Erlent

Fréttamynd

Ratko Mladic handtekinn

Ratko Mladic, æðsti yfirmaður hers Bosníu-Serba, var handtekinn í Serbíu í dag. Hann hefur verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í rúman áratug, þar á meðal fjöldamorðið í Srebrenica þar sem að minnsta kosti átta þúsund manns voru stráfelldir. Fréttir af handtökunni hafa ekki verið staðfestar af serbneskum yfirvöldum.

Erlent
Fréttamynd

Óskaði eftir aðstoð lögreglu við að fá endurgreitt frá eiturlyfjasala

Fólk óskar eftir aðstoð lögreglunnar í hinum ýmsu og oft ótrúlegustu málum en ósk Þjóðverja nokkurs á dögunum slær líklega flestar beiðnir um lögregluaðstoð út. Maðurinn keypti sér 200 grömm af maríjúana af ónefndum eiturlyfjasala, en þegar hann prófaði varninginn skömmu eftir viðskiptin var hann langt í frá ánægður með gæði efnisins.

Erlent
Fréttamynd

Umdeilt að arabískt fyrirtæki reki hafnir í Bandaríkjunum

Fjölmargir bandarískir stjórnmálamenn hafa gagnrýnt þá ákvörðun stjórnar Bush Bandaríkjaforseta að heimilia arabísku fyrirtæki að taka yfir rekstur sex stórra hafna þar í landi. Fyrirtækið, sem staðsett er í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum, hefur keypt breskt fyrirtæki sem hefur séð um rekstur hafna í sex borgum, þar á meðal Miami og New York.

Erlent
Fréttamynd

Innflytjendalöggjöf í Hollandi hert

Innflytjendur sem hyggjast setjast að í Hollandi þurfa að standast tungumála- og menningarpróf áður en þeir fá að koma til landsins, samkvæmt nýjum innflytjendalögum sem taka gildi um næstu mánaðamót

Erlent
Fréttamynd

Veik von um að mennirnir séu enn á lífi

Aðstandendur sextíu og fimm námaverkamanna í Mexíkó, sem sitja fastir á þriggja metra dýpi, bíða nú milli vonar og ótta um að það takist að bjarga þeim í tæka tíð.

Erlent
Fréttamynd

Þriggja ára fangelsi fyrir að afneita helförinni

Enn er tekist á um hvar mörk tjáningarfrelsisins liggja, að þessu sinni í réttarsal í Vínarborg í dag. Þar viðurkenndi breski sagnfræðingurinn David Irving að hafa afneitað helförinni gegn gyðingum. Fyrir vikið var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi.

Erlent
Fréttamynd

Segist hafa gert ráðstafanir vegna öryggis starfsmanna sinna

Fyrirtækið Enex, sem Jón Þór Ólafsson starfaði hjá, segist hafa gert viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi starfsmanna sinna í El Salvador. Forsvarsmenn þess vísa fréttum, þar sem gefið er í skyn að þeir hafi hunsað ráðleggingar um slíkt, á bug.

Erlent
Fréttamynd

Krefjast óskoraðs sjálfstæðis Kosovo

Viðræður um framtíð hins umdeilda Kosovo-héraðs í Serbíu hófust í Austurríki í dag. Kosovo-Albanar vilja að héraðið fái fullt og óskorað sjálfstæði en serbneski minnihlutinn hugsar til þess með hryllingi.

Erlent
Fréttamynd

Sömdu um skiptingu hafsvæðis

Utanríkisráðherrar Danmerkur og Noregs undirrituðu í dag samning um skiptingu landsgrunns og hafsvæðis milli Svalbarða og Grænlands

Erlent
Fréttamynd

Þokast í átt að nýrri ríkisstjórn

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hóf í dag viðræður við Hamas-samtökin sigurvegara þingkosninga í landinu um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Fulltrúi Hamas-samtakanna sagði að líklega myndi Abbas á fundinum fela Ismail Abbas, forsætisráðherraefni Hamas-samtakanna, umboð til að setja saman ríkisstjórn.

Erlent
Fréttamynd

Viðræður halda áfram á morgun

Rússar og Íranir ætla að halda áfram viðræðum á morgun um auðgun Rússa á úrani fyrir Írani. Samningaviðræður vegna málsins hófust í morgun og lauk fundinum fyrir skömmu.

Erlent
Fréttamynd

Enn lífsmark í aurskriðum á Filippseyjum

Björgunarmenn vinna nú hörðum höndum að því að grafa frá skóla sem að lenti undir aurskriðu á eynni Leyte á Filippseyjum eftir að lífsmarks varð vart undir skriðunni.

Erlent
Fréttamynd

Fundað um fuglaflensu

Þýsk stjórnvöld leggja mikla áherslu á að koma í veg fyrir að hinn banvæni H5N1 fuglaflensu stofn breiðist út um Þýskaland. Lanbúnaðarráðherrar Evrópuríkja funda í Brussel í dag um fuglaflensuna og mögulegar aðgerðir gegn henni.

Erlent
Fréttamynd

Rússar og Íranar ræða kjarnorkumál

Samningaviðræður Rússa og Írana um samvinnu vegna kjarnorkuáætlunar Írana hófust í Moskvu í morgun. Þetta er haft eftir talsmanni öryggisráðs rússneska þingsins. Rússar hafa boðist til þess að auðga úran fyrir Írana og þar með draga úr þeirri alþjóðadeilu sem er uppi vegna kjarnorkuáætlunar stjórnvalda í Teheran.

Erlent
Fréttamynd

Kennari játar morð á nemanda sínum

Japanskur kennari játaði í morgun á sig morð á einum nemenda sinna. Maðurinn kom fyrir dóm í morgun en hann er ákærður fyrir að hafa ráðist með hnífi á nemendann, tólf ára gamla stúlku, inni í skólastofu og veitt henni banvæn sár.

Erlent
Fréttamynd

Óvissa um útgáfu PS3

Óvíst er að Sony nái að gefa út Playstation 3, næstu kynslóð leikjatölvunnar vinsælu, í vor eins og ætlað var vegna þess að ekki hefur verið lokið við gerð ákveðinna staðla sem ný tækni hennar á að styðjast við.

Leikjavísir
Fréttamynd

Ákærum í kynferðisbrotamálum gegn börnum fækkar

Ákærum í kynferðisbrotamálum gegn börnum í Danmörku fækkaði töluvert á síðasta ári miðað við árin á undan. Þetta sýna bráðabirgðatölur lögreglunnar þar í landi. Ákært var í 227 málum í fyrra, eða um helmingi færri en árið 2004 þegar tæplega 460 mál fóru fyrir dómstóla.

Erlent
Fréttamynd

Flak þýsku flugvélarinnar fundið

Flak þýsku flugvélarinnar sem hrapaði í norðurhluta Íraks á fimmtudag er fundið. Um borð í vélinni voru fimm Þjóðverjar og einn Íraki og voru þeir allir látnir þegar komið var að vélinni.

Erlent
Fréttamynd

Líklega ekki um fuglaflensu að ræða í Finnlandi

Heilbrigðisyfirvöld í Finnlandi greindu frá því í gær að niðurstöður úr sýnum úr hræjum nokkurra svana sem fundust þar í landi bendi ekki til að fuglarnir hafi drepist úr nokkurri gerð fuglaflensu.

Erlent
Fréttamynd

Samstarf Rússa og Írana um auðgun úrans

Íranar eru reiðubúnir að fallast á tillögur stjórnvalda í Moskvu um samstarf við auðgun úrans í Rússlandi, ef samkomulag tekst um breytingar á tillögunum í viðræðum sem hefjast í Moskvu í dag.

Erlent
Fréttamynd

Skotbardagi fyrir utan skemmtistað í Kaupmannahöfn

Tveir liggja með skotsár á sjúkrahúsi eftir að ágreiningur manna á milli fór úr böndunum fyrir utan skemmtistað í Kaupmannahöfn í gærmorgun. Mennirnir fengu báðir byssukúlu í annan fótinn og þá var þriðji aðili skorinn í andlitið.

Erlent
Fréttamynd

Ísraelar afhenda ekki skatta

Ísraelar ætla ekki að afhenda heimastjórn Palestínumanna skatta sem þeir taka af palestínskum verkamönnum. Þá ætla þeir heldur ekki að afhenda þeim tolla sem Ísraelsstjórn innheimtir af vörum sem Palestínumenn flytja inn.

Erlent
Fréttamynd

Bin Laden segist ekki verða tekinn höndum lifandi

Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, heitir því að hann verði aldrei tekinn höndum lifandi og segir Bandaríkjamenn hafa gripið til sömu villimannslegu úrræðanna í Írak og Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseti. Þetta kemur fram í hljóðupptöku sem birt var á vefsíðu herskárra samtaka í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Skopmyndundunum af Múhameð enn mótmælt

Þúsundir manna komu saman bæði í Pakistan og í Tyrklandi í gær til að mótmæla skopmyndunum af Múhameð spámanni. Lögreglan þurfti að beita táragasi og gúmmíkúlum til að dreifa mannfjöldanum sem hrópaði slagorð gegn Bush Bandaríkjaforseta.

Erlent
Fréttamynd

Sögulegar viðræður um framtíð Kosovo-héraðs

Samninganefndir Serba og Kosovo-Albana koma saman til sögulegs fundar í Vín í Austurríki í dag til að ræða framtíð Kosovo-héraðs. Kosovo-Albanir krefjast þess að héraðið fái sjálfstæði frá Serbíu en Serbar segja Kosovo mikilvægan hluta af ríki sínu og vilja halda einhverri stjórn þar.

Erlent
Fréttamynd

Óttast um líf 65 námuverkamanna

Óttast er að enginn hafi komist lífs af eftir að gassprenging varð í kolanámu í bænum San Juan de Sabinas, um 135 kílómetra suðvestur af Texas í Bandaríkjunum í gær. Alls eru sextíu og fimm námuverkamenn fastir inni í námunni og hefur ekkert samband náðst við þá þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Erlent
Fréttamynd

Mesta mannfall vegna skopteikninganna hingað til

Sextán manns létust í hörðum átökum sem brutust út í Nígeríu í gær vegna skopteikninganna af Múhammeð spámanni. Ekki sér enn fyrir endann á afleiðingunum af myndbirtingum Jótlandspóstsins og átökin í Nígeríu í gær eru þau mannskæðustu hingað til.

Erlent