Innlent
Samþykkja að nýta sér heimildir til launahækkana Bæjarráð Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbær hafa samþykkt að nýta sér þær heimildir sem Launanefnd sveitarfélaga samþykkti fyrir rúmri viku til tímabundinna viðbótargreiðslna umfram gildandi kjarasamninga við stéttarfélögin Einingu-Iðju, Kjöl og Félag leikskólakennara. Þetta kemur fram á vefnum dagur.net. Innlent 6.2.2006 18:06
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,2 milljarða Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands jókst um 1,2 milljarða króna í janúarmánuði og nam hann 68,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Aukning gjaldeyrisforðans er tilkomin vegna reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði. Innlent 6.2.2006 17:35
Myndlistaskólinn í Reykjavík fékk hæsta styrkinn Menntaráð Reykjavíkur úthlutaði í dag styrkjum til fræðslu- og þróunarverkefna fyrir næsta skólaár. Alls námu styrkirnir sjötíu milljónum króna. Lögð var áhersla á verkefni sem tengjast samstarfi leik- og grunnskóla, kennslu bráðgerra barna og ensku- og íslenskukennslu fyrir nýbúabörn. Alls hlutu áttatíu og sex skólar styrk, misháa þó, og hlaut Myndlistaskólinn í Reykjavík hæsta styrkinn að uppghæð tíu milljónir og fjögurhundruð þúsund krónur til styrktar myndlistarnáms grunnskólanemenda í Reykjavík. Þá hlutu sex tónlistarskólar styrk en það er í fyrsta sinn tónlistarskólar hljóta styrk frá menntaráði. Innlent 6.2.2006 17:45
Skipar verkefnisstjórn vegna búsetumála geðfatlaðra Félagsmálaráðherra hefur skipað verkefnisstjórn sem falið er að hafa umsjón með uppbyggingu búsetuúrræða og þjónustu við geðfatlaða í samræmi við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að verja milljarði króna af söluandvirði Símans til verkefnisins. Innlent 6.2.2006 17:29
Náði ekki tilætluðum árangri og hættir því "Ég náði ekki tilætluðum árangri og þess vegna tók ég ákvörðun um að vera ekki með á listanum," segir Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi R-listans, um ástæðu þess að hún tekur ekki sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Hún bauð sig fram í 1. sæti í prófkjöri flokksins en endaði í 2. sæti. Innlent 6.2.2006 17:21
Telja að sá markaður sem Sena er á eigi eftir að vaxa Dagsbrún hefur keypt allt hlutafé í útgáfufyrirtækinu Senu. Sena er hluti af Degi Group og með kaupunum fylgir tónlistarútgáfa, umboð fyrir tölvuleiki, þrjú kvikmyndahús, tónlistarveitan tonlist.is og fleira. Greitt er fyrir kaupin annars vegar með 1.600 milljónum í reiðufé og hins vegar með hlutafé í Dagsbrún. Sena er útgáfuhluti gömlu Skífunnar en Róbert keypti Skífuna af Norðurljósum árið 2004. Bréf í Dagsbrún hafa hækkað um tæp 3% í dag. Innlent 6.2.2006 17:03
Leikskólakennarar farnir að draga uppsagnir til baka Leikskólakennarar í Reykjavík eru farnir að draga uppsagnir sínar til baka eftir að borgarráð samþykkti að hækka laun þeirra í samræmi við tillögur launanefndar sveitarfélaga. Innlent 6.2.2006 16:32
Útgáfufyrirtækið Sena selt Róber Melax eigandi Dags Group hefur ákveðið að selja útgáfufyrirtækið Senu. Samkvæmt heimildum NFS er það Dagsbrún sem kaupir Senu. Sena er stærsti útgáfuaðili tónlistar á Íslandi og rekur meðal annars þrjú kvikmyndahús. Sena er útgáfuhluti gömlu Skífunnar en Róbert keypti Skífuna af Norðurljósum árið 2004. Innlent 6.2.2006 16:13
Kostnaður við mötuneyti um 580 milljónir á ári Samkvæmt fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að kostnaður við matvæli í mötuneytum grunnskóla borgarinnar sé um 410 milljónir króna á ári og annar sérstakur kostnaður vegna mötuneyta sé um 170 milljónir. Kostnaðurinn við mötuneytin er því samtals um 580 milljónir króna. Innlent 6.2.2006 16:00
Varað við fljúgandi hálku á Öxnadalsheiði Lögreglan á Akureyri varar við fljúgandi hálku á Öxnadalsheiði. Að sögn lögreglunnar hafa þó engin óhöpp orðið í dag en hún segir að við þeim hafi legið í nokkrum tilvikum. Hálkan mun vera mjög lúmsk og eru ökumenn hvattir til að fara sér hægt og gæta fyllstu varúðar. Innlent 6.2.2006 15:54
Náttúrufræðingar semja við borgina Félag íslenskra náttúrufræðinga hefur samið við Reykjavíkurborg um kaup og kjör um fimmtíu félagsmanna sinna sem starfa hjá borginni. Samningurinn var undirritaður í síðustu viku og gildir út október 2008. Innlent 6.2.2006 15:31
Tveggja mánaða fangelsi fyrir áfengisstuld Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag mann á sextugsaldri til tveggja mánaða fangelsisvistar þar sem annar mánuðurinn er skilorðsbundin til tveggja ára fyrir fjársvik og þjófnað tengdu áfengi. Innlent 6.2.2006 15:20
Nokkur afskipti af ökumönnum vegna hraðaksturs Lögreglan í Hafnarfirði hafði afskipti af 45 ökumönnum í síðustu viku vegna umferðarlagabrota. 28 Ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs og þrír vegna gruns um ölvun við akstur. Hraðamælingar voru gerðar í íbúðahverfum og voru þrír ökumenn stöðvaðir í tengslum við hraðakstur þar. Innlent 6.2.2006 14:03
Lögreglan á Ísafirði óskar eftir upplýsingum varðandi fíkniefnamisferli Lögreglan á Ísafirði hyggst auka eftirlit með aðilum sem grunaðir eru um meðferð fíkniefna. Almenningur er hvattur til að hafa samband við lögregluyfirvöld ef einhver grunur kviknar um meðhöndlun fíkniefna eða annað fíkniefnamisferli og þeim er heitið nafleynd sem til hennar leitar með upplýsingar. Þá er einnig ráðgert að auka eftirlit með ætluðum útivistarreglubrotum unglinga og meintri ölvun. Innlent 6.2.2006 13:11
Lögregla hefur afskipti af ökumönnum á torfærutækjum Lögreglan á Hvolsvelli hafði afskipti af nokkrum ökumönnum torfærutækja og vélhjóla í síðustu viku. Ökumennirnir reyndust ekki hafa ökuréttindi til akstursins og þar að auki þá voru torfærutækin og vélhjólin ekki skráð og því ekki með skráninganúmer. Innlent 6.2.2006 13:00
Samþykkt að nýta sér heimildir til launahækkunar Bæjarráð Akureyrarbæjar og Dalvíkurbyggðar hafa samþykkt að nýta sér heimildir sem samþykktar voru af Launanefnd sveitafélaga 28. janúar síðastliðinn. Um er að ræða tímabundnar launagreiðslur umfram gildandi kjarasamninga við stéttafélögin Einingu-Iðju, Kjöl og Félag leikskólakennara. Innlent 6.2.2006 11:54
Eitt stærsta fíkniefnamál sem komið hefur upp í Leifstöð Enginn hefur verið handtekinn til viðbótar við karl og konu á þrítugsaldri sem voru handtekin í Leifsstöð við komu frá París á föstudag, eftir að um það bil fjögur kíló af amfetamíni fundust í farangri þeirra. Innlent 6.2.2006 11:39
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar yrði aðskilin Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar yrði alveg aðskilin frá starfssemi Varnarliðsins, þótt hún tæki við af þyrlusveit þess. Engin knýjandi þörf væri að flytja hana frá Reykjavík til Keflavíkur, ef til yfirtökunnar kæmi. Innlent 6.2.2006 11:33
60 teknir fyrir of hraðan akstur Tæplega 60 manns voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi um helgina. Einn ökumaðu rmældist á rúmlega 130 km hraða en hann var á pallbíl og samkvæmt lögum má hann ekki keyra hraðar en á 80 km hraða. Hann á von á hárri sekt vegna athæfisins eða um 40 þúsund króna sekt. Greiði hann innan mánaðar lækkar sektin um 10 þúsund krónur. Innlent 6.2.2006 11:28
Lyfjafræðideild HÍ með bestu skil á einkunnum Skrifstofustjórar og deildarforsetar lyfjafræðideildar, viðskipta- og hagfræðideildar og verkfræðideildar við Háskóla Íslands, fengu á föstudag afhentar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu við einkunnaskil. Viðurkenningarnar koma frá fulltrúum stúdenta við Háskóla Íslands en það hefur lengi verið baráttumál stúdenta að einkunnaskil séu innan þeirra marka sem lög og reglur skólans kveða á um. Innlent 6.2.2006 10:42
Heimsafli á grásleppu minnkar um fjórðung á milli ára Heimsafli á grásleppu minnkaði um fjórðung frá árinu 2004 til 2005. Þetta kom fram á fundi fulltrúa veiðimanna og framleiðenda grásleppukavíars, LUROMA, sem haldin var í London í síðustu viku. Grásleppuhrogn voru verkuð í rúmlega 32. þúsund tunnur á síðasta ári sem er um 10 þúsund tunnum minna en árið 2004. Innlent 6.2.2006 10:34
Bæjarstjórnarfulltrúum boðið á kynningu í leikskólum Félag leikskólakennara í Vestmannaeyjum hefur boðið fulltrúum úr bæjarstjórn, fræðslufulltrúa og formanni fræðslu- og menningarráðs að koma og kynna sér starfið á leikskólum bæjarins. Kynningin verður 14. febrúar næstkomandi og mun standa yfir í fjóra tíma. Innlent 6.2.2006 09:59
Mikill áhugi fyrir sjóstangveiði Mikill áhugi virðist verða á sjóstangveiðiferðum hjá vestfirska fyrirtækinu Fjord fishing en nú þegar hafa um 800 manns bókað í sjóstangsveiðir í sumar. Von er á fyrstu hópunum til Tálknafjarðar í apríl en til Súðavíkur í maí. Innlent 6.2.2006 09:39
Gistinóttum í desember fjölgar um rúm 13% á milli ára Gistinótum á hótelum í desember fjölgaði um rúm 13% í fyrra miðað við í desember árið 2004. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum 14% en gistinóttum fækkaði á Norðurlandi og á Austurlandi. Innlent 6.2.2006 09:28
Mikil hálka á Snæfellsnesi Vegagerðin varar við mikilli hálku á milli Grundarfjarðar og Stykkishólms. Hálka er víða um land, einkum á heiðum. Þá er nokkur éljagangur á Norðurlandi. Innlent 6.2.2006 07:56
Þrjár bílveltur í gær og í nótt Sex manns sluppu ótrúlega vel úr þremur veltum í gærkvöldi og nótt, en tveir bílanna eru gjör ónýtir. Fyrst valt bíll úr af veginum í Súgandafirði í gærkvöldi og fór nokkrar veltur inn á túnið við bæinn Botn. Þrjú ungmenni sem voru í bílnum tognuðu eitthvað og mörðust og dvöldu á sjúkrahúsinu á Ísafirði í nótt til rannsóknar. Björgunarmenn þurftu að beita klippum til að ná tveimur út úr flakinu. Innlent 6.2.2006 07:25
Reyndu að smygla tæpum fjórum kílóum af amfetamíni til landsins Karl og kona á þrítugsaldri voru handtekin í Leifsstöð við komuna frá París á föstudag, eftir að um það bil fjögur kíló af mjög hreinu amfetamíni fundust í farangri þeirra. Að sögn Morgunblaðsins nemur smásöluverð efnisins á bilinu 40 til 60 milljónum króna og var fólkið úrskurðað í allt að tveggja vikna gæsluvarðhald á laugardag. Innlent 6.2.2006 07:23
Ímyndið ykkur allt þetta fólk Framtak Jótlandspóstsins var til þess að niðurlægja frekar fólk sem taldi sig þegar niðurlægt. Það var til að magna elda. Það var til að kynda undir hatur. Það var til að æsa upp tilfinningar af trúarlegum og kynþáttalegum toga. Þurfum við á slíku að halda? Fastir pennar 5.2.2006 22:46
Gala-kvöld eftir gagngerar endurbætur Fjölmenni mætti á opnunarhátíð í Þrastalundi í Grímsnesi um helgina þegar staðurinn var opnaður með formlegum hætti eftir miklar breytingar. Garðar Kjartansson, gjarnan kenndur við skemmtistaðinn NASA, tók við rekstri staðarins á síðasta ári og hefur staðurinn fengið mikla andlitlsyftingu. Lífið 5.2.2006 22:04
Þórir Karl Jónasson dregur framboð sitt til baka Þórir Karl Jónasson, þátttakandi í prófkjöri fyrir Samfylkinguna og óháða í Reykjavík hefur dregið framboð sitt til baka af persónulegum ástæðum. Innlent 5.2.2006 16:42