Íþróttir

Fréttamynd

Ásgeir Íslandsmeistari í snóker

Ásgeir Ásgeirsson varð í gær Íslandsmeistari í snóker þegar hann sigraði Gunnar Hreiðarsson í úrslitum með níu römmum gegn tveimur.

Sport
Fréttamynd

Silja á háskólameistaramót

Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona úr FH, varð í fjórða sæti í 400 metra grindarhlaupi í undankeppni fyrir bandaríska háskólameistaramótið sem fram fór í New York í gærkvöld. Silja kom í mark á 57,53 sekúndum og tryggði sér þátttökurétt á háskólameistaramótinu sem fram fer í Sacramento 8.-11. júní. Henni tókst ekki að ná lágmarki fyrir heimsmeisaramótið í Finnlandi, en það er 56,50 sekúndur.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmet í spjótkasti

Hin tvítuga spjótkastkona, Ásdís Hjálmsdóttir, gerði sér lítið fyrir í gær og setti nýtt Íslandsmet í spjótkasti kvenna á Laugardalsvellinum þegar hún kastaði spjótinu 57,10 metra á vormóti FÍRR.

Sport
Fréttamynd

Silja í úrslit í 400 m í New York

Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona úr FH, tryggði sér í gærkvöld sæti í úrslitum í 400 metra grindarhlaupi á bandaríska háskólameistaramótinu í New York. Silja varð í þriðja sæti í undanrásum á 57,94 sekúndum og keppir til úrslita í kvöld. Silja hyggst í kvöld reyna við lágmarkið sem gefur henni þáttökurétt á heimsmeistaramótinu í Helsinki í sumar.

Sport
Fréttamynd

Venus óvænt úr leik á Opna franska

Venus Williams frá Bandaríkjunum féll í gær úr leik á Opna franska meistaramótinu í tennis í gær. Williams tapaði óvænt fyrir óþekktri 15 ára stúlku frá Búlgaríu, Sesil Karatantchevu, 3-6, 6-1 og 1-6 í þriðju umferð mótsins.

Sport
Fréttamynd

15 ára sló Venus út í Frakklandi

Tenniskona Venus Williams féll úr keppni á á opna franska Tennismótinu í dag á einstaklega niðurlægjandi hátt fyrir 15 ára tennisstúlku í 3. umferð mótsins. "...Ég hafði bara aldrei heyrt af þessari stúlku né séð hana áður." sagði hin undrandi Venus.

Sport
Fréttamynd

Öruggur sigur Gautaborgar

Hjálmar Jónsson lék allan leikinn í liði Gautaborgar sem sigraði Örgryte 3-0 í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Jóhann B. Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Örgryte.

Sport
Fréttamynd

Byrjunarliðið gegn Skotum

Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir vináttulandsleikinn gegn Skotum á McDiarmid Park í Perth í dag.

Sport
Fréttamynd

Strachan tekur við Celtic

Martin O´Neill tilkynnti í morgun að hann ætli að hætta sem knattspyrnustjóri Celtic eftir fimm ár hjá félaginu og sjö stóra titla. Gordon Strachan hefur verið ráðinn stjóri Celtic í staðinn.

Sport
Fréttamynd

Landsliðið tilkynnt í dag

Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson tilkynna landsliðshóp Íslands fyrir tvo landsleiki við Ungverjaland og Möltu, 4. og 8. júní á Laugardalsvelli, í dag. Ljóst er að Hermann Hreiðarsson er frá vegna meiðsla en í hans stað hafa landsliðsþjálfararnir valið Keflvíkinginn Harald Frey Guðmundsson.

Sport
Fréttamynd

Þakkaði Williams-mönnum

Finnski ökuþórinn Kimi Räikkönen vann nokkuð auðveldan sigur í Mónakókappakstrinum í gær, eftir að hafa verið hlutskarpastur í tímatökunum á laugardaginn. Sigurinn var hans annar í röð og fleytir Finnanum unga í annað sætið í keppni ökumanna.

Sport
Fréttamynd

Jóhannes hættur með landsliðinu

Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Leicester City, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í íslenska landsliðið í knattspyrnu. Jóhannes Karl sagði í samtali við íþróttadeildina í morgun að þetta geri hann af persónulegum ástæðum, hann telji sig ekki geta sinnt verkefnum á vegum landsliðsins af fullum krafti og því telji hann rétt að stíga til hliðar.

Sport
Fréttamynd

Ólafur Örn skoraði fyrir Brann

Ólafur Örn Bjarnason skoraði fyrir Brann þegar liðið sigraði Lilleström, 6-2, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Árni Gautur Arason og félagar í Valeringa gerðu markalaust jafntefli við Fredriksstad.

Sport
Fréttamynd

Víkingur burstaði Fjölni

Fyrsta umferð 1. deildar karla í knattspyrnu fór fram í gær. Víkingur Reykjavík vann Fjölni 6-1, Víkingur Ólafsvík og HK gerðu markalaust jafntefli, Þór sigraði KS 4-2, KA vann Völsung 3-0 og Breiðablik sigraði Hauka 2-1.

Sport
Fréttamynd

Bröndby á titilinn vísan

Bröndby á nú Danmerkurmeistaratitilinn vísan eftur 5-0 sigur á FC Kaupmannahöfn í gær. Bröndby hefur 56 stig en FC Kaupmannahöfn er í öðru sæti með 48 stig.

Sport
Fréttamynd

Grjótkast og líkamsárásir

Tveir leikmenn gríska liðsins Iraklis þurftu að gista á sjúkrahúsi í nótt eftir að hafa orðið fyrir árás stuðningsmanna Aris Saloniki liðsins. Í Rúmeníu þurfti knattspyrnuþjálfari aðhlynningu eftir að áhorfandi kastaði steini í höfuð hans á leik í 1. deildinni um helgina.

Sport
Fréttamynd

Ásthildur skorar og skorar

Landsliðsfyrirlinn í knattspyrnu, Ásthildur Helgadóttir, skoraði tvö mörk þegar Malmö sigraði Sjelevad, 5-1, í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Ásthildur hefur nú skorað sex mörk í fimm fyrstu umferðum deildarinnar en Malmö og Umea eru efst í deildinni með 13 stig.

Sport
Fréttamynd

Kristjana fékk brons í Rússlandi

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Íslandsmeistari í fimleikum, varð þriðja í gólfæfingum og áttunda í fjölþraut á alþjóðlegu fimleikamóti í Rússlandi um helgina. Árangur hennar í fjölþrautinni var hennar besti á ferlinum. Kristjana fékk hæstu einkunn í gólfæfingum í fjölþrautinni og komst í úrslit og vann þar til bronsverðlauna.

Sport
Fréttamynd

Silja sjötta í Atlanta

Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona úr FH, varð í nótt sjötta í 400 metra grindahlaupi á frjálsíþróttamóti í Atlanta í Bandaríkjunum. Hún kom í mark á 57,31 sekúndu og dugði sá árangur ekki til þess að tryggja henni farseðil á heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum. Sandra Glover frá Bandaríkjunum sigraði í halupinu á 54,01 sekúndu sem er besti tími ársins.

Sport
Fréttamynd

Þórey Edda önnur í Katar

Þórey Edda Elísdóttir, stangastökkvari úr FH, varð í 2.-3. sæti á alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í Katar. Hún stökk 4,20 metra en Anzela Balakhonova frá Úkraínu sigraði á mótinu þegar hún stökk 4,35 metra.

Sport
Fréttamynd

Loeb með forystu á Kýpur

Heimsmeistarinn í ralli, Sebastian Loeb frá Frakklandi, hefur forystu eftir þrjár sérleiðir í Kýpurrallinu. Petter Solberg frá Noregi er annar og Tony Gardemeister frá Finnlandi er þriðji. Marcus Grönholm frá Finnlandi er úr leik en bíll hans bilaði á fyrstu sérleið.

Sport
Fréttamynd

Örflaga í boltanum á HM 2006

Tækni sem úrskurðar hvort bolti fer yfir marklínuna í knattspyrnuleik verður komin í notkun fyrir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi á næsta ári, segir Sepp Blatter, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA.

Sport
Fréttamynd

Valur pakkaði ÍBV saman

Valur sigraði ÍBV 10-0 í meistarakeppni kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði 4 mörk, Margrét Lára Viðarsdóttir 2 og þær Dóra María Lárusdóttir, Laufey Jóhannsdóttir, Dóra Stefánsdóttir og Málfríður Sigurðardóttir sitt markið hver.

Sport
Fréttamynd

Árni Gautur í liði vikunnar

Árni Gautur Arason er í liði vikunnar hjá <em>Aftenposten</em> og norska netmiðlinum <em>Nettavisen</em>. Árni varði meistaralega þegar Voleringa sigraði Bodo Glimt í fyrradag.

Sport
Fréttamynd

Schumacher gefst ekki upp

Heimsmeistarinn Michael Schumacer hefur ekki gefið upp alla von í að verja titil sinn, þrátt fyrir að hvorki gangi né reki hjá honum þessa dagana.

Sport
Fréttamynd

Fjórir Norðurlandameistaratitlar

Íslenskir júdómenn unnu fern gullverðlaun á Norðurlandamótinu í júdó sem fram fór í Reykjavík í gær. Þorvaldur Blöndal, Vignir Stefánsson, Þormóður Árni Jónsson og Gígja Guðbrandsdóttir urðu Norðurlandameistarar.

Sport
Fréttamynd

Sporting getur náð Benfica

Efsta liðið í Portúgal, Benfica, tapaði fyrir Penafiel, 1-0, í gær. Benfica, sem varð síðast portúgalskur meistari 1994, hefur ennþá forystu en Sporting Lissabon getur náð þeim að stigum með sigri á Vitoria á mánudag. Tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni.

Sport
Fréttamynd

Bætti meyjametið í kúluvarpi

Ragnheiður Anna Þórsdóttir FH bætti í gær meyjametið í kúluvarpi um 55 sentímetra þegar hún kastaði 13,66 metra á frjálsíþróttamóti í Kaplakrika í gær. Fimm af sex köstum Ragnheiðar voru lengri en gamla metið.

Sport