
Heilbrigðismál

María á sex mánuði eftir ólifaða ef hún fær ekki rétta meðferð
María Guðmundsdóttir, fyrrum landsliðskona og Íslandsmeistari í skíðaíþróttum, greindist nýverið með alvarlegt en á sama tíma mjög sjaldgæft krabbamein. María sem er 28 ára eyddi jólunum á sjúkrahúsi með áður ótúskýrða verki en er nú búinn að fá greiningu.

Yfirgnæfandi meirihluti hlynntur bólusetningum barna
Um sjötíu og fimm prósent landsmanna eru hlynntir því að bólusetja yngsta aldurshópinn, fimm til ellefu ára börn, gegn Covid-19.

Segir trans fólk vanrækt í heilbrigðiskerfinu
Kynleiðréttingaraðgerðir eru lífsnauðsynlegar trans fólki og er þjónusta við það vanrækt í heilbrigðiskerfinu, að mati formanns Trans Ísland.

Blóðbirgðir komnar niður fyrir öryggismörk í Blóðbankanum
Síðustu þrír mánuðir hafa verið erfiðir hjá Blóðbankanum og eru öryggisbirgðir blóðs nú undir viðmiðunarmörkum. Hlutfallslega færri konur gefa blóð hérlendis en í nágrannalöndunum og telur bankinn þar leynast mikilvægt sóknarfæri til framtíðar.

Geiri X greinir frá hrottalegu kynferðislegu ofbeldi sem hann hefur mátt sæta
Ljósmyndarinn Ásgeir Ásgeirsson, sem gengur undir listamannsnafninu GeiriX, birti sláandi frásögn á Facebook-síðu sinni, þar sem greint er frá kynferðisofbeldi sem hann segist hafa mátt sæta. Um er að ræða þrjár árásir sem hann varð fyrir á yngri árum.

Þóra Kristín býður sig fram til formennsku hjá SÁÁ
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku hjá SÁÁ. Hún segir eitraða karlmennsku í bland við aukna neyslu harðari efnu gera konur útsettar fyrir ofbeldi.

Börn skila sér illa til tannlækna
Tannlæknar hafa verulegar áhyggjur af því að þúsundir barna skili sér ekki í reglulegt eftirlit til tannlækna. Á sama tíma eru tannlækningar barna ókeypis fyrir utan árlegt 2.500 krónu komugjald sem greitt er einu sinni á 12 mánaða tímabili.

Gagnrýnir harðlega atburðarás í máli hjúkrunarfræðings
Tómas Guðbjartsson læknir segir illskiljanlegt að atburðarás í máli Ástu Kristínar Andrésdóttur hjúkrunarfræðings, sem sýknuð var af ákæru um gáleysi í starfi, hafi raungerst. Heilbrigðisstarfsfólk standi illa að vígi og sé jafnan óvarið fyrir óvæginni umfjöllun.

Berskjaldað heilbrigðisstarfsfólk - sem aldrei fyrr
Líkt og margir aðrir las ég með athygli viðtal sem nýlega birtist við fyrrverandi samstarfskonu mína Ástu Kristínu Andrésdóttur, svæfinga- og gjörgæsluhjúkrunarfræðing. Við höfum þekkst í fjöldamörg ár og unnið náið saman, bæði í hjartaaðgerðum á stofu 5 og á gjörgæsludeildinni við Hringbraut.

Ber engin skylda til að upplýsa um einstaka smit í bekkjum
Skólastjórnendum ber engin skylda til að upplýsa forráðamenn barna um hvort að Covid-19 smit hafi komið upp í viðkomandi bekk eða árgangi. Í Reykjavík er mælst til þess að uppýsingagjöf skólastjórnenda sé áþekk því sem þekkist þegar flensa, lús eða njálgur gengur yfir.

Ánetjaðist ópíóíðum til að losna við krónískan sársaukann
Kona sem var greind með endómetríósu um tvítugt hafði enga aðra leið til að lina sársaukann en að nota morfínlyf í fjölda ára. Hún notaði stóra skammta af Parkódín Forte, Tramól, Oxycontin og Ketógan, en þurfti á endanum að fara í meðferð til að hætta. Krónískir verkjasjúklingar þurfa oft að nota sterka ópíóíða árum saman í bið eftir aðgerð eða greiningu.

Þingmenn krefjast viðbragða stjórnvalda vegna ofneyslu ópíóíða
Þingmenn tveggja stjórnarandstöðuflokka ræddu á Alþingi hinn nýja ópíóíðafaraldur undir dagskrárliðnum störfum þingsins. Þingmaður Pírata segir notkun ávanabindandi lyfja á Íslandi svo mikla, eins og fram hefur komið í fréttum, að stjórnvöld verði að grípa til aðgerða strax. Þingmaður Flokks fólksins segir biðlista eftir aðgerðum einn aðal sökudólginn.

Segir frásögn þingmanns um starfsemi SÁÁ byggja á úreltum hugmyndum
Ingunn Hansdóttir, yfirsálfræðingur SÁÁ, hafnar alfarið fullyrðingum þingmanns Vinstri grænna um að ófagleg vinnubrögð hafi fengið að viðgangast innan samtakanna. Hún segir allt meðferðarstarf byggja á gagnreyndum aðferðum og segir miklar breytingar hafa orðið á síðustu árum.

Geð- og atferlisraskanir sjötta algengasta dánarorsök Íslendinga
Árið 2020 létust 106 einstaklingar hér á landi þar sem dánarorsök var skilgreind sem geð- og atferlisröskun. Geð- og atferlisraskanir eru þar með sjötta algengasta dánarorsök Íslendinga samkvæmt tölum frá Embætti landlæknis. Sama ár létust 47 einstaklingar vegna sjálfsvíga og 37 vegna lyfjanotkunar.

Biðtíminn styttist eitthvað en fyrri yfirlýsingar „alls ekki raunhæfar“
Landspítalinn mun hefja rannsóknir á leghálssýnum um næstu mánaðamót. Yfirlæknir Samhæfingarstöð krabbameinsskimana segir biðtímann eftir svörum mögulega munu styttast en fyrirheit sem gefin voru þegar skimanirnar fluttust frá Krabbameinsfélaginu hafi ekki verið raunhæf.

3.000 Íslendingar fá ávísað mörgum ávanabindandi lyfjum á sama tíma
Aldrei hafa fleiri Íslendingar leyst út jafn margar tegundir af ávanabindandi lyfjum heldur en í fyrra. Íslenskur almenningur notar sömuleiðis mun meira af tauga- og geðlyfjum en fólk annars staðar á Norðurlöndum.

Þúsundir í einangrun með óvirkt smit?
Ég spurði heilbrigðisráðherra á Alþingi fyrir fimm dögum hvers vegna staðið væri að skimunum á landamærum og innanlands með mismunandi hætti.

„Ég skal segja þér fréttir úr líkhúsinu“
Þetta er harkaleg fyrirsögn pistils míns en engu að síður fannst mér enn harkalegra að heyra tæplega fertugan vin minn segja þetta við mig á sínum tíma þegar ég spurði hann um daginn og veginn.

Vissi ekki af vændiskaupunum og furðar sig á umfjöllun Stundarinnar
Starfsfólk embættis landlæknis var ekki kunnugt um vændiskaup fráfarandi formanns SÁÁ. Talsmaður embættisins furðar sig á að það sé dregið inn í þetta mál í umfjöllun Stundarinnar.

Íslendingar nota mest af hættulegum lyfjum
Íslendingar nota langmest af tauga- og geðlyfjum af öllum Norðurlandaþjóðunum. Fíknigeðlæknir segir það séríslenskt, og mjög banvænt, að blanda saman mörgum ávanabindandi lyfjum en halda sig ekki við eitt kjörefni. Þetta gerir afeitrun og meðferð sömuleiðis flóknari og fólk fellur frekar vegna þess að freistingarnar eru út um allt.

Nýr ópíóíðafaraldur: „Í stöðugri lífshættu nokkrum sinnum á dag”
Tuttugu og eitt þúsund Íslendingar eru langtímanotendur ávanabindandi lyfja. Lyfjatengd andlát eru algengust á Íslandi af Norðurlöndunum og hafa þau aldrei verið fleiri en á fyrri helming síðasta árs.

Margfalt fleiri nota Oxycontin nú en fyrir tíu árum
Um 3.500 manns eru nú skráðir neytendur ópíóíðans Oxycontin. Þeir voru um 500 fyrir áratug. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs.

Fimm „vel hæfir“ umsækjendur verið teknir í viðtöl í ráðuneytinu
Fimm umsækjendur um stöðu forstjóra Landspítala, sem taldir eru „vel hæfir“ af hæfnisnefnd, hafa verið teknir í viðtöl í heilbrigðisráðuneytinu. Ekki er útilokað að fleiri viðtöl verði tekin svo ráðningarferlinu er ekki lokið.

Willum stefnir á eigið frumvarp um neysluskammta
Heilbrigðisráðherra stefnir á að leggja fram eigið frumvarp um lögleiðingu neysluskammta ávana- og fíkniefna á yfirstandandi þingi. Þó komi til greina að semja um innihald frumvarps sem þingflokksformaður Pírata mælti fyrir á Alþingi í vikunni.

Skoða nú allar mögulegar afléttingar
Heilbrigðisyfirvöld skoða nú, í samráði við sóttvarnalækni, allar mögulegar afléttingar með hliðsjón af skynsemi og öryggi.

Hvert er verkefnið – leiðin út
Heilbrigðiskerfið okkar stendur nú í ströngu við að takast á við enn eitt afbrigði Covid-19 veirunnar – ómikron. Covid-19 innlagnir og eftirköst veikinda kalla á tvöfalda umönnun auk þess sem heilbrigðisstofnanir verða að vera í stakk búnar til að sinna bráðum veikindum og slysum sem eru ótengd Covid-19.

Kæmi Kára ekki á óvart ef innan skamms yrði hætt að beita einangrun og sóttkví
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að það muni ekki sér á óvart ef að innan skamms verði hætt að beita sóttkví og einangrun til að hemja kórónuveirufaraldurinn. Ómíkronafbrigðið valdi annars konar sjúkdómi en önnur afbrigði veirunnar.

Rándýr stóll Góða hirðisins loksins kominn með heimili
Saga rándýra hönnunarstólsins sem var til sölu hjá Góða hirðinum fékk farsælan endi í dag. Stóllinn hefur hlotið sannkallaða yfirhalningu og var í dag gefinn til góðgerðasamtaka.

Nýtt lyf gegn arfgengu heilblæðingunni gæti einnig nýst Alzheimer-sjúklingum
Til stendur að rannsaka hvort nýtt lyf sem er í þróun í tengslum við arfgengu íslensku heilablæðinguna gagnist einnig þeim sem þjást af Alzheimer-sjúkdómnum.

Segir Sjúkratryggingar stilla talmeinafræðingum upp við vegg
Sjúkratryggingar Íslands munu fella tveggja ára starfsreynsluákvæði úr samningi við talmeinafræðinga og verður núgildandi samningur framlengdur um sex mánuði, án ákvæðisins, og sá tími nýttur til að fara mál á borð við forgangsröðun. Formaður Félags talmeinafræðinga segist upplifa það að þeim sé stillt upp við vegg en forstjóri Sjúkratrygginga segir mikilvægt að ræða og tryggja gæði þjónustunnar.