Innlent
Saurmengun langt yfir mörkum Saurmengun í Arnarneslæk í Garðabæ er langt yfir þeim mörkum sem teljast fullnægjandi, samkvæmt nýlegri mælingu Heilbrigðiseftirlitsins. Talið er að annað hvort sé klóakið vitlaust tengt í einhverju húsi eða þá að stífla hafi myndast í holræsakerfinu svo að klóakið fari í lækinn um yfirfallið þar sem yfirleitt á aðeins að fara regnvatn. Innlent 13.10.2005 19:19
Fjallar ekki frekar um bankasölu Löngum fundi fjárlaganefndar með ríkisendurskoðanda og framkvæmdanefnd um einkavæðingu lauk í gær með samþykkt meirihlutans um að nefndin fjallaði ekki frekar um málið. "Það kom margt fram á fundinum sem kallaði á frekari útskýringar," sagði Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar eftir fundinn. Innlent 13.10.2005 19:20
Brýr og krónur greiddar niður Aldraðir og öryrkjar með 75 prósent örorkumat geta nú fengið greiddan niður kostnað við föst tanngervi, það er brýr og krónur, um 40 - 80 þúsund krónur á hverju almanaksári Innlent 13.10.2005 19:20
Bættar horfur á friði í Darfur Evrópusambandið hyggst gera allt sem í þess valdi stendur til að aðstoða við að sátta- og friðargæsluverkefni Afríkusambandsins (AU) í Darfur í Súdan skili áþreifanlegum árangri. Þetta sagði Sten Rylander, sérlegur sáttasemjari á vegum Evrópusambandsins í Darfur, í samtali við Fréttablaðið. Erlent 13.10.2005 19:20
Íslandsbanki: Vill ekkert tjá sig Einar Sveinsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, vildi ekkert tjá sig um kaup Burðaráss á hlut Steinunnar Jónsdóttur í bankanum þegar fréttastofan náði sambandi við hann á sjöunda tímanum í kvöld en hann er á ráðstefnu í Álasundi á vegum bankans með Bjarna Ármannssyni, forstjóra Íslandsbanka. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:20
Telur Skerjafjarðarveg óraunhæfan Samgönguráðherra líst illa á hugmyndir Reykjavíkurlistans um hraðbraut yfir Skerjafjörðinn. Álftnesingar segja að borgaryfirvöld hafi ekkert rætt við þau um málið. Ekki er langt síðan hugað var að framkvæmdinni en þá þótti hún óhagkvæm. Innlent 13.10.2005 19:20
Setur ofan í við umboðsmann Landbúnaðarráðherra setur ofan í við umboðsmann Alþingis og segir ákveðna hluti í nýju áliti hans ekki vera í verkahring umboðsmanns eða á hans valdi. Innlent 13.10.2005 19:19
Menningarsetur í Svarfaðardal Sparisjóður Svarfdæla og Kaupfélag Eyfirðinga hafa ákveðið, í samstarfi við Dalvíkurbyggð, að hafa forystu um stofnun menningar- og náttúrufræðaseturs á Húsabakka í Svarfaðardal. Verið er að skipa starfshóp þessara aðila til að fylgja verkefninu eftir. Rekstur setursins verður í höndum sérstaks félags. Innlent 17.10.2005 23:41
Fer hægt en örugglega af stað "Sumarið fer hægt en örugglega af stað," segir Páll Þór Ármann, framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Páll segir að það hafi samtals veiðst tólf laxar í Norðurá sem opnaði nú 1. júní og Blanda sem opnaði 5. júní hafi líka farið ágætlega af stað og þar hafi sextán laxar veiðst hingað til. Innlent 13.10.2005 19:20
Skólp var leitt í drenlögn Mælingar heilbrigðiseftirlits í Arnarneslæk í Garðabæ í maí sýndu saurgerla langt yfir öllum mörkum. Fyrir neðan Ljósamýri í Garðabæ mældust 17.000 saurkólígerlar í hverjum 100 millilítrum vatns og 73 þúsund saurkokkar. Innlent 13.10.2005 19:20
Erum með í 14 af 20 verkefnum Ísland er þátttakandi í 14 af 20 verkefnum sem NORA, Norður Atlantsnefndin, hefur ákveðið að styrkja með fjárveitingu upp á 39,4 milljónir króna. Fjallað var um 40 styrkumsóknir á árfundi nefndarinnar dagana 4. og 5. júní í Nuuk á Grænlandi. Um er að ræða margvísleg samstarfsverkefni á milli Færeyja, Grænlands, Íslands og Noregs. Innlent 13.10.2005 19:20
Kennurunum settir afarkostir Skólastjórn Landakotsskóla sendi nokkrum kennurum skólans bréf í gær þar sem sagt er að skriflegur stuðningur við stjórnina sé skilyrði fyrir því að þeir haldi starfi sínu við skólann. Foreldrar funda með stjórninni í kvöld þar sem afsagnar hennar verður krafist lagist staðan ekki. Innlent 13.10.2005 19:20
Skerjafjarðarbraut þótti óhagkvæm Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu höfnuðu tengingu miðborgar Reykjavíkur og Álftaness með Skerjafjarðarbraut fyrir þremur árum þar sem hún var talin óhagkvæm. Innlent 13.10.2005 19:20
Steinunn seldi Burðarási Breytingar í hluthafahópi Íslandsbanka þegar Steinunn Jónsdóttir seldi Burðarási fjögurra prósenta hlut í bankanum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:20
Unnið gegn heimilisofbeldi Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur falið verkefnisstjórn um heilsufar kvenna að skoða ákveðna þætti í heilbrigðisþjónustunni til að vinna gegn heimilisofbeldi og bæta þjónustu og stuðning við þolendur heimilisofbeldis. Innlent 13.10.2005 19:20
Óvissa um staðarval loðnubræðslu Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjórinn í Grindavík, bindur vonir við að Síldarvinnslan ákveði að byggja upp starfsemi sína í bænum. Innlent 13.10.2005 19:20
Stefnan að hafa álverið á Húsavík Iðnaðarráðuneytið hefur sett stefnuna á Húsavík við undirbúning álvers á Norðurlandi og miðast vinna við val virkjanakosta nú við þá staðsetningu. Gert er ráð fyrir að jarðgufuvirkjanir í innan við fimmtíu kílómetra fjarlægð frá Húsavík geti annað raforkuþörf meðalstórs álvers. Innlent 13.10.2005 19:20
Leiðtogaþing í Reykholti Leiðtogaþing lútherskra kirkna í Evrópu hófst í gær í Reykholti í Borgarfirði, en evrópudeild Lútherska heimssambandsins stendur fyrir þinginu. Innlent 13.10.2005 19:20
Ökumönnum umbunað út frá ökuritum Vátryggingafélag Íslands ætlar að bjóða ungum ökumönnum að hafa ökurita í bílum sínum í sumar. Besti ökumaðurinn verður svo valinn í sumarlok út frá þeim upplýsingum sem ökuritinn hefur skráð um aksturslagið. Innlent 13.10.2005 19:20
Innra eftirlit verði hert Heilbrigðisráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til heilbrigðisstofnana að herða innra eftirlit til varnar fjölómæmu bakteríunnni, MÓSA, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra. Innlent 13.10.2005 19:20
Ólafur sakaður um málþóf Ólafur F. Magnússon lagði í fyrradag til á borgarstjórnarfundi að heimildir til niðurrifs sjö gamalla húsa yrðu dregnar til baka. Húsin eru milli Smiðjustígs og Vatnsstígs og fimm þeirra eru frá 19. öld. Innlent 13.10.2005 19:20
Íslensk sérleyfi seld til útlanda Íslensk fyrirtæki í útrás nýta sér í auknum mæli sérleyfi sem þau selja í útlöndum. Sérleyfi, eða svokallað „franchise“, hefur verið nokkuð áberandi á Íslandi undanfarin ár, þ.e.a.s. að íslensk fyrirtæki stofni fyrirtæki hér á landi á erlendu sérleyfi sem þau hafa keypt en nú virðist sem verið sé að snúa fyrirkomulaginu við. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:20
Kjartan stopp í Reykjafirði í gær Kjartan Jakob Hauksson ákvað að halda kyrru fyrir í Reykjafirði í fyrrinótt og í gær vegna hvassviðris. Í mestu hviðunum fór vindurinn upp í 20 m/s. "Veðrið er að detta niður," sagði Kjartan þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gærkvöldi. Hann gerði ráð fyrir því að komast aftur af stað í nótt eða nú í morgunsárið. "Það spáir hæglætisveðri næstu daga." Innlent 13.10.2005 19:20
Rafrænt vegabréf skilyrði Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna sendi í dag út tilkynningu þar sem minnt er á að enginn ferðamaður komist inn í landið án vegabréfsáritunar nema hann framvísi rafrænu vegabréfi frá og með 26. júní nk. Flugfélög sem flytja farþega án tilskilinna ferðapappíra mega eiga von á sekt upp á rúmar 200 þúsund krónur. Innlent 13.10.2005 19:20
Lyfjakostnaður aukist um þriðjung Íslendingar eyða um 200 þúsund krónum á mann í heilbrigðismál á ári hverju. Aðeins fjögur lönd í heiminum eyða meiru en útgjöld til heilbrigðismála hafa aukist í öllum OECD-löndunum. Lyfjakostnaður hefur að meðaltali aukist um rúman þriðjung á fimm árum. Innlent 13.10.2005 19:19
Járnagi á Járnfrúnni Tónleikar bresku þungarokkhljómsveitarinnar Iron Maiden fóru vel fram í gærkvöldi. Um tíu þúsund manns mættu í Egilshöll þar sem flugstjórinn, Bruce Dickinson, og félagar spiluðu klassísk rokklög frá fyrri hluta ferils hljómsveitarinnar. Lífið 13.10.2005 19:19
Fagnaðarefni að mati Læknafélags "Þetta sýnir og sannar hversu lítill hluti læknastéttarinnar er þarna um að ræða og það er fagnaðarefni að Landlæknir geti tekið á málum tengdum þeim er ávísa ávanabindandi efnum í meira mæli en eðlilegt er," segir Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélagsins. Innlent 13.10.2005 19:20
Tignarleg sveitahöll í Borgarfirði Glöggir vegfarendur sem leið eiga um Borgarfjörð hafa efalítið tekið eftir sveitahöllinni að Skarðshömrum sem ekki á sinn líkan í sveitum landsins og þó víðar væri leitað. Hún hefur verið í byggingu síðan í byrjun árs 2003 en nú eru framkvæmdir á lokastigi. Innlent 13.10.2005 19:20
Oddvitinn ekki hissa "Ég veit ekki hvað á að segja um framkvæmd sem fer 150 prósent fram úr áætlun annað en að ég er ekki mjög hissa," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Innlent 13.10.2005 19:20
Dagný bendi á dæmi Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að Kristinn H. Gunnarsson flokksbróðir hennar á Alþingi, sé vandamál í Framsóknarflokknum og þingmaðurinn tæti niður mál sem séu flokknum góð og þörf. Þessu hélt Dagný fram í RÚVAK í gær í umræðum um fylgi flokksins og skoðanakannanir. Kristinn H. Gunnarsson segir að orð Dagnýjar þarfnist rökstuðnings. Innlent 13.10.2005 19:20