Íþróttir
Jörundur Áki tekur við landsliðinu Knattspyrnusamband Ísland hefur komist að samkomulagi við Jörund Áka Sveinsson um að hann taki við af Helenu Ólafsdóttur sem landsliðsþjálfari kvennalandsliðs Íslands í knattspyrnu, samkvæmt heimildum íþróttadeildar. Jörundur Áki hefur áður þjálfað kvennalandslið Íslands, árin 2001 og 2002, með góðum árangri. Sport 13.10.2005 15:08
Anja Ríkey í 21. sæti í baksundinu Evrópumeistaramótið í sundi í 25 metra laug hófst í Vínarborg í morgun. Anja Ríkey Jakobsdóttir í Ægi varð 21. af 30 keppendum í 100 metra baksundi, synti á 1 mínútu 3,49 sekúndum, og var tæpri sekúndu frá því að komast í undanúrslit. Sport 13.10.2005 15:08
Tyson handtekinn Fyrrum heimsmeistari í þungavigt hnefaleika, Mike Tyson, var handtekinn fyrir utan næturklúbb í Scottsdale, Arizona, í lok nóvember. Tyson er gefið að sök að hafa hoppað á vélarhlíf bifreiðar svo stórsá á bílnum. Tyson ætlar í hringinn aftur í mars nk. en hann tapaði fyrir Danny Williams í júlí síðastliðnum. Sport 13.10.2005 15:08
Fyrsta mót Birgis að hefjast Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, hefur leik á sínu fyrsta móti á evrópsku mótaröðinni, Dunhill-meistaramótinu, á Creek vellinum í Suður-Ameríku nú á hádegi. Verðlaun eru alls um 70 milljónir króna á mótinu en efsta sætið gefur um 10 milljónir króna. Ernie Els, stigahæsti kylfingur Evrópu, er á meðal þátttakenda. Sport 13.10.2005 15:08
Tyson æfir á ný Mike Tyson, fyrrum heimsmeistari í þungavigt, er byrjaður að æfa fyrir bardaga í mars á næsta ári. Sport 13.10.2005 15:08
Ungur hnefaleikamaður lætur lífið Ungur hnefaleikakappi frá Kólumbíu lét lífið í fyrrakvöld, fjórum dögum eftir að hafa verið sleginn í rot í bardaga í Panama. Sport 13.10.2005 15:08
Ekki á forgangslista Hugmyndir eru uppi um að byggja yfirbyggða 25 metra langa keppnislaug við Vesturbæjarlaugina í Reykjavík og stækka þannig og bæta núverandi aðstöðu sundgesta. Sport 13.10.2005 15:08
Mayorga sýknaður af nauðgunarákæru Ricardo Mayorga, fyrrum heimsmeistari í veltivigt í hnefaleikum, var sýknaður af nauðgunarákæru í gær. Sport 13.10.2005 15:08
Kristín Rós og Gunnar Örn best Sundmennirnir Kristín Rós Hákonardóttir og Gunnar Örn Ólafsson voru í dag valin íþróttakona og íþróttamaður ársins úr röðum fatlaðra. Kristín Rós, sem vann ein gullverðlaun og ein silfurverðlaun á ólympíuleikum fatlaðra í Aþenu í sumar, hefur þá unnið þessa viðurkenningu tíu ár í röð, enda ein fremsta sundkonan í heiminum í sínum fötlunarflokki. Sport 13.10.2005 15:08
Birgir Leifur hefur leik Í dag er stór dagur fyrir Birgi Leif Hafþórsson, kylfing úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, en þá hefur hann keppni á sínu fyrsta móti í evrópsku mótaröðinni sem hann vann sér keppnisrétt á fyrir skömmu. Sport 13.10.2005 15:08
Fimm íslenskir sundmenn á EM Fimm íslenskir sundmenn munu taka þátt á Evrópumeistaramótinu í 25m metra laug sem fram fer í Vín dagana 9.-12. desember. Mótið fer fram í stórri tónleikahöll, Vienna City Hall, en þar hafa mótshaldarar komið fyrir glæsilegri átta brauta keppnislaug. Höllin mun taka 3600 áhorfendur eftir að laugin er komin upp, 500 keppendur og 200 fréttamenn í sæti. Sport 13.10.2005 15:08
Meza úrskurðaður heiladauður Carlos Meza, boxari frá Kólumbíu, var í dag úrskurðaður heiladauður, fjórum dögum eftir að hann var rotaður í 12. lotu í bardaga gegn Ricardo Cordoba, en Maza komst aldrei til meðvitundar eftir rothöggið. Sport 13.10.2005 15:08
Arnar með sigurmarkið Arnar Grétarsson skoraði sigurmark Lokeren í 1-0 sigri á Oostene í belgísku fyrstu deildinni í knattspyrnu í gær. Marel Baldvinsson kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik og fékk vítaspyrnuna sem Arnar skoraði úr. Arnar Þór Viðarsson lék allan tímann með Lokeren sem er í áttunda sæti eftir sigurinn. Sport 13.10.2005 15:07
Missti fingur við fögnuð Paulo Diogo leikmaður Servette missti fingur í leik liðsins gegn Schafthausen í svissneska boltanum í gær. Diogo lagði upp þriðja mark liðsins og fagnaði því mikið og stökk upp á járngirðingu og festi baugfingurinn í henni. Fingurinn var mjög illa farin og þurftu læknar að fjarlægja hann á sjúkrahúsi eftir leikinn. Sport 13.10.2005 15:07
Spánn vann Davis Cup Hinn spænski Carlos Moya vann Bandaríkjamanninn Andy Roddick í fyrrakvöld og tryggði Spánverjum þar með sigurinn í Davis Cup. Sport 13.10.2005 15:07
Button ökumaður ársins Ökuþórinn Jenson Button var valinn ökumaður ársins af lesendum Autosport-blaðsins. Sport 13.10.2005 15:07
Fyrsti sigur Kjus í níu ár Norðmaðurinn Lasse Kjus sigraði í stórsvigi heimsbikarkeppninnar á skíðum í Beaver Creek í Colorado í gærkvöldi. Þetta var fyrsti sigur Kjus í stórsvigi heimsbikarkeppninnar í níu ár. Síðast sigraði hann í Kranska Gora í desember 1995. Þetta var jafnframt sautjándi sigur Norðmannsins í heimsbikarnum. Sport 17.10.2005 23:41
HK sigraði Þrótt Reykjavík HK sigraði Þrótt Reykjavík 3-1 í 1. deild karla í blaki í gær. Þróttur vann fyrstu hrinuna en HK-menn unnu síðan þrjár hrinur í röð. Í 1. deild kvenna vann Þróttur í Neskaupstað Fylki 3-1. Sport 13.10.2005 15:07
Árni Már varð Norðurlandameistari Árni Már Árnason, sundfélaginu Ægi, varð í gær Norðurlandameistari í 100 metra bringusundi á Norðurlandamóti unglinga í sundi sem fram fór um helgina í Nærum í Danmörku. Sport 13.10.2005 15:07
Jiminez sigraði á Hong Kong mótinu Spánverjinn Miguel Angel Jiminez sigraði á Hong Kong mótinu í golfi í morgun. Hann fór síðasta hringinn á fjórum höggum undir pari. Samtals lék hann á 266 höggum eða 14 undir pari. Spánverjinn háði harða keppni við Írann Padraig Harrington og Suður-Afríkumanninn James Kingston sem urðu jafnir í öðru sæti, höggi á eftir Angel Jiminez. Sport 17.10.2005 23:41
Kovalainen meistari meistaranna Finninn Heikki Kovalainen varð í gær meistari meistaranna í akstursíþróttum þegar hann varð hlutskarpastur á Stade de France fótboltavellinum en sýnt var beint frá keppninni á Sýn. Í liðakeppni sigruðu Frakkar þar sem þeir höfðu betur í úrslitabaráttunni við Finna. Sebastian Loeb og Jean Alesi sigruðu þá Kovalainen og Markus Grönholm. Sport 13.10.2005 15:07
Bræður börðust í Hollandi Ajax Amsterdam sigraði RKC Waalwijk 2-1 í hollensku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Knattspyrnustjóri Ajax er Ronald Koeman en bróðir hans, Erwin Koeman, stýrir liði Waalwijk. Ajax er í 3. sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir PSV Eindhoven sem hefur forystu. Sport 13.10.2005 15:06
Lausn í sjónmáli Loks virðist ætla að birta til í verkfalli því sem lamað hefur NHL íshokkídeildina bandarísku undanfarna mánuði. Leikmenn og eigendur hafa komið á fundi í vikunni en um langt skeið hefur ekkert þokast í samkomulagsátt og því engin ástæða talin til frekari viðræðna. Sport 13.10.2005 15:06
Narfi grillaði SA Lið Skautafélags Akureyrar tapaði stórt fyrir nágrönnum sínum, Narfa frá Hrísey, 3 - 11 þegar félögin áttust við í íshokkíleik á föstudagskvöldið. Er ár og dagur síðan Akureyringarnir lutu svo í ís en hafa ber í huga að í lið þeirra vantaði þrjá lykilleikmenn sem voru í banni eftir mikinn hasar í leik þeirra við Björninn um síðustu helgi. Sport 13.10.2005 15:06
Narfi burstaði SA Narfi frá Hrísey burstaði Skautafélag Akureyrar 11-3 í 1. deildinni í íshokkí í gærkvöldi. Narfi komst í 9-0 en Skautafélagsmenn léku án þriggja Slóvaka sem voru í leikbanni eftir slagsmálaleik SA og Bjarnarins um síðustu helgi. Liðin mætast aftur í Skautahöllinni á Akureyri klukkan 17 í dag. Sport 13.10.2005 15:06
Loksins sigur hjá Mónakó Mónakó tókst loks að sigra í franska fótboltanum í gær eftir að hafa spilað átta deildarleiki án þess að vinna. Mónakó sigraði Stade Rennes 2-0 og er í þriðja sæti deildarinnar. Sport 13.10.2005 15:06
Þrír jafnir á Hong Kong mótinu Þrír kylfingar eru jafnir fyrir síðasta hringinn á Hong Kong mótinu í golfi. Írinn Predraig Harrington, Spánverjinn Miguel Angel Jiminez og Suður-Afríkumaðurinn James Kingston eru allir á tíu höggum undir pari. Aðeins einu höggi á eftir koma fjórir kylfingar: Daninn Thomas Björn, Englendingarnir Nick Faldo og David Howell og Taílendingurinn Thammanoon Srirot. Sport 17.10.2005 23:41
Kappakstur á Stade de France Klukkan hálffjögur í dag verður sýnt beint á Sýn frá kappakstri sem fram fer á Stade de France fótboltavellinum í París. Þarna keppa margir af bestu ökumönnum heims, bæði rallíkappar, formúlumenn og einnig keppendur úr öðrum greinum akstursíþrótta. Þetta er bæði einstaklingskeppni og liðakeppni sem núna fer fram í sautjánda sinn. Sport 13.10.2005 15:06
Bandarískir skíðamenn sigursælir Bandarískir skíðamenn hrósuðu sigri í heimsbikarnum á skíðum í gærkvöldi. Tvítug stúlka frá Vail í Colorado, Lindsay Kildow, náði bestum tíma í bruni í Lake Louise í Alberta-fylki í Kanada. Carole Montille Frakklandi varð önnur og Hilde Gerg Þýskalandi þriðja. Sport 17.10.2005 23:41
Jones íhugar að kæra Frjálsíþróttadrottningin Marion Jones íhugar það alvarlega þessa dagana að kæra Victor Conte fyrir meiðyrði en Conte þessi heldur því fram að hann hafi séð Jones sprauta sig með ólöglegum lyfjum fyrir Ólympíuleikana í Sydney árið 2000. Sport 13.10.2005 15:06