leik

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Stjarnan - Keflavík úrvalsdeild karla, Bónus deildin 2025-2026
Stjarnan - Keflavík úrvalsdeild karla, Bónus deildin 2025-2026

Keflavík og Stjarnan áttust við í fyrri leik undanúrslita VÍS bikarsins í kvöld þegar bikarvika KKÍ hóf göngu sína í Smáranum. Þrettán bikarmeistaratitlar deilast milli þessara liða þar sem Keflavík hefur unnið sjö sinnum og Stjarnan sex sinnum.

Það verður hins vegar Stjarnan sem fær tækifæri á því að bæta við sínum sjöunda bikarmeistaratitli en þeir tryggðu sig inn í úrslitaleikinn á laugardaginn eftir háspennu í framlengdum leik með þriggja stiga sigri 107-110.

Leikurinn fór mjög jafn af stað og mátti finna snemma hvað var í húfi. Það var smá skrekkur í báðum liðum og mátti sjá það einna helst á vítanýtingunni í upphafi sem var alls ekki góð og bæði lið að klikka.

Baráttan var mjög jöfn og skiptust liðin á því að leiða leikinn. Eftir fyrsta leikhluta var það Stjarnan sem leiddi með þremur stigum 27-24. Seth LeDay var gríðarlega öflugur í liði Stjörnunnar og átti Keflavík í stökustu vandræðum með hann en hann var með 10 stig eftir fyrsta leikhluta.

Stjarnan byrjaði annan leikhluta betur og náði mest níu stiga forskoti þegar best lét. Keflvíkingar voru að tapa boltanum klaufalega og láta litlu hlutina fara í taugarnar á sér. Þeir létu það þó ekki slá sig út af laginu og börðust inn í leikinn aftur.

Taugarnar voru þandar og mátti sjá það úti á golfi en bæði lið fengu tækifæri til þess að koma með áhlaup en það var ekki að detta fyrir þau. Remy Martin kom Keflavík yfir rétt fyrir hálfleik en Stjörnumenn svöruðu með þrist frá Orra Gunnarssyni í síðustu sókn fyrri hálfleiks og fóru með tveggja stiga forskot inn í hlé 45-47.

Þriðji leikhluti spilaðist svolítið eins og við var að búast. Mikil barátta og mikið jafnræði með liðunum. Keflavík náði að komast í forystu en Stjörnumenn sóttu hana aftur. Barátta fram og til baka í gríðarlega jöfnum leik.

Þessi jafna barátta kristallaðist svo með því að eftir þriðja leikhluta var staðan hnífjöfn 74-74.

Keflavík mætti með krafti í fjórða leikhluta og settu fyrstu fimm stigin. Stjarnan hins vegar svaraði með næstu sjö stigum og spennan var gríðarleg í Smáranum.

Það var allt í járnum og eftir háspennu og dramatík þurfti að grípa til framlengingar að venjulegum leiktíma loknum þar sem allt var jafnt 95-95.

Í framlengingunni var það svo Stjarnan sem reyndist sterkari. Stjörnumenn náðu að komast þessu skrefi fram úr Keflavík og höfðu á endanum betur með þrem stigum 107-110.

Atvik leiksins 

Hilmar Smári Henningsson setur gríðarlega mikilvægan þrist fyrir Stjörnuna sem kemur þeim þessu skrefi á undan sem nauðsynlega þurfti til þess að skera úr um sigurvegara.

Einnig er hægt að nefna miður skemmtilegt atvik í framlengingunni þegar Giannis Agravanis missti haus og kýldi Craig Moller í kviðin. Hann var rekinn úr húsi og á vonandi von á vænlegri sekt þó svo að Baldur eigi ekki von á því að hann fari í bann fyrir úrslitaleikinn.

Stjörnur og skúrkar

Hilmar Smári Henningsson setti stóra skotið og endaði leikinn með 15 stig. Seth LeDay var einnig öflugur þegar hann var inná en hann villaði sig úr leik undir lok fjórða leikhluta. Hann endaði stigahæstur hjá Stjörnunni með 23 stig og réðu Keflvíkingar illa við hann.

Hjá Keflavík var Remy Martin frábær og endaði hann stigahæstur á vellinum með 25 stig. Hann fór hinsvegar meiddur af velli og vonandi fyrir Íslenska körfubolta áhorfendur er þetta ekki alvarlegt.

Dómararnir

Sigmundur Már Herbertsson, Davíð Kristján Heiðarsson og Jakob Árni Ísleifsson dæmdu þennan leik. Skiptar sk0ðanir á teyminu í kvöld. Margt gott en líka margt vont. Sleppum þeim með 5-6/10.

Stemingin og umgjörð

Það var vel mætt í Smárann í kvöld enda úrslitaleikur í húfi. Stemningin og umgjörð var allt upp á 10,5 hér í kvöld og frábær fyrirheit fyrir því sem koma skal núna um komandi helgi þegar úrslitaleikurinn fer fram!

Viðtöl

Baldur Þór Ragnarsson þjáflari Stjörnunnar.Vísir/Vilhelm

„Ég held að hann fái sekt og vonandi bara nógu háa“

„Ánægður með að hafa unnið. Glaður, það er eiginlega tilfinningin“ sagði Baldur Þór Ragnarsson þjálfari Stjörnunnar eftir sigurinn í kvöld.

Frábær siguri hjá Stjörnunni en það gekk margt á í þessum leik sem gerði sigurinn enn sætari fyrir vikið.

„Mjög sterkt, sýnir karakter í mörgum mönnum og bara hrikalega erfiður leikur. Bæði lið að klöngrast allan leikinn og ég er bara mjög ánægður með að hafa náð að vinna“

Stjarnan hafði betur eftir framlengingu en hvað var það sem sigldi þessu yfir línuna?

„Það var bara kerfi fyrir kerfi sko, þetta datt okkar meginn. Þetta vinnst ekki neinstaðar annarstaðar“

Giannis Agravanis var rekinn úr húsi eftir að hafa kýlt Craig Moller og vonar Baldur að hann fái væna sekt fyrir vikið.

„Ég held að hann fái sekt og vonandi bara nógu háa eins og reglurnar eru“

Baldur Þór á þó ekki von á því að hann fari í bann fyrir úrslitaleikinn.

„Nei ég á von á því að hann fái sekt eins og reglurnar eru“

Silfurskeiðin tók yfir stúkuna í kvöld en hversu máli skiptir þessi stuðningur?

„Ég er mjög ánægður með stuðninginn. Við fórum í undanúrslit í fyrra með tóma stúku. Við erum búnir að gera alvöru stemningu í Garðabænum og hrikalega ánægður með fólkið sem er að mæta“ sagði Baldur Þór Ragnarsson.

Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari KeflavíkurVísir/Vilhelm

„Þeir náðu stóru skotunum í lokin“

„Þú finnur ekkert meira svekkelsi sko. Þetta var bara mjög súrt og fúlt“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur svekktur eftir tapið í kvöld.

„Stjarnan gerði vel og voru góðir í kvöld bara rétt eins og við en þeir náðu stóru skotunum í lokin“

Keflavík jafnaði leikinn 95-95 og tryggði sér framlenginu og fannst Daníel Guðna mómentið sveiflast með sínum mönnum fyrir framlenginguna.

„Já en svo bara spilast framlengingin og þeir áttu fyrstu körfuna. Síðan gerðum við vel sömuleiðis en svo bara duttu nokkur skot þeirra meginn og nokkur sniðskot hjá okkur sem máttu fara ofan í en svona er bara körfubolti“

Remy Martin fór meiddur af velli í kvöld en Daníel veit þó ekki stöðuna á honum nákvæmlega.

„Ekki hugmynd, bara ekki hugmynd“

Það er mikil blóðtaka fyrir Keflavík að vera án hans en hann var með tilkall til þess að vera besti maður vallarins meðan hann var inná.

„Hann var með 25 stig og stóð sig rosalega vel. Það er rosalega súrt að missa besta leikmanninn í leiknum útaf eins og gefur að skilja“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira