Erlent

Fréttamynd

24 lík finnast á Haítí

Tuttugu og fjögur lík fundust í vegkanti í Dóminíska lýðveldinu í gær. Lögreglan í landinu segir að þau séu af ólöglegum innflytjendum frá nágrannaríkinu Haítí en þau fundust skammt frá þar sem lögreglan stöðvaði vöruflutningabíl sem var með sextíu ólöglega innflytjendur innanborðs.

Erlent
Fréttamynd

Hvetja Öryggisráð S.þ. til aðgerða gegn Íran

Ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna hvetja Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til aðgerða gegn Íran vegna kjarnorkurannsókna þeirra. Á miðvikudag sagði forseti Írans að staðið yrði við kjarnorkuáætlanir landsins þrátt fyrir áhyggjur alþjóðasamfélagsins.

Erlent
Fréttamynd

Réðst með hnífi á fólk í bænahúsi

Átta manns særðust, þar af fjórir alvarlega, þegar maður réðst að fólki með hnífi þegar skammt var liðið á kvöldbænir í bænahúsi gyðinga í miðborg Moskvu í gær. Utanríkisráðuneyti Rússlands fordæmdi árásina, sagði hana ögrun og eina tilgang hennar að efna til kynþáttahaturs.

Innlent
Fréttamynd

Færeyska lögreglan rannsakar meint landhelgisbrot í íslenskri lögsögu

Lögreglan í Þórshöfn í Færeyjum rannsakar nú meint landhelgisbrot togara frá Færeyjum í íslenskri efnahagslögsögu fyrir tæpri viku. Þá flaug flugvél Landhelgisgæslunnar yfir togarann að veiðum Íslandsmegin við miðlínuna á milli Færeyja og Íslands og reyndi án árangurs að ná sambandi við skipstjórann.

Innlent
Fréttamynd

Pílagrímar grýta steinvegginar í Mína

Pílagrímatími múslíma stendur sem hæst og í dag grýttu tugþúsundir trúaðra steinveggina í Mína, skammt utan við Mekka í Sádi-Arabíu. Ríflega tvær og hálf milljón múslíma hafa lagt leið sína til hinnar helgu borgar núna um hadsj-tímann. Al-Jamarat-veggirnir eru tákn djöfulsins og trúa pílagrímarnir því að þeir fái syndaaflausn með grjótkastinu. Margir rökuðu af sér hárið að því loknu til marks um að þeir hefðu farið í pílagrímsför, en í slíka ferð verður hver múslími að fara að minnsta kosti einu sinni á ævinni.

Innlent
Fréttamynd

Vinsældir Kadima-flokksins aukast

Vinsældir Kadima-flokksins hafa aukist eftir að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fékk heilablóðfall. Skoðanakönnun dagblaðsins Haaretz sýnir að Kadima, undir stjórn Ehuds Olmerts, fengi fjörutíu og fjögur sæti á ísraelska þinginu Knesset væri kosið nú. Bæði Likud-bandalagið og Verkamannaflokkurinn eru rétt hálfdrættingar á við Kadima. Enn er verið að vekja Sharon úr dáinu, en læknar segja hann úr lífshættu.

Innlent
Fréttamynd

Fuglaflensa að verða landlæg í Tyrklandi?

Fuglaflensa getur orðið landlæg í Tyrklandi og breiðst út til nágrannaríkjanna að mati Sameinuðu þjóðanna. Rússneski þjóðernissinninn Vladímír Sírínovskí vill að herinn skjóti farfugla frá Tyrklandi.

Innlent
Fréttamynd

Efnafræðingur sem fann upp LSD 100 ára

Albert Hofmann er 100 ára í dag. Hofmann sem er þekktastur fyrir að hafa fundið upp ofskynjunarlyfið LSD seint á fjórða áratugnum, hélt upp á afmælið sitt í dag og sagði við það tækifæri að veislan hefði verið yndisleg og hefði víkkað sjóndeildarhring sinn þrátt fyrir að hann væri ekki á LSD.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta kvenkyns árekstrardúkkan

Svíar eru hanna dúkku sem líkist kvenmanni til að nota í árekstrarprófum. Fram að þessu hafa allar dúkkur sem notaður hafa verið í slíkum prófum verið í karlmannsmynd eða barnsmynd og því hafa niðurstöður slíkra prófa ekki getað sagt til um hvaða áhrif árekstrar hafa á kvenlíkama.

Innlent
Fréttamynd

Tveir létust í Kína af völdum fuglaflensu

Tveir í viðbót hafa látist í Kína af völdum fuglaflensunnar, að því er Alþjóða heilbrigðisstofnunin greinir frá, en þeir létust í síðasta mánuði. Þá var sex ára gamall drengur fluttur alvarlega veikur á sjúkrahús í Hunan-héraði í Kína í fyrradag og var fullyrt að veikindin stöfuðu af fuglaflensuveirunni.

Erlent
Fréttamynd

Ítalir skammast sín meira fyrir fitu en framhjáhald

Ítalir skammast sín meira fyrir að fitna en að halda fram hjá. Þetta er niðurstaða könnunar ítalsks sálfræðitímarits þar sem eitt þúsund manns á aldrinum 25 til 55 ára voru spurðir hvað vekti hjá þeim mesta sektarkennd.

Erlent
Fréttamynd

Stærsta farþegaflugvél heims í heimsreisu

Stærsta farþegaflugvél heims, Airbus A380, lenti í norðausturhluta Kólumbíu í gær en vélin er í reynsluflugi um þessar mundir og flýgur til hinna ýmsu staða í heiminum. Flugvélin er gríðarlega stór, yfir 70 metrar á lengd en ekki þó eins löng og vængirnir sem eru um 80 metrar á lengd.

Erlent
Fréttamynd

Vatnsskortur yfirvofandi í Frakklandi

Umhverfisráðherrar Frakklands og Spánar hafa áhyggjur af breytingum á loftslagi, þurrkum, gróðureldum og vatnsskorti á svæðinu. Vatnsstaðan í Frakklandi hefur verið erfið eftir hitabylgju árið 2003 og litla úrkomu árin 2004 og 2005.

Erlent
Fréttamynd

150 kíló af kókaíni um borð í skútu

Lögreglan í Venesúela fann um það bil 150 kíló af kókaíni um borð í seglskútu við Margarítu-eyju í gær, um 320 kílómetra norðaustur af Karakas, höfuðborg landsins. Eigandi eiturlyfjanna var Þjóðverji sem sigldi undir belgískum fána.

Erlent
Fréttamynd

Sharon ekki lengur í bráðri lífshættu

Ísraelar bíða nú í ofvæni eftir fréttum af líðan Ariels Sharons, forsætisráðherra landsins, sem haldið hefur verið sofandi eftir að hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudag í síðustu viku. Sharon er ekki lengur talinn í bráðri lífshættu og segja læknar hann hafa sýnt skýr merki um bata er hann hreyfði vinstri hönd sína í gær.

Erlent
Fréttamynd

Evrópuþjóðir og Bandaríkjamenn fordæma ákvörðun Írana

Ríkisstjórnir Evrópusambandsríkjanna og Bandaríkjanna hafa margar hverjar fordæmt ákvörðun Íransstjórnar um að halda áfram með kjarnorkurannsóknir sínar. Vöruðu þær Írana við að Sameinuðu þjóðirnar gætu refsað stjórnvöldum með einhverjum hætti.

Erlent
Fréttamynd

Fjórir slösuðust í sprengingu

Fjórir slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar gassprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Utrecht í Hollandi í dag. Sprengingin varð í mannlausri lyfjaverslun.

Erlent
Fréttamynd

Íranir rufu innsiglin

Kjarnorkuáætlun Írana er komin af stað á nýjan leik, Bandaríkjamönnum og Evrópusambandinu til mikillar gremju. Vesturlönd óttast að Íranar ætli að þróa kjarnavopn en þeir sverja og sárt við leggja að vinnslan sé í friðsamlegum tilgangi.

Erlent
Fréttamynd

Lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga 12 vikna barni

Fertugur karlmaður, sem nauðgaði 12 vikna barni með hjálp kærustu sinnar sem átti að gæta barnsins, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Nítján ára unnusta hans hefur verið dæmd til fimm ára fangelsisvistar.

Erlent
Fréttamynd

Seinheppinn bankaræningi

Seinheppinn ræningi í Salt Lake City í Bandaríkjunum skipulagði rán illa og uppskar í samræmi við það.

Erlent
Fréttamynd

Kjarnorkuáætlun Írana af stað á ný

Kjarnorkuáætlun Írana er komin af stað á nýjan leik, Bandaríkjamönnum og Evrópusambandinu til mikillar gremju. Vesturlönd óttast að Íranar ætli að þróa kjarnavopn en þeir sverja og sárt við leggja að vinnslan sé í friðsamlegum tilgangi.

Erlent
Fréttamynd

Svik og prettir vísindamannsins

Svik og prettir er einkunnin sem verk Hwangs Woos-suks, eins virtasta fræðimanns heims á sviði stofnfrumurannsókna fékk í dag. Þetta er áfall fyrir rannsóknir í lífvísindum, segir íslenskur sérfræðingur á þessu sviði.

Erlent
Fréttamynd

Úkraínska stjórnin fallin

Úkraínska þingið samþykkti vantraust á ríkisstjórn landsins með 250 af 450 atkvæðum í atkvæðagreiðslu í dag. Ástæðan fyrir vantraustinu er gassamningurinn sem stjórnin gerði við Rússa sem hefur í för með sér að Úkraína þarf að greiða hærra verð fyrir það gas sem hún fær. Viktor Jústsjenkó forseti ætlar að láta stjórnarskrárdómstól landsins kveða úr um lögmæti atkvæðagreiðslunnar.

Erlent