Erlent
Samkynhneigðir ótækir sem prestar, segir Vatíkantið Vatíkanið segir að samkynhneigðir menn sem stundi kynlíf séu ótækir til að gegna prestsembættum nema þeir hafi haft taumhald á samkynhneigðinni í að minnsta kosti þrjú ár. Kemur þetta fram í skjali sem ítalska fréttastofan Adista hefur birt á netinu. Erlent 23.11.2005 07:24
Þingkosningar í Ísrael 28. mars Þingkosningar verða haldnar í Ísrael þann 28. mars á næsta ári. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Jerúsalem í gær. Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, sagði sig úr Likud-bandalaginu í vikunni en hann hyggst stofna nýjan flokk og hefur boðið Simoni Perez um að ganga til liðs við sig í flokki, sem hann kallar hófstilltan miðjuflokk. Erlent 23.11.2005 07:19
Sakfelldur fyrir aðild að al-Qaida í Bandaríkjunum Hinn 24 ára gamli Ahmed Omar Abu Ali var í gær fundinn sekur af alríkisdómstól í Bandaríkjunum um aðild að hryðjuverkasamtökunum al-Qaida og samsæri um að ætla að ráða George Bush Bandaríkjaforseta af dögum. Erlent 23.11.2005 07:15
Ítalskir hermenn heim frá Írak Ítalir ætla að draga herlið sitt heim frá Írak. Áætlanir um brottflutning hersins verða kynntar í janúar á næsta ári. Varnarmálráðherra Bandaríkjanna, Donald Rumsfeld, hitti Antonio Martino, varnarmálaráðherra Ítalíu, í gær þar sem Martino tilkynnti honum um áætlanir Ítala. Erlent 23.11.2005 07:09
Stóra samsteypa hefst handa Angela Merkel sór í gær embættiseið sem kanslari Þýskalands. Hún er fyrsta konan sem gegnir því embætti. Nýju samsteypustjórnarinnar bíður erfið glíma við atvinnuleysis-, efnahags- og kerfisvanda. Erlent 22.11.2005 22:31
Merkel tekin við völdum Angela Merkel, formaður Kristilega demókrataflokksins í Þýskalandi, er tekin við embætti kanslara Þýskalands af Gerard Schröder. Hún er áttundi kanslari Þýskalands frá stríðslokum og fyrsta konan sem gegnir embætti þessu. Þýska þingið, Bundestag, valdi hana með 397 atkvæðum af 614. Erlent 23.11.2005 06:56
Lokað fyrir vatn í Harbin vegna sprengingar í efnaverksmiðju Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa í Harbin, einni af stærstu borgum Kína, þegar ákveðið var að loka fyrir vatnsrennsli vegna sprengingar í efnaverksmiðju á dögunum sem varð fimm manns að bana. Til þess ð tryggja öryggi íbúa borgarinnar var ákveðið að skrúfa fyrir vatnið í fjóra daga. Erlent 23.11.2005 06:51
Gambíturinn gæti borgað sig Brotthvarf Ariel Sharon úr Likud-bandalaginu markar upphaf nýs kafla í stjórnmálasögu í Ísrael. Ljóst er að þessi aldni haukur tekur umtalsverða áhættu með þessu bragði sínu en skoðanakannanir benda þó til að flétta forsætisráðherrans geti vel gengið upp. Erlent 22.11.2005 22:31
Vill upplýsingar frá Íslandi Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag hefur sent Atlantshafsbandalaginu og stjórnvöldum í Bandaríkjunum, Kanada, Lúxemborg og á Íslandi beiðni um afrit af hleruðum fjarskiptum fyrrverandi yfirmanns júgóslavneska heraflans. Beiðnin er send í tengslum við rannsókn á meintum stríðsglæpum hershöfðingjans fyrrverandi, Dragoljubs Ojdanic. Erlent 22.11.2005 22:31
Saka Sharon um valdníðslu Kosningabaráttan fyrir þingkosningarnar í Ísrael í vor er þegar hafin. Stuðningsmenn Ariels Sharon forsætisráðherra, sem í fyrradag klauf Likud-bandalagið, ítrekuðu í gær markmið hins nýja flokks um að friðarsamkomulagi við Palestínumenn yrði náð og þeir fengju að stofna sjálfstætt ríki. Erlent 22.11.2005 22:31
Skipta hugsanlega úr F-35 í Eurofighter Nýja vinstristjórnin í Noregi ætlar að endurskoða þátttöku Norðmanna í þróun nýju F-35 orrustuþotunnar sem Bandaríkjamenn hafa forgöngu um, og áskilur stjórnin sér rétt til að kaupa frekar evrópsku Eurofighter-þotuna. Norðmenn áforma að kaupa nýjar orrustuþotur árið 2008 fyrir andvirði 600 milljarða íslenskra króna. Erlent 22.11.2005 22:31
Engar sannanir fundnar enn Stjórnandi rannsóknarinnar sem nú er í gangi á vegum Evrópuráðsins á ásökunum um að bandaríska leyniþjónustan CIA reki leynifangelsi í Austur-Evrópulöndum, greindi frá því í gær að verið væri að safna upplýsingum um grunsamlegar ferðir 31 flugvélar um evrópska flugvelli. Erlent 22.11.2005 22:31
Deilt um lög- sögu Svalbarða Milliríkjadeila var komin upp í gær á milli norska og spænskra stjórnvalda um það hvor hefði lögsögu til að saksækja í máli tveggja spænskra togara sem norska strandgæslan tók við meintar ólöglegar veiðar á Svalbarðasvæðinu um helgina. Erlent 22.11.2005 22:31
Danir spari vatn og rafmagn Umhverfisráðuneytið í Danmörku hefur hrundið af stað herferð til að fá landsmenn til að minnka vatns- og rafmagnsnotkun. Tilgangurinn er meðal annars sá að fá Dani til að skrúfa fyrir vatnið á meðan þeir tannbursta sig og bera á sig sápu í sturtunni. Einnig er skorað á fólk að hætta að þvo þvott á meira en 40 gráðu hita og hengja þvott til þerris í stað þess að nota þurrkara. Erlent 22.11.2005 22:31
Samþykkt á Evrópuþinginu Drög að hinni umdeildu þjónustutilskipun Evrópusambandsins voru samþykkt á Evrópuþinginu í gær. Verði tilskipunin endanlega samþykkt í ráðherraráðinu mun hún færa evrópskum fyrirtækjum, sem starfa í öðrum löndum á Evrópska efnahagssvæðinu, fært að starfa þar eftir þeim lögum sem gilda í heimalandi þeirra. Tilskipunin á einnig að taka gildi á Íslandi í gegn um EES-samninginn. Erlent 22.11.2005 22:31
Farþegalistasamningur ógildur að mati ESB Samkomulag stjórnvalda í Evrópuríkjum, Íslands þar á meðal, við Bandaríkjastjórn um að bandarískum hryðjuverkavarnayfirvöldum skuli afhentir farþegalistar flugfélaga sem fljúga vestur um haf, er ólöglegt. Að þessari niðurstöðu hefur einn æðsti lögfræðiráðgjafi Evrópusambandsins komist. Erlent 22.11.2005 22:31
Vildi sprengja upp al-Jazeera George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, íhugaði að fyrirskipa sprengjuárás á höfuðstöðvar al-Jazeera sjónvarpsstöðvarinnar í Katar þegar umsátrið um borgina Falluja í Írak stóð sem hæst haustið 2004. Erlent 22.11.2005 22:31
Fá einnar viku feðraorlof Spænskir feður munu í framtíðinni geta tekið sér einnar viku feðraorlof ef hugmyndir atvinnumálaráðherrans, Jesús Caldera, ná fram að ganga. Í dag er ekki um eiginlegt orlof að ræða til handa feðrum. Þeim er heimilt að vera 48 stundir frá vinnu meðan á fæðingu stendur en hafa umfram það engan rétt á launum eða bótum. Erlent 22.11.2005 22:31
Sturtað niður Stöðugt furðulegri hlutir finnast í holræsi Helsinkiborgar, þar á meðal farsímar í svo miklu magni að hreinsunardeildin hefur beðið fólk að gæta sín á því að sturta ekki farsímum niður í klósettin. Erlent 22.11.2005 22:31
Rússar bjóða Írönum aðstoð Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra munu ekki beita sér fyrir því að Íranar verði kærðir til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á fundi Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar IAEA í vikunni. Stjórn IAEA kemur saman síðar í vikunni en fastlega var búist við að þar yrði ákveðið að biðja öryggisráð SÞ um að ákveða refsiaðgerðir gegn Írönum fyrir að halda áformum um auðgun úrans til streitu. Erlent 22.11.2005 22:31
Bótunum skipt Sænska ríkisstjórnin kynnti í gær lagafrumvarp um að fráskildir foreldrar geti skipt á milli sín barnabótunum sem þeir fá frá hinu opinbera ef börn þeirra búa hjá þeim til skiptis. Þetta er gert til að reyna að fá feðurna til að axla meiri ábyrgð á börnunum. Erlent 22.11.2005 22:31
Kosningum slegið á frest Yfirvöld á Haítí hafa ákveðið að fresta forsetakosningum í landinu, sem fram áttu að fara frá desemberlokum, til loka janúar. Stjórnarskrá landsins kveður á um að nýr forseti skuli settur í embætti ekki síðar en 7. febrúar á næsta ári og því er lítill tími til stefnu. Erlent 22.11.2005 22:31
Áfengið áfram í ríkiseinokun Systembolaget, sænska áfengiseinkasalan, ætlar að berjast fyrir því að ríkiseinokuninni á áfengisölu verði haldið áfram þar í landi. Formælandi Systembolaget segir það ekki vera ætlun Svía að segja öðrum þjóðum hvernig fara eigi með áfengi, heldur að fá Evrópusambandsþjóðir til að sætta sig við þær leiðir sem Svíar fari í þeim efnum. Erlent 22.11.2005 22:31
Mikill skortur á jólatrjám Norskir framleiðendur jólatrjáa horfa björtum augum til framtíðar því skortur er á jólatrjám í Evrópu. Er búist við að jólatré muni skorta næstu átta ár. Fjórar milljónir jólatrjáa þarf í ár til að fullnægja þörf Evrópubúa fyrir runnann græna. Erlent 22.11.2005 22:31
Barnamjólk talin eitruð Heilbrigðisyfirvöld á Ítalíu hafa bannað sölu á yfir þrjátíu milljón lítrum af smábarnamjólk sem Nestlé framleiðir undir ítölsku heiti. Ekki lágu fyrir nákvæmar ástæður þess að bannið var sett á en samkvæmt ítölsku fréttastofunni ANSA var mjólkin talin óhæf til neyslu vegna eiturefna í umbúðum sem talið er geta blandast mjólkinni. Erlent 22.11.2005 22:31
Nýr patríarki rétttrúnaðarkirkjunnar Theofilos þriðji varð í dag nýr patríarki grísku rétttrúnaðarkirkjunnar með viðhöfn í hinni helgu borg Jerúsalem. Theofilos tekur við af Irineos, sem neyddist til að hætta í maí, eftir ásakanir um að hann hefði leigt landskika í Jerúsalem í eigu kirkjunnar til gyðingahóps. Theofilos hlaut öll greidd atkvæði í vali um arftaka Irineosar. Erlent 22.11.2005 18:08
Hizbollah ætla að sýna fulla hörku Hundruð söfnuðust saman í þorpinu Siskin í suðurhluta Líbanon til að vera við útför bardagamanns Hizbollah-samtakanna, sem féll í átökum við Ísraela við landamæri landanna tveggja í gær. Erlent 22.11.2005 18:07
Merkel sór embættiseið Angela Merkel sór embættiseið sem áttundi kanslari Þýskalands eftir síðari heimstyrjöld í dag. Erlent 22.11.2005 18:06
Rannsaka fangaflug í Evrópu Sérstök samevrópsk rannsóknarnefnd um leynifangelsi CIA kannar nú tugi grunsamlegra flugferða sem hafa lent í Evrópu undanfarin ár. Erlent 22.11.2005 17:16
Maður verður fyrir lest -í annað sinn Maður varð fyrir lest í New York um síðustu helgi. Maðurinn slasaðist á höfði en ástand hans er stöðugt. Þetta er í annað sinn sem maðurinn verður fyrir lest en hann varð fyrir lest og slasaðist á höfði fyrir þremur árum. Erlent 22.11.2005 16:04