Innlent
Ný stjórn hjá SA Ný stjórn hefur verið kjörin hjá Samtökum atvinnulífsins fyrir starfsárið 2006 til 2007. Nýir koma inn í stjórnina þeir Jón Karl Ólafsson Icelandair hf., Helgi Magnússon Flügger HarpaSjöfn ehf., Bjarni Ármannsson Glitnir hf., Helgi Bjarnason Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Gunnar Karl Guðmundsson Skeljungur hf. Innlent 25.4.2006 14:39
Menntamálanefnd fundar vegna RÚV-frumvarps Menntamálanefnd kom saman í morgun til að ræða frumvarp um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Samþykkt var á þingi í gær að vísa málinu til þriðju umræðu en að kröfu stjórnarandstöðunnar var fundað um málið þar sem spurningar vöknuðu meðal stjórnarandstæðinga um ýmislegt sem lýtur að höfundarétti og eignum RÚV. Innlent 25.4.2006 12:14
Fækkar um 128 í sveitarstjórnum Baráttan um sæti í sveitarstjórnum landsins kann að verða öllu harðari nú en í síðustu kosningum. Alla vega eru færri sæti í boði nú en áður. Innlent 25.4.2006 11:54
Samningafundur í dag ráði miklu um framhaldið Samningafundur í kjaradeilu starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum, sem hefst klukkan eitt í dag, ræður miklu um framhaldið og hvort til setuverkfalls og jafnvel uppsagna starfsmanna kemur. Formaður Eflingar er ekki bjartsýnn eftir að deilan hljóp í hnút á fundi í gærkvöldi. Innlent 25.4.2006 12:21
Rennslið þriðjungur þess sem mest var Mjög hefur dregið úr hlaupinu í Skaftá og er rennsli hennar nú aðeins rúmlega þriðjungur þess sem það var þegar hlaupið náði hámarki. Stærsta Skaftárhlaup sem mælst hefur er nú í rénun og má gera ráð fyrir að rennsli verði komið í meðallag eftir viku eða svo. Innlent 25.4.2006 12:07
Fyrirtaka í máli Friðriks á hendur Sigurði í morgun Í morgun var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur, meiðyrðamál Friðriks Þórs Guðmundssonar á hendur Sigurði Líndal lagaprófessor vegna ummæla Sigurðar í tengslum við rannsókn flugslyssins í Skerjafirði. Innlent 25.4.2006 12:02
Segir bjarta tíma fram undan í efnahagsmálum Bjartir tímar eru framundan í efnahagsmálum, samkvæmt nýrri skýrslu fjármálaráðuneytis um þjóðarbúskapinn. Hratt mun draga úr spennu í hagkerfinu, meðal annars vegna lækkunar krónunnar, og hraðvaxandi álútflutningur mun snúa við viðskiptahalla og leiða hagvöxtinn á næstu árum. Innlent 25.4.2006 12:06
Varnarviðræðum haldið áfram Varnarviðræðum íslenskra og bandarískra stjórnvalda verður haldið áfram á morgun. Fundir verða haldnir í Reykjavík á morgun og fimmtudag. Innlent 25.4.2006 11:41
Samþykkt að sameinast Verslunarmannafélagi Hafnarfjarðar Aðalfundur VR samþykkti í gærkvöld að sameinast Verslunarmannafélagi Hafnarfjarðar um næstu áramót að því gefnu að hið síðarnefnda samþykki einnig sameininguna. Innlent 25.4.2006 09:42
Aldrei fleiri leikskólabörn Nær sautján þúsund börn eru í leikskólum landsins og þau hafa aldrei verið fleiri. Leikskólabörnum fjölgaði um 0,65 prósent á síðasta ári og er það nokkru meiri en næstu ár á undan. Innlent 25.4.2006 09:59
Starfshópur enn ekki skipaður vegna brotthvarfs Varnarliðsins Enn hefur ekki verið skipaður samráðshópur um aðgerðir á Suðurnesjum eftir að Varnarliðið hverfur á braut. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Innlent 24.4.2006 22:57
Kjaradeilan í hnút Álfheiður Bjarnadóttir, talskona viðræðunefndar starfsmanna á dvalar- og hjúrkunarheimilum, segir kjaradeiluna í hnút og starfsfólk sé farið að leggja drög að uppsögnum. Samninganefndir Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu funduðu í dag en án árangurs. Innlent 24.4.2006 20:10
Engin rök fyrir sölu grunnnetsins hafa staðist Engin rök ríkisstjórnarinnar fyrir því að selja grunnnet Símans með fyrirtækinu hafa staðist. Þessu hélt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, fram á Alþingi í dag. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að allir þeir ráðgjafar sem leitað hafi verið til við söluna hafi verið sammála um að réttast væri að selja Símann og grunnetið saman. Innlent 24.4.2006 17:19
Viðsnúningur á markaði Greiningardeild KB banka segir mikla lækkun hafa átt sér stað á með mikilli gengisveikingu krónunnar og lækkunum á verði skulda- og hlutabréfa á mörkuðum að undanförnu. Í hálf fimm fréttum bankans segir að frá byrjun síðasta mánar hafi krónan veikst um tæp 19 prósent á sama tíma og Úrvalsvísitalan hafi lækkað um tæp 15 prósent. Viðsnúningur hafi hins vegar orðið á þróuninni á föstudag þegar krónan styrktist um 2,1 prósent í metviðskiptum, sem námu 63,2 milljörðum króna. Viðskipti innlent 24.4.2006 17:00
Sýknaðir vegna banaslyss að Kárahnjúkum Héraðsdómur Austurlands sýknaði í dag fimm yfirmenn að Kárahnjúkum vegna ákæru um að þeir bæru ábyrgð á því að ungur maður lést í vinnslysi við Kárahnhjúkastíflu í mars 2004. Innlent 24.4.2006 16:59
Ökukennslusvæði byggt á Akranesi Ökukennslusvæði verður byggt á Akranesi en þar munu ökunemar og þeir sem vilja auka ökuleikni sína geta æft sig á sérútbúnu svæði. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í dag. Innlent 24.4.2006 16:46
Húsnæðisvelta virðist á niðurleið Húsnæðisveltan á höfuðborgarsvæðinu virðist vera á hraðri niðurleið og var minni í síðustu viku en í lægðinni miklu í janúar. Innlent 24.4.2006 15:39
Segir LN hafa slitið kjaraviðræðum við náttúrufræðinga Félag íslenskra náttúrufræðinga segir launanefnd sveitarfélaga hafa slitið kjaraviðræðum við sig á dögunum en samningar hafa verið lausir frá því í nóvember 2004. Um er að ræða náttúrufræðinga sem starfa að skipulagsmálum, heilbrigðiseftirliti og hjá náttúrustofum. Innlent 24.4.2006 15:03
Telur skuggagjald vænlegri leið en veggjald fyrir ný göng Stjórnarformaður Spalar segir að ráðist verði í ný Hvalfjarðargöng á næstu fjórum til fimm árum til að anna þeirri auknu umferð sem hefur verið um göngin. Hann telur skuggagjald vænlegri leið en veggjald fyrir hin nýju göng. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari lækkun veggjalda í núverandi göng. Innlent 24.4.2006 14:40
Einkaneysla jókst í mars Svo virðist sem einkaneysla hafi aukist töluvert í síðasta mánuði að því er fram kemur í upplýsingum um greiðslukortaveltu á vef Seðlabankans, að mati greiningardeildar Glitnis. Deildin bendir á að á vefnum komi fram að heildarvelta kreditkorta hafi numið 18,8 milljörðum króna í mars, sem sé 16 prósenta aukning miðað við sama mánuð í fyrra. Viðskipti innlent 24.4.2006 13:23
Ólíklegt að RÚV-frumvarpi verði frestað fram á haust Formaður menntamálanefndar telur ólíklegt að orðið verði við þeim kröfum stjórnarandstöðunnar að frumvarpið um Ríkisútvarpið verði ekki samþykkt á þessu þingi heldur frestað fram á haust. Þingflokksformaður Vinstri - grænna segir nauðsynlegt að gera það vegna nýrra gagna sem fram hafi komið í málinu. Innlent 24.4.2006 13:01
Samningafundur í kjaradeilu ófaglærðra á elliheimilum Samningafundur í kjaradeilu ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum hefst klukkan tvö hjá ríkissáttasemjara. Það eru fulltrúar Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sem sitja fundinn en þeir reyna að ná sáttum fyrir föstudag til að koma í veg fyrir að vikulangt setuverkfall skelli á og í framhaldinu fjöldauppsagnir. Innlent 24.4.2006 12:43
Vísitala byggingarkostnaðar 329,4 stig Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan apríl, er 329,4 stig og hefur hún hækkað um 1,07 prósent frá síðasta mánuði. Vísitalan gildir fyrir maí. Að sögn Hagstofunnar hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,3 prósent síðastliðna 12 mánuði. Viðskipti innlent 24.4.2006 09:25
Vilja ræða Rúv frumvarpið í sumar Fulltrúar Vinstri-grænna og Samfylkingar í menntamálanefnd hafa sent formanni nefndarinnar bréf þar sem farið er fram á að frumvarp til laga um Ríkisútvarpið verði ekki samþykkt á þessu þingi heldur unnið á ný í sumar. Þá vilja þeir að kannað verði sérstaklega hvort Ríkisútvarpið verði gert að sjálfseignarstofnun og hvernig hægt sé að halda öllum kostum hlutafélagsformsins en sneiða af ókostina. Innlent 24.4.2006 09:02
Fréttablaðið fimm ára Fréttablaðsmenn fagna í dag fimm ára afmæli blaðsins. Gunnar Smári Egilsson segir sterka stöðu þess nú ekki frábrugðna því sem hann hefði getað ímyndað sér þegar farið var af stað með blaðið. Innlent 23.4.2006 18:45
Rúnar Helgi fékk þýðingarverðlaunin Rúnar Helgi Vignisson hlaut í dag Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingu sína á bókinni Barndómur eftir J.M. Coetzee. Rúnar Helgi tók við sigurlaununum úr hendi herra Ólafs Ragnars Grímssonar forseta á Gljúfrasteini nú síðdegis. Innlent 23.4.2006 17:44
Vilja auka val, gæði og árangur í þjónstu borgarinnar Sjálfstæðismenn í Reykjavík kynntu í morgun fjölskyldustefnu sína fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Markmið hennar er að sögn frambjóðenda flokksins að auka val, gæði og árangur í þjónustu Reykjavíkurborgar. Sjálfstæðismenn kynntu líka niðurstöður viðhörfskönnunar sem bendir mjög eindregið til þess að borgarbúar vilji eyða meiri tíma með fjölskyldunni. Innlent 23.4.2006 16:27
Hlaupið í Skaftá það allra stærsta Vatnamælingamaður Orkustofnunar segist aldrei hafa séð eins mikið vatn í Eldvatni við Ása og í dag. Hlaupið í Skaftá hefur að öllum líkindum náð hámarki, en það er einstakt að ýmsu leyti. Þrýstingurinn sem myndaðist í eystri Skaftárkatli virðist hafa verið meiri nú en í öðrum hlaupum sem gerði það að verkum að vatnið braut sér leið í gegnum ísmassan og nánast sprengdi hann. Við það dreifðist hlaupið á stærra svæði, var mjög ákaft og hljóp meðal annars í Tungnaá. Innlent 23.4.2006 16:04
Vilja auka val, gæði og árangur Sjálfstæðismenn í Reykjavík kynntu í hádeginu fjölskyldustefnu sína fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Markmið hennar er, -að sögn frambjóðenda flokksins, -að auka val, gæði og árangur í þjónustu Reykjavíkurborgar. Innlent 23.4.2006 14:17
Hlaupið líklega búið að ná hámarki Hlaupið í Skaftá nú er einstakt í söguni því þetta er fyrsta sinn sem hlaupið úr Skaftárkötlum hleypur fram á tveimur stöðum, í Skaftá og Tungnaá. Að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings, þá virðist sem hlaupið hafi náð hámarki en við upphaf þess var krafturinn í hlaupinu svo mikill að vatnið sprautaðist upp úr sprungum á jöklinum. Innlent 23.4.2006 12:12