Erlent

Fréttamynd

Kjósa um friðarsamkomulag

Íbúðar Norður-Afríkulandsins Alsír kusu í gær um friðarsamkomulag, sem ríkisstjórnin trúir að muni hjálpa landinu við að rétta úr kútnum eftir 13 ára uppreisn heittrúaðra íslamstrúarmanna. Andstæðingar segja hins vegar að samkomulagið muni einungis hvítþvo glæpina sem áttu sér stað á þessum árum.

Erlent
Fréttamynd

Wolfgang snýr aftur á flokksþing

Walter Wolfgang, öldungurinn sem var hent út af þingi Verkamannaflokksins í Bretlandi í gær fyrir að grípa frammi í fyrir Jack Straw utanríkisráðherra, mætti aftur sigurreifur á ráðstefnuna í dag eftir að bæði Verkamannaflokkurinn og Tony Blair höfðu beðið hann afsökunar. Wolfgang, sem er 82 ára, var hent út af þinginu eftir að hann greip frammi fyrir Straw þegar hann var að verja innrásina í Írak og sagði orð ráðherrans kjaftæði.

Erlent
Fréttamynd

Bretum blöskrar óhollustan

Bretum blöskrar óhollustan í grunnskólum landsins og vilja hamborgara og pítsur burt úr mötuneytunum með lögum hið snarasta. Sælgæti, snakk og gos í skólastofunni mun einnig heyra sögunni til

Erlent
Fréttamynd

Öldungi fleygt út af þingi

Skipuleggjendur ársþings Verkamannaflokksins hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir of harkaleg viðbrögð eftir að 82 ára gömlum flokksmanni var hent út af þinginu fyrir að grípa frammi í fyrir Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, í gær. Straw var að verja innrásina í Írak þegar öldungurinn Walter Wolfgang greip frammi í fyrir honum og sagði orð hans kjaftæði.

Erlent
Fréttamynd

Lögregla ásökuð um gripdeildir

Talsmenn lögreglunnar í New Orleans greindu frá því í gær að hafin væri rannsókn á því hvað hæft væri í ásökunum um að á annan tug lögreglumanna hefðu gerst sekir um þátttöku í gripdeildum í ringulreiðinni í kjölfar fellibylsins Katrínar.

Erlent
Fréttamynd

Huntley dæmdur í 40 ára fangelsi

Hæstiréttur Bretlands hefur dæmt Ian Huntley í fjörutíu ára fangelsi fyrir morðið á hinum tíu ára gömlu Jessicu Chapman og Holly Wells. Stúlkurnar hurfu haustið 2002, en illa farin líkin af þeim fundust í skóglendi hálfum mánuði síðar. Fyrrverandi unnusta Huntleys, Maxine Carr, hafði áður fengið þriggja og hálfs árs dóm fyrir að tefja rannsókn málsins. Hún var látin laus í fyrra og fer nú huldu höfði.

Erlent
Fréttamynd

Mæla með viðræðum við Serba

Sendimenn á vegum Evrópusambandsins gáfu í dag grænt ljós á að hefja undirbúningsviðræður við Serba og Svarfellinga um inngöngu þeirra í sambandið. Áður en viðræðurnar hefjast verða þó utanríkisráðherrar Evrópusambandslandanna að samþykkja þær en búist er við að þeir geri það á mánudaginn, en þá verða hér um bil liðin fimm ár frá því að Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, var komið frá völdum.

Erlent
Fréttamynd

HIV-veiran hugsanlega að veikjast

Hugsanlegt er að HIV-veiran, sem veldur alnæmi, sé að veikjast þannig að hún fjölgi sér hægar og sé viðkvæmari fyrir lyfjum. Þetta eru niðurstöður rannsókna vísindamanna í Antwerpen í Belgíu sem birtar voru nýlega í tímaritinu <em>Aids</em>. Hingað til hefur það verið talið að HIV-veiran styrktist eftir því sem hún bærist á milli manna en samkvæmt þessum nýju rannsóknum virðist hið gagnstæða vera rétt.

Erlent
Fréttamynd

Hvetja til barneigna í Frakklandi

Stjórnvöld í Frakklandi vilja efla kynlíf og fjölga landsmönnum og ætla í því skyni að hækka greiðslur hins opinbera til þeirra sem eignast þriðja barnið. Franski forsætisráðherrann segir fæðingartíðni í landinu vera of lága þrátt fyrir að hún sé hærri í Frakklandi en í mörgum öðrum Evrópulöndum.

Erlent
Fréttamynd

Skógareldar í Kaliforníu

Miklir skógareldar geisa á tveim stöðum í Kaliforníu. Rúmlega 1500 hektarar lands hafa nú orðið eldinum að bráð og fjölmargir hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Eitt þúsund slökkviliðsmenn berjast nú við eldana og nú fyrir stundu gaf bandaríska veðurstofan út vindviðvörun í Suðvestur-Kaliforníu þar sem vindhraðinn er nú 64 kílómetrar á mínútu og því talið að eldarnir geti breiðst hratt út.

Erlent
Fréttamynd

Yfir 60 manns sprengdir í Írak

Þrír sjálfsmorðssprengjumenn sprengdu í gær nær samtímis bílsprengjur í bæ norður af Bagdad, þar sem flestir íbúar eru sjía-múslimar. Að minnsta kosti sextíu manns létu lífið og um 70 særðust, að því er sjúkrahúslæknir greindi frá. Fimm bandarískir hermenn féllu í sprengingu í bæ í vesturhluta landsins.

Erlent
Fréttamynd

Segja næga olíu í jörðu

Næg olía er í jörðu til að endast um áratuga skeið. Þetta segja Sádi-Arabar sem héldu fund með stjórnendum Exxon Mobil, stærsta olíufélags heims, í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gær, en umræður um að olían sé að ganga til þurrðar hafa aukist mikið.

Erlent
Fréttamynd

Fann fóstur við fíkniefnaleit

Kólumbíska lögreglan fann óvænt þrjú fóstur við hefðbundna leit að eiturlyfjum í smylgvarningi. Fóstrin eru talin vera fjögurra til fimm mánaða gömul. Fóstrin voru vandlega innpökkuð í plast og þeim komið fyrir í líkneski af dýrlingi og var böggullinn á leið til Miami. Lögreglan telur að nota hafi átt fóstrin við einhvers konar djöfladýrkun eða slíkar athafnir en hún gefur þó ekki upp hvers vegna hún telur svo vera.

Erlent
Fréttamynd

Kanadaher haldið á horriminni

Kanadíski herinn er "veiklaður" og allt of litlu fjármagni er varið til varna landsins. Þetta er niðurstaða skýrslu sem unnin var á vegum öldungadeildar kanadíska þingsins og birt var í gær.

Erlent
Fréttamynd

Abu Ghraib-myndir skulu afhentar

Aðgangur skal veittur að áður óbirtum ljósmyndum af misþyrmingum á föngum í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad. Þetta var niðurstaða bandarísks alríkisdómara í New York, en hann gekk þvert á vilja bandarískra stjórnvalda sem segja dreifingu myndanna skaða ímynd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Biðjast afsökunar á aðild sinni

Forráðmenn hollenska lestarkerfisins hafa í fyrsta sinn beðist afsökunar á því að hollenskar lestir skyldu hafa verið notaðar til að flytja gyðinga í útrýmingarbúðir nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Talið er að um hundrað þúsund gyðingar hafi verið sendir með hollenskum lestum í búðir í Austur-Evrópu en margir þeirra áttu ekki afturkvæmt.

Erlent
Fréttamynd

Fá að snúa til baka

Fleiri íbúar New Orleans mega snúa aftur til borgarinnar á morgun, en margir þeirra hafa ekki að neinu að hverfa. Sum hverfi hafa hreinlega þurrkast út. Íbúar átta tiltekinna póstnúmerasvæða mega vitja heimila sinna snemma í fyrramálið.

Erlent
Fréttamynd

Töf á aðildarsamningum við Tyrki?

Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, segir að samninganefnd Tyrklands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði ekki send til að hefja viðræðurnar nema henni berist fyrst skjalið sem geymir samningsumboð ESB. "Auðvitað er hugsanlegt að viðræðurnar hefjist ekki," sagði hann, en áformað var að þær hæfust á mánudag.

Erlent
Fréttamynd

Skutu palestínska byssumenn

Ísraelskir hermenn skutu þrjá Palestínumenn til bana nærri bænum Jenín á Vesturbakkanum í nótt í leit sinni að herskáum uppreisnarmönnum. Að sögn ísraelska hersins skutu tveir byssumenn, sem taldir voru félagar í Íslamska Jihad, á hermennina sem svöruðu með skothríð. Hins vegar segja palestínsk vitni að herinn hafi skotið mennina tvo þar sem þeir földu sig uppi í ólífutré.

Erlent
Fréttamynd

Hollensku lögin rýmkuð

Hollenska ríkisstjórnin ætlar sér að auka við lög um líknardráp þar í landi, og setja viðmiðunarreglur um hvenær læknar megi binda enda á líf dauðvona nýbura, séu foreldrar samþykkir því.

Erlent
Fréttamynd

Hollensku lögin rýmkuð

Hollenska ríkisstjórnin ætlar sér að auka við lög um líknardráp þar í landi, og setja viðmiðunarreglur um hvenær læknar megi binda enda á líf dauðvona nýbura, séu foreldrar samþykkir því.

Erlent
Fréttamynd

50 látnir - 100 særðir

Að minnsta kosti 50 manns eru sagðar látnir og 100 særðir eftir að röð bílsprengna sprakk norður af Bagdad fyrir stundu. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um ódæðið að svo stöddu.

Erlent
Fréttamynd

Fóstur í póstsendingu

Lögreglumönnum rann kalt vatn milli skinns og hörunds þegar þrjú fóstur fundust í póstsendingu á leið til Miami í gær. </font />

Erlent
Fréttamynd

Innkalla ákveðnar gerðir af Saab

Saab-bílaverksmiðjurnar hafa ákveðið að innkalla 300 þúsund bifreiðar af gerðinni Saab 9-3s og 9-5s af árgerð 2000 til og með 2002 vegna galla í kveikjukerfi þar sem kerfið hefur tilhneigingu til að yfirhitna. Við innköllun verður skipt um kveikjukerfi í bílunum. Innköllunin er á heimsvísu svo að íslenskir eigendur þessara bíla geta átt von á því að samband verði haft við þá á komandi mánuðum og skipt um kveikjukerfið.

Erlent
Fréttamynd

Fundur hafi skilað miklum árangri

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, sögðu að fundur þeirra í gær hefði skilað miklum árangri þótt ekki lægi enn fyrir hver yrði næsti kanslari landsins. Hvorki jafnaðarmenn né kristilegir demókratar náðu nægu fylgi í kosningunum 18. september til að geta myndað stjórn með samstarfsflokkum sínum og því hafa flokkarnir neyðst til að leita á náðir hvor annars með stjórnarmyndun.

Erlent
Fréttamynd

Brjótast milli heimsálfa

Í það minnsta tveir létust þegar um sex hundruð manns reyndu að brjóta sér leið til Spánar yfir landamæri Marokkós.

Erlent
Fréttamynd

Ríflega 50 látnir vegna Damrey

54 eru látnir eða saknað eftir mikil flóð í norðurhluta Víetnams sem rekja má til yfirreiðar fellibylsins Damrey. Gríðarmikil úrkoma fygldi fellibylnum sem leiddi til þess að ár flæddu yfir bakka sína og þrátt fyrir að 330 þúsund manns hafi verið fluttir af hættusvæðum en fjölmargra saknað eftir hamfarirnar.

Erlent
Fréttamynd

Komu að frelsun breskra hermanna

Danskir hermenn komu að umdeildri árás breska hersins á lögreglustöð í bænum Basra í Írak í síðustu viku þar sem tveir breskir hermenn voru frelsaðir. Þetta staðfestir Sören Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur, við danska blaðið <em>Information</em>.

Erlent