Erlent

Fréttamynd

Fimm sprengjur í vegköntum nærri Madríd

Að minnsta kosti fimm sprengjur sprungu í vegköntum í nágrenni Madrídar á Spáni fyrir stundu. Ekki hafa borist fréttir af manntjóni en fyrstu fregnir herma að sprengingarnar hafi verið minniháttar.

Erlent
Fréttamynd

Jacob Zuma ákærður fyrir nauðgun

Jacob Zuma, fyrrverandi varaforseti Suður-Afríku, hefur verið ákærður fyrir nauðgun. Zuma mætti fyrir rétt vegna málsins í dag en ekki var greint frá ákærunni fyrr en þá.

Erlent
Fréttamynd

Að minnsta kosti 94 látnir eftir flugslys

Talsmaður lögreglunnar í Teheran hefur staðfest að allir farþegarinar 94 sem voru í herflugvél sem brotlenti á tíu hæða íbúðablokk í borginni í morgun hafi látist. Engar fregnir hafa enn borist af því hvort einhver hafi látist í blokkinni þegar flugvélin lenti á henni, en yfirvöld segja um 250 manns hafa búið þar.

Erlent
Fréttamynd

Hryðjuverkamenn hafi verið fluttir frá leynifangelsum

Ellefu hryðjuverkamenn úr samtökum al-Qaida voru fluttir í snarhasti úr leynifangelsum í Austur-Evrópu þegar fréttir af fangelsunum birtust í fjölmiðlum. Þetta hefur fréttastöðin ABC eftir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum leyniþjónustunnar, sem fullyrða að fangelsin hafi enn verið starfrækt fyrir mánuði síðan.

Erlent
Fréttamynd

Óttast að allir farþegar herflugvélar hafi farist

Óttast er að allir farþegar hafi farist þegar herflugvél með meira en níutíu farþega brotlenti á tíu hæða íbúðablokk í Teheran höfuðborg Írans rétt fyrir ellefu. Ekki liggur enn fyrir hvort mannfall hafi orðið meðal íbúa blokkarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Ráðist á lögregluskóla í Írak í morgun

Minnst tuttugu og sjö manns létust í sjálfsmorðsárás í lögregluskóla í Írak í morgun. Tvær konur gengu inn í skólastofu í skólanum hlaðnar sprengiefni og sprengdu sig í loft upp. Meira en þrjatíu slösuðust í árásinni.

Erlent
Fréttamynd

Barn lést í skjálftanum í A-Afríku

Barn lést og nokkrir eru slasaðir eftir jarðskjálftann sem reið yfir Austur-Afríku í gærdag. Skjálftinn mældist 6,8 á Richter og nokkur hús hrundu í Kongó. Í einu húsanna varð barn undir braki og lést. Það var lán í ólani að upptök skjálftans voru á dreifbýlu svæði og því urðu afleiðingarnar minni en óttast var í fyrstu.

Erlent
Fréttamynd

Herflugvél brotlenti í Teheran

Herflugvél með áttatíu farþega brotlenti í Tehran, höfuðborg Írans, nú rétt í þessu. Svo virðist sem flugvélin hafi flogið beint á byggingu, en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Erlent
Fréttamynd

Fimmti hver Dani óttast hryðjuverk í háloftunum

Fimmti hver Dani óttast að verða fórnarlamb hryðjuverka í flugvélum eða flugstöðvum samkvæmt nýrri könnun sem Flugmálastjórn Danmerkur hefur gert. Þar kemur einnig fram að fjórði hver Dani flýgur sjaldan eða aldrei og það er fólk í þeim hópi sem segist óöruggast í flugi.

Erlent
Fréttamynd

Langflestir búa enn í skýlum og búðum

Næstum ári eftir að flóðbylgjan skall á löndum við Indlandshaf búa enn langflestir þeirra sem misstu heimili sín í hamförunum í neyðarskýlum eða tjaldbúðum. Þetta er niðurstaða bandarískrar könnunar sem gerð var í Indlandi, á Srí Lanka og norðurhluta Súmötru í Indónesíu sem varð einna verst úti.

Erlent
Fréttamynd

Sendiráði Bandaríkjanna á Filipseyjum lokað

Bandaríska sendiráðinu í Manila á Filipseyjum hefur verið lokað tímabundið vegna sprengjuhótunar. Þrátt fyrir að oft hafi verið minnst á sendiráðið sem mögulegt skotmark hryðjuverkamanna hefur því sjaldan verið lokað áður. Á Filipseyjum starfar armur af Al-Qaida hóp sem kallast Abu Sayyaf og er hann á skrá hjá Bandaríkjamönnum sem herská samtök.

Erlent
Fréttamynd

Staðfest samvist á Bretlandseyjum

Hundruð samkynhneigðra para streymdu á skráningarskrifstofur á Bretlandseyjum í gær og sóttu um að fá að staðfesta samvist sína. Staðfest samvist mun veita samkynhneigðum pörum sömu réttarstöðu og giftu fólki og er það mikil réttarbót. Þetta er í fyrsta sinn sem samkynhneigðum er heimilt að staðfesta samvist sína á Bretlandseyjum og er búist við að um 22.000 manns muni gera slíkt á næstu fimm árum. Tónlistarmaðurinn Sir Elton John og maki hans til margra ára, David Furnish, voru með þeim fyrstu til að sækja um leyfi til að staðfesta samvist sína.

Erlent
Fréttamynd

Bandaríkin illa búin undir aðra árás

Bandarísk stjórnvöld hafa staðið sig afleitlega í öryggismálum eftir hryðjuverkin í New York 11. september 2001 að mati nefndar sem skipuð var eftir árásirnar. Nefndin gefur stjórnvöldum lægstu einkunn í mörgum þáttum öryggismála og segir Bandaríkin afar illa undirbúin undir aðra hryðjuverkaárás.

Erlent
Fréttamynd

Leynifangelsum lokað fyrir mánuði

Aðeins mánuður er síðan bandaríska leyniþjónustan CIA lokaði leynifangelsum sínum í Rúmeníu og Póllandi. Þetta hefur fréttastöðin ABC eftir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum leyniþjónustunnar. Þeir segja að bandarísk stjórnvöld hafi lagst á eitt um að koma öllum föngum burt frá Evrópu strax eftir að Washington Post greindi frá leynifangelsunum.

Erlent
Fréttamynd

Ættingjar vilja fá skýr svör

Dánardómstjóri í Lundúnum hefur hafið sérstaka rannsókn á dauða 93 Breta sem fórust í flóðbylgjunni í Asíu á öðrum degi jóla í fyrra. Ættingjar og vinir þeirra sem fórust munu verða yfirheyrðir, svo og vísindamenn og lögregluþjónar.

Erlent
Fréttamynd

Óljósar fréttir af tjóni

Öflugur jarðskjálfti varð í miðri Afríku í gær. Óljóst var af fyrstu fréttum hversu alvarlegt tjón hlaust af. Frá Kongó fréttist að þar hefðu hús hrunið og að minnsta kosti eitt barn týnt lífi.

Erlent
Fréttamynd

Sektað verður fyrir ruslpóst

Dönsk fyrirtæki sem senda fólki óumbeðnar auglýsingar með tölvupósti eða textaskilaboðum eiga von á háum sektum. Ráðherra neytendamála í Danmörku vill sekta fyrirtæki um tíu þúsund krónur fyrir hvern viðtakanda slíkra skilaboða.

Erlent
Fréttamynd

Þak sundhallar hrundi saman

Þak sundhallar í bænum Chusovoi í Perm-héraði í Úralfjöllum í Rússlandi gaf sig á sunnudaginn með þeim afleiðingum að fjórtán laugargestir biðu bana, þar af tíu börn. Ellefu liggja stórslasaðir á sjúkrahúsi. Laugin var full af fólki sem leitaði skjóls frá frosthörkunum með því að baða sig í ylvolgu vatninu þegar steinsteypa og stálbitar féllu ofan á það.

Erlent
Fréttamynd

Búist við sigri Camerons

Úrslit í leiðtogakjöri í breska Íhaldsflokknum verða tilkynnt í dag. Er kjörkössunum var lokað í gær spáðu flestir því að hinn 39 ára gamli þingmaður David Cameron myndi hafa betur en hinn sautján árum eldri David Davis.

Erlent
Fréttamynd

Rice ver stefnuna í hryðjuverkavörnum

Condoleezza Rice segir að allt sem Bandaríkjamenn aðhafist í nafni "stríðsins gegn hryðjuverkum" sé innan ramma laganna. Þeir líði ekki pyntingar á föngum. Við upphaf Evrópuferðar sagði hún þó ekkert um meint leynifangelsi CIA.

Erlent
Fréttamynd

Eru nálægt því að smíða vopn

Mohamed ElBaradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar IAEA, segir að ef Íranar komi kjarnorkuveri sínu í Natanz í gang muni það aðeins taka þá nokkra mánuði að smíða kjarnorkusprengju.

Erlent
Fréttamynd

Lögmenn Saddams yfirgáfu dómsalinn

Saddam Hussein og fylgdarlið hans létu ófriðlega enn eina ferðina í réttarsalnum í Bagdad. Fresta varð réttarhaldinu þegar verjendurnir gengu á dyr. Vitni greindi frá upplifun sinni á fjöldamorðinu í Dujail þar sem 143 sjíar féllu.

Erlent
Fréttamynd

Sænsk kona skaut feðga

Kona á sextugsaldri á Skáni í Svíþjóð skaut á dögunum fyrrverandi kærasta sinn, sem er á fimmtugsaldri, og sjötugan föður hans þegar hann kom syni sínum til aðstoðar. Mennirnir eru ekki illa særðir. Konan flúði af vettvangi á bíl en náðist skömmu síðar.

Erlent
Fréttamynd

Hofstad-hópurinn fyrir rétt

Fjórtán menn eru nú fyrir rétti í Hollandi, ákærðir fyrir aðild að leynifélagi herskárra múslima og samsæri um banatilræði við stjórnmálamenn.

Erlent
Fréttamynd

Stórfellt kókaínsmygl

Tollyfirvöld í eyríkinu Barbados fundu um borð í flutningaskipi frá Gíneu stærsta eiturlyfjafarm sem náðst hefur í sögu Barbados. Um 120 kíló af kókaíni voru falin um borð, auk þess sem mikill fjöldi marjúanaplantna fannst við leit. Sex Gíneumenn hafa verið kærðir í málinu.

Erlent
Fréttamynd

Flokkur Chavez vann stórsigur

Stjórnarflokkurinn í Venesúela lýsti yfir sigri í gær í þingkosningunum sem fram fóru á sunnudaginn. Stjórnarandstöðu­flokkarnir sniðgengu kosningarnar og einungis fjórðungur kjósenda neytti atkvæðisréttar síns. Flokkur Hugo Chavez forseta er talinn hafa fengið 114 þingsæti af 167 á venesúelska þinginu og flokkar honum hliðhollir eru sagðir hafa fengið afgang þingsætanna.

Erlent
Fréttamynd

Prinsinn hannar fyrir Apple

Sænski prinsinn Karl Filip sýndi hönnunarverk sín opinberlega í hönnunarsamkeppni sem haldin var í samvinnu við Apple-verslunina í Stokkhólmi. Prinsinn, sem nemur grafíska hönnun við Forsbergsskóla, einn virtasta hönnunarskóla Svíþjóðar, tók þátt í keppninni ásamt öðrum nemendum á lokaári í grafískri hönnun.

Erlent