Innlent
Berst fyrir samveru afa síns og ömmu Aðeins rúmum helmingi af fé úr framkvæmdasjóði aldraðra er varið til uppbyggingar hjúkrunarheimila. Barnabarn eldri hjóna berst fyrir því að afi þess og amma fái að eyða elliárunum saman en svo virðist sem 200 manna biðlisti komi í veg fyrir það. Innlent 26.2.2006 18:18
Þyrlan skoðuð á síðustu stundu vegna fjárskorts Fresta þurfti skoðun á TF-LíF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, fram á síðustu stundu vegna fjárskorts. Hentugra hefði verið að skoða þyrluna í september í stað þess að bíða. Innlent 26.2.2006 18:26
Maðurinn sem lést Maðurinn sem lést þegar bíll sem hann var í féll niður í sprungu á Hofsjökli hét Tómas Ýmir Óskarsson. Hann bjó að Keilusíðu á Akureyri, var 21 árs að aldri og lætur eftir sig unnustu. Innlent 26.2.2006 18:21
Stútur velti bíl Tveir menn sluppu með smávægileg meiðsli þegar bíll þeirra valt við Hafnarskóg, rétt sunnan af Borgarnesi, í dag. Grunur leikur á að ökumaðurinn hafi verið ölvaður undir stýri. Innlent 26.2.2006 18:15
Fjölmenningarkarníval í Laugalækjarskóla Börnum og fullorðnum var boðið á karníval fjölmenningar í dag þegar heimsdagur barna var haldinn í annað sinn. Gestir gátu hvort tveggja horft á sýningar á sviði og tekið þátt í listsmiðjum og öðrum viðburðum. Innlent 26.2.2006 18:07
Opnaði nýtt sendiráð á Indlandi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði í dag nýtt sendiráð Íslands á Indlandi. Hún er þar í opinberri heimsókn sem staðgengill Geirs H. Haarde utanríkisráðherra. Innlent 26.2.2006 17:11
Þrír undir eftirlit eftir tvö slys Maðurinn sem slasaðist alvarlega þegar jeppi sem hann var í fór niður í sprungu á Hofsjökli í gær er enn á gjörgæslu og undir eftirliti lækna. Hann er með meðvitund en töluvert slasaður. Innlent 26.2.2006 17:06
Tekinn með hass og amfetamín Þrítugur maður var handtekinn í Hafnarfirði eftir að um 40 grömm af fíkniefnum fundust á honum við umferðareftirlit lögreglunnar þar í bæ. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina og var fenginn dómsúrskurður til húsleitar en hann neitaði lögreglu um að leita bæði í bíl og á heimili sínu. Innlent 26.2.2006 14:30
Björgunarstarf hefði vart getað gengið betur Aðstæður á slysstað á Hofsjökli voru mjög erfiðar. Björgunarstarf gekk þó eins vel og mögulegt var miðað við aðstæður, segir Ari Jóhannes Hauksson sem stjórnaði aðgerðum við sprunguna þar sem jeppinn fór niður. Innlent 26.2.2006 14:21
Tveir slösuðust þegar jeppi valt Tveir menn slösuðust þegar jeppi þeirra valt við Hrafntinnusker síðustu nótt. Meiðsl mannanna voru þó ekki meiri en svo að þeir komu sér sjálfir í skála í grenndinni og báðu um hjálp. Innlent 26.2.2006 13:06
Víkur úr skotlínunni Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, segist ekki hafa séð aðra leið út úr deilum sem hafa umlukið skólann en að hætta störfum. Hún vonar að þá komist menn að því hver hin raunverulega meinsemd sé. Innlent 26.2.2006 12:05
Vill strætósamgöngur til Reykjavíkur Bæjarráð Reykjanesbæjar vill koma á strætisvagnasamgöngum milli Reykjanesbæjar og höfuðborgarsvæðisins ef það reynist mögulegt. Innlent 26.2.2006 10:51
Mikil fjölgun Sjálfstæðismanna í Grindavík Sjálfstæðismönnum í Grindavík fjölgaði gríðarlega í tengslum við prófkjör flokksins sem haldið var í gær, um heil um 179 prósent. 156 tóku þátt í prófkjörinu, þar af voru um eitt hundrað nýir sjálfstæðismenn. Innlent 26.2.2006 10:35
Sigurður Pétursson leiðir Í-lista Sigurður Pétursson, sagnfræðingur og kennari við Menntaskólann á Ísafirði, sigraði í prófkjöri prófkjöri Í-listans í Ísafjarðarbæ sem fram fór í gær. Hlaut hann 192 atkvæði í 1. sæti og alls 294 atkvæði. Innlent 26.2.2006 10:02
Annar maðurinn lést en hinn slasaðist alvarlega Annar mannanna tveggja sem voru í jeppa sem féll niður í sprungu á Hofsjökli í gær var látinn þegar björgunarmenn komu að. Hinn maðurinn er alvarlega slasaður og liggur á gjörgæslu. Innlent 26.2.2006 10:01
Annar mannanna látinn Björgunarmenn hafa náð mönnunum tveimur sem óku á jeppa niður í jökulsprungu á Höfsjökli upp úr sprungunni. Búið var að ná mönnunum upp um klukkan 23:50 og voru þeir fluttir með þyrlum varnaliðsins á Landspítalann við Fossvog. Annar er töluvert slasaður en hinn er látinn. Innlent 26.2.2006 02:44
Vilja álver en síður virkjanir Norðlendingar vilja fá álver í sinn landshluta en þeir eru lítt spenntir fyrir að virkjunin sem sér álverinu fyrir orku verði á sömu slóðum. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Gallups fyrir iðnaðarráðuneytið. Innlent 25.2.2006 18:06
Jeppi féll í sprungu Jeppi féll niður í djúpa sprungu á Hásteinum á austanverðum Hofsjökli nú síðdegis. Tveir karlmenn eru í bílnum en ekki hafði náðst samband við þá fyrir fáeinum mínútum. Þyrlur frá Varnarliðinu og danska varðskipinu Triton voru sendar á slysstað og lentu þar rétt um klukkan sex. Innlent 25.2.2006 18:16
Segir ráðuneytið standa ráðþrota Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurskipun í embætti rektors en skipunartími hennar rennur út að loknu þessu skólaári. Innlent 25.2.2006 17:05
Friðarverðlaun og friðarsúla í Viðey Yoko Ono vill stofna alþjóðleg friðarverðlaun sem verða afhent á Íslandi. Þetta sagði hún á blaðamannafundi fyrir skemmstu. Þar lýsti hún því einnig hvernig hún sæi fyrir sér friðarsúlu sem hún vill koma upp í Viðey. Innlent 25.2.2006 16:35
Háskóli Íslands meðal hundrað bestu Háskóli Íslands á að verða einn af hundrað fremstu háskólum í heimi, sagði Kristín Ingólfsdóttir rektor við útskrift í háskólanum í dag. Innlent 25.2.2006 15:50
Forseti Úganda endurkjörinn Yoweri Museveni forseti Úganda var endurkjörinn með talsverðum meirihluta atkvæða í kosningum sem fram fóru á fimmtudag. Þetta var tilkynnt nú rétt áðan. Museveni fékk um 60% atkvæða en helsti keppinautur hans 36%. Innlent 25.2.2006 13:55
Sjö skólar kynna námsframboð sitt Fjöldi verðandi háskólanema hefur lagt leið sína í Borgarleikhúsið í dag þar sem sjö háskólar kynna nú starfsemi sína. Nemendur geta valið á milli níutíu og níu námsgreina. Innlent 25.2.2006 13:52
Vigdís Finnbogadóttir merkasti núlifandi Íslendingurinn Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er merkasti núlifandi Íslendingurinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hún hlaut 29% tilnefninga en næstur kom Davíð Oddsson, Seðlabankastjóri og fyrrum forsætisráðherra, með 13%. Innlent 25.2.2006 12:32
Prófkjör Í-listans í dag Tólf eru í framboði í prófkjöri Í-listans, sameiginlegs framboðs Frjálslynda flokksins, Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Ísafirði sem fram fer í dag. Innlent 25.2.2006 12:38
Svartsýnn á árangur Formaður Landssambands slökkviliðsmanna var svartsýnn á árangur samningaviðræðna sem hófust í Karphúsinu í morgun. Hann segir að líklega verði greidd atkvæði um verkfallsheimild í næstu viku. Innlent 25.2.2006 12:23
Forseti Íslands segir óásættanlegt að hjón fái ekki að eyða síðustu ævidögum saman Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að það sé óásættanleg framkoma við eldri kynslóðina þegar hjón fá ekki að eiga síðustu ævidagana saman af því að þau fá ekki inni á sömu stofnun. Þannig er ástatt um tæplega 50 pör hér á landi. Innlent 25.2.2006 12:17
Leikskóli og skóladagvist dýrust í Garðabæ Garðabær er dýrasta sveitarfélag landsins þegar kemur að því að fá leikskólavist og skóladagvist fyrir börn samkvæmt nýrri könnun ASÍ. Skiptir þá engu hvort um er að ræða hjón eða einstætt foreldri. Innlent 25.2.2006 11:02
Frú Vigdís merkasti Íslendingurinn Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er merkasti núlifandi Íslendingurinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hún hlaut tuttugu og níu prósent tilnefninga en næstur kom Davíð Oddsson, Seðlabankastjóri og fyrrum forsætisráðherra, með þrettán prósent. Innlent 25.2.2006 10:03
Tólf í prófkjöri í Grindavík Sjálfstæðismenn í Grindavík velja sér í dag frambjóðendur í efstu sæti framboðslista síns fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Tólf gefa kost á sér í prófkjöri sem hófst klukkan tíu og stendur til klukkan sex. Innlent 25.2.2006 10:01