Erlent
Áhrifamikil en umdeild um leið Erlent 27.11.2005 21:29 Mengað vatn til Síberíu Í gær var opnað fyrir drykkjarvatn úr kínversku ánni Songhua í norðausturhluta Kína, fimm dögum eftir að yfirvöld lokuðu fyrir neysluvatn 3,8 milljóna íbúa borgarinnar Harbin vegna mengunar. Erlent 27.11.2005 21:29 Mannréttindabrot færast í aukana Fyrrverandi forsætisráðherra Íraks segir ástand mannréttindabrota í Írak vera orðið jafn slæmt og það var á dögum Saddam Hussein og að allar líkur bendi til að þetta ófremdarástand versni. Erlent 27.11.2005 21:29 Áfengisvandinn fer vaxandi Fjöldi kráa, kaffihúsa og veitingastaða með vínveitingaleyfi í Kaupmannahöfn hefur aukist um fimmtán prósent síðasta áratug. Borgaryfirvöld vilja nú stemma stigu við þessari þróun að því greint er frá í dagblaðinu Berlingske Tidende. Erlent 27.11.2005 21:29 Aðeins fimm prósent kæra Rúmlega tuttugu og átta þúsund manneskjur voru handteknar á Spáni á síðasta ári vegna heimilisofbeldis. Alls bárust lögreglunni yfir 43.800 kvartanir vegna ofbeldis á konum í landinu. Erlent 27.11.2005 21:29 « ‹ ›
Óttast um líf hundruða þúsunda Vetur er genginn í garð á jarðskjálftasvæðinu í Pakistan, með snjó og kulda. Óttast er um líf hundruð þúsunda fórnarlamba skjálftans sem eiga sér ekkert skjól. Erlent 28.11.2005 21:42
Frestað vegna morða á verjendum Réttarhöldunum yfir Saddam Hússein og þeim sem þátt áttu í voðaverkum í stjórnartíð hans í Írak, var snarlega frestað í dag. Ástæðan: Búið er að drepa verjendur nokkurra sakborninga og þeir hafa enga fundið til að taka við starfanum. Erlent 28.11.2005 21:36
Hundruð barna seld í vændi í Svíþjóð Lögreglan í Svíþjóð handtók í gær kínverskt par sem er grunað um mansal í stórum stíl. Talið er að hundruð barna og ungmenna hafi verið seld í vændi og líffæri numin úr þeim. Erlent 28.11.2005 20:54
Fuglarnir brenndir lifandi Yfirmenn dýralæknisembættisins í Brailahéraði í Rúmeníu voru reknir úr starfi í dag eftir að sjónvarpsstöð sýndi myndir af starfsmönnum þeirra henda lifandi fuglum á bál til að sporna gegn fuglaflensunni. Erlent 28.11.2005 20:50
Selja herbúnað í andstöðu við Bandaríkin Hugo Chavez, forseti Venesúela, og Jose Bono, varnarmálaráðherra Spánar, tóku í dag þátt í athöfn þar sem undirritaður var stærsti vopnasölusamningur í sögu Spánar. Venesúealastjórn hefur ákveðið að kaupa tólf herflugvélar og átta herskip af Spánverjum. Erlent 28.11.2005 19:51
Sprengjuárás í Hebron Palestínskur vígamaður kastaði sprengju að ísraelskum hermönnum við eftirlitsstöð í borginni Hebron á Vesturbakkanum fyrir stundu. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi fallið en árásin var gerð nærri Grafhýsi patríarkanna, stað sem er helgur í augum hvort tveggja múslima og gyðinga. Erlent 28.11.2005 18:50
Lést eftir að hafa kysst kærasta sinn Fimmtán ára kanadísk stúlka lést eftir að hafa kysst kærasta sinn. Stúlkan var með ofnæmi fyrir hnetum en kærasti hennar hafði borðað samloku með hnetusmjöri nokkrum klukkustundum áður en þau kysstust. Erlent 28.11.2005 17:44
Vilja upplýsingar um fangaflug Franz Josef Jung, varnarmálaráðherra Þýskalands, heimsótti franska kollega sinn Michele Alliot-Marie í París í dag, í fyrsta sinn síðan ný stjórn Þýskalands tók við völdum í síðustu viku. Erlent 28.11.2005 16:42
Skjálftinn sterkari en talið var Tíu létust og sjötíu slösuðust í jarðskjálftanum sem reið yfir Qeshmeyju í Íran síðustu nótt. Nokkurra er enn saknað. Styrkur skjálftans mældist 6,1 á Richter-kvarða, talsvert meiri en í fyrstu var talið, og olli miklum skemmdum. Erlent 28.11.2005 16:14
Prófkjöri frestað vegna mótmæla Fatah-hreyfing Mahmouds Abbas, forseta Palestínu, frestaði fyrir skemmstu prófkjöri sínu á Gazaströndinni eftir að vopnaðir fylgismenn hreyfingarinnar þustu inn á kjörstaði og lokuðu þeim. Mennirnir sögðu að þúsundir nafna vantaði á kjörskrár og þannig væri komið í veg fyrir að fjöldi fólks gæti kosið. Erlent 28.11.2005 15:05
Réttarhöldunum frestað Réttarhöldunum yfir Saddam Hússein hefur verið frestað til fimmta desember, þar sem einn sakborninganna hefur enn ekki orðið sér úti um lögfræðing. Erlent 28.11.2005 13:39
Fjórir handteknir í tengslum við morð á ungum manni á hótelherbergi í Kaupmannahöfn Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við morð á 17 ára gömlum karlmanni sem fannst látinn á hótelherbergi Continent hótelsins á Nørrebrograde í Kaupmannahöfn í nótt. Maðurinn, sem er af afrískum uppruna, var með mikla áverka á höfði en hann hafði verið skorinn með hníf. Innlent 28.11.2005 12:18
Fjöldi árása í Írak undanfarinn sólarhring Allt logar í óeirðum í Írak, í aðdraganda réttarhalda yfir Saddam Hússein, sem hófust á nýjan leik í dag. Öryggisgæsla í kringum réttarhöldin hefur verið snarhert. Erlent 28.11.2005 11:19
Réttarhöldin yfir Saddam halda áfram Réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö fyrrverandi samstarfsmönnum hans verður framhaldið í dag eftir sex vikna hlé. Öryggigæsla í tengslum við réttarhöldin hefur verið aukin stórlega eftir að tveir verjendur hinna ákærðu voru myrtir á dögunum. Erlent 28.11.2005 07:58
Lík af konu fannst eftir vísbendingum eiginmannsins Lík af konu fannst grafið í Tönsberg í Noregi í gær. Talið er að hin látna sé kona sem lögreglan hefur leitað í þrjár vikur, en hún fannst eftir vísbendingum eiginmannsins sem myrti hana. Erlent 28.11.2005 08:09
Mannskæð sprenging í kolanámu í Kína Meira en fimmtíu manns létust og rúmlega hundrað eru innilokaðir eftir öfluga sprengingu í kolanámu í Kína í gær. Rúmlega tvö hundruð starfsmenn voru inni í námunni þegar sprengingin varð, en aðeins fjörutíu komust strax út. Innlent 28.11.2005 07:45
Fjórum vestrænum hjálparstarfsmönnum rænt í Írak Uppreisnarmenn í Írak rændu fjórum vestrænum hjálparstarfsmönnum á laugardaginn. Tveir mannanna eru frá Kanada og einn frá Bretlandi. Talið er að sá fjórði sé Bandaríkjamaður, en það hefur ekki verið staðfest. Erlent 28.11.2005 07:42
Tíu manns létust í jarðskjálfta í Íran Minnst tíu manns létust og hundruðir húsa gjöreyðilögðust þegar jarðskjálfti upp á 5,9 á richter skók suðurhluta Írans í gær. Þá slösuðust sjötíu manns í skjálftanum og nokkrir eru enn í lífshættu. Erlent 28.11.2005 07:36
Enn mikil andstaða við inngöngu í Evrópusambandið í Noregi Um helmingur Norðmanna myndi kjósa gegn inngöngu í Evrópusambandið ef gengið væri til kosninga nú, samkvæmt niðurstöðum í nýafstaðinni könnun í Noregi. Alls sögðust 50,2% aðspurðra vera mótfallnir inngöngu í Evrópusambandið en 37,7% voru fylgjandi. 12% þátttakanda í könnuninni voru óákveðnir. Erlent 28.11.2005 07:23
Ungur maður finnst myrtur á hótelherbergi í Kaupmannahöfn 17 ára gamall karlmaður fannst myrtur á hótelherbergi í Kaupmannahöfn í nótt. Maðurinn, sem er af afrískum uppruna, var með áverka á höfði en allt bendir til þess að hann hafi verið skotinn. Erlent 28.11.2005 06:58
Veldur örtröð Norsk flugyfirvöld búast við miklum flugumferðarteppum þessi jólin vegna fjölda Breta í leit að jólasveininum, samkvæmt norska dagblaðinu Aftenposten. Búist er um 400.000 erlendum gestum í heimsókn til jólasveinsins í smiðju sinni í Rovaniemi í Finnlandi. Erlent 27.11.2005 21:29
Búist við miklu hvassviðri Búist er við miklu hvassviðri af völdum hitabeltisstormsins Delta á Kanaríeyjum í dag. Delta var yfir miðju Atlantshafi í gær og var vindhraði hans síðdegis um 65 km/klst. og fór í 80 km/klst. í mestu byljunum. Veðurfræðingar eiga von á því að stormurinn nái yfir eyjarnar í dag. Erlent 27.11.2005 21:29
Kosningar án eftirlitsmanna Rússneska ríkisstjórnin bindur miklar vonir við kosningarnar sem haldnar voru í Tsjetsjeníu í gær.Heimamenn líta á þær sem skrípaleik. Erlent 27.11.2005 21:29
Lögreglan beitti valdi Lögreglan í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, þurfti að hafa hendur í hári fjölda mótmælenda sem söfnuðust saman til að krefjast þess að kosningar færu fram í landinu á ný. Þetta var í fyrsta sinn síðan kosningarnar fóru fram þann 6. nóvember sem lögreglan þurfti að beita mótmælendur valdi. Halda þeir því fram að brögð hafi verið í tafli við talningu atkvæðanna. Erlent 27.11.2005 21:29
Kjósa bannaða Egypski stjórnmálaflokkurinn Bræðralag múslima, sem bannaður var fyrir 51 ári síðan, tilkynnti í gær að hann væri búinn að vinna 76 af 454 sætum í egypska þinginu. Annar áfangi egypsku þingkosninganna af þremur fór fram á laugardag og í þeim vann flokkurinn 29 sæti til viðbótar þeim sem hann hefur þegar unnið. Erlent 27.11.2005 21:29
Mengað vatn til Síberíu Í gær var opnað fyrir drykkjarvatn úr kínversku ánni Songhua í norðausturhluta Kína, fimm dögum eftir að yfirvöld lokuðu fyrir neysluvatn 3,8 milljóna íbúa borgarinnar Harbin vegna mengunar. Erlent 27.11.2005 21:29
Mannréttindabrot færast í aukana Fyrrverandi forsætisráðherra Íraks segir ástand mannréttindabrota í Írak vera orðið jafn slæmt og það var á dögum Saddam Hussein og að allar líkur bendi til að þetta ófremdarástand versni. Erlent 27.11.2005 21:29
Áfengisvandinn fer vaxandi Fjöldi kráa, kaffihúsa og veitingastaða með vínveitingaleyfi í Kaupmannahöfn hefur aukist um fimmtán prósent síðasta áratug. Borgaryfirvöld vilja nú stemma stigu við þessari þróun að því greint er frá í dagblaðinu Berlingske Tidende. Erlent 27.11.2005 21:29
Aðeins fimm prósent kæra Rúmlega tuttugu og átta þúsund manneskjur voru handteknar á Spáni á síðasta ári vegna heimilisofbeldis. Alls bárust lögreglunni yfir 43.800 kvartanir vegna ofbeldis á konum í landinu. Erlent 27.11.2005 21:29