Erlent
Flutningaleið opnuð á ný Yfirvöld í Ísrael hafa ákveðið að opna fyrir flutning hjálpargagna frá Ísrael til svæða Palestínumanna á Gasa-ströndinni eftir að fregnir bárust að yfirvofandi hættuástandi þar. Erlent 20.3.2006 09:54
Búddah endurholdgaður? Fylgismenn unglings sem sagður er Búddha endurholdgaður hafa sent frá sér myndband sem sagt er sýna þegar hann birtist lærisveinum sínum í skóglendi Nepal í gær. Erlent 20.3.2006 09:38
Geimhylki flutt til Bandarískri og rússneskir áhöfn alþjóðlegu geimstöðvarinnar tókst í morgun að flytja geimhylki milli hafna á stöðinni. Með því er verið að rýma fyrir hylki sem flytur næsta hóp geimfara í stöðina í næstu viku. Erlent 20.3.2006 09:35
Eitrað áfengi Tíu þorpsbúar á Suður-Indlandi létu lífið og sextán eru þungt haldnir eftir að hafa skálað fyrir látnu félaga sínu í heimalögðu áfengi sem var eitarð. Maðurinn sem var verið að kveðja hafði látist eftir að hafa drukkið heimalagað áfengi sem hann smyglaði frá nálægu héraði. Erlent 20.3.2006 08:59
Hlutabréf hækkuðu í Japan Gengi hlutabréfa hækkaði talsvert í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag og hefur lokagildi Nikkei-225 hlutabréfavísitölunnar ekki verið hærra í sex vikur. Ástæður fyrir hækkuninni er útgáfa hagtalna í vikunni en búist er við að þar komi fram mikil hagnaðaraukning japanskra fyrirtækja á árinu. Viðskipti erlent 20.3.2006 09:32
Íraksstríði mótmælt Þrjú ár voru í gær liðin frá því herlið undir forystu Bandaríkjamanna réðst inn í Írak. Mótmæli mörkuðu það afmæli víða um heim en andstæðingar stríðsins söfnuðust saman til að mótmæla stríðinu og krefjast þess að látið verði af hernaðaraðgerðum í Írak tafarlaust. Erlent 20.3.2006 08:33
Lúkasjenko sigraði með yfirburðum Alexander Lúkasjenko, forseti Hvíta-Rússlands, var endurkjörinn í embætti með yfirburðum í kosningum sem fram fóru í landinu í gær. Andstæðingar forsetans segja brögð hafa verið í tafli og vilja að boðað verði til nýrra kosningar. Erlent 20.3.2006 08:26
Fuglaflensutilfelli staðfest í Ísrael Staðfest hefur verið að fuglarnir sem drápust á þremur fuglabúum í suðurhluta Ísraels fyrir helgi voru sýktir af hinum mannskæða H5NI-stofni fuglaflensunnar. Þúsundum kjúklinga og kalkúna var slátrað eftir að fuglarnir drápust því strax lék grunur á að um fuglaflensu væri að ræða. Erlent 20.3.2006 07:53
Sjö létust í sprengjuárás Sjö létust og fjórir særðust þegar þrjár sprengjur sprungu í norðvesturhluta Pakistan í gær. Tveimur af sprengjunum var komið fyrir nálægt lögreglustöð en talið er að herskáir íslamar hafi staðið fyrir árásinni en enginn hefur þó lýst yfir ábyrgð á árásinni. Þrír lögreglumenn létust í árásinni en lögreglustöðin er mikið skemmd eftir sprenginguna. Erlent 20.3.2006 07:35
Fellibylurinn Larry veldur usla í Ástralíu Að minnsta kosti þrír slösuðust þegar fellibylurinn Larry gekk yfir norðausturhluta Ástralíu í nótt. Bærinn Innisfail í Queensland-héraði varð verst úti í fellibylnum og er óttast að mun fleiri hafi slasast þar en vitað er um á þessari stundu, þó flestir bæjarbúar hafi náð að yfirgefa heimili sín áður en ósköpin dundu yfir. Erlent 20.3.2006 07:28
Læsti sig inni með barnabarninu Mikill viðbúnaður var í Brussel höfuðborg Belgíu í nótt eftir að maður á sextugsaldri læsti sig inni á hótelherbergi á sautjándu hæð með átta ára gömlu barnabarni sínu. Erlent 19.3.2006 12:18
Lúkatsjenkó talinn öruggur um sigur Forsetakosningar fara fram í Hvíta-Rússlandi í dag. Kjörstaðir voru opnaðir snemma í morgun og voru þá þegar teknar að myndast raðir fyrir utan þá. Ekki eru nokkrar líkur taldar á öðru en að Alexander Lúkatsjenkó, sitjandi forseti, fari með sigur af hólmi enda gera sér fáir grillur um að kosningarnar fari fram á sanngjarnan hátt. Erlent 19.3.2006 11:17
Borgarastríð geisar í Írak Iyad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks, sagði í viðtali við BBC í morgun að borgarastyrjöld geisi í landinu og verði fljótlega ekki gripið í taumana muni þjóðarbrotin í landinu festast í vítahring ofbeldis sem í kjölfarið út öll Mið-Austurlönd. Erlent 19.3.2006 10:48
Á annað hundrað handtekin Parísarlögreglan handtók vel á annað hundrað manns eftir að friðsamlegar mótmælaaðgerðir gærdagsins snerust upp í uppþot og ólæti í gærkvöld. Erlent 19.3.2006 10:47
Hamas-stjórnin að líta dagsins ljós Hamas-samtökin hafa lokið við að skipa í ráðherraembætti í nýrri heimastjórn Palestínumanna. Erlent 18.3.2006 15:24
Viðræður boðaðar við íslensk stjórnvöld. Scott McClellan, talsmaður Hvíta hússins, kvaðst á fréttamannafundi í gær búast við að viðræður myndu senn hefjast á milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda um framtíðarfyrirkomulag varna landsins. Erlent 18.3.2006 11:39
300 Rúmenar handteknir á Spáni Spænska lögreglan hefur handtekið tæplega 300 Rúmena í tengslum við röð innbrota, eiturlyfjasölu og vændi. Innanríkisráðherra landsins greindi frá þessu í dag. Erlent 17.3.2006 16:39
Fjölskyldan ekki viðstödd jarðarförina Fjölskylda Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, verður ekki viðstödd jarðarför hans í Serbíu á morgun. Fjölmargir hafa vottað honum virðingu sína í dag en kista Milosevic liggur í Byltingarsafninu í Belgrad. Erlent 17.3.2006 15:40
Farið fram á að Taylor verði framseldur Stjórnvöld í Líberíu hafa formlega farið þess á leit við Nígeríumenn að þeir framselji þeim Charles Taylor, fyrrverandi forseta Líberíu. Þar með yrði hægt að rétta yfir honum fyrir aðild að stríiðsglæpum í Sierra Leone. Erlent 17.3.2006 13:17
Skotbardagi fyrir utan Hæstarétt Spánar Svo virðist sem til skotbardaga hafi komið fyrir utan Hæstarétt Spánar í Madríd í dag. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi látið lífið en einn maður mun hafa verið handtekinn vegna málsins. Erlent 17.3.2006 13:10
Ekki eitrað fyrir Milosevic Ekkert bendir til þess að eitrað hafi verið fyrir Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, sem lést í haldi stríðsglæpadómstólsins í Haag í Hollandi um síðustu helgi. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðu blóðrannsóknar sem birtar voru í dag. Erlent 17.3.2006 13:03
Umfangsmestu aðgerðir frá innrás Stærstu hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna í Írak, síðan herinn réðst inn í landið árið 2003, hófust í gær. Yfir 50 flugvélar og um 1500 bandarískir hermenn taka þátt í aðgerðunum. Talið er að hermennirnir séu búnir að handtaka um 40 manns. Erlent 17.3.2006 12:56
300 handteknir í óeirðum Til óeirða kom í grennd við Sorbonne-háskólann í miðborg Parísar í gærkvöld. Um þrjú hundruð manns voru handteknir þegar námsmenn mótmæltu nýjum atvinnulögum ríkisstjórnarinnar. Erlent 17.3.2006 12:52
Óttast um að maður hafi sýkst af fuglaflensu Óttast er að maður hafi sýkst af fuglaflensu í Ísrael en í morgun var staðfest að hið hættulega H5N1 afbrigði flensunnar hefði greinst þar í landi. Erlent 17.3.2006 10:29
Fatah ekki með Fatah-samtök Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, hafa ákveðið að taka ekki þátt í myndun ríkisstjórnar með Hamas-liðum, sem unnu meirihluta á þingi heimastjórnar Palestínumanna í kosningum í janúar. Þetta er haft eftir ónafngreindum heimildarmanni innan Fatah. Erlent 17.3.2006 09:55
Fuglaflensa í Ísrael Fuglaflensa af hinum hættulega H5N1 stofni hefur greinst í kalkúnahræjum sem fundust á dögunum í Suður-Ísrael. Talsmaður ísraelska landbúnaðarráðuneytisins staðfesti þetta í morgun. Erlent 17.3.2006 09:38
FTSE yfir 6000 stig FTSE, enska hlutabréfavísitalan fór yfir 6000 stig þegar Kauphöllin í Lundúnum opnaði í morgun. Það er í fyrsta sinn í 5 ár. Erlent 17.3.2006 09:03
Málverk eftir Van Gogh endurheimt Lögreglan í Hollandi hefur endurheimt málverk eftir Van Gogh, eitt það síðasta sem hann málaði í Hollandi, en því var stolið fyrir sjö árum. Verkið, sem er óskemmt, var málað árið 1885 og er nú í eigu Van Lanschot-bankans þar í landi. Tveir menn 25 og 33 ára hafa verið handteknir vegna málsins en rannsókn þess stendur þó enn yfir. Erlent 17.3.2006 07:52
Bjóða Hamasmönnum til Strassborgar Evrópuráðið hefur boðið palenstínskum þingmönnum úr röðum Hamas-samtakanna til Strassborgar í þeirri von að koma megi á viðræðum þeirra og ísraelskra þingmanna. Ísraelska utanríkisráðuneytið fordæmir hugmyndir um að bjóða Hamas á fund Evrópuráðsins þar sem þeir segja Hamas ekkert annað en hryðjuverkasamtök. Hamas sigruðu hins vegar í þingkosningum Palestínumanna fyrir skömmu og munu því fá að mynda næstu heimastjórn. Erlent 17.3.2006 07:39
Sýktur ránfugl finnst í Danmörku Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest að fuglaflensuveira af gerðinni H5N1 hafi verið greind í dauðum ránfugli, sem fannst sunnan við Kaupmannahöfn fyrr í vikunni. H5N1 er hættulegasta afbrigði fuglaflensuveirunnar og hafa yfirvöld þar í landi lofað að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir útbreiðslu. Danmörk er 21. Evrópulandið þar sem fuglaflensa greinist. Erlent 17.3.2006 07:30