Íþróttir

Fréttamynd

Toshack ráðinn til Wales

John Toshack hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Wales í annað skipti. Hinn 55 ára gamli Toshack stjórnaði liðinu í hlutastarfi árið 1994, og þá aðeins í einn leik, en hann hætti eftir 3-1 tap gegn Norðmönnum og sagðist vilja einbeita sér að starfi sínu á Spáni, en þá var hann framkvæmdarstjóri Real Sociedad.

Sport
Fréttamynd

Birgir Leifur meðal efstu manna

Birgi Leifi Hafþórssyni gekk öllu betur á öðrum degi úrtökumóts fyrir evrópsku mótaröðina sem fram fór í gær og er meðal þeirra 30 efstu fyrir þriðja hring sem leikinn er í dag.

Sport
Fréttamynd

John Toschak tekur við Wales

John Toschak hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Wales en hann tekur við af Mark Hughes sem sagði starfinu lausu til að taka við enska úrvalsdeildarliðinu Blackburn.

Sport
Fréttamynd

Valur yfir í Víkinni

Þá er kominn hálfleikur í þrjá af sex leikjum kvöldsins í efstu deild karla í handknattleik. Valur hefur yfir gegn Víkingum í Víkinni 18-13, á Akureyri er KA 14-9 yfir gegn Fram og ÍBV leiðir 11-9 gegn Stjörnunni í Garðabænum.

Sport
Fréttamynd

Tour de France í London 2007?

Fyrsti hluti frægustu hjólreiðakeppni heims, Tour de France, mun að öllum líkindum hefjast í London árið 2007 ef áætlanir ganga eftir.

Sport
Fréttamynd

Ætlum að taka stig frá Svíunum

"Lið Savehof er öruggt áfram úr þessum riðli sem við erum í og þess vegna eru líkur á að þeir séu ekki ýkja einbeittir gegn okkur," segir Páll Ólafsson, þjálfari handboltaliðs Hauka sem etur kappi við sænska liðið Savehof í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Elland Road-leikvangurinn til sölu

Viðræður um kaup bandarískra fjárfesta á enska 1. deildarliðinu Leeds eru farnar út um þúfur og næsta víst er að leikvangur félagsins, Elland Road, verði seldur á næstunni til að borga niður skuldir.

Sport
Fréttamynd

Fjölnir og Haukar mætast aftur

Dómstóll KKÍ úrskurðaði í gær að Fjölnir og Haukar þurfi að mætast á nýjan leik, og úrslitin í leik liðanna frá því í fyrstu umferð Intersportdeildarinnar dæmd ógild, þar sem hnökrar voru á framkvæmd leiksins.

Sport
Fréttamynd

Öruggur sigur Skjern

Lærisveinar Arons Kristjánssonar í danska liðinu Skjern sigruðu Svendborg örugglega 35-26 í gær. Jón Jóhannsson skoraði sex mörk fyrir Skjern og Ragnar Óskarsson fjögur.

Sport
Fréttamynd

Birgir hóf leik í morgun

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, hóf leik í morgun á lokastigi úrtökumótanna fyrir evrópsku mótaröðina á San Roque golfvöllunum á Spáni. Alls mæta 168 kylfingar til leiks, 35 efstu kylfingarnir öðlast þátttökurétt á mótaröðinni en 75 efstu öðlast takmarkaðan keppnisrétt. Leiknir verða sex hringir.

Sport
Fréttamynd

Boston vann á flautukörfu

Paul Pierce tryggði Boston Celtics sigur með flautukörfu þegar liðið sigraði Portland 90-88 í NBA-körfuboltanum í nótt. Philadelphia sigraði New Jersey Nets 108-100. LeBron James skoraði 38 stig fyrir Cleveland sem sigraði Phoenix í framlengdum leik 114-109.

Sport
Fréttamynd

Birgir Leifur í 61.-84. sæti

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG er í 61.-84. sæti eftir fyrsta hring á lokastigi úrtökumótanna fyrir evrópsku mótaröðina í golfi af þeim 168 keppendum sem hófu leik. Leikið er á San Roque golfvöllunum á Spáni. Birgir Leifur lék hringinn í dag á 75 höggum.

Sport
Fréttamynd

Njarðvík með 4 stiga forystu

Fjórir leikir fóru fram í Intersportdeild karla í körfubolta í kvöld. Njarðvíkingar styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar með naumum útisigri á Skallagrími, 91-92 í Borgarnesi. ÍR innbyrti sinn annan sigur í vetur er liðið lagði Hauka 83-75 í Austurbergi.

Sport
Fréttamynd

Haukastúlkur vinna enn

Haukastúlkur héldu áfram sigurgöngu sinni í 1. deild kvenna í gærkvöldi og lögðu Víking að velli 33-24.

Sport
Fréttamynd

Gunnar og Stefán dæma á HM

Handknattleiksdómararnir Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson hafa verið tilnefndir af hálfu leikreglu- og dómaranefndar Alþjóða handknattleikssambandsins til að dæma í heimsmeistarakeppni karla sem fram fer í Túnis 23. janúar-6. febrúar nk.

Sport
Fréttamynd

Fimm leikir í körfunni

Fjórir leikir eru í Intersport-deild karla í körfubolta klukkan 19.15. Skallagrímur mætir toppliði Njarðvíkur, Hamar/Selfoss mætir Fjölni í Hveragerði, Haukar sækja ÍR heim í Seljaskóla og Snæfell tekur á móti KFÍ. Í 1. deild kvenna mætast Haukar og Njarðvík.

Sport
Fréttamynd

Keflavík með örygga forystu

Keflvíkingar hafa örugga forystu í hálfleik í heimaleik sínum gegn portúgalska liðinu Madeira í borgarkeppni Evrópu í körfuknattleik. Staðan er 66-48 en Keflvíkingar unnu fyrsta leikhlutann 34-21 og annan leikhluta 32-27. Gunnar Einarsson er stigahæstur í liði heimamanna með 20 stig.

Sport
Fréttamynd

Jón Arnór spilaði félagana uppi

Jón Arnór Stefánsson spilaði uppi félaga sína í 27 stiga stórsigri Dynamo St. Pétursborgar, 75-102, á KK Belgrad í öðrum leik liðsins í Evrópudeild félagsliða sem fram fór í Serbíu í fyrrakvöld. Jón Arnór gaf 8 stoðsendingar og stal 6 boltum á þeim 30 mínútum sem hann lék.

Sport
Fréttamynd

Keflavík vann Madeira

Keflvíkingar unnu í kvöld portúgalska liðið Madeira í borgarkeppni Evrópu í körfuknattleik með 114 stigum gegn 101. Staðan í leikhléi var 66-48 Keflvíkingum í vil en Portúgalirnir komu sterkir til leiks í síðari hálfleik náðu að minnka muninn í tvö stig í fjórða leikhluta. Magnús Gunnarsson var stigahæstu í liði Keflvíkinga með 24 stig.

Sport
Fréttamynd

Tíu marka sigur ÍBV

Íslands- og bikarmeistarar ÍBV lögðu Fram að velli með tíu marka mun, 34-24, í 1. deild kvenna. Stjarnan sigraði FH með eins marka mun, 38-27. ÍBV er í 2. sæti deildarinnar með 14 stig og Stjarnan í 3. sæti með 13 stig.

Sport
Fréttamynd

Keflavík burstaði KR

Keflavík burstaði KR 81-56 í 1. deild kvenna í körfubolta í gær. Keflavík er efst með fullt hús stiga eða 10.

Sport
Fréttamynd

Kobe með góðan leik

Kobe Bryant skoraði 31 stig og hirti 8 fráköst fyrir Los Angeles Lakers sem lögðu New Orleans Hornets 106-98.

Sport
Fréttamynd

Óvænt úrslit í Hafnafjarðarslagnum

FH vann í kvöld granna sína Hauka í uppgjöri Hafnafjarðarliðanna í norðurriðli Íslandsmóts karla í handknattleik. Leikurinn fór fram á heimavelli Hauka og urðu lokatölur 29-28 eftir að FH hafði leitt í hálfleik, 13-11. FH-ingar tvöfalda stigafjölda sinn með þessum sigri en verma enn botnsæti riðilsins með 4 stig. Haukar eru sem fyrr á toppnum.

Sport
Fréttamynd

Sigfús kominn aftur

Sigfús Sigurðsson lék sinn fyrsta leik með Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í tvo mánuði í gærkvöld. Sigfús lék síðustu tíu mínútur leiksins en Magdeburg steinlá fyrir Flensburg með sjö marka mun, 39-32. Arnór Atlason sat allan tímann á bekknum hjá Magdeburg.

Sport
Fréttamynd

Keflavík mætir Madeira

Karlalið Keflavíkur mætir franska liðinu  í Evrópubikarkeppni karla í körfubolta í Reykjanesbæ klukkan 19.15 í kvöld. Liðin voru einnig saman í riðli á síðasta tímabili og vann Keflavík heimaleikinn 99-88.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmeistararnir í Safamýrina

Tveir leikir eru í fyrstu deild kvenna í handknattleik í kvöld. Stjarnan og FH takast á í Garðabæ og Fram mætir Íslandsmeisturum ÍBV í Framhúsinu. Flautað verður til leiks klukkan 19.15.

Sport
Fréttamynd

11 marka sigur Stjörnustúlkna

Tveir leikir fóru fram í 1. deild kvenna í handbolta í kvöld. Stjarnan lagði FH 38-27 og ÍBV lagði Fram á útivelli, 24-34. ÍBV er í 2. sæti eftir 9 leiki með 14 stig eða tveimur stigum á eftir toppliði Hauka sem á leik til góða. Stjarnan fylgir í humátt á eftir með 13 stig.

Sport
Fréttamynd

Colts hafði betur gegn Vikings

Indianapolis Colts og Minnesota Vikings mættust í ameríska fótboltanum í gærkvöld. Colts hafði sigur 31-28. Colts er á toppnum ásamt Jacksonville í Suðurriðli Ameríkudeildar. Þrátt fyrir tapið er Minnesota í efsta sæti riðil síns í Þjóðardeildinni með fimm sigra og þrjú töp.

Sport